Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Hvolpaframleiðslan Dalsmynni farin á hausinn
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Joseph Hollopeter
Var að heyra það að Dalsmynni er farið í þrot og búið að stofna nýtt fyrirtæki utan um hvolpaframleiðsluna. Nú sé útsala á hundum fram hjá þrotabúinu. Vonandi eiga Málverjar engar fjárhagslegar eða ættbókakröfur hjá þeim dry.gif

JP
Brando
Hvaða lögfræðingur heldur utan um þrotabúið?
IceCat
QUOTE (Brando @ Jul 3 2006, 15:56) *
Hvaða lögfræðingur heldur utan um þrotabúið?

Skylst af öðrum vefjum að skiptastjóri sé í fríi, grey þeir sem eiga ennþá ættbækur inni hjá þrotabúinu, fá þær varla héðan af dry.gif
Rubinstein
Ætli allir þeir sem hafa ofsótt þessa konu linni nokkuð látum þó hún sé að missa allt sitt ? Ég efast um það!
Grasi
QUOTE (Rubinstein @ Jul 3 2006, 20:07) *

Hún hefði nú ekki misst neitt ef hún hefði bara farið betur með hundana sína.
What goes around comes around! wink.gif
IceCat
QUOTE (Rubinstein @ Jul 3 2006, 20:07) *
Ætli allir þeir sem hafa ofsótt þessa konu linni nokkuð látum þó hún sé að missa allt sitt ? Ég efast um það!

Missa allt sitt??? Hún er nú þegar búin að stofna nýtt fyrirtæki á nýrri kennitölu svo hún er ekkert hætt. Sem betur fer er það að renna upp fyrir fólki hvurslags dýraníð og óheiðarleiki er stundaður í Dalsmynni mad.gif
Fowl

Eru það ofsóknir að vilja fá hreinræktaða hunda og rétt ættbókarfærða? Eru það ofsóknir að vilja að vel sé hugsað um dýr?

Íslendingar hafa löngum verið duglegir að stofna fyrirtæki undir nýjum kennitölum. Er hún eitthvað að "missa allt sitt"?
Hawk12
QUOTE (Joseph Hollopeter @ Jul 3 2006, 13:15) *
Var að heyra það að Dalsmynni er farið í þrot og búið að stofna nýtt fyrirtæki utan um hvolpaframleiðsluna. Nú sé útsala á hundum fram hjá þrotabúinu. Vonandi eiga Málverjar engar fjárhagslegar eða ættbókakröfur hjá þeim dry.gif

JP

Er ekki til eitthvað sem heitir ættfræðistofnun, væri ekki hægt að sjá og átta sig kynbótunum hjá þeim, ekki ertu að segja að hundakvekindin eigi sér ættarskrá, auðvitað ég veit svo sem betur, en verð bara að segja mér gæti ekki verið meira sama þó þessi ættbókarfærsla fær í ruslið enda er hún djók og mín vegna getur mér ekki verið meira sama.
IceCat
QUOTE (Hawk12 @ Jul 3 2006, 20:55) *
Er ekki til eitthvað sem heitir ættfræðistofnun, væri ekki hægt að sjá og átta sig kynbótunum hjá þeim, ekki ertu að segja að hundakvekindin eigi sér ættarskrá, auðvitað ég veit svo sem betur, en verð bara að segja mér gæti ekki verið meira sama þó þessi ættbókarfærsla fær í ruslið enda er hún djók og mín vegna getur mér ekki verið meira sama.

Sumir hreinræktaðir hundar eiga sér ættarskrá. Ef þú vilt hund með ákveðna eiginleika og jafnvel ákveðið útlit þá skoðar þú kynslóðirnar tvær til þrjár á undan hvolpinum sem þú ert að hugsa um. Með því að vera með ættbók þá er verið að fullvissa sig um það að ekki sé verið að rækta undan ómögulegum hundum (stundum mætti svoleiðis vera hjá mönnum líka rolleyes.gif ).

Það sem hefur verið dálítið erfitt og sýnt sig aftur og aftur, að það er að treysta ættbókum frá sumum hundaræktunarfélögum *hóst*íshundar*hóst*. Svo er það virkilega leiðinlegt að fara heim með hvolpinn þinn sem er svo með eyrnamaur, mjaðmalos, aukasett af tanngörðum, líkist ekki tegundinni sem hann á að vera af, kennelhósta osfrv.

