Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Unicef
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Hjólastelpa
Horfði á þáttinn með Sirrí í gær og táraðist yfir því hvað þetta yndæla fólk býr illa.
Ég mæli eindregið með því að þeir sem ekki eru orðnir heimsforeldrar skrái sig sem fyrst. Öll erum við aflögu fær um ca 500-2000 á mán. því annað eins erum við að eyða í allann fjandan. Ég sjálf er heimsforeldri og er stolt af því að geta styrkt 3 börn í skóla.

Kveðja
Hjólastelpa
IceCat
Já ég styð unga stúlku í Filipseyjum í gegnum ABC hjálparstarf. Ég sé til þess að hún komist í skóla, geti keypt námsbækur og fái að borða í skólanum.
sparri
Sparri gamli var einu sinni með barn á Indlandi á sínu framfæri, en svo eltist barnið og þar með kláraðist þetta. Hef ekki ennþá komið því í verk að taka að mér fleiri börn.
Get ekki sagt að þetta hafi tekið í fjárhaginn, munaði ekkert um þessa hundraðkalla sem fóru í þetta.
Sá ekki þáttinn hjá Sirrý en las í nýjasta Mannlífi magnaða grein eftir hana um heimsóknina til Kenýa og það vakti mig af værum blundi.
Líklega verður gamli að hýfa sig upp á rassgatinu oh koma sér á nýjan leik í samband við einhver samtök sem sinna svona starfi.
IceCat
QUOTE(sparri @ Sep 15 2005, 12:11)
Sparri gamli var einu sinni með barn á Indlandi á sínu framfæri, en svo eltist barnið og þar með kláraðist þetta. Hef ekki ennþá komið því í verk að taka að mér fleiri börn.
Get ekki sagt að þetta hafi tekið í fjárhaginn, munaði ekkert um þessa hundraðkalla sem fóru í þetta.
Sá ekki þáttinn hjá Sirrý en las í nýjasta Mannlífi magnaða grein eftir hana um heimsóknina til Kenýa og það vakti mig af værum blundi.
Líklega verður gamli að hýfa sig upp á rassgatinu oh koma sér á nýjan leik í samband við einhver samtök sem sinna svona starfi.
[right][snapback]773049[/snapback][/right]


Ég hafði hugsað um þetta heillengi og svo bara dreif ég mig í það að skrá mig. Borga 1990kr. mánaðarlega og gat valið á milli barns á Filipseyjum eða Uganda. Flestir voru með barn í Uganda svo ég valdi Filipseyjar og fékk mynd af mjög fallegri stúlku og tækifæri til að styrkja hana í barnaskóla. Foreldrar hennar eru ómenntaðir mjög svo "low-income" fólk og þetta hjálpar mjög mikið til því hún fær að borða heita máltíð í skólanum og allt annað varðandi skólann er borgað af mér. Manni hlýnar dálítið um hjartarætur að geta breytt einu lífi svona mikið til hins betra fyrir svona litla peninga heart_001.gif
Surtla
Jamm, er með stúlku í Uganda á mínu framfæri. Hún og fjölskylda hennar eru flóttafólk í norður Uganda vegna einhverja skæruliða sem kalla sig hermenn guðs. Þeir bera ábyrgð á því að fólk svelltur heilu hungri þarna í norðurhlutanum.
visir
Er með eitt barn hjá SOS í Tælandi.Hef stutt hann í 4 ár.


Einnig í gegn um ABC stúlku á Filipseyjum,það byrjaði fyrir ári síðan.


Þetta eru litlir fjármunir en virkilega ánægjulegt að geta hjálpað.Hef hitt piltinn í Tælandi og skoðað hvernig þau búa þar.

Þar er mjög vel búið að börnunum og þau virka mjög ánægð og hamingjusöm.
Mona Lisa
Styrki lítinn strák í Uganda gegnum ABC. Vill svo skemmtilega til að hann er jafnaldri dóttur minnar.
Scyphozoa
Gef til UNICEF í hverjum mánuði sem og til Amnesty International og svo til sos barnaþropana svona við og við. flower4.gif
Frekjuskass
Ég styrki litla dömu í Afríku í gegnum ABC hjálparstarf.
Hún gengur í skóla, fær mat í skólanum, heilsugæslu og skólabúning og bækur fyrir peninginn sem ég borga á mánuði og það er ekki há upphæð, rétt tæpar 2000 krónur.
Sólveig
Ég er heimsforeldri. Ég er svo mikill heigull að ég þorði ekki að hafa eitt tiltekið barn á mínu framfæri.
Það var einhver ótti við að ég myndi kannski einhverntíma þurfa að afturkalla það og það var skelfileg tilhugsun. ´
Ég kaus þess vegna að vera heimsforeldri og styð ekkert eitt tiltekið barn en borga einhvern þúsundkall á mánuði til SÞ í þeim tilgangi að styðja börn í vanda.
Hugsið ykkur. Þúsund kall og það dugar ekki einu sinni fyrir tveim sígarettupökkum. Þvílík fórnfýsi í manni mad.gif
monrovia
QUOTE(Sólveig @ Sep 17 2005, 11:55)
Ég er heimsforeldri.  Ég er svo mikill heigull að ég þorði ekki að hafa eitt tiltekið barn á mínu framfæri.
Það var einhver ótti við að ég myndi kannski einhverntíma þurfa að afturkalla það og það var skelfileg tilhugsun.  ´
Ég kaus þess vegna að vera heimsforeldri og styð ekkert eitt tiltekið barn en borga einhvern þúsundkall á mánuði til SÞ í þeim tilgangi að styðja börn í vanda.
Hugsið ykkur.  Þúsund kall og það dugar ekki einu sinni fyrir tveim sígarettupökkum. Þvílík fórnfýsi í manni mad.gif
[right][snapback]774783[/snapback][/right]


