Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Öfgahópur ræðst gegn fyrirtæki
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Dr.Zoidberg
Afhverju tekur enginn á því sem feminstar hafa verið að segja undanfarið, sérstaklega þar sem þeir hafa verið að ljúga undanfarna daga og komið með órökstuddar fullyrðingar um fólk og fyrirtæki. Annars eru svona öfgahópar alltaf til leiðinda og vandaræða, sama hvar þeir koma niður.

QUOTE
Öfgahópur réðst gegn röngu fyrirtæki

Hópurinn Earth Liberation Front, sem stóð fyrir skemmdarverkum í Hafnarfirði í janúar, tengist umhverfisverndarsamtökunum EarthFirst, sem hafa unnið skemmdarverk víða um heim í nafni umhverfisverndar. Hópurinn taldi hins vegar að framkvæmdir væru þegar hafnar við stækkun álvers Alcan í Straumsvík.

Í janúar birtist á vef EarthFirst yfirlýsing þess efnis að hópur sem kallar sig Earth Liberation Front, eða ELF, hefði skemmt þrjár vinnuvélar á vegum Alcan og skammstöfun ELF skilin eftir á vinnuskúr.

Í yfirlýsingunni kemur fram að verið sé að stækka verksmiðjuna út í verðmætt hraunlendi án samþykkis bæjarbúa í Hafnarfirði eins og búið hefði verið að lofa. Hópurinn stóð því í þeirri trú að framkvæmdir við stækkunina væru hafnar, en eins og fram kom í morgunfréttum var verið að vinna við skólphreinsistöð í Hafnarfirði. Þá er í lok yfirlýsingarinnar bent á heimasíðu Saving Iceland ef menn vilja frekari upplýsingar um hvernig verið sé að eyðileggja síðustu auðn Evrópu.

Fréttastofa hefur ekki náð í Ólaf Pál Sigurðsson talsmann Saving Iceland til að inna hann eftir tengslum samtakanna við EarthFirst, en framangreind yfirlýsing var einnig birt á heimasíðu Saving Iceland.

EarthFirst birtir reglulega fréttir af skemmdarverkum sem samtökin sjálf, eða hópar sem tengjast þeim, fremja. Sem dæmi er sagt frá því að tuttugu manns á vegum samtakanna heltu olíu yfir náttúrulífsmyndir á málverkasýningu í Bretlandi sem styrkt var af olíufélaginu Shell. Ástæðan var að með því væri fyrirtækið að bæta ímynd sína með styrktarsamningi.

ELF er nokkurs konar neðanjarðarhreyfing ef marka má heimasíðu hópsins. Engin stjórn eða talsmaður er í hópnum og ekkert eiginlegt félagatal. Þá er tekið fram að þeir sem fremji ólöglegt athæfi undir merkjum ELF geri það af eigin hvötum. Enginn hvetji fólkið sérstaklega til þess.

Enn hefur ekki verið upplýst hverjir frömdu skemmdarverkin í Hafnarfirði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Rúv.is
Ibba Sig.
QUOTE (Dr.Zoidberg @ Feb 21 2007, 15:04) *
Afhverju tekur enginn á því sem feminstar hafa verið að segja undanfarið, sérstaklega þar sem þeir hafa verið að ljúga undanfarna daga og komið með órökstuddar fullyrðingar um fólk og fyrirtæki. Annars eru svona öfgahópar alltaf til leiðinda og vandaræða, sama hvar þeir koma niður.


Mikið svakalega áttu bágt vinurinn.
Geita_Pétur
QUOTE (Ibba Sig. @ Feb 21 2007, 22:03) *
Mikið svakalega áttu bágt vinurinn.

Afhverju ætti hann að eiga bágt... Eru femmurnar ekki búnar að vera nokkuð öfgafullar í yfirlýsingum sínum undanfarna daga.

Ef þú vissir það ekki þá telja flestir feministasamtökin vera öfgasamtök
Flestir aðrir sem vilja jafnrétti til handa konum vilja nefnilega ekki kenna sig við feminista
skurkur
Orð í tíma töluð! Ég hef einnig helv. femínistana grunaða að hafa valdið því að þessi febrúarmánuður er sá kaldasti í manna minnum. Þeir eru allstaðar.... ph34r.gif
Dr.Zoidberg
QUOTE (Ibba Sig. @ Feb 21 2007, 22:03) *
Mikið svakalega áttu bágt vinurinn.

Ég hata ekki frelsi til þess að velja, eða jafnrétti kynjana.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.