Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Mávarnir á Tjörninni
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Pages: 1, 2
KSK

Það mun hafa verið fyrir 31 ári að lögreglan skaut mink við Tjörnina í Reykjavík. Benti ég á það í Dagblaðinu með grein hvaða hættuspil það væri að vera freta úr skotvopnum inn í miðjum bæ. Ábending mín var í þá veru að ef byssukúla lendir í vatni getur hún þeyst í hvaða átt sem er á hérumbil sama hraða og hún lenti á vatninu.

Þannig eru allir sem eru í skotfæri við Tjörnina í raunverulegri lífshættu á meðan þessir skotvargar ganga lausir.

Hrafnkell Daníels
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 22:44) [snapback]1152942[/snapback]

Greinilegt að þú veist ekkert um skotvopn.
Victor Laszlo
Mikið guðs lifandi skelfing mætti stúta öllum mávum sem létu sér detta í hug að koma nálægt tjörninni.
ugla
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 22:44) [snapback]1152942[/snapback]
Það mun hafa verið fyrir 31 ári að lögreglan skaut mink við Tjörnina í Reykjavík. Benti ég á það í Dagblaðinu með grein hvaða hættuspil það væri að vera freta úr skotvopnum inn í miðjum bæ. Ábending mín var í þá veru að ef byssukúla lendir í vatni getur hún þeyst í hvaða átt sem er á hérumbil sama hraða og hún lenti á vatninu.

Þannig eru allir sem eru í skotfæri við Tjörnina í raunverulegri lífshættu á meðan þessir skotvargar ganga lausir.

Venjulega eru notuð lítil haglabyssa, sem skotin eru algerlega skaðlaus á sirka 30 metrum.

Kv.

KSK
QUOTE(Hrafnkell Daníels @ May 29 2007, 23:47) [snapback]1152945[/snapback]
Greinilegt að þú veist ekkert um skotvopn.

Ertu að meina að kúlan sé í bandi sem notuð er við Tjörnina, það er allt í lagi nema ef bandið slitnar.
Gabbler
Já eru það ekki bara riffil, skambyssu eða slug skot sem geta fleytt kerlingar?
KSK
QUOTE(ugla @ May 29 2007, 23:51) [snapback]1152950[/snapback]
Venjulega eru notuð lítil haglabyssa, sem skotin eru algerlega skaðlaus á sirka 30 metrum.

Kv.

Er ekki erfitt að hafa öll höglin í bandi??
Hrafnkell Daníels
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 22:51) [snapback]1152951[/snapback]
Ertu að meina að kúlan sé í bandi sem notuð er við Tjörnina, það er allt í lagi nema ef bandið slitnar.

Ugla lýsir nokkurn vegin rétt hér að ofan.
Þetta eru lítil og fá högl sem dreifast mikið á stuttri vegalengd, 30 til 70 metrar og eru banvænir fyrir fugla á því færi.
Skotnir á lofti þannig að það veldur ekki nokkurri hættu fyrir fólk.
KSK
QUOTE(Hrafnkell Daníels @ May 29 2007, 23:54) [snapback]1152955[/snapback]
Ugla lýsir nokkurn vegin rétt hér að ofan.
Þetta eru lítil og fá högl sem dreifast mikið á stuttri vegalengd, 30 til 70 metrar og eru banvænir fyrir fugla á því færi.
Skotnir á lofti þannig að það veldur ekki nokkurri hættu fyrir fólk.

það kom fram í fréttum að mávarnir hefðu verið plataðir með brauði, skotmennirnir hafa þá verið fljúgandi líkt og mávarnir, því miður kom það ekki fram í fréttinni.

Ef þú hefur vit á skotvopnum þá átt þú að vita að kúla sem fer upp kemur á sömu ferð niður og hún lagði af stað þótt hún fari í fleigboga. Sé skotmaður á flugi eins og í þessu tilviki kemur hún niður á jörð á enn meiri hraða.
Gabbler
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 1:00) [snapback]1152959[/snapback]
það kom fram í fréttum að mávarnir hefðu verið plataðir með brauði, skotmennirnir hafa þá verið fljúgandi líkt og mávarnir, því miður kom það ekki fram í fréttinni.

Ef þú hefur vit á skotvopnum þá átt þú að vita að kúla sem fer upp kemur á sömu ferð niður og hún lagði af stað þótt hún fari í fleigboga. Sé skotmaður á flugi eins og í þessu tilniki kemur hún niður á jörð á enn meiri hraða.
Þetta er alrangt, þessi speki þín gildir bara í lofttæmi. þú verður að reikna með loftmótstöðu, og þá sérðu að þessi kenning þín heldur ekki vatni.

