Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Enn eitt kjaftæðið debunkað.
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Ýmislegt > Umræður um 9/11
Gabbler
Enn eitt kjaftæðið debunkað.

Menn hafa verið að segja að þessi mynd sýni allt annað en reyk eftir flugvélaóhapp, og menn hafa verið að halda því fram að þetta sé feikað (photoshoppað) eða jafnvel sé mynd af sprengjureyk. En nú fyrir ekki svo löngu þá hrapaði flugvél á Ítalíu, nánar tiltekið 13 ágúst 2006 í Piacenza.

Ef reykurinn frá því flugvélaóhappi er borið saman við það sem gerðist 9/11 þá kemur í ljós að þetta passar bara nokkuð vel...

[attachmentid=26699]

Þið getið lesið betur um þetta á þessu PDF skjali.

[attachmentid=26700]

Nú fer ekki að verða mikið eftir, enda tekur maður eftir því að þetta er alveg að deyja út. Það styttist í að jafnvel verði hægt að fara að ræða það sem skiptir máli í 9/11 atburðunum.

Kveðja.
Geita_Pétur
Nákvæmlega!
Ég hef reyndar ekki kíkt inn á 9/11 umræðurnar í nokkrun tíma fékk nóg þegar Broddi litli fór að tala um feikaða flugvél í wtc.

Það hefur sýnt sig að málflutningur samsærisinna er mjög oft tekinn úr samhengi dugir að nefna APU mótorinn sem samsærisinnar sögðu vera sönnun þess að minni flugvél en B757 hefði farið í pentagon og eru mörg önnur dæmi þar sem þeir taka einstakan atburð sem hægt er að gera tortryggilegan einan og sér en passar svo fullkomlega í atburðarásina sé hún skoðuð í samhengi.
Gabbler
Einmitt GP.

En þetta virðist vera orðið dautt hér. Það var ágætt að hafa loksins (kannski, vonandi) drepið niður þennan samsærisdraug, kominn var tími til.

Nú er kannski hægt að ræða þessi mál í friði og án þess að blanda einhverjum kjánalegum kenningum í umræðuna.

Kveðja.
Grasi
QUOTE(Gabbler @ Nov 16 2006, 10:44) [snapback]1054164[/snapback]

Einmitt GP.

En þetta virðist vera orðið dautt hér. Það var ágætt að hafa loksins (kannski, vonandi) drepið niður þennan samsærisdraug, kominn var tími til.

Nú er kannski hægt að ræða þessi mál í friði og án þess að blanda einhverjum kjánalegum kenningum í umræðuna.

Kveðja.

Held það sé nokkuð stórt upp í sig tekið Gabbler.

það er frekar háðungin og leiðindin (sem við/þið eruð flestir sekir um) hafi kæft umræðuna, ásamt væli í stjórnendum.

Ekki beint eitthvað til að vera stoltur af, er það nokkuð Gabbler wink.gif

Kveðja
grasi
Gabbler
Fyndið, þetta er það sama og ég sagði við Frú Gabbler í gær:

"Nú held ég að þú sért nú að taka svolítið stórt uppí þig."

En það er önnur saga.

Nei veistu, ég held þetta sé ekki rétt hjá þér. Mér finnst ákveðinn "sigur" hafa náðst í þessu máli. Þeir sem ég (við) vorum að ræða við tóku upp aðferðir, í örvæntingu, sem samrýmast ekki reglum spjallborðsins og ekki almennum "reglum" þegar mál eru rökrædd. Og þeir uppskáru eins og þeir sáðu... orsök-afleiðing.

Þannig sé ég þetta.

Stoltur? Nei ég er ekki stoltur að hafa "unnið" á formsgalla, það hefði verið skemmtilegra ef andstæðingurinn hefði bara játað sig sigraðann á heiðarlegann hátt. Það hefði vissulega verið skemmtilegra og allir væru þá líklega vinir í dag. En þar sem hinn aðilinn ákvað að fara þessa leið þá get ég lítið að því gert.

kveðja.

Langar aðeins til að bæta við.

Satan er greinilega mjög vanur "flame war" náungi og var það þegar hann byrjaði hér. Þegar ég byrjaði að spjalla á málefnum þá hafði ég ekki mikla reynslu, en ég lærði fljótt hvernig maður á að taka á svona körlum.

Flame war er nokkuð spes hlutur sem ég hef stúderað dálítið síðustu ár. Þegar ég er búinn með þetta verkefni sem ég er að vinna að núna þá hafði ég hugsað mér að klára allar "rökvillurnar" mínar og skrifa einhverja dálka um hvernig maður á að taka á þessum "flame war" gaurum.

Ég er þegar kominn með smá vísi að þessu, en vantar að eyða tíma í að koma þessu almennilega frá mér. Verst var að ég tapaði öllum tenglunum mínum þegar ég formataði tölvuna mína um daginn. Var kominn með heilt bókasafn af efni um þetta.

Það sem menn verða að fatta í þessu er að það er ekki hægt að vinna þetta í raun, en það er hægt að sigra einstaka orustur. Og þar sem Satan fór algjörlega útfyrir efnið og gerði sjálfan sig að athlægi hér þá tel ég mig (og þá sem voru á móti honum að sjálfsögðu, er ekki að taka kreditið einn) hafa unnið þessa orustu. Auðvitað birtist hann hér og neitar og þykist ekki lesa það sem ég er að skrifa hér, það er allt partur at taktíkinni. En svona sé ég þetta.

Kveðja.
Grasi
QUOTE(Gabbler @ Nov 16 2006, 11:13) [snapback]1054170[/snapback]

Er konan þín með svona lítinn munn.. laugh.gif

Ef þú kíkir yfir byrjunina á þessum þráðum þá sérðu augljóslega hverjir það voru sem byrjuðu háðungina.
Þeir voru allir þín megin borðssins.
Hins vegar þykir mér rangt að láta slíka hálfvita eyðileggja fyrir hinum (eins og þér ofl.) á þann hátt að skítkastið varð á endanum á milli flestra ef ekki allra undir endann.

