QUOTE (DeCode @ Dec 26 2006, 4:48)

Kynlíf fólks er þeirra einkamál, ef GJ "misnotaði" 24 ára stúlkuna, hvað er þá hægt að segja um Kompásmenn gagnvart henni að afhjúpa hennar BDSM og framhjáhalds kynlíf með giftum manni gagnvart alþjóð til að hækka áhorf Stöðvar 2. Stúlkan edrú í 6 mán tók þátt í BDSM af frjálsum og fúsum vilja í 2 ár, varla hefur henni leiðst það svo óskaplega, þegar hún treysti GJ í ágúst sl. fyrir 4 millum?
Fjallað var um sl 10 ár hjá GJ Byrginu, ef ákveðnir einstaklingar innan Samhjálpar fengju svipaða skoðun t.d. sl 15 ár, þá kæmi GJ vel út í samanburðinum. Ég hef enga þörf til að afhjúpa þetta fólk, þó finnst mér einkennilegt að eini þráðurinn, sem þú saknaðir á jóladegi var um Byrgið.
Ef við nú gerum ráð fyrir því, að þetta sé alltsaman satt og rétt, sem fram kom í Kompási, þá telurðu semsagt ekkert mikilvægt fyrir fólk (ungar konur sérstaklega) að vita hverju það á von á, ef það ákveður að fara í meðferð í Byrginu? Þú hefur greinilega engan skilning á því, hvað maðurinn er sakaður um? Þér finnst það bara vera hans einkamál þó hann sé að stunda BDSM með berskjölduðum skjólstæðingum sínum? Og kommon - þó það hefði nú bara verið gamla góða trúboðsstellingin með taktföstu hvílubraki, þá væri brotið jafnalvarlegt skilurðu. Ef þú heldur að ung niðurbrotin stúlka, með langa fíkniefnaneyslu að baki sem kemur inn í meðferð, hafi frjálsan vilja í þeim skilningi, þá vona ég að þú farir aldrei að vinna við umönnunarstörf. Allavega ekki innan geð- eða meðferðargeirans...
Hvað Samhjálp varðar, þá hef ég ekki hugmynd um hvað það er sem þú þykist vita um einstaklinga þar innanborðs. Í mínum huga er Samhjálp ekki hafin yfir gagnrýni frekar en nokkur önnur líknarstarfssemi. Ef upp kæmu svipuð mál innan Samhjálpar, yrði ég síðasti maðurinn til að verja það, það skaltu vita...
Ég get ekki sagt að ég hafi verið að deyja úr söknuði, hvorki í dag né í gær. Ekki var ég t.d. að hugsa mikið um Byrgið yfir jólasteikinni, eða þegar ég var að taka upp jólapakkana með börnunum mínum. Áhugi minn á þessari umræðu tengist ekkert Guðmundi Jónssyni sérstaklega, heldur er mér málið kært, svona almennt. Þ.e. að svartir sauðir innan kristna meðferðargeirans séu ekki að koma óorði á þessa tegund meðferðarúrræða...
Ég gæti líka sagt um þig, að mér finnist einkennilegar, þessar skyndilegu aðdróttanir þínar gagnvart einhverjum óræðum einstaklingum innan Samhjálpar, eða starfsseminni sem slíkri. Samhjálp hefur starfað núna í bráðum 34 ár og mér vitanlega aldrei verið milli tannanna á fólki. Af hverju ætli það sé..?