Hrafnkell Daníels
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 23:00) [snapback]1152959[/snapback]
það kom fram í fréttum að mávarnir hefðu verið plataðir með brauði, skotmennirnir hafa þá verið fljúgandi líkt og mávarnir, því miður kom það ekki fram í fréttinni.

Ef þú hefur vit á skotvopnum þá átt þú að vita að kúla sem fer upp kemur á sömu ferð niður og hún lagði af stað þótt hún fari í fleigboga. Sé skotmaður á flugi eins og í þessu tilviki kemur hún niður á jörð á enn meiri hraða.

Enn og aftur.
Þú hefur greinilega ekkert vit á skotvopnum og ættir í raun ekki að tjá þig um þessi mál þar sem þú gerir þig bara að fífli með því.
KSK
QUOTE(Gabbler @ May 30 2007, 0:02) [snapback]1152960[/snapback]
Þetta er alrangt, þessi speki þín gildir bara í lofttæmi. þú verður að reikna með loftmótstöðu, og þá sérðu að þessi kenning þín heldur ekki vatni.

Ekki gera þig að meira fífli en þú ert. Loftmótstaða skiptir ekki neinu máli þegar hlutur er á svona lítilli ferð, kúlan er samt banvæn eins og margsannað er þegar múslimar eru að freta úr hríðskotabyssum upp í loftið.

Hrafnkell Daníels
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 23:06) [snapback]1152963[/snapback]
Ekki gera þig að meira fífli en þú ert. Loftmótstaða skiptir ekki neinu máli þegar hlutur er á svona lítilli ferð, kúlan er samt banvæn eins og margsannað er þegar múslimar eru að freta úr hríðskotabyssum upp í loftið.

Hvað hefur þú oft skotið af byssu?
KSK
QUOTE(Hrafnkell Daníels @ May 30 2007, 0:06) [snapback]1152962[/snapback]
Enn og aftur.
Þú hefur greinilega ekkert vit á skotvopnum og ættir í raun ekki að tjá þig um þessi mál þar sem þú gerir þig bara að fífli með því.

Keli minn það ert þú sem er fíflið í umræðunni. Engin rök hafa komið frá þér.
Gabbler
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 1:06) [snapback]1152963[/snapback]
Ekki gera þig að meira fífli en þú ert. Loftmótstaða skiptir ekki neinu máli þegar hlutur er á svona lítilli ferð, kúlan er samt banvæn eins og margsannað er þegar múslimar eru að freta úr hríðskotabyssum upp í loftið.
Æ ekki þetta kjaftæði vesalingurinn minn.

Það sem skiptir máli þegar hámarkshraði hlutar í frjálsu falli með loftmótstöðu er reiknaður er massinn og loftmótstaðan. Loftmótstaðan eykst ekki í réttu hlutfalli við massann, sem þýðir að eftir því sem kúlan er stærri því minni er hámarkshraðinn. Þetta gildir að sjálfsögðu bara um massífar kúlur.

Það er mjög algengur misskilningur að halda að allir hlutir falli jafn hratt til jarðar.
ugla
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 23:00) [snapback]1152959[/snapback]
það kom fram í fréttum að mávarnir hefðu verið plataðir með brauði, skotmennirnir hafa þá verið fljúgandi líkt og mávarnir, því miður kom það ekki fram í fréttinni.

Ef þú hefur vit á skotvopnum þá átt þú að vita að kúla sem fer upp kemur á sömu ferð niður og hún lagði af stað þótt hún fari í fleigboga. Sé skotmaður á flugi eins og í þessu tilviki kemur hún niður á jörð á enn meiri hraða.

Nei kúlan dettur dauð niður á endanum. Það er mikill munur á upphafnu, þegar hún er sprengd út með púðrinu,
og á þeim punkti sem hún endar.

Ef henni yrði skotið beint upp, þá endar hún á núlli, og fellur niður vegna aðdráttarafls jarðar. Haglél eru sennileg hættulegri
en högl úr lítilli haglabyssu, við þær aðstæður. Sá ekki fréttina, en sá litla haglabyssu hjá meindýraeyði einu sinni,
sem var á stærð eins og stór skambyssa.
Hún var notuð í þessum tilgangi, og í hana voru notuð mjög lítil haglaskot. Sennilega einn þriðji af venjulegri stærð.

Kv.

Butcer
QUOTE(Hrafnkell Daníels @ May 29 2007, 23:06) [snapback]1152962[/snapback]
Enn og aftur.
Þú hefur greinilega ekkert vit á skotvopnum og ættir í raun ekki að tjá þig um þessi mál þar sem þú gerir þig bara að fífli með því.

Fínt mál að losna við máfana og mætti líka fjarlægja þá burt úr hverfinu mínu, einn reyndi að stela 1eins lítra sól(appelsínudjús) dúnki af svölunum hjá mér, gekk ekkert voða vel hjá honum reyndar LOL.gif
Hrafnkell Daníels
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 23:07) [snapback]1152966[/snapback]
Keli minn það ert þú sem er fíflið í umræðunni. Engin rök hafa komið frá þér.

