Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Næstum sex prósent af erlendum uppruna
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Vestfirðingur
Núna er landið að drukkna í hörundsdökkum sem éta kebab og kínarúllur og sem aldrei eru í heimsókn í Silfri Egils. Af hverju geta þeir ekki fundið út úr þessu, gengið í lopapeysu og étið skyr eins og venjulegt fólk? Hvað er að sviðum og kæstum hákarl, ég bara spyr?
Orville
QUOTE(Vestfirðingur @ Feb 8 2006, 19:08) [snapback]899221[/snapback]

Ég skal játa það að mér þykja kínarúllur og kebab ólíkt betri en svið. Hákarl get ég alls ekki sett inn fyrir mínar varir. Reyndar er ég með brún augu en held að það hafi samt ekkert með það að gera. Reyndar hefur mér ekki heldur verið boðið í Silfur Egils ef út í það er farið.
cesil
QUOTE(Vestfirðingur @ Feb 8 2006, 20:08) [snapback]899221[/snapback]

Hákarl er herramannsmatur og heilsubrunnur í þokkabót. Heit svið eru góð, þ.e. ef maður svíður þau, en ekki sett í sýru. Og hefur eyrun á, ég elska að borða eyrun. Lopapeysa á ég alltaf, sem vinnuflík, og skyr borða ég reglulega með rjóma, ekki er verra að hafa aðalbláber út á svona á haustinn, nammi namm.
Orville
Skyrið er herramanns matur en mig klægjar alltaf svolítið undan lopapeysunni.
cesil
Já það er frekar algengt að fólk klæji undan ullinni. En hlý og góð er hún nú samt.
Kiðhildur Ó. Kynd
Ég fíla Kebab og kínarúllur......
cesil
QUOTE(Kiðhildur Ó. Kynd @ Feb 8 2006, 22:34) [snapback]899356[/snapback]

Ég fíla Kebab og kínarúllur......

Jamm og örugglega ullina líka, ef að likum lætur laugh.gif
Orville
tongue.gif
QUOTE(cesil @ Feb 8 2006, 21:36) [snapback]899360[/snapback]

Jamm og örugglega ullina líka, ef að likum lætur laugh.gif
Kiðhildur Ó. Kynd
QUOTE(cesil @ Feb 8 2006, 21:36) [snapback]899360[/snapback]

Jamm og örugglega ullina líka, ef að likum lætur laugh.gif

Nei, ég geng aðeins í flónel...
Orville
Fllónhildur Ó. Flón væri þá ef til vill réttnefni wink.gif
Kiðhildur Ó. Kynd
hahahaha biggrin.gif .... já ég ætti kannski að taka nikkskiptiaðgerð á þetta rolleyes.gif
Auður
QUOTE(Vestfirðingur @ Feb 8 2006, 19:08) [snapback]899221[/snapback]

Núna er landið að drukkna í hörundsdökkum sem éta kebab og kínarúllur og sem aldrei eru í heimsókn í Silfri Egils. Af hverju geta þeir ekki fundið út úr þessu, gengið í lopapeysu og étið skyr eins og venjulegt fólk? Hvað er að sviðum og kæstum hákarl, ég bara spyr?

Tja... annað en að svið og kæstur hákarl eru viðbjóðslega vondur og sennilega óhollur matur??

Ég á enga lopapeysu, geng aldrei í ullarfötum yfirhöfuð, borða ekki skyr - hvað þá þorramat og ég kann varla fyrsta erindið af þjóðsöngnum. Horfi aldrei á Silfur Egils, hvað þá meira. Samt er ég eins íslensk og hægt er að vera.

So sue me. rolleyes.gif
spinoza
QUOTE(Vestfirðingur @ Feb 8 2006, 20:08) [snapback]899221[/snapback]

Núna er landið að drukkna í hörundsdökkum sem éta kebab og kínarúllur og sem aldrei eru í heimsókn í Silfri Egils. Af hverju geta þeir ekki fundið út úr þessu, gengið í lopapeysu og étið skyr eins og venjulegt fólk? Hvað er að sviðum og kæstum hákarl, ég bara spyr?