Niðurstaðan er: Þú getur skeint þig á ættbókum sumra "hundaræktunarfélaga" wink.gif
Rubinstein
QUOTE (IceCat @ Jul 3 2006, 20:49) *
Missa allt sitt??? Hún er nú þegar búin að stofna nýtt fyrirtæki á nýrri kennitölu svo hún er ekkert hætt. Sem betur fer er það að renna upp fyrir fólki hvurslags dýraníð og óheiðarleiki er stundaður í Dalsmynni mad.gif

getur þú sannað þetta dýraníð ? Afhverju voru yfirvöld ekki búin að loka þarna er það var stundað dýraníð þarna ? Þú veist jafnvel og ég að aðrir ræktendur reyndu allt til að klekkja á þessari konu og þar var að baki ekkert annað en viðskiptahagsmunir.
Ef dýraníð hefði verið stundað þarna, þá hefði þessu verið lokað. Það var fylgst vel með þessu.
Hawk12
QUOTE (IceCat @ Jul 3 2006, 21:11) *
Sumir hreinræktaðir hundar eiga sér ættarskrá. Ef þú vilt hund með ákveðna eiginleika og jafnvel ákveðið útlit þá skoðar þú kynslóðirnar tvær til þrjár á undan hvolpinum sem þú ert að hugsa um. Með því að vera með ættbók þá er verið að fullvissa sig um það að ekki sé verið að rækta undan ómögulegum hundum (stundum mætti svoleiðis vera hjá mönnum líka rolleyes.gif ).

Það sem hefur verið dálítið erfitt og sýnt sig aftur og aftur, að það er að treysta ættbókum frá sumum hundaræktunarfélögum *hóst*íshundar*hóst*. Svo er það virkilega leiðinlegt að fara heim með hvolpinn þinn sem er svo með eyrnamaur, mjaðmalos, aukasett af tanngörðum, líkist ekki tegundinni sem hann á að vera af, kennelhósta osfrv.

Niðurstaðan er: Þú getur skeint þig á ættbókum sumra "hundaræktunarfélaga" wink.gif

Eins og ég sagði áður getur mér ekki staðið meir á sama um ættarskrár hunda, en varðandi kynbætur á stofni okkar, þá er það nú eins og það er, en eins og mig minni að viss þjóðarleiðtogi fyrir miðja síðustu öld hafi talið að við værum hinn eini og sanni stofn sem heimsbyggðin ætti að byggja alla sína framtíð á, en það fór nú eins og það fór og ekki syrgi ég það en það má vera að slíkir séu á meðal vor enn þann dag í dag.

Ekki ætla ég að fullyrða að lýsing þín á kynbætum og ættarskrá hunda gæti átt við stofn okkar mannanna, en tel að slíkt mætti jafnvel til sannsvegar færa, svo ætli mætti ekki segja svipað um margar ættarskrár og kirkjubækur okkar mannanna.
kjarkaður
QUOTE (Rubinstein @ Jul 3 2006, 21:40) *
getur þú sannað þetta dýraníð ? Afhverju voru yfirvöld ekki búin að loka þarna er það var stundað dýraníð þarna ? Þú veist jafnvel og ég að aðrir ræktendur reyndu allt til að klekkja á þessari konu og þar var að baki ekkert annað en viðskiptahagsmunir.
Ef dýraníð hefði verið stundað þarna, þá hefði þessu verið lokað. Það var fylgst vel með þessu.

Ég get ekki sannað dýraníð. En aðstæðurnar þarna voru hörmulegar og ég vorkenndi dýrunum. Ég sem dýravinur færi aldrei svona með dýr. smileydisgust.gif
jóhann jóhannsson
QUOTE (kjarkaður @ Jul 4 2006, 1:40) *
Ég get ekki sannað dýraníð. En aðstæðurnar þarna voru hörmulegar og ég vorkenndi dýrunum. Ég sem dýravinur færi aldrei svona með dýr. smileydisgust.gif

Eru þá IceKat og Kjarkaður sami aðili ?
kjarkaður
QUOTE (jóhann jóhannsson @ Jul 3 2006, 23:57) *
Eru þá IceKat og Kjarkaður sami aðili ?