Ekki hafa nú rökin komið frá þér.
Aðeins innantómt kjaftæði sem einkennir þá sem hafa ekki hundsvit á skotvopnum eða hvernig högl dreifa sér.
Í þessu tilfelli eru notuð létthögl sem er mjög lítil og dreifa sér mikið á stuttu færi og þar af leiðandi svo gott sem hættulaus þegar færið er komið yfir 70 80 metra.
Einnig eru mávarnir skotnir í horni sem er meira en 60° frá láréttu horni þannig að þetta dregur ekki yfir tjörnina einu sinni.
Þau högl sem fara fram hjá fuglinum detta dauð niður í vatnið.
ugla
QUOTE(Butcer @ May 29 2007, 23:13) [snapback]1152975[/snapback]
Fínt mál að losna við máfana og mætti líka fjarlægja þá burt úr hverfinu mínu, einn reyndi að stela 1eins lítra sól(appelsínudjús) dúnki af svölunum hjá mér, gekk ekkert voða vel hjá honum reyndar LOL.gif

Er ekki tími kominn á víkingasveitina?

KSK
QUOTE(Gabbler @ May 30 2007, 0:10) [snapback]1152971[/snapback]
Æ ekki þetta kjaftæði vesalingurinn minn.

Það sem skiptir máli þegar hámarkshraði hlutar í frjálsu falli með loftmótstöðu er reiknaður er massinn og loftmótstaðan. Loftmótstaðan eykst ekki í réttu hlutfalli við massann, sem þýðir að eftir því sem kúlan er stærri því minni er hámarkshraðinn. Þetta gildir að sjálfsögðu bara um massífar kúlur.

Það er mjög algengur misskilningur að halda að allir hlutir falli jafn hratt til jarðar.

Hvaða hraða nær byssukúla við að falla í lofti? Áhvaða hraða er hún þegar loftmótstaðan er jöfn massa hennar? Er kanske óhætt að vera undir með hvirfilinn?

Svaraðu þessu!
ugla
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 23:18) [snapback]1152980[/snapback]
Hvaða hraða nær byssukúla við að falla í lofti? Áhvaða hraða er hún þegar loftmótstaðan er jöfn massa hennar? Er kanske óhætt að vera undir með hvirfilinn?

Svaraðu þessu!

Skot úr riffli sem dregur einhverja kílómetra yrði auðvitað banvænt. Gaman væri ef einhver sem þekkir þessar litlu haglabyssur,
og skotin í þær, að hann skýrði málið. Það eru mismunandi stórar púðurhleðslur í haglaskotum, og með stuttu hlaupi,
eru þau sennilega ekki virk, nema á 15 - 30 metrum, giska ég.

Kv.

Spaði
QUOTE(KSK @ May 29 2007, 22:44) [snapback]1152942[/snapback]
Það mun hafa verið fyrir 31 ári að lögreglan skaut mink við Tjörnina í Reykjavík. Benti ég á það í Dagblaðinu með grein hvaða hættuspil það væri að vera freta úr skotvopnum inn í miðjum bæ. Ábending mín var í þá veru að ef byssukúla lendir í vatni getur hún þeyst í hvaða átt sem er á hérumbil sama hraða og hún lenti á vatninu.

Þannig eru allir sem eru í skotfæri við Tjörnina í raunverulegri lífshættu á meðan þessir skotvargar ganga lausir.

Það mun hafa verið fyrir 112 árum, sem lögreglan skaut óðan hund austan við læk. Benti ég á það með grein í Þjóðólfi hvað væri hættulegt að Þorvaldur pólitík væri að skjóta úr framhlaðningi hér í kaupstaðnum, þar sem fólk kynni að vera að vinnu við heyskap á túnum sínum.
ugla
QUOTE(Spaði @ May 29 2007, 23:32) [snapback]1152993[/snapback]
Það mun hafa verið fyrir 112 árum, sem lögreglan skaut óðan hund austan við læk. Benti ég á það með grein í Þjóðólfi hvað væri hættulegt að Þorvaldur pólitík væri að skjóta úr framhlaðningi hér í kaupstaðnum, þar sem fólk kynni að vera að vinnu við heyskap á túnum sínum.

Fyrir sennilega um 35 árum síðan, gerðist það að bóndi í Fossvognum fékk kúlu í höfuðið og lést, eftir að
ungir menn höfðu verið að skjóta ofan í læk með riffli. Ég fékk ekki að skrifa um það í skólablaðinu.