QUOTE(Gabbler @ Nov 16 2006, 11:13) [snapback]1054170[/snapback]

Stoltur? Nei ég er ekki stoltur að hafa "unnið" á formsgalla, það hefði verið skemmtilegra ef andstæðingurinn hefði bara játað sig sigraðann á heiðarlegann hátt. Það hefði vissulega verið skemmtilegra og allir væru þá líklega vinir í dag. En þar sem hinn aðilinn ákvað að fara þessa leið þá get ég lítið að því gert.

kveðja.

Nei það er hálf asnalegt að hrósa sér yfir slíkum "sigri", en það fóru flestir þessa leið, m.a. þú, allavega inn á milli.

QUOTE(Gabbler @ Nov 16 2006, 11:13) [snapback]1054170[/snapback]

Langar aðeins til að bæta við.

Satan er greinilega mjög vanur "flame war" náungi og var það þegar hann byrjaði hér. Þegar ég byrjaði að spjalla á málefnum þá hafði ég ekki mikla reynslu, en ég lærði fljótt hvernig maður á að taka á svona körlum.

Flame war er nokkuð spes hlutur sem ég hef stúderað dálítið síðustu ár. Þegar ég er búinn með þetta verkefni sem ég er að vinna að núna þá hafði ég hugsað mér að klára allar "rökvillurnar" mínar og skrifa einhverja dálka um hvernig maður á að taka á þessum "flame war" gaurum.

Ég er þegar kominn með smá vísi að þessu, en vantar að eyða tíma í að koma þessu almennilega frá mér. Verst var að ég tapaði öllum tenglunum mínum þegar ég formataði tölvuna mína um daginn. Var kominn með heilt bókasafn af efni um þetta.

Það sem menn verða að fatta í þessu er að það er ekki hægt að vinna þetta í raun, en það er hægt að sigra einstaka orustur. Og þar sem Satan fór algjörlega útfyrir efnið og gerði sjálfan sig að athlægi hér þá tel ég mig (og þá sem voru á móti honum að sjálfsögðu, er ekki að taka kreditið einn) hafa unnið þessa orustu. Auðvitað birtist hann hér og neitar og þykist ekki lesa það sem ég er að skrifa hér, það er allt partur at taktíkinni. En svona sé ég þetta.

Kveðja.

Ég sé lítið "vit" í því að "vinna" rökræður með einhverri rökvillutækni, enda ekki mikilfenglegur sigur þar á ferð.
Ég ætla ekkert að kommenta á hverjir hafa gert sig að athlægi í þessu máli, en þeir eru nokkuð margir beggja vegna borðssins (þótt þú sért ekki einn af þeim).

Kveðja
Grasi
Gabbler
QUOTE(Grasi @ Nov 16 2006, 11:25) [snapback]1054183[/snapback]

Er konan þín með svona lítinn munn.. laugh.gif
LOL.gif

QUOTE
Ég sé lítið "vit" í því að "vinna" rökræður með einhverri rökvillutækni, enda ekki mikilfenglegur sigur þar á ferð.
Ég ætla ekkert að kommenta á hverjir hafa gert sig að athlægi í þessu máli, en þeir eru nokkuð margir beggja vegna borðssins (þótt þú sért ekki einn af þeim).

Kveðja
Grasi
Ég tek alveg 100% á mig stórann hluta af fíflagang, háð, rökvillum og skítkasti. Það þarf ekkert að fletta mörgum þráðum til að sjá að mikið gékk á. Það má eiginlega segja að þessi umræða hafi þróast sirka svona:

Rökræður - í upphafi, skemmtilegt og menn hlustuðu
Rökræður og skítkast - enn skemmtilegt, en slatti af skítkasti sem skemmdi fyrir
Spam og skítkast - hellingur af c/p bulli sem kom málinu ekkert við ásamt slatta af skítkasti
Háð, spam og skítkast - vegna ótrúlegs spams og rökleysis þá tóku menn uppá því að gera grín að þessu bara
Háð og spam - rökin og skítkastið nánast horfið, háð og spam eftir
Háð - spamið horfið (menn í kælingu) og háðið eitt eftir

Þarna inn á milli voru nokkur broskallatímabil sem ég tók ekki inní dæmið. Núna undanfarið hef ég stofnað tvo þræði (þessi þarmeðtalinn) þar sem ég hef svona reynt að koma umræðunni aftur á rökræðuplanið. Eins og þú sérð þá er ekki háð í upphafsinnlegginu á þessum þræði.

En veistu, ég held þú hafir smávegis misskilið mig... "flame war" eða það sem var stundað hér undir lokin er í raun ekki rökræðukeppni og því er varla hægt að beita rökvillum. Þetta er af allt öðrum toga og oft á tíðum bara þrælskemmtilegt. Þú hlýtur að sjá að það er mér algjörlega ófært að vinna rökræður við mann sem þykist hafa mig á ignore og svarar manni ekki?

Eins og ég sagði þá tapaði satan á því að fara alveg frammúr sér í þessu og stjórnendur gátu ekki annað gert en að setja hann í einhvernskonar kælingu. Ef menn ætla að stunda svona "stríð" þá er það regla númer 1,2 og 3 að menn þurfa að fylgja reglunum. Sá sem er fyrstur til að brjóta reglurnar, hann tapar. Hehe.

Hvernig heldur þú að það hefði komið út ef mínir menn (Liverpool) hefðu mætt með skotvopn og hnífa þegar þínir menn (united) tóku þá í kennslustund hér á dögunum? (smá útúrdúr).

Kveðja.
Erlendur
Ég hef nú ekki tekið mikinn þátt í þessum umræðum og er kannski jafn sekur og næsti maður að grípa til háðsins. Hvort sem menn trúa því eða ekki er ég verkfræðimenntaður og hef séð tilraunir okkar megin til að ræða málin á slíkum nótum. Þær tilraunir hafa allar farið forgörðum því að svörin hafa í versta falli verið bull og í því besta copy/paste af erlendum vefsíðum. Og það sem mér hefur alltaf fundið broslegt er að við gátum aldrei fest fingur á málefninu smile.gif

Þetta hefur því oft verið eins og að ræða við fólk sem talar annað tungumál sem einungis leiðir til svekkelsis.

Ég held sömuleiðis að allir sæmilega sanngjarnir menn sáu að skítkastið var mestmegis í aðra áttina. Slíkt leiðir sjaldnast til almmenilegra rökræðna.