Nei en ég hlýt að mega segja mitt álit á þessu. Þótt Rúbbi hafi kvótað IceKat.
Rubinstein
QUOTE (kjarkaður @ Jul 3 2006, 23:40) *
Ég get ekki sannað dýraníð. En aðstæðurnar þarna voru hörmulegar og ég vorkenndi dýrunum. Ég sem dýravinur færi aldrei svona með dýr. smileydisgust.gif

ég hef aldrei komið þarna en lesið mikið um þennan stað og því meira sem ég las á hinum og þessum spjallþráðum því sannfærðari varð ég um að þetta voru ekkert annað en ofsóknir frá öfundsjúkum minni ræktendum sem fannst þeim ógnað. Aldrei skildi ég heldur þessar ásakanir um dýraníð því það er strangt eftirlit með ræktendum og vitað að Dalsmynni fékk oft eftirlitsheimsóknir vegna "kvartana" frá öðrum ræktendum en aldrei var lokað þarna, gott ef það var hreinlega eitthvað sett útá þessa starfsemi frá eftirlitsaðilum.
Svo hef ég nú reyndar séð hvernig ræktendur haga sér þegar nýjir aðilar vilja inná þennan markað, ef þú t.d. kaupir þér persneska læðu þá hringja ræktendur hver í annan á stundinni og passa uppá að sami aðili kaupi sér ekki högna!
Kannski Icecat geti frætt okkur meira um þetta. smile.gif
Leon
QUOTE (Rubinstein @ Jul 4 2006, 0:23) *
ég hef aldrei komið þarna en lesið mikið um þennan stað og því meira sem ég las á hinum og þessum spjallþráðum því sannfærðari varð ég um að þetta voru ekkert annað en ofsóknir frá öfundsjúkum minni ræktendum sem fannst þeim ógnað. Aldrei skildi ég heldur þessar ásakanir um dýraníð því það er strangt eftirlit með ræktendum og vitað að Dalsmynni fékk oft eftirlitsheimsóknir vegna "kvartana" frá öðrum ræktendum en aldrei var lokað þarna, gott ef það var hreinlega eitthvað sett útá þessa starfsemi frá eftirlitsaðilum.

Ég hef komið þarna uppeftir en ekki í hundahúsið, bara að skoða einhverja páfagauka í kjallaranum. Þar var þvílík fýla að ég hef varla upplifað annað eins og konan reyndi að selja manneskjunni sem ég var með bæklaðan fugl með afslætti.

Annars skilst mér að það hafi fáar athugasemdir komið frá eftirlitsaðilum vegna þess að það gildi sömu lög um hundarækt og refa- og minkabú. Nú má segja sem svo að hundar séu ekkert merkilegri dýr en refir og minkar en þú myndir ekki kaupa ref eða mink af slíku búi til að hafa sem gæludýr. Hundar sem koma til með að búa inni á heimilum þurfa helst að alast upp inni á heimilum til að vera í húsum hæfir.

Annars er bara langbest að fá sér blending. Miklu gáfaðri og lausir við innræktun, kosta ekki neitt og þurfa enga ættbók og svoleiðis pjatt smile.gif
gmaria
QUOTE (Joseph Hollopeter @ Jul 3 2006, 14:15) *
Var að heyra það að Dalsmynni er farið í þrot og búið að stofna nýtt fyrirtæki utan um hvolpaframleiðsluna. Nú sé útsala á hundum fram hjá þrotabúinu. Vonandi eiga Málverjar engar fjárhagslegar eða ættbókakröfur hjá þeim dry.gif

JP

Hefur þú einhverra hagsmuna að gæta í þessu efni Joseph nýr málverji ?

Spyr sá sem ekki veit , hins vegar veit ég það að það er langt síðan að Eiríkur Jónssson
fjölmiðlamaður þá á Bylgjunni var með innhringiþátt þar sem sá hinn sami fór ekki varhluta af
þessarri stórfurðulegu hagsmunabaráttu hundaumsýslumanna þar sem allt að því óendanleg
heift og illdeilur virtust bókstafalega endlausar ofar öllum mannlegum skilningi í raun.

kv.
gmaria.
ský
Hverslags erkifífl eru Íslenskir hundakaupendur ef þeir láta árum saman plata inn á sig ómögulegum hundum. Fólk leggur sig almennt niður við að skoða fjárfestingar sínar fyrirfram þegar það reiðir fram upphæð yfir 50 þúsundum. Hvers vegna ekki þegar málið snýst um hunda? Eða eru ómöguleheitin orðum aukin? Atvinnurógur?
hólmsteinn
QUOTE (ský @ Jul 4 2006, 8:34) *
Hverslags erkifífl eru Íslenskir hundakaupendur ef þeir láta árum saman plata inn á sig ómögulegum hundum. Fólk leggur sig almennt niður við að skoða fjárfestingar sínar fyrirfram þegar það reiðir fram upphæð yfir 50 þúsundum. Hvers vegna ekki þegar málið snýst um hunda? Eða eru ómöguleheitin orðum aukin? Atvinnurógur?