Ingimundur Kjarval
QUOTE(Gabbler @ May 30 2007, 0:10) [snapback]1152971[/snapback]
Æ ekki þetta kjaftæði vesalingurinn minn.

Það sem skiptir máli þegar hámarkshraði hlutar í frjálsu falli með loftmótstöðu er reiknaður er massinn og loftmótstaðan. Loftmótstaðan eykst ekki í réttu hlutfalli við massann, sem þýðir að eftir því sem kúlan er stærri því minni er hámarkshraðinn. Þetta gildir að sjálfsögðu bara um massífar kúlur.

Það er mjög algengur misskilningur að halda að allir hlutir falli jafn hratt til jarðar.

Hvort er þyngra, hálft kíló af besta æðadún eða hálft kíló að blýi?
Victor Laszlo
QUOTE(Ingimundur Kjarval @ May 30 2007, 1:43) [snapback]1153044[/snapback]
Hvort er þyngra, hálft kíló af besta æðadún eða hálft kíló að blýi?
Æðadún er aðeins 0.00001% af þyngd blýs, þannig að þú hefur rangt fyrir þér en ég rétt.
Gorgon
Þetta er fáránleg umræða (eingöngu sökum bullsins í þráðarhefjanda, reyndar) sem ég nenni vart að blanda mér inn í, en verð þó að hlæja yfir þeirri hugmynd KSK að byssukúla komi niður með sama hraða og hún fer upp. Eins og Gabbler bendir á, þá fer hún ekki að detta fyrr en hraði hennar upp á við er orðinn enginn. Eftir það er hröðun hennar niður á við 9,82 m/s^2, vegna þyngdarafls Jarðar sem tekur þá við. Þó við gefum okkur að hún sé heilar 10 sekúndur að detta, þá verður hraði hennar (ef ekki er tekið tillit til loftmótstöðu) ekki nema 98,2 m/s þegar hún lendir. Byssukúlur fara úr hlaupinu á allra minnst um 300 m/s hraða, þannig að þessi hraði er engan veginn sá sami og hraði kúlunnar upp á við. Þetta er bara einföld grunnskólaeðlisfræði, og fáránlegt hjá manni sem veit augljóslega ekkert um eðlisfræði að þykjast vita betur. Ég mun taka öllum frekari athugasemdum frá KSK um eðlisfræði sem tröllaskap. Hið sama gildir um athugasemdir hans um eðli skotvopna, sem ég þekki minna, en ég treysti öðrum til að vita það betur. Alla vega skil ég að haglabyssur hafa mjög stutt færi - það ættu allir að vita.
KSK
QUOTE(Gorgon @ May 30 2007, 11:38) [snapback]1153075[/snapback]

Ég hef ekki haldið fram að kúlan komi niður á sama hraða, en hef haldið að hraði hennar sé svo mikill að sá sem fyrir henni yrði getur hlotið bana af. Kúla úr venjulegum riffli fer út um hlaupið á 800 til 1000 m/sek, hún getur náð 2500 m hæð. Lokahraði kúlu sem fellur í lofti getur orðið 80 til 110 m/sek. Mundir þú vilja vera undir? Er á þeim grunvelli óhætt að skjóta upp í loftið í þéttbýli að ganni?
Nei.

Kúla sem lendir á vatni á 800 m/sek. hægir nægilega lítið á sér ef hún endurkastast til að drepa mann sem ekki var miðað á. Er þá óhætt að halda skotkeppni hringin í kringum Tjörnina af því að hálfvitar segja það óhætt? Nei.

Þeir sem hafa andmælt mér hér ættu ekki að koma nálægt skotvopnum.

Laplace
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 11:57) [snapback]1153093[/snapback]

Þú ert að tala um riffilkúlu.. Það er stór munur á því og hagli..
bjargvætturinn
Mér finnst þetta skrítin umræða. Ég hef ekkert orðið var við máfaveiðar við Tjörnina, en hinsvegar hefur verið talsverð skothríð við höfnina og enn meiri í fyrra.
Neddi
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 11:57) [snapback]1153093[/snapback]
Ég hef ekki haldið fram að kúlan komi niður á sama hraða, en hef haldið að hraði hennar sé svo mikill að sá sem fyrir henni yrði getur hlotið bana af. Kúla úr venjulegum riffli fer út um hlaupið á 800 til 1000 m/sek, hún getur náð 2500 m hæð. Lokahraði kúlu sem fellur í lofti getur orðið 80 til 110 m/sek. Mundir þú vilja vera undir? Er á þeim grunvelli óhætt að skjóta upp í loftið í þéttbýli að ganni?
Nei.

Kúla sem lendir á vatni á 800 m/sek. hægir nægilega lítið á sér ef hún endurkastast til að drepa mann sem ekki var miðað á. Er þá óhætt að halda skotkeppni hringin í kringum Tjörnina af því að hálfvitar segja það óhætt? Nei.