Svið eru ógeðsleg og ég vil ekki sjá þau, og því síður þurfa að leggja þau mér til munns. Kæstur hákarl er allt í lagi ef maður getur skolað honum niður með brennivíni. Þá er nú betra að borða kebab eða kínarúllur en saltað, súrsað, reykt eða kæst. Ég borða reyndar nokkuð oft döner kebab sem getur verið sérstaklega hollur og góður skyndibiti. Það er hið besta mál að Ísland sé að verða litskrúðugra, enda ósköp að sjá hvað íslendingar eru margir fölir og litlausir. Og mér hefur verið boðið í Silfur Egils, en ég afþakkaði.
drCronex
QUOTE(Orville @ Feb 8 2006, 20:35) [snapback]899295[/snapback]

Ég skal játa það að mér þykja kínarúllur og kebab ólíkt betri en svið. Hákarl get ég alls ekki sett inn fyrir mínar varir. Reyndar er ég með brún augu en held að það hafi samt ekkert með það að gera. Reyndar hefur mér ekki heldur verið boðið í Silfur Egils ef út í það er farið.

Sama hér. Ég á afar erfitt með að þola þennan viðbjóð sem þorramatur er. Það er helsta ástæða þess að ég hef mig ekki í að flytja heim. Blóðug slátur með fitukeppum, rollueistu, plís. Namminamm. throwup.gif

Held mig við smá kjöt og mest grænmeti og ávexti. Það fer betur í maga.

En flottast þykir mér að sjá hvernig Reykjavík er að verða meira international með fólki utanað úr löndum. Maður sér mikið af útlendingum og er það allt afar jákvætt fyrir þjóðfélagið. Nema þeir séu allir á eftir að fá að totta á rollueistum eða mygluðum hákarli stressed.gif
gmaria
Eins og Vestfirðingur bendir hér á er þetta prósent innflytjenda til Íslands.

Stjórnmálaflokkarnir almennt hafa enn ekki hætt sér út í umræðu um innflytjendur sem heitið geti
sem er miður þótt verulega hafi skort á um það atriði að hyggja að aðlögun fólks af erlendu bergi brotnu.

Framkoma vinnuveitenda sumra hér á landi hefur ekki beinlínis verið neitt til að hrópa húrra fyrir en í krafti
umræðuleysis hafa menn greinilega komist upp með slikt.

Við hvoru tveggja verðum og þurfum að taka mið af því að hér fjölgar fólki af erlendu bergi brotnu
og gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að hjálpa því fólki að aðlagast samfélagi okkar.

EF við höfum ekki efni á því að veita fólki aðlögun þá eigum við ekki að bjóða því þáttöku á vinnumarkaði.

kv.
gmaria.
Harry
Harry er léttur á fóðrum, etur einusinni á ári og þá eingöngu á Þorrablóti.
Fátt er betri matur en súr og hálfskemmdur innmatur og ketrestar.

Séu innflytjendur ekki nema 6% íbúa landsins eru íslendingar nokkuð vel staddir, stærztur hlutinn er líklegast pólverjar og aðrir austur-evrópuþegnar sem hingað til hafa fallið vel inn í þjóðfélagið og margir hverjir seztir að til frambúðar.
Það virðast oftast vera þegnar miðausturlanda sem eru til vandræða hvar Harry þekkir til.

Harry... Halim heim...
Surtla
QUOTE(Harry @ Feb 9 2006, 8:02) [snapback]899585[/snapback]

Harry er léttur á fóðrum, etur einusinni á ári og þá eingöngu á Þorrablóti.
Fátt er betri matur en súr og hálfskemmdur innmatur og ketrestar.

Séu innflytjendur ekki nema 6% íbúa landsins eru íslendingar nokkuð vel staddir, stærztur hlutinn er líklegast pólverjar og aðrir austur-evrópuþegnar sem hingað til hafa fallið vel inn í þjóðfélagið og margir hverjir seztir að til frambúðar.
Það virðast oftast vera þegnar miðausturlanda sem eru til vandræða hvar Harry þekkir til.

Harry... Halim heim...

Ég hef nú einhvernvegin á tilfininguni að megnið af þessum innflytjendum séu aðrir norðurlandabúar. Hef einhverntíman heyrt að danir séu mjög stór hluti af innflytjendum hér á skerinu.
dullur
QUOTE(cesil @ Feb 8 2006, 20:41) [snapback]899298[/snapback]

Hákarl er herramannsmatur og heilsubrunnur í þokkabót. Heit svið eru góð, þ.e. ef maður svíður þau, en ekki sett í sýru. Og hefur eyrun á, ég elska að borða eyrun. Lopapeysa á ég alltaf, sem vinnuflík, og skyr borða ég reglulega með rjóma, ekki er verra að hafa aðalbláber út á svona á haustinn, nammi namm.

Og svo er ekkert betri líftrygging á ferðum um hálendið en eingirnisbolur og svipaðar buxur.