Það er kanski ekki skrítið þó að leikmenn sjái það ekki á hvolpum hvernig þeir koma til með að líta út sem uppkomnir. Það var eitthvað um það að Dalsmynni seldi hunda sem voru skyldleikaræktaðir (hver og ein tík getur átt hvolpa með mörgum hundum) þó svo að gotið hefði átt að koma undan einum hundi. Líka var eitthvað um það að það ruglaðist á milli tegunda.
Mistökin sem ræktendurnir hjá Dalsmynni var að viðurkenna ekki þessi mistök og bæta þá fólki það upp.
IceCat
QUOTE (Rubinstein @ Jul 3 2006, 21:40) *
getur þú sannað þetta dýraníð ? Afhverju voru yfirvöld ekki búin að loka þarna er það var stundað dýraníð þarna ? Þú veist jafnvel og ég að aðrir ræktendur reyndu allt til að klekkja á þessari konu og þar var að baki ekkert annað en viðskiptahagsmunir.
Ef dýraníð hefði verið stundað þarna, þá hefði þessu verið lokað. Það var fylgst vel með þessu.

Ég tel það dýraníð að ala hunda upp í búrum en hey, það er mín skoðun og reyndar margra annarra. Samkvæmt lögum er þetta löglegt sem er algjörlega óskiljanlegt þar sem Íslendingar vilja yfirleitt láta kenna sig við mannúð og mannúðlegar aðferðir við menn og dýr. Það er búið að gera þetta ólöglegt t.d. í USA, það mætti gera það hér líka. Þau lög sem eiga við Dalsmynni eru búfjárlög þar sem hundar eru flokkaðir með rollum og kúm, því er ekkert hægt að gera. Samkvæmt yfirdýralækni eru aðstæður hundanna í Dalsmynni í dag sæmandi fyrir búfé. Það sem er dálítið fúlt er að síðan Dalsmynni í núverandi mynd var stofnað voru aðstæður miklu verri og mörg ár hefur það tekið fyrir löggjafann að fá fólkið þar til að bæta aðstæður þannig að búfé væri sæmandi að vera þarna.

Rubinstein, ég er ekki hundaræktandi og mér er yfirleitt sléttsama um hvort hundar eru hreinræktaðir eða ekki, á sjálf blandaða sjeffertík sem ég bjargaði á sínum tíma frá svæfingu. Ég þekki engan í HRFÍ en hef farið nokkrum sinnum upp í Dalsmynni, aðallega vegna vinnu og ég ætla ekki að lýsa umbúnaðinum þar, hann var hræðilegur!

QUOTE (gmaria @ Jul 4 2006, 2:17) *
Hefur þú einhverra hagsmuna að gæta í þessu efni Joseph nýr málverji ?

Spyr sá sem ekki veit , hins vegar veit ég það að það er langt síðan að Eiríkur Jónssson
fjölmiðlamaður þá á Bylgjunni var með innhringiþátt þar sem sá hinn sami fór ekki varhluta af
þessarri stórfurðulegu hagsmunabaráttu hundaumsýslumanna þar sem allt að því óendanleg
heift og illdeilur virtust bókstafalega endlausar ofar öllum mannlegum skilningi í raun.

kv.
gmaria.

Leyfi mér að svara fyrir þráðarhöfund..

Þetta mál er ekki ofar mannlegum skilningi heldur ofar ÞÍNUM skilningi eins og svo oft áður. Ef þú skilur ekki um hvað málið fjallar og þarft að saka þráðarhöfund um annarlegan tilgang með innleggi sínu þá skaltu bara vera einhvers staðar annars staðar greyjið mitt rolleyes.gif

QUOTE (hólmsteinn @ Jul 4 2006, 8:23) *
Það er kanski ekki skrítið þó að leikmenn sjái það ekki á hvolpum hvernig þeir koma til með að líta út sem uppkomnir. Það var eitthvað um það að Dalsmynni seldi hunda sem voru skyldleikaræktaðir (hver og ein tík getur átt hvolpa með mörgum hundum) þó svo að gotið hefði átt að koma undan einum hundi. Líka var eitthvað um það að það ruglaðist á milli tegunda.
Mistökin sem ræktendurnir hjá Dalsmynni var að viðurkenna ekki þessi mistök og bæta þá fólki það upp.