Þeir sem hafa andmælt mér hér ættu ekki að koma nálægt skotvopnum.

En til að riffilkúla nái að fleyta kellingar á vatninu má halli byssunnar ekki vera mikil eða aðeins örfáar gráður.
Ef skotið er hins vegar niður í vatnið með ákveðnum halla (man reyndar ekki gráðuna í augnablikinu) þá missir kúlan það mikinn hraða á það stuttum tíma að hún er orðin hættulaus eftir hálfan til einn metra.

Haglabyssa er hins vegar virkust á 30-70 metrum og er orðin mjög hættulítil þegar að færið er orðið 150 - 200 metrar ef minnið bregst mér ekki (þarf að fletta því upp í kvöld).
KSK
QUOTE(Laplace @ May 30 2007, 13:15) [snapback]1153098[/snapback]
Þú ert að tala um riffilkúlu.. Það er stór munur á því og hagli..

QUOTE(Neddi @ May 30 2007, 14:04) [snapback]1153109[/snapback]
En til að riffilkúla nái að fleyta kellingar á vatninu má halli byssunnar ekki vera mikil eða aðeins örfáar gráður.
Ef skotið er hins vegar niður í vatnið með ákveðnum halla (man reyndar ekki gráðuna í augnablikinu) þá missir kúlan það mikinn hraða á það stuttum tíma að hún er orðin hættulaus eftir hálfan til einn metra.

Haglabyssa er hins vegar virkust á 30-70 metrum og er orðin mjög hættulítil þegar að færið er orðið 150 - 200 metrar ef minnið bregst mér ekki (þarf að fletta því upp í kvöld).

Samkvæmt þessu og fleiru eru skotvopn ekki hættuleg. Menn sem tala svona ættu ekki að koma afturfyrir byssu, mega mín vegna vera fyrir framan enda hættulaust að þeirra mati.
jóhann jóhannsson
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 13:10) [snapback]1153112[/snapback]

Haglabyssa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fara á: flakk, leita

Bandarísk Mossberg 590 haglapumpaHaglabyssa er hlaupvítt handskotvopn, sem skýtur mörgum höglum í einu skoti. Er öflug á stuttu færi, en skammdræg. Mest notuð við veiðar á fuglum og smærri spendýrum. Haglabyssur eru stundum notaðar af lögreglu og hermönnum til sjálfvarnar, sérstaklega í Bandaríkjunum (á Íslandi má fólk ekki eiga skotvopn til sjálfsvarnar). Tvíhleypa er halgabyssa með tveimur hlaupum, sem halda sitt hvoru skotinu og skjóta má hvort eftir öðru. Eru ýmist með hlaupin samsíða eða undir og yfir hvort öðru. Haglapumpur eru haglabyssur sem hlaðnar eru nokkrum skotum sem skjóta má í röð með því að spenna byssuna eftir hvert skot, en þá kastast jafnframt notaða skothylkið út úr byssunni.

http://is.wikipedia.org/wiki/Skotvopn

Þetta eru algengustu fuglaskotin. Federal Premium Wing Shok haglaskot

Federal Premium Wing Shok haglaskot. 2 3/4" skot með 42,5 gr. hleðslu. Hraði 1315 fps. 25 stk. í pakka.

Fáanlegt í stærðum 4 og 6. Haglafjöldi u.þ.b. 202 í 4 og 255 í 6.

Þessi hleðsla er algengust við veiðar þar sem fuglar eru skotnir á flugi, mikil dreyfing.

Butcer
QUOTE(jóhann jóhannsson @ May 30 2007, 15:01) [snapback]1153134[/snapback]

Það er nátturlega fáranlegt að þú mátt ekki verja þig gegn innbrotsþjófum og þannig liði
Neddi
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 13:10) [snapback]1153112[/snapback]
Samkvæmt þessu og fleiru eru skotvopn ekki hættuleg. Menn sem tala svona ættu ekki að koma afturfyrir byssu, mega mín vegna vera fyrir framan enda hættulaust að þeirra mati.

Bíddu nú aðeins hægur. Er ég að segja að skotvopn séu ekki hættuleg? Þú ert nú meiri kjáninn.

Skotvopn eru stórhættuleg en við vissar aðstæður lágmarkast hættan, eins og t.d. með fjarlægð ef um haglabyssu er að ræða.
Ef þú hefur prófað að skjóta úr haglabyssu þá veistu þetta. Ástæðan fyrir þessu er ekki síst dreifing haglanna og eftir því sem að fjarlægðin verður meiri þeim mun dreifðari verða höglin. Þannig er t.d. einna besta færið við rjúpnaveiðar 30-50 metrar. Eftir það er nánast vonlaust að drepa fuglinn og því ekki ráðlagt að skjóta. Þó er hægt að auka drægnina með þrengingum.