Gabbler
QUOTE(Erlendur @ Nov 16 2006, 20:36) [snapback]1054534[/snapback]

Ég hef nú ekki tekið mikinn þátt í þessum umræðum og er kannski jafn sekur og næsti maður að grípa til háðsins. Hvort sem menn trúa því eða ekki er ég verkfræðimenntaður og hef séð tilraunir okkar megin til að ræða málin á slíkum nótum.
Einmitt Erlendur.

Ég veit fyrir víst að stór hluti af þeim sem eru á okkar skoðun eru með verkfræðimenntun eða álíka, ætla ekki að nefna nein nöfn en man eftir allavega fimm stykkjum í augnablikinu. Það hafa verið gerðar mjög margar tilraunir til að færa þessa umræðu á verkfræðilevel, en allar mistókust þær. Það er bara eins og áhuginn sé ekki fyrir hendi hinumegin frá eða, eins og þú segir, að þeir tali annað tungumál.

Kveðja, Gabbler.
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 17 2006, 20:58) [snapback]1055087[/snapback]

Einmitt Erlendur.

Ég veit fyrir víst að stór hluti af þeim sem eru á okkar skoðun eru með verkfræðimenntun eða álíka, ætla ekki að nefna nein nöfn en man eftir allavega fimm stykkjum í augnablikinu. Það hafa verið gerðar mjög margar tilraunir til að færa þessa umræðu á verkfræðilevel, en allar mistókust þær. Það er bara eins og áhuginn sé ekki fyrir hendi hinumegin frá eða, eins og þú segir, að þeir tali annað tungumál.

Kveðja, Gabbler.

Frelsi meldar hreykinn; að hafa lokið Dale Carnegie námskeiði fyrir "viderekomne" með láði!

Frelsi
Með hlutina á hreinu...
Gabbler
Við höfum þá einn "hámentaðann" í hinum hópnum... flott að heyra.

frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 18 2006, 8:20) [snapback]1055335[/snapback]

Hmm, hmm

Af "menntun"

Mér rennur auðvitað blóðið til skyldunnar, finnst rétt að benda þér á að þú stafar orðið "hámenntaður/hámenntaðan" svo ranglega að ég tel það beinlínis skyldu mína, sem menntaðs manns að setjast niður við leiðréttingar, hér hefði auðvitað farið betur á því að rita "hámenntaðan" heldur en "hámentaðann". Slík stöfun orðsins er ekki viðurkennd í íslensku ritmáli.

Ég fer virðingarfyllst fram á það við þig, að þú látir af frekari orðnauðgunum, ellegar verður stjórnendum þráðarins gert viðvart.

Góðar stundir

Frelsi.
Gabbler
Ég mun tafarlaust láta af öllum orðnauðgunum, greinilegt að hér erum við með sérfræðing í íslensku máli. Ekki amalegt að hafa slíkann snilling hér á málefnum.

Þar sem Frelsi er hámenntaður í íslensku og greinilega sérfróður, þá ber mér skylda til að taka tillit til þess sem sérfræðingurinn segir. Nú geri ég þá kröfu að hann geri hið sama varðandi hina sérfræðingana hér og HLUSTI á það sem þeir eru að segja.

Kær kveðja.
Gabbler
Ég vil bæta við að það gleður mig að Frelsi er aðeins farinn að færast í þá átt að ræða málefnið. En það væri miklu skemmtilegra ef hann kæmi hér fram undir sínu rétta nicki í staðinn fyrir að pukrast hér með alter-nick.

Kveðja aftur.
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 18 2006, 13:47) [snapback]1055415[/snapback]

Ég mun tafarlaust láta af öllum orðnauðgunum, greinilegt að hér erum við með sérfræðing í íslensku máli. Ekki amalegt að hafa slíkann snilling hér á málefnum.

Þar sem Frelsi er hámenntaður í íslensku og greinilega sérfróður, þá ber mér skylda til að taka tillit til þess sem sérfræðingurinn segir. Nú geri ég þá kröfu að hann geri hið sama varðandi hina sérfræðingana hér og HLUSTI á það sem þeir eru að segja.

Kær kveðja.

"Slíkan" ber að rita með aðeins einu n-i í endingu orðs.

Kv.

Frelsi
Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 18 2006, 18:37) [snapback]1055491[/snapback]

"Slíkan" ber að rita með aðeins einu n-i í endingu orðs.

Kv.

Frelsi
Mikið rétt Frelsi.

Gleymdi að smáorðið „slíkan“ er undantekning frá reglunni. Gaman að heyra sam að stafsetningavillur er orðið það eina sem hægt er að setja útá hjá manni. Það hlýtur að þýða að allt hitt er rétt, það er að segja að innihaldið er gott.

Kær kveðja, Gabbler.

ps, ég vil minna þig á 9966 regluna varðandi gæsalappir. Gæsalappirnar sem þú ert að nota eru vitlausar. Fyrstu gæsalappirnar eiga að minna á 99 og liggja niðri, þær seinni koma uppi og minna á 66. Dæmi: „Frelsi er fífl“.
Laplace
Gaman að sjá fólk "festa fingur á málefninu". Fyrstu merki um að fólk sé komið í þrot er þegar þeir fara að væla yfir stafsetningu.
Besti vinur Aðal
QUOTE(Gabbler @ Nov 13 2006, 17:05) [snapback]1052584[/snapback]

Enn eitt kjaftæðið debunkað.

Menn hafa verið að segja að þessi mynd sýni allt annað en reyk eftir flugvélaóhapp, og menn hafa verið að halda því fram að þetta sé feikað (photoshoppað) eða jafnvel sé mynd af sprengjureyk. En nú fyrir ekki svo löngu þá hrapaði flugvél á Ítalíu, nánar tiltekið 13 ágúst 2006 í Piacenza.

Ef reykurinn frá því flugvélaóhappi er borið saman við það sem gerðist 9/11 þá kemur í ljós að þetta passar bara nokkuð vel...

[attachmentid=26699]

Þið getið lesið betur um þetta á þessu PDF skjali.

[attachmentid=26700]

Nú fer ekki að verða mikið eftir, enda tekur maður eftir því að þetta er alveg að deyja út. Það styttist í að jafnvel verði hægt að fara að ræða það sem skiptir máli í 9/11 atburðunum.

Kveðja.

