Fljótlega eftir að hann birti þessa ritgerð (Why Indeed Did the WTC Buildings Collapse?) þá fékk hann þau viðbrögð frá samkennurum og stjórn skólans að þeir vildu ekki láta bendla sig við þetta. Þar á meðal var sú deild innan BYU sem hefur með verkfræði að gera, þeir sendu frá sér þessa yfirlýsingu:
"The structural engineering faculty [hjá BYU], do not support the hypotheses of Professor Jones."
og:
"hypotheses and interpretations of evidence were being questioned by scholars and practitioners"
og þeir efuðust um að greinin hafði verið:
"submitted to relevant scientific venues that would ensure rigorous technical peer review."
Jones bakkaði ekki með ritgerðina og stóð fastur á því að hún hafi verið Peer Reviewed áður en hún var gefin út. Á endanum þá tók hann ritgerðina af heimasíðu BYU og stuttu seinna settur í leyfi frá störfum. Þrjár deildir innan skólans (stjórnin, stærðfræði og eðlisfræði) ætluðu að fara yfir vinnubrögð Jones í þessu máli.
En svo sex vikum eftir að rannsóknir á þessu fóru í gang þá breyttist staðan því Jones sagði upp störfum við skólann. Eitthvað samkomulag virðist hafa verið gert, því deildirnar hafa í kjölfarið ákveðið að leggja niður rannsóknir á þessu máli.
Ég skil skólann vel að hafa sett í gang þessar rannsóknir, því þegar maður er búinn að lesa þessa grein Jones þá er nú ekki annað hægt en að efast stórlega um heiðarleika og geðheilsu þessa manns. Hún er virkilega illa unnin og hann dregur ályktanir sem eru algjörlega útí hött. Þegar maður les þessa skýrslu þá fær maður sömu tilfinningu og þegar maður les greinar eftir menntaða Ungjarðarsinna (sjá trúmálaumræðan).
Þetta mál með Jones er gott dæmi um hvernig ofurtrú á samsæriskenningum getur farið illa með menn. Sorglegt hvernig þessi annars bráðgáfaði maður hefur farið illa á þessari lygaþvælu í kringum 9/11.
Kveðja.

Heimildir:
http://chronicle.com/free/v52/i42/42a01001.htm
http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/conte...6102100635.html
http://deseretnews.com/dn/view/0,1249,650200587,00.html
http://deseretnews.com/dn/view/0,1249,645199800,00.html
http://en.wikipedia.org/wiki/Steven_E._Jones#_note-DN_Retire