Þetta með að rifilkúla endurkastist ekki heldur verður hættulaus í vatni hefur verið sýnt fram á. Eins furðulegt sem það kann að virðast þá eru byssurnar hættuminni, ef skotið er niður í vatnið með ákveðnu, eftir því sem þær eru kraftmeiri. Þannig geturðu verið meter ofan í vatninu og verið öruggur þó að skotið sé á þig með 50 cal sniper rifli.
KSK
QUOTE(Neddi @ May 30 2007, 15:40) [snapback]1153151[/snapback]

"Skotvopn eru stórhættuleg en við vissar aðstæður lágmarkast hættan"
Það er semsagt óhætt að skjóta á allt og alla við "lágmarks" hættu.

Þessar reglur lærði ég td. þegar ég byrjaði að fara með skotvopn:

1. Þú beinir aldrei skotvopni að manni.
2. Þú skítur aldrei yfir hæð.
3. Þú hefur aldrei hlaðna byssu á öxl.
4. Þú skítur aldrei í vatn nema engin skepna sé sjáanleg í 180°.
5. Skotvopn á ekki að nota í þéttbýli.
6. Þú ferð aldrei inn í hús með hlaðna byssu.

Skotvopn eru hættuleg, minni manna og athygli er brigðul.

Að lokum það á ekki vegna hættu og hefur engan tilgang að beita skotvopnum á fugla við Tjörnina

Spanni
Alltaf óborganlega fyndið þegar fólk sem ekki hefur rassg... vit á málefninu, stofna til umræðna hér.
Slíkt á við um KSK.
En þá er líka hið besta mál að fræða slíka einstaklinga, þannig að þeir vaði ekki í villu um alla eilífð.

Já, haglaskot eru nánast hættulaus, eftir að vissri fjarlægð er náð. Sjálfur lenti ég í því fyrir nokkrum árum að ganga inn í skotlínu hjá aðilia sem var að skjóta á kolvitlausum stað á skotæfingasvæðinu sem var í Leirdal. Vissulega var manni brugðið, en þetta var svipað eins og einhver hefði hent lúkufylli af fíngerðri möl yfir mig úr 10 m. fjarlælgð. Í þessu tilfelli var skotmaðurinn í um 200m fjarlægð, en á slíku færi eru haglaskot orðin algjörlega hættulaus. Eins og nærri má geta, fékk þessi ábyrgðarlausi skotmaður yfir sig miklar skammir fyrir vikið og ég held að hann hafi verið gerður útlægur af svæðinu í kjölfarið. Enginn heilvita maður leikur sér að því að miða á fólk í þeirri vissu að höglin séu skaðlaus.

Varðandi skothríðina við tjörnina, er þarna um að ræða algjörlega hættulaust athæfi fyrir fólk, sé rétt að farið. Vanir skotmenn, sem miða hátt og gæta þess að í skotlínunni sé ekkert sem getur orðið fyrir skaða. Það sem ég sá í sjónvarpinu í gær, flokka ég undir fyrirmyndarvinnubrögð og hann skaut helv. vel. Haglaskot eru þannig löguð, að þau endarkastast nánast ekkert af vatni, þó svo að lágt sé miðað eins og þegar særður fugl fær náðarskotið, eins og sýnt var í gær. Haglaskot eru kúlur í þess orðs fyllstu merkingu. Lögun þeirra og tiltölulega lítill hraði m.v. byssukúlur veldur því að höglin falla nánast beint til botns m.v. þann stað sem þau skella á vatni og hraðaminnkun þeirra skota sem hugsanlega fleyta kerlingar veldur því að þau falla aftur niður innan örfárra metra.

Því myndi ég óhræddur standa við bakkann hinum megin við tjörnina, þegar meindýraeyðir væri þar að sinna sínum þörfu verkum.
KSK
QUOTE(Spanni @ May 30 2007, 16:15) [snapback]1153163[/snapback]

Það ætti að sjálfsögðu að reka mann og svifta skotvopnum sem hugsar svona. "nánast hættulaust".
jóhann jóhannsson
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 15:26) [snapback]1153167[/snapback]
Það ætti að sjálfsögðu að reka mann og svifta skotvopnum sem hugsar svona. "nánast hættulaust".

KSK Hvort er þyngra eitt kíló af blýi eða eitt kíló af dún ?
Afturbatinn

Lítil haglabyssa nr 20 t.d. með léttri hleðslu er varla
til að drepa starra á 20 metra færi.

Auðvitað eru til haglabyssur nr 12 með löngu hlaupi.
Svoleiðis með 3" nitro hleðslu og BB skotum er hættuleg
mönnum myndi ég áætla alveg lágmark 75m,
þá meina ég banvænt.