Var þetta B767 vél full af eldnseyti þarna á ítalíu eða minni flugvél með einn milljónasta af eldsmat Boeing farþegavélarinnar. Ég man allavegna ekki eftir að nein stór-farþegavél hafi farist á Ítalíu í ágúst - var reyndar í Róm en finnst ólíklegt að það hefði farið framhjá okkur ef stór-flugvélaslys hefði orðið þar.

Það er undarlegt hvað þú leyfir þér að leggja að líku og draga fram án þess að upplýsa hve óíkt það er í grundvallaratriðum þar sem þú hefur fyrir löngu upplýst að þig skortir hvorki vit eða þekkingu til að sjá hverju máli það skiptir. Þá veistu líka að því hefur einnig verið haldið all stíft fram af sjónarvottum að það hafi lítil vél farið þarna lágt yfir en ekki stór og mögulega niður á þessum stað í USA þann 11. 09.

Ef það var minni eða lítil vél eða vél með lítð eldsneyti í aðflugi eða á flugsýningu sem þú ert að sýna mynd frá á Ítalíu þá er þetta framlag þitt einmitt sönnun þess að þetta geta ekki verið ummerki Boeing farþegavélar þrútinn eldsneyti þarna í USA heldur í mesta lagi lítillar flugvélar eða vélar með lítið eldsneyti -ef ekki einhvers allt annars.

Hvað um það þú veist þú þarft að gefa upp hverskonar vél þarna var á ferð og hvort hún var í aðflugi tiltölulega eldnseytrislítil eða ....?
Gabbler
QUOTE(Besti vinur Aðal @ Nov 23 2006, 0:45) [snapback]1057926[/snapback]

Var þetta B767 vél full af eldnseyti þarna á ítalíu eða minni flugvél með einn milljónasta af eldsmat Boeing...
Þetta stendur allt í upphafsinnlegginu, endilega lestu það smile.gif
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 19 2006, 11:29) [snapback]1055991[/snapback]

Mikið rétt Frelsi.

Gleymdi að smáorðið „slíkan“ er undantekning frá reglunni. Gaman að heyra sam að stafsetningavillur er orðið það eina sem hægt er að setja útá hjá manni. Það hlýtur að þýða að allt hitt er rétt, það er að segja að innihaldið er gott.

Kær kveðja, Gabbler.

ps, ég vil minna þig á 9966 regluna varðandi gæsalappir. Gæsalappirnar sem þú ert að nota eru vitlausar. Fyrstu gæsalappirnar eiga að minna á 99 og liggja niðri, þær seinni koma uppi og minna á 66. Dæmi: „Frelsi er fífl“.

Ahh, þörf ábending minn kæri Gabbler, hvernig gerir maður lágkommuna? Hef ekki gefið mér tíma til að finna út úr því, ætti kannski að eyða minni tíma í vinnunni, og meiri netskrifin, væri þá ekki heimaskítsmát í lyklaborðskúnstunum...
Gleður hinsvegar augað að sjá að þú verð meiri tíma til að fara yfir stíl og stafsetningu í póstunum þínum, virðingarvert þar sem það er svo sannarlega ekki svo lítið efni sem þú skilar inn á vefinn á degi hverjum!

Kv
Frelsi.

QUOTE(Gabbler @ Nov 18 2006, 8:20) [snapback]1055335[/snapback]

Við höfum þá einn "hámentaðann" í hinum hópnum... flott að heyra.

Værirðu nokkuð fáanlegur til að "edita" (finn bara ekki lágu lappirnar) þessar gæsalappir þínar?
Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 23 2006, 19:18) [snapback]1058297[/snapback]

Ahh, þörf ábending minn kæri Gabbler, hvernig gerir maður lágkommuna? Hef ekki gefið mér tíma til að finna út úr því, ætti kannski að eyða minni tíma í vinnunni, og meiri netskrifin, væri þá ekki heimaskítsmát í lyklaborðskúnstunum...
Það er nú lítið mál. En þú verður að muna að seinni komman, eða hákomman eins og hún er líklega kölluð, er ekki sú sama og Ctrl + 2 gerir. Munurinn er þessi. “ annarsvegar og " hinsvegar. Fyrir leikmann er nú lítill munur, en svona sérfræðingur eins og þú sérð muninn að sjálfsögðu um leið.

Svona gerir þú þetta annars:

ALT + 0132 = „
ALT + 0147 = “

En endilega ekki eyða meiri tíma í netskrif, við erum alveg að fá nóg af þér hér.

QUOTE
Gleður hinsvegar augað að sjá að þú verð meiri tíma til að fara yfir stíl og stafsetningu í póstunum þínum, virðingarvert þar sem það er svo sannarlega ekki svo lítið efni sem þú skilar inn á vefinn á degi hverjum!

Kv
Frelsi.
Þarf endilega að benda þér á að „Kv“ er ekki íslenskt orð. Ef þú ert að stytta orðið kveðja, þá er nú huggulegra að enda það á punkti. Svona: Kv.

QUOTE
Værirðu nokkuð fáanlegur til að "edita" (finn bara ekki lágu lappirnar) þessar gæsalappir þínar?
Ég vil minna þig á að það eru ekki bara lágu gæsalappirnar sem eru öðruvísi. Ég er nú svolítið hissa á því að svona snillingur eins og þú vitir þetta ekki. Ég minni enn og aftur á 9966 regluna.

Segðu mér annars á hvaða tungumáli á þetta orð „edita“ að vera? Getur verið að þú sért að beita íslenskum reglum á enskt orð?

Kær kveðja, Gabbler.
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 23 2006, 19:09) [snapback]1058314[/snapback]

Það er nú lítið mál. En þú verður að muna að seinni komman, eða hákomman eins og hún er líklega kölluð, er ekki sú sama og Ctrl + 2 gerir. Munurinn er þessi. “ annarsvegar og " hinsvegar. Fyrir leikmann er nú lítill munur, en svona sérfræðingur eins og þú sérð muninn að sjálfsögðu um leið.

Svona gerir þú þetta annars:

ALT + 0132 = „
ALT + 0132 = “

En endilega ekki eyða meiri tíma í netskrif, við erum alveg að fá nóg af þér hér.

Þarf endilega að benda þér á að „Kv“ er ekki íslenskt orð. Ef þú ert að stytta orðið kveðja, þá er nú huggulegra að enda það á punkti. Svona: Kv.