Aðalbláberin eru ekki bara heilsusamleg, heldur lífsins elexír, bæði beint af lyngi, frosin, sultuð eða gerjuð. flower4.gif flower4.gif flower4.gif flower4.gif heart_001.gif heart_001.gif heart_001.gif

Best eru þau úr Skjaldfannadal og Langadal við Djúp, þar sem lyngið kemur jaðargrænt undan snjó.

Lambakét af sumragengnum dilk, svona að fallþunga um 24kg krofið, gengið á fjöllum uppi á Vestfjarðakjálkanum. Þessar elskur krydda sig sjálf.mmmmmmmmmmmmmmmmm

Nánast alt af okkar fé er ætt, nema ef er ullin, einnig er svo með sjóvarfang, það er lífsbjörg. Nú hefur komið í ljós, í einni stærstu rannsókn, sem gerð hefur verið, í heilbrigðisheiminum, að þetta sífellda bull og sífr um óhollustu fitu er bull og vitleysa og neysla á þessu eykur ekki hættu á krabba og hjartasjúkdómum.

Niðurstöðurnar eru taldar það afgerandi, að það sé ófært, að halda áfrram áróðrinum um hættu á þessari neyslu. ÞEtta hafa allir íslendingar með jarðsamband vitað lengi.

Mín skoðun hefur lengi verið, að menn ættu að neyta þess, sem Móðir Náttúra framleiðir á þeirri breiddargráðu sem þeir búa.
ÞArf ekki annað en líta til efnainnihald Mjólkur, hérlendis og erlendis. Niðurstöðurnar eru órækar, milku mun meira af ómettuðum Omega sýrum hér en í kúamjólk á Norðurlöndunum. Svo eru þessir aular, að heimta innflutning kúa þaðan.

Dullur

þjóðholur í áti sem öðru. biggrin.gif LOL.gif LOL.gif tongue.gif
cesil
Ég heyrði einmitt um þessar niðurstöður, og hugsaði mitt. Mér finnst nefnilega fita frekar góð, sérstaklega er saltket og súpuket óætt ef enginn er fitan í því.

Og ég er sammála því að menn eiga að borða mest af því sem í kring um þá eru. Það er fæðan sem hentar best þeim einstaklingum sem búa á svæðinu. Svona í helstu aðalatriðum allavega.

Móðir mín ólst einmitt upp að hluta til í Skjaldfannadal á svonefndu Seli.
Orville
Ágæt þessi breiddagráðukenning hjá Dulli og sjálfsagt ekki verri en hver önnur. Kínarúllur má búa til úr íslensku hráefni að mestu og borða með lífræntræktað bygg frá Eymundi í Vallanesi.

Ég vildi svo gjarnan geta borðað allan þennan mat sem borin er fram á þorrablótum og þurfa ekki að sitja einn með minn harðfisk og smér. Ég hef gert ótal marga´r tilraunir til að borða þetta, þamba brennívín með, halda niður í mér andanum, kyngja matnum ótyggðum og öll möguleg önnur húsráð. Þetta er bara svo ferlega vont.

Aðalbláber eru vissulega góð og einhverntíman verð ég að prófa þessi úr Skjaldfannadal.
el toro
QUOTE(Vestfirðingur @ Feb 8 2006, 19:08) [snapback]899221[/snapback]
Núna er landið að drukkna í hörundsdökkum sem éta kebab og kínarúllur og sem aldrei eru í heimsókn í Silfri Egils. Af hverju geta þeir ekki fundið út úr þessu, gengið í lopapeysu og étið skyr eins og venjulegt fólk? Hvað er að sviðum og kæstum hákarl, ég bara spyr?

Fólk fór hér strax út af þræðinum, sem varðar hörundsdökkt fólk hérlendis og matvenjur þess og aðlögun þessa fólks að íslenskum háttum. Nema kannski helst gmaria.

Leyfi mér að stíga líka til hliðar: Einhver vék að því að kæstur matur væri óhollur. Því fer fjarri. Ef nokkur fæða er létt í maga en jafnframt næringarrík, þá er það kæst skata og stækur hákarl. Ástæðan? Einfaldlega vegna þess, að þessi fæða er formelt - með effi en ekki téi. Flestum verður mjög gott af kæstum mat. Brennivín hefur þar ekkert að segja.
Fathome
6% finnst mér frekar lág prósentutala, andstæðingar innflytjenda hafa verið að tala um 10-15%.

Mér er reyndar alveg sama, fólk er fífl óháð uppruna og litarhafti.

Og hvað varðar að nota gæði náttúrunnar m.t.t. breiddargráðu, eru málverjar að hvetja íbúa landa mið- og suður-ameríku til aukinnar notkunar kókalaufa og annara slíkra náttúrugæða? smile.gif
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.