Málið er mjög einfalt, fólk sem t.d. aldrei hefur átt hund dettur það allt í einu í hug að fá sér hund, innan klukkutíma getur þú verið komin með hund í fangið. Fólk vill fá allt strax og það hefur ekki tíma til að bíða eftir hundi frá öðrum ræktunum eða að það komi hvolpur á dýraspítalana sem á að lóga. Þannig held ég að málið sé.
Grasi
QUOTE (IceCat @ Jul 4 2006, 13:45) *
Ég tel það dýraníð að ala hunda upp í búrum en hey, það er mín skoðun og reyndar margra annarra. Samkvæmt lögum er þetta löglegt sem er algjörlega óskiljanlegt þar sem Íslendingar vilja yfirleitt láta kenna sig við mannúð og mannúðlegar aðferðir við menn og dýr. Það er búið að gera þetta ólöglegt t.d. í USA, það mætti gera það hér líka. Þau lög sem eiga við Dalsmynni eru búfjárlög þar sem hundar eru flokkaðir með rollum og kúm, því er ekkert hægt að gera. Samkvæmt yfirdýralækni eru aðstæður hundanna í Dalsmynni í dag sæmandi fyrir búfé. Það sem er dálítið fúlt er að síðan Dalsmynni í núverandi mynd var stofnað voru aðstæður miklu verri og mörg ár hefur það tekið fyrir löggjafann að fá fólkið þar til að bæta aðstæður þannig að búfé væri sæmandi að vera þarna.

Rubinstein, ég er ekki hundaræktandi og mér er yfirleitt sléttsama um hvort hundar eru hreinræktaðir eða ekki, á sjálf blandaða sjeffertík sem ég bjargaði á sínum tíma frá svæfingu. Ég þekki engan í HRFÍ en hef farið nokkrum sinnum upp í Dalsmynni, aðallega vegna vinnu og ég ætla ekki að lýsa umbúnaðinum þar, hann var hræðilegur!
Leyfi mér að svara fyrir þráðarhöfund..

Þetta mál er ekki ofar mannlegum skilningi heldur ofar ÞÍNUM skilningi eins og svo oft áður. Ef þú skilur ekki um hvað málið fjallar og þarft að saka þráðarhöfund um annarlegan tilgang með innleggi sínu þá skaltu bara vera einhvers staðar annars staðar greyjið mitt rolleyes.gif
Málið er mjög einfalt, fólk sem t.d. aldrei hefur átt hund dettur það allt í einu í hug að fá sér hund, innan klukkutíma getur þú verið komin með hund í fangið. Fólk vill fá allt strax og það hefur ekki tíma til að bíða eftir hundi frá öðrum ræktunum eða að það komi hvolpur á dýraspítalana sem á að lóga. Þannig held ég að málið sé.

Ég tek undir þetta allt saman hjá Ískisunni.
ský
QUOTE (hólmsteinn @ Jul 4 2006, 9:23) *
Það er kanski ekki skrítið þó að leikmenn sjái það ekki á hvolpum hvernig þeir koma til með að líta út sem uppkomnir. Það var eitthvað um það að Dalsmynni seldi hunda sem voru skyldleikaræktaðir (hver og ein tík getur átt hvolpa með mörgum hundum) þó svo að gotið hefði átt að koma undan einum hundi. Líka var eitthvað um það að það ruglaðist á milli tegunda.
Mistökin sem ræktendurnir hjá Dalsmynni var að viðurkenna ekki þessi mistök og bæta þá fólki það upp.

Þegar ég kaupi mér bíl er ég leikmaður. Og hvað geri ég? Ég leita til einhverra sem hafa vit á, til að ég verði ekki plötuð upp úr skónum. Ella væri ég að fara reglulega illa með peningana mína. Leikmenn ættu að hafa vit á því að fá ráð hjá fagmönnum og spyrjast fyrir (það er ekki eins og menn í bransanum beri Dalsminni vel söguna, séu þeir spurðir), eða kaupa sér bara ekki hund heldur fá sér einn gefins blending.
svejk
smileydisgust.gifÉg finn að þaðer hundur í mönnum yfir þessu. Vona samt að Dalsmynni fari ekki í hundana. Samt eiginlega hundleiður á hundalogiunni í kringum þetta. Gæti hinsvegar hugsanlega útvegað einhverjum rottuhundi frá Budeovitch
QUOTE (ský @ Jul 4 2006, 15:00) *
Þegar ég kaupi mér bíl er ég leikmaður. Og hvað geri ég? Ég leita til einhverra sem hafa vit á, til að ég verði ekki plötuð upp úr skónum. Ella væri ég að fara reglulega illa með peningana mína. Leikmenn ættu að hafa vit á því að fá ráð hjá fagmönnum og spyrjast fyrir (það er ekki eins og menn í bransanum beri Dalsminni vel söguna, séu þeir spurðir), eða kaupa sér bara ekki hund heldur fá sér einn gefins blending.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.