Ég vil minna þig á að það eru ekki bara lágu gæsalappirnar sem eru öðruvísi. Ég er nú svolítið hissa á því að svona snillingur eins og þú vitir þetta ekki. Ég minni enn og aftur á 9966 regluna.

Segðu mér annars á hvaða tungumáli á þetta orð „edita“ að vera? Getur verið að þú sért að beita íslenskum reglum á enskt orð?

Kær kveðja, Gabbler.

Þessi póstur er nú svoleiðis löðrandi í ALT + 0132 Ad hominem ALT + 0132 (Lesist Bad Gje essem) rökþrota-rökvillum - frá - Raufarhöfn, að ég hef nú barasta aldrei orðið vitni að öðru eins gremjukasti hjá þér Gabbler minn! LOL.gif

Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 23 2006, 20:59) [snapback]1058328[/snapback]

Þessi póstur er nú svoleiðis löðrandi í ALT + 0132 Ad hominem ALT + 0132 (Lesist Bad Gje essem) rökþrota-rökvillum - frá - Raufarhöfn, að ég hef nú barasta aldrei orðið vitni að öðru eins gremjukasti hjá þér Gabbler minn! LOL.gif
Æ tókstu of mikið uppí þig karlinn minn? Tekinn á heimavelli? Sprakk þessi tittlingaskíts leiðindapúkaaðferð þín í andlitið á þér?

Ekki byrja á einhverju sem þú getur ekki klárað karlinn minn. biggrin.gif

Kær kveðja, Gabbler.
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 23 2006, 20:04) [snapback]1058331[/snapback]

Æ tókstu of mikið uppí þig karlinn minn? Tekinn á heimavelli? Sprakk þessi tittlingaskíts leiðindapúkaaðferð þín í andlitið á þér?

Ekki byrja á einhverju sem þú getur ekki klárað karlinn minn. biggrin.gif

Kær kveðja, Gabbler.

Það tístir nú svolítið í manni, reyni einhvern veginn að ímynda mér Gabblerinn sitjandi sveittur á Alt takkanum og númeraborðinu að stauta sig í gegnum lyklaröðina til að finna gæsalappirnar laugh.gif , er barasta pínulítið upp með mér að hafa náð athygli Gabblersins svona rækilega.... Hvað er annars hægt að framkalla mörg tákn með Alt og lyklaborðinu? tongue.gif "Keep up the good work" He He...
Gabbler
Fyrst maður er nú búinn að koma upp um þetta fífll þarna þá er hægt að halda áfram með umræðuna.
QUOTE(Besti vinur Aðal @ Nov 23 2006, 0:45) [snapback]1057926[/snapback]

Var þetta B767 vél full af eldnseyti þarna á ítalíu eða minni flugvél...
Ég ætlaði bara að benda þér á BVA að þetta stendur allt í upphafsinnlegginu.

On August 13, 2006, an Algerian C-130 Hercules four-engine turboprop crashed near Piacenza, Italy,
as reported by local news and government sources (such as the ARPA environmental protection
unit). If you're not familiar with the appearance and size of a Hercules, Wikipedia has the specs and
a photograph:
Þetta var semsagt C-130 Hercules vél. Hercules vélarnar geta tekið á loft um 70 tonn, þannig. Boeing 757 getur tekið á loft sirka 115 tonn, þannig að Hercules vélin slagar vel uppí Boeing 757.

Aðal pointið í þessum þræði var þó það að það dugar ekki að nota furðulegt lag á reyknum sem sönnun fyrir því að þetta hafi ekki verið reykur eftir að flugvél hrapaði. Hrapið á þessari Hercules vél hlýtur að vera sönnun á því að reykur eftir flugvélahrap getur vel orðið svona í laginu.

Kveðja.
Besti vinur Aðal
QUOTE(Gabbler @ Nov 23 2006, 22:11) [snapback]1058364[/snapback]

OK við þekkjum öll C-130 Herculesflugvélarnar. Þær höfðu aðsetur á Keflavíkurflugvelli árum ef ekki áratugum saman. Fyrst og fremst fjölnotavélar miklu minni en svona farþegaþotur en gátu borðið mikið bæði við byrgða og liðsflutninga og líka mikið eldsneyti til að gefa þyrlum eldsneyti á flugi. Þær báru lík oft radarkerfi fyrir tíma AWACS vélanna og viðveru þeirra á okkar svæði. Þær eru þó lítið lengri en Fokker50

Tvennt verður þvi meginatriðið
-það er hve mikið eldsneyti Herculesvélin var með var hún að koma tóm eða að leggja af stað með alla tanka fulla (sem er sjaldgæft) - í venjulegu flugi þurfa þær lítið, og þá verður ólíklegt að um sambærileg hröp geti verið að ræða.
-En hafi Herculesvélin skollið í jörðina af miklum krafti og verið full af eldsneyti þá verður ljóst (af myndunum) að við svona harðan árekstur/hrap brennur allt eldsneytið á augabragði, -eldsneytið breytist í úðaskýi og brennur að fullu á aðeins sekúndum eða sekúndubrotum. Þess vegna verður til ein samfelld reykkúla sem svo slitnar frá og enginn eða hverfandi reykur stígur eftir henni því það er allt brunnið strax.

Það leiðir okkur aftur að WTC og að ef þessar myndir eru í raun af slíkum feikna árekstri þá merkir það að allt eldsneytið breytist í úðaský sem brennur að fullu á nokkrum sekúndum hið mesta. Það sem brann eftir það er þá bara innréttingar og annað slíkt sem aldrei getur gefið þann hita sem þarf til að fella svona mannvirki.
Gabbler
BVA ég er ekki alveg að fatta þig núna.

Þessar tvær myndir sem ég setti inn í upphafsinnlegginu sanna eitt, að svona reykský getur myndast við flugvélahrap. Það var það eina sem ég ætlaði að sanna.

Þú hefur kannski ekki mikið fylgst með undanfarið á erlendum síðum. Málið er að það hefur gengið undanfarið að reykskýið sem tekin var mynd af 9/11 gæti ekki hafa verið af flugvélahrapi. Nú er semsagt búið að sýna fram á að þetta gat vel verið af flugvélahrapi.