En gættu að því að t.d. rjúpnaskot með höglum
nr 9 myndu eflaust vera eins og haglél á sama færi.

Neddi
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 15:09) [snapback]1153158[/snapback]

"Skotvopn eru stórhættuleg en við vissar aðstæður lágmarkast hættan"
Það er semsagt óhætt að skjóta á allt og alla við "lágmarks" hættu.
Þessar reglur lærði ég td. þegar ég byrjaði að fara með skotvopn:

1. Þú beinir aldrei skotvopni að manni.
2. Þú skítur aldrei yfir hæð.
3. Þú hefur aldrei hlaðna byssu á öxl.
4. Þú skítur aldrei í vatn nema engin skepna sé sjáanleg í 180°.
5. Skotvopn á ekki að nota í þéttbýli.
6. Þú ferð aldrei inn í hús með hlaðna byssu.

Skotvopn eru hættuleg, minni manna og athygli er brigðul.

Að lokum það á ekki vegna hættu og hefur engan tilgang að beita skotvopnum á fugla við Tjörnina

Ahhh, ég skil. Þú ert viljandi að snúa útúr.

Það hefur enginn nema þú sjálfur sagt það vera óhætt að skjóta á allt og alla við "lágmarks" hættu. Hins vegar er hægt að gera mistök að maður nefni nú ekki blessuð slysin. Við þær aðstæður verður hættan minni eftir sem að fjarlægðin er meiri.

Þessar reglur sem að þú nefnir þarna eru mjög góðar og að sjálfsögðu eiga allir að fara eftir þeim. En stundum myndast bara þær aðstæður að menn brjóta sumar þeirra án þess að ætla sér það.

QUOTE(jóhann jóhannsson @ May 30 2007, 15:42) [snapback]1153172[/snapback]
KSK Hvort er þyngra eitt kíló af blýi eða eitt kíló af dún ?

Prófum það. Látum kíló af hvoru detta á tærnar á KSK og sjáum hvort meiðir meira.
KSK
QUOTE(Afturbatinn @ May 30 2007, 16:47) [snapback]1153175[/snapback]
Lítil haglabyssa nr 20 t.d. með léttri hleðslu er varla
til að drepa starra á 20 metra færi.

Auðvitað eru til haglabyssur nr 12 með löngu hlaupi.
Svoleiðis með 3" nitro hleðslu og BB skotum er hættuleg
mönnum myndi ég áætla alveg lágmark 75m,
þá meina ég banvænt.

En gættu að því að t.d. rjúpnaskot með höglum
nr 9 myndu eflaust vera eins og haglél á sama færi.

Já auðvitað, menn ættu bara að prófa sig áfram, og ættu þeir að bjóða sig fyrstir fram sem telja þetta hættulaust, byrja td. í 75 m. og svo færa sig nær og nær þangað til að.....
Spitfire
Þetta er, að mínu ályti, algerlega ástæðulaus þvættingur hjá KSK. Það verður að nota bæði vopn og eitur til að losna við þessi kvikindi. Er KSK þá að segja mér að ekki megi heldur nota eitur til að halda vargi í skefjum??

KSK
QUOTE(Spitfire @ May 30 2007, 18:16) [snapback]1153204[/snapback]
Þetta er, að mínu ályti, algerlega ástæðulaus þvættingur hjá KSK. Það verður að nota bæði vopn og eitur til að losna við þessi kvikindi. Er KSK þá að segja mér að ekki megi heldur nota eitur til að halda vargi í skefjum??

Ertu að "álykta" um byssur sem skjóta eitri??
Spitfire
QUOTE(KSK @ May 30 2007, 17:19) [snapback]1153206[/snapback]
Ertu að "álykta" um byssur sem skjóta eitri??

Eitt y á vitlausum stað kemur þessari umræðu akkúrat ekkert við wink.gif en lýsir þér kannski best vinurinn að horfa á þetta eina y því þú ert algerlega ráðþrota í þessari umræðu rolleyes.gif
ugla
QUOTE(Gorgon @ May 30 2007, 10:38) [snapback]1153075[/snapback]
Þetta er fáránleg umræða (eingöngu sökum bullsins í þráðarhefjanda, reyndar) sem ég nenni vart að blanda mér inn í, en verð þó að hlæja yfir þeirri hugmynd KSK að byssukúla komi niður með sama hraða og hún fer upp. Eins og Gabbler bendir á, þá fer hún ekki að detta fyrr en hraði hennar upp á við er orðinn enginn. Eftir það er hröðun hennar niður á við 9,82 m/s^2, vegna þyngdarafls Jarðar sem tekur þá við. Þó við gefum okkur að hún sé heilar 10 sekúndur að detta, þá verður hraði hennar (ef ekki er tekið tillit til loftmótstöðu) ekki nema 98,2 m/s þegar hún lendir. Byssukúlur fara úr hlaupinu á allra minnst um 300 m/s hraða, þannig að þessi hraði er engan veginn sá sami og hraði kúlunnar upp á við. Þetta er bara einföld grunnskólaeðlisfræði, og fáránlegt hjá manni sem veit augljóslega ekkert um eðlisfræði að þykjast vita betur. Ég mun taka öllum frekari athugasemdum frá KSK um eðlisfræði sem tröllaskap. Hið sama gildir um athugasemdir hans um eðli skotvopna, sem ég þekki minna, en ég treysti öðrum til að vita það betur. Alla vega skil ég að haglabyssur hafa mjög stutt færi - það ættu allir að vita.

