Skaut heimiliskött með riffli
Karlmaður á sjötugsaldri hefur játað við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Egilsstöðum að hafa skotið heimiliskött á Egilsstöðum í bakgarði vídeóleigunnar Vídeóflugunnar 6. maí síðastliðinn. Vopnið sem hann notaði var 22 kalibera riffill. Ástæða verknaðarins, að sögn mannsins, var sú að hann vildi passa upp á fuglalífið í garðinum við íbúðarhús sitt.
Kristinn Kristmundsson, eigandi kattarins, segir að eina leiðin fyrir manninn til að skjóta köttinn þennan dag hafi verið að skjóta hann af svölum íbúðarhúss síns. Kristinn lýsti atvikum á eftirfarandi hátt í samtali við Fréttablaðið: „Didda skreið helsærð úr bakgarðinum inn í íbúðarhúsið þar sem henni blæddi út. Hún komst inn í húsið og ég fann hana við rúm þar sem hún hefur ætlað sér að fara uppí. Þá var hún rænulaus en svo dó hún á meðan ég var að tala við lækninn." Kristinn hefur fengið staðfest hjá dýralækni að kúlan gekk inn við rófuna á kettinum, rauf slagæð í afturfæti og fór út í gegnum kviðarholið. Hann segir verknaðinn enn alvarlegri fyrir þá sök að ungt barn var í garðinum stuttu áður en dýrið var skotið og börn séu að leik við húsið allt árið um kring.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum er málið enn í rannsókn en að sögn lögfræðings varðar athæfi mannsins við hegningarlög, skotvopnalög og dýraverndunarlög. Skaðabótaskylda í máli eins og þessu mun vera ótvíræð.
© visir.is
Í hvert sinn sem Íslendingar sér dýr sem eru ekki krútt að þeirra mati er það drepið..... Fyrirgefið öll dýr á Íslandi eru hvort sem er drepin.....Enda eru Íslendingar heimsfrægir fyrir það að drepa öll dýr sem á vegi þeim verður. Jafnvel refurinn sem í raun á þetta land leyfist ekki að vera frjáls í sínu eigin landi. Það er kominn tími til að Íslendingar fari að slaka á þessari dráp fíkn sína enda er skotvopna eign Íslendinga stór viða við höfðatölu.....En því miður er það föst regla Íslendinga drepa allt sem hreyfist jafnt landi sem á sjó.....stæstu skepnur jarðar hvalir fá ekki frið fyrir blóðþystum fólki þó að það viti að allt það kjöt sem kemur af hvali fari á hauga því framboð eftir hval-kjöti er ekkert í dag....Nei það vill drepa til fullnægja dráp fíkn sína......Þessi gamli skarfur hér sem fréttinn fjallar um er fulltrúi þeirra sem virða ekki lífið eins og það kemur öllum fyrir sjónir
Goa