Skil ekki hvernig þú getur tengt WTC við þetta þar sem þar var um tvo gjörólíka árekstra að ræða. Fyrir utan að það er afar hæpin fullyrðing að segja að allt eldsneytið í flugvélunum sem flugu á WTC byggingarnar hafi brunnið upp á örfáum sekúndum.

Kveðja.
frelsi
Eldsneytið úr þessum C 130 virðist allavega hafa brunnið upp á nokkrum sekúndum, sbr reyksveppinn, er ekki sama sullið notað á turboprop og jet?
Gabbler
Mig langaði aðeins að bæta við BVA.

Ert þú á þeirri skoðun að það hafi ekki flug 93 sem bjó til þennan reyk? Og ertu á því að það hafi ekki flugvél hrapað þarna 9/11?

Bara svona forvitni.

Kveðja.
frelsi
QUOTE(Besti vinur Aðal @ Nov 26 2006, 5:06) [snapback]1059492[/snapback]

OK við þekkjum öll C-130 Herculesflugvélarnar. Þær höfðu aðsetur á Keflavíkurflugvelli árum ef ekki áratugum saman. Fyrst og fremst fjölnotavélar miklu minni en svona farþegaþotur en gátu borðið mikið bæði við byrgða og liðsflutninga og líka mikið eldsneyti til að gefa þyrlum eldsneyti á flugi. Þær báru lík oft radarkerfi fyrir tíma AWACS vélanna og viðveru þeirra á okkar svæði. Þær eru þó lítið lengri en Fokker50

Tvennt verður þvi meginatriðið
-það er hve mikið eldsneyti Herculesvélin var með var hún að koma tóm eða að leggja af stað með alla tanka fulla (sem er sjaldgæft) - í venjulegu flugi þurfa þær lítið, og þá verður ólíklegt að um sambærileg hröp geti verið að ræða.
-En hafi Herculesvélin skollið í jörðina af miklum krafti og verið full af eldsneyti þá verður ljóst (af myndunum) að við svona harðan árekstur/hrap brennur allt eldsneytið á augabragði, -eldsneytið breytist í úðaskýi og brennur að fullu á aðeins sekúndum eða sekúndubrotum. Þess vegna verður til ein samfelld reykkúla sem svo slitnar frá og enginn eða hverfandi reykur stígur eftir henni því það er allt brunnið strax.

Það leiðir okkur aftur að WTC og að ef þessar myndir eru í raun af slíkum feikna árekstri þá merkir það að allt eldsneytið breytist í úðaský sem brennur að fullu á nokkrum sekúndum hið mesta. Það sem brann eftir það er þá bara innréttingar og annað slíkt sem aldrei getur gefið þann hita sem þarf til að fella svona mannvirki.

Athyglisverð pæling BVA

Ekki gott að útskýra muninn á brunatímanum í þessum tveimur tilfellum, en trúarofstækið er nú orðið slíkt hér að oft virðist almenn skynsemi láta í minni pokann fyrir hrepparígnum.
En aftur að reyknum, hvernig í ósköpunum má það eiginlega vera að C 130 flakið fuðrar upp á stuttum tíma, plús eldsneyti, en sambærilegt eldsneyti átti svo að krauma og bulla nánast endalaust, nægilega til að fella stálgrindina í WTC.
Einnig mætti kannski segja að þegar myndirnar eru skoðaðar, að þetta sé kannski of blátt áfram til að æstustu talnakarlarnir hreinlega leggist svo lágt að horfast í augu við málið, svona stórir hlutir, geti og megi ekki eiga sér svona einfaldar skýringar, það sé einungis á færri útvaldra að útskýra og túlka hvað "gerðist"...
Gabbler
QUOTE(Laplace @ Nov 20 2006, 9:52) [snapback]1056508[/snapback]

Gaman að sjá fólk "festa fingur á málefninu". Fyrstu merki um að fólk sé komið í þrot er þegar þeir fara að væla yfir stafsetningu.
Einmitt Laplace. Svona hefur þetta verið nokkuð lengi, mér sýnist BVA vera sá eini eftir af samsærisliðinu sem eitthvað vit er í. Tek Grasa ekki með þar sem hann nennir þessu ekki (skiljanlega svosem).

Annars er ekkert að marka þessa frelsisfígúru, augljóslega alter nick hjá einhverjum sem tímir ekki að tröllast á eigin nicki.

Kveðja.
frelsi
Meira að segja Framsóknarflokkurinn er farinn að viðurkenna að hann geti haft rangt fyrir sér, ef til vill kominn tími til að þú náir sambandi við Framsóknarmanninn hið innra með þér, minn kæri Gabbler?
Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 26 2006, 15:03) [snapback]1059593[/snapback]

Meira að segja Framsóknarflokkurinn er farinn að viðurkenna að hann geti haft rangt fyrir sér, ef til vill kominn tími til að þú náir sambandi við Framsóknarmanninn hið innra með þér, minn kæri Gabbler?
LOL.gif

Það fer þér miklu betur að fara yfir stafsetningu en að þykjast hafa vit á þessu málefni.

Gætiru ekki haldið því bara áfram?
frelsi
Alger óþarfi að æsa sig svona minn kæri Gabbler, þó einhver hreyfi andmælum við fullyrðingum þínum, Frelsi áskilur sér rétt til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir á þessum málum, hér má sjá flokksformanninn þinn kyngja stoltinu og horfast í augu við staðreyndirnar;
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284389/0

Kveðja
Frelsi

Frjór og frjáls í skoðunum.
Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 26 2006, 15:12) [snapback]1059601[/snapback]

Alger óþarfi að æsa sig svona minn kæri Gabbler, þó einhver hreyfi andmælum við fullyrðingum þínum, Frelsi áskilur sér rétt til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir á þessum málum, hér má sjá flokksformanninn þinn kyngja stoltinu og horfast í augu við staðreyndirnar;

Kveðja
Frelsi

Frjór og frjáls í skoðunum.
Já já ég er alveg brjálæðislega æstur hér LOL.gif

Heyrðu, ég er annars með hér dálítinn texta sem ég þarf að láta fara yfir stafsetningu í, gætiru reddað því fyrir mig?