Ég verð að segja að Málverjinn Gorgon er lang flottastur! Takk fyrir enn eitt listaverk orða.

Næst vil ég fá að lesa heila bók. rolleyes.gif

Fyrirgefðu KSK, er ekki að reyna að vera dónalegur við þig, ég bara varð.

Kv.

Spanni
KSK?
Ertu annað hvort svona ofboðslega heimskur eða ólæknanlegur þverhaus?

Mávar hafa verið skotnið af ábyrgum aðilum í þéttbýli í áratugi, án þess að nokkur hafi borið skaða af. (þ.e. aðrir en mávarnir)
Dúfur hafa verið skotnar úr húsum með litlum riflum.
Svona mætti áfram telja.

En Guð hjálpi okkur ef menn sem ekki kynnu að meðhöndla vopn tækju svona að sér.

Ert þú með betri lausn á hvernig haga á eyðingu vargs?
Ef svo er, þá komdu með hana í staðinn fyrir að hanga úti í horni eins og krakki í fýlu?

Mér dettur strax gott ráð í hug.
Fá manneskjur eins og þig niður á tjörn og byrja að tala. Þá efast ég ekki um að vargurinn myndi hrynja niður úr leiðindum, en það versta væri að þú myndir líka stefna fólki í bráða hættu í leiðinni. LOL.gif LOL.gif
El Puerco
Hvað sem allri eðlisfræði lítur, þá er tjörnin yfir 200 metrar á breidd frá Tjarnargötu til Fríkirkjuvegar.
Jafnvel kraftmiklar haglabyssur drífa ekki 200 metra, lengsta vegaleng sem venjuleg haglaskot valda skaða er um 45 metrar.

Heimild:
http://hypertextbook.com/facts/2003/DianaYang.shtml
ugla
QUOTE(Afturbatinn @ May 30 2007, 15:47) [snapback]1153175[/snapback]
Lítil haglabyssa nr 20 t.d. með léttri hleðslu er varla
til að drepa starra á 20 metra færi.

Auðvitað eru til haglabyssur nr 12 með löngu hlaupi.
Svoleiðis með 3" nitro hleðslu og BB skotum er hættuleg
mönnum myndi ég áætla alveg lágmark 75m,
þá meina ég banvænt.

En gættu að því að t.d. rjúpnaskot með höglum
nr 9 myndu eflaust vera eins og haglél á sama færi.

Afturbatinn er með hárrétta skýringu á málefninu. Fuglamorðinginn hefur eflaust notað vopn
eins og hann nefnir nr 20.

Annars eru skot og skotvopn, endalaus frumskógur af allskonar verkfærum.

Kv.

Spanni
Mér sýndist hann nú ekki vera með neina baunabyssu, heldur "fullvaxna" haglabyssu.
Enda þarf slík verkfæri á mávinn. Hann getur verið mjög skotharður.
Sjálfur hef ég setið dálítið fyrir máv á bökkum Hvítár í sumarbústaðalandi fjölskyldunnar.
Þar vorum við orðin svo leið á að sjá mávahópana svífa upp með ánni og týna upp alla unga ár eftir ár.
Þannig að nokkur sumur fór ég austur með hólkinn og náði slatta af varginum.
Þá komst maður að því að það þarf alvöru byssur á þessa fugla.

En þeim fækkaði mikið. Svo var mér tjáð að líklegast hafi þetta alltaf verið sömu fjölskyldurnar sem þarna voru á ferð og við skotmennsku mína hafi ég náð að útrýma þeim og því hafi þetta mynstur þeirra lagst af. Þangað til að nýjir hópar uppgötva þessar veiðilendur síðar.
Afturbatinn
QUOTE(Spanni @ May 30 2007, 22:24) [snapback]1153309[/snapback]

Með fullri virðingu fyrir þínum skothæfileikum;

Góð skytta þarf bæði minni hleðslu og minni högl
heldur en meðal skytta.

Ég hef orðið vitni að ótrúlegum hæfileikum með
skotvopn.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.