Annars þætti mér nú gaman að vita hver þín sjálfstæða skoðun er á þessu máli. Hversvegna tildæmis var tildæmis sett á svið að flugvél hrapaði þar sem flug 93 á að hafa hrapað? Hver er þín sjálfstæða skoðun á því?
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 26 2006, 14:15) [snapback]1059602[/snapback]

Já já ég er alveg brjálæðislega æstur hér LOL.gif

Heyrðu, ég er annars með hér dálítinn texta sem ég þarf að láta fara yfir stafsetningu í, gætiru reddað því fyrir mig?

Annars þætti mér nú gaman að vita hver þín sjálfstæða skoðun er á þessu máli. Hversvegna tildæmis var tildæmis sett á svið að flugvél hrapaði þar sem flug 93 á að hafa hrapað? Hver er þín sjálfstæða skoðun á því?

Púff!

Óttaleg skeinivinna er þetta með þig drengur! En af því að þú biður svo fallega...

Ég renndi lauslega yfir póstinn þinn, og leiðrétt og snurfusuð útkoma yrði einhvern veginn svona:

Heyrðu!

Ég er hér með dálítinn texta sem ég þarf að biðja þig að fara yfir fyrir mig. Gætirðu bjargað mér?

Mér þætti gaman að vita hver sjálfstæð skoðun þín væri á þessu máli. Hvers vegna ætti hrap flugs 93 að vera sviðsett?

Hver myndi vera sjálfstæð skoðun þín á því?

Kæri Gabbler.

Venjulega tek ég hóflegt gjald fyrir svona viðvik, en vini mína rukka ég að sjálfsögðu ekki, njóttu vel.

Kveðja
Frelsi
Gabbler
Datt til hugar að þú kæmir þér undan því að svara, ekkert nýtt.

Segðu mér hvaða kick það er sem þú færð útúr þessu. Ég hef sjálfur gaman að gríni og glensi. En þetta sem þú ert að stunda er mér algjörlega óskiljanlegt. Þú virðist halda að þetta sé sniðugt sem þú ert að gera en þetta er mjög langt frá því að vera háð eða eitthvað sniðugt.

Þú byrjaðir ágætlega með þessar leiðréttingar þínar og þetta með klárukarlafélagið (varst það ekki þú annars?). En þegar ég tók aðeins á þér þá bókstaflega fórstu niður í skítinn í einhverju bulli. Frekar leiðinlegt því ég hélt þú værir kannski háðfugl og það væri gaman að fíflast aðeins með þér. Leiðinlegt að þú hafir ekki getað haldið höfði því ég held þú sért nokkuð efnilegur í háðinu.

En að málefninu.

Segðu mér í alvöru nú hvaða skoðun þú hefur á þessu máli, það styttist í að ég nenni ekki þessum kjánaskap með þér lengur. Það fer því að verða síðasti séns hjá þér að koma þinni skoðun á framfæri. Allavega hvað mig varðar. Svona þér að segja þá held ég að ég sé einn af fáum á málefnum sem hlusta á þig (enn).

Kveðja.
frelsi
Voðaleg dramatík er þetta í þér drengur...

Tekur barasta Ingimundinn á mig?
Gabbler
QUOTE(frelsi @ Nov 26 2006, 22:19) [snapback]1059768[/snapback]

Voðaleg dramatík er þetta í þér drengur...

Tekur barasta Ingimundinn á mig?
Datt bara svona til hugar að spyrja.

Datt líka til hugar að þú færir ekki að svara þessu, það væri nú úr stíl.

Hversvegna ertu að standa í þessu? Þú ert bara hér til að eyðileggja þessar umræður, það er alveg í góðu en segðu mér hversvegna gerir þú það? Þú ert alveg kominn útá barm þess að vera þolanlegur, ég nenni þessu ekki lengur ef þú breytir ekki aðeins háðinu. Ekkert gaman að fíflast eða gantast með einhverjum sem er ekki í takt við grínið.

Kveðja.
frelsi
QUOTE(Gabbler @ Nov 26 2006, 21:23) [snapback]1059769[/snapback]

Datt bara svona til hugar að spyrja.

Datt líka til hugar að þú færir ekki að svara þessu, það væri nú úr stíl.

Hversvegna ertu að standa í þessu? Þú ert bara hér til að eyðileggja þessar umræður, það er alveg í góðu en segðu mér hversvegna gerir þú það? Þú ert alveg kominn útá barm þess að vera þolanlegur, ég nenni þessu ekki lengur ef þú breytir ekki aðeins háðinu. Ekkert gaman að fíflast eða gantast með einhverjum sem er ekki í takt við grínið.

Kveðja.

"segðu mér hversvegna gerir þú það"?

Minn kæri Gabbler.

Mohandas Gandhi, að mínu mati einn af frjóustu hugsuðum mannkynssögunnar, og glámskyggn mjög á mannfólkið og eðli þess, lét eitt sinn þessi orð falla:

"An error does not become truth by reason of multiplied propagation, nor does truth become error because nobody sees it".

Þessi orð mætti ef til vill útleggja sem svo, að sannleikurinn sem slíkur sé óbrigðull, gildir þá einu hvort margur sauðurinn feti einstigi lyginnar.

Megi þessi orð meistarans, verða þér minn kæri Gabbler, sem lýsandi ljós í leit þinni að sannleikanum, og beina þér af braut sauðanna í sannleikans opna faðm.

Kveðja
Frelsi.
Laplace
QUOTE(frelsi @ Nov 26 2006, 22:28) [snapback]1059812[/snapback]

"segðu mér hversvegna gerir þú það"?

Minn kæri Gabbler.

Mohandas Gandhi, að mínu mati einn af frjóustu hugsuðum mannkynssögunnar, og glámskyggn mjög á mannfólkið og eðli þess, lét eitt sinn þessi orð falla:

"An error does not become truth by reason of multiplied propagation, nor does truth become error because nobody sees it".

Þessi orð mætti ef til vill útleggja sem svo, að sannleikurinn sem slíkur sé óbrigðull, gildir þá einu hvort margur sauðurinn feti einstigi lyginnar.

Megi þessi orð meistarans, verða þér minn kæri Gabbler, sem lýsandi ljós í leit þinni að sannleikanum, og beina þér af braut sauðanna í sannleikans opna faðm.

Kveðja
Frelsi.

Kæra Frelsi

If it looks like shit, smells like shit.. its probably shit

Ég veit ég þarf ekkert að þýða þessi háfleygu orð enda ertu svo snall að þú kannt ensku, hugsanlega finnur þú líka stafsetningavillu í textanum smile.gif
Besti vinur Aðal
QUOTE(Gabbler @ Nov 26 2006, 8:30) [snapback]1059514[/snapback]

BVA ég er ekki alveg að fatta þig núna.

Þessar tvær myndir sem ég setti inn í upphafsinnlegginu sanna eitt, að svona reykský getur myndast við flugvélahrap. Það var það eina sem ég ætlaði að sanna.

Þú hefur kannski ekki mikið fylgst með undanfarið á erlendum síðum. Málið er að það hefur gengið undanfarið að reykskýið sem tekin var mynd af 9/11 gæti ekki hafa verið af flugvélahrapi. Nú er semsagt búið að sýna fram á að þetta gat vel verið af flugvélahrapi.

Skil ekki hvernig þú getur tengt WTC við þetta þar sem þar var um tvo gjörólíka árekstra að ræða. Fyrir utan að það er afar hæpin fullyrðing að segja að allt eldsneytið í flugvélunum sem flugu á WTC byggingarnar hafi brunnið upp á örfáum sekúndum.

Kveðja.

Ég veit vel um það ég er bara ekki sérstaklega með þær pælingar og er ekki að halda með einu eða neinu eða bakka upp eitt eða neitt annað en komast nær því að það verði ljóst að það verði að rannaska þetta mál í heild sinni því skýringarnar gangi ekki upp, opinberu skýringarnar hrópa hver á aðra eins og þú raunar ert að benda vel á hér.

Ég var bara að að draga það fram hvernig þú sannar það enn betur hér að um leið og þú stígur í einn fótinn í þessu máli þá missir hinn undan sér jörðina. Ef þetta á að standast um A93 þá er WTC í enn frekara uppnámi. - Allt þetta mál er kviksyndi sem þið sökkvið sífellt dýpra í sem verjið opinberu útgáfuna.

Ef þú ætlar að halda fast við þessar myndir og að báðar séu af árekstri flugvélar hlaðinni miklu eldsneyti þá segir það okkur líka hvað gerist þegar flugvél hlaðin eldsneyti flýgur á miklum hraða á aðra fyrirstöðu en jörðina - allt eldsneytið myndar alsherjar brunaský sem bernnur upp á augabragði um leið og það verður til - svo snöggt að bruni þess sem eftir er nær ekki að gefa reyk sem heldur sambandi við reykkúluna sem varð til þegar eldnseytisúða-skýið brann á augabragði - á sekúndum ef ekki broti úr sekúndu.

Það sama hefur þá átt að gerast í Pentgon og WTC - eldsneytið yrði að úðaskýi sem brynni á augabragði og geti því ekki haldið uppi ofasa hita á neinum stálbitum lengur en það augabragð.

Vandamálið er að þotueldsneyti þ.e. þróðuð steinolía er gert til að brenna ekki þannig við slys, hreyfilvélar eins og Hercules skilst mér að hafi stundum öðruvísi eldsneyti jafnvel bensín (veit það ekki nógu vel) sem auðvita úðast miklu betur og brennur margfalt hraðar eins og allir vita og herflugvélar eins og Herculesvélin og mögulega það sem lenti í Pensilvaníu geta hafa borið sprengjur og sprengiefni.

Málið er bara að þessi samanburður þinn hefur ekkert gildi nema til að vekja fleiri spurningar og sanna enn frekar þörf á endurupptöku og raunverulegri rannsókn á þessu máli.

QUOTE(Gabbler @ Nov 26 2006, 10:26) [snapback]1059532[/snapback]

Mig langaði aðeins að bæta við BVA.

Ert þú á þeirri skoðun að það hafi ekki flug 93 sem bjó til þennan reyk? Og ertu á því að það hafi ekki flugvél hrapað þarna 9/11?

Bara svona forvitni.

Kveðja.

Ég veit það ekki, en tek eftir að í viðtölum á videómu og fréttamyndböndum við sjónarvotta tala mörg vitni um litla flugvél sem flaug lágt þarna, og í það minnsta sjónarvottunum finnst þetta mörgum mjög skrítið - að miklivæga kafla vanti í söguna.
feu
QUOTE
Ef þú ætlar að halda fast við þessar myndir og að báðar séu af árekstri flugvélar hlaðinni miklu eldsneyti þá segir það okkur líka hvað gerist þegar flugvél hlaðin eldsneyti flýgur á miklum hraða á aðra fyrirstöðu en jörðina - allt eldsneytið myndar alsherjar brunaský sem bernnur upp á augabragði um leið og það verður til - svo snöggt að bruni þess sem eftir er nær ekki að gefa reyk sem heldur sambandi við reykkúluna sem varð til þegar eldnseytisúða-skýið brann á augabragði - á sekúndum ef ekki broti úr sekúndu.

Það sama hefur þá átt að gerast í Pentgon og WTC - eldsneytið yrði að úðaskýi sem brynni á augabragði og geti því ekki haldið uppi ofasa hita á neinum stálbitum lengur en það augabragð.

Bruni þarfnast súrefni. Þú getur gert tilraun. Opnaðu fullan tank af bensíni og hentu eldspítu inn í hann umleið og þú lokar. Það eina sem mun gerast er að það slokknar á eldspítunni!
drCronex
QUOTE(feu @ Nov 27 2006, 0:40) [snapback]1059871[/snapback]

Bruni þarfnast súrefni. Þú getur gert tilraun. Opnaðu fullan tank af bensíni og hentu eldspítu inn í hann umleið og þú lokar. Það eina sem mun gerast er að það slokknar á eldspítunni!

Taktu upp video og sendu okkur!
cracca
Sé ég rétt? Er Besti vinur Aðal farinn að tjá sig um flugvélar aftur? En gaman!! Við eigum skemmtilega daga framundan heart_001.gif
feu
QUOTE(drCronex @ Nov 27 2006, 5:12) [snapback]1059934[/snapback]

Taktu upp video og sendu okkur!

Gerði gott betur en það..

Ég sendi konu þinni email og bað hana að kveikja sér í rettu þegar hún mundii næst dæla bensíni á vinnubílinn..

Hér er árangurinn..

Við þetta má bæta síðan að hefði tankurinn verið næstum tómur, þá væri spússa þín ekki til frásagnar og lítið eftir af bílnum!

This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2009 Invision Power Services, Inc.