LOL.gif það er nú svo með mig að ég tel að fólk ætti meira að einbeita sér að því sem að er í þeirra eiginlandi og svo þegar það er búið hjálpa til í öðru landi

he ég verð víst ekki vinsæll með að seigja þetta en samt

afhverju vill fólk fyrst taka til hendinni lengst í burtu áður en það gerir það heima hjá sér .í sínu eigin landi
mér er spurn ?

það er af nógu að taka hér heima börn eru á vergangi foreldrar eru sveltir af heilbrigðis hjálp vegna niðurskurðar ríkis eiga ekki fyrir hverskonar lyfjum sem þau þarfnast vegna veikinda sinna þá hrapar geðheilsan .sem grefur undan getu foreldris til umsjár fjölskyldu sem leiðir þá til sundrungar fjölskyldu sem leiðir til félagslegs uplausnar samfélagsins okkar.ennfremur eru aldraðir LAMDIR NIÐUR MEÐ SVIPUÓLUM BELTUM OG SKÖTTUM UPP AÐ 85% FYRRIR ÞAÐ EITT AÐ REINA AÐ AUKA FRAMLEG SÍNA TIL SAMFÉLAGS OKKAR SEM JÚ VANTAR FÓLK Á VINNU MARKAÐIN ,EN ÞAÐ ER JÚ BETRA AÐ TAKA INN ASÍU OG AUSTUR EVRÓPU BÚA
ÓDÝRARA VINNU AFL OG EKKI OKKKAR MÁL EF ÞAU VEIKJAST EÐA SLASAT ÞVÍ ÚR LANDI VERÐA ÞAU AFTUR SEND MEÐ ÞÆR FÖSTU BÆTUR SEM TRYGGINGAR HAFA BÆTT EN ENGIN KOSTNAÐUR FELLUR MEIR Á íSLENZK STJÓRN VÖLD

ÞETTA ER EKKI FRAMSET TIL AÐ SÆRA ÞÁ SEM LEGJA TIL FÉ TIL STYRKTAR BÖRNUM OG FÓLKI UM HEIM ALLAN

HELDUR ER ÞETTA MEIR ÆTLAÐ TIL HUGVAKNINGU UM ÞAÐ AÐ LAGA ÞAÐ SEM AÐ ÞJÓÐ OKKAR SNÝR OG SVO LAGA TIL HJÁ ÖÐRUM ÞJÓÐUM

PS ÉG HEF VÍÐA UM ÞJÓÐFÉLAGIÐ FARIÐ INN Á HEIMILI margra

það er af nóg að taka dry.gif
Roxanne
Ætlar Monrovia að stjórna því hvaða góðgerðarmálefni fólk styður? dry.gif
KolKa
Það þarf svo mikið minna til að áorka svo mikið meira í þróunarlöndunum....
Ég styð SOS barn í Afríku og sé ekki eftir þessum tvöþúsundogeitthvaðkalli sem fara þangað mánaðarlega, sé ekki að sú upphæð gæti fætt og klætt eitt barn hér huh.gif
Leon
Ég styrkti strák í S-Ameríku í gegnum SOS þar til hann varð 18 og það hætti. Ég var mjög sáttur við þeirra prógramm fyrir utan eitt, það að þegar hann varð 18 voru þeir undir eins búnir að setja mig í áskrift á annað barn án þess að spyrja mig. Ég fékk bara mynd í pósti.

Ég hef svo verið að styrkja strák í Afríku gegnum samtök hér úti en ég var ekki sáttur við þau samtök. Það var sífellt auka betl í gangi, í hverjum mánuði fékk maður betlibréf um að borga meira eða styrkja fleiri börn, litlar gjafir sem maður gæti sent "sínu" barni ef maður borgaði meira. Ég bað þá að hætta að senda mér þessi bréf og þá fóru þeir að hringja í mig í staðinn. Ég bað þá að hætta því líka og það hélt í smá tíma en þá fóru þeir aftur að senda bréf. Mér þóttu líka samskiptin ekki í lagi. Ég fékk miklu meiri upplýsingar um strákinn sem ég var að styrkja í gegnum SOS á sínum tíma. Fjölskyldumyndir og bréf. Af þessum fékk ég bara mynd og eiginlega engar upplýsingar. Bara svona tékklista þar sem var tékkað við að hann hefði gaman af að leika sér með dót. Hvaða barn hefur það ekki? Ég ákvað því að hætta að styrkja í gegnum þessi samtök. Ég hef svo sem engar áhyggjur af þessum strák. Þeir byrja á að finna nýjan styrktaraðila fyrir hann áður en þeir taka að sér fleiri nýja. Það er líka inní dæminu að hver krakki sé með fleiri en einn styrktaraðila. Það er þannig í SOS því það er ekkert í öllum löndum að 2000 kall á mánuði dugi til að fæða og klæða heilan krakka.

Ég er núna að spá í hvort ég eigi að þora að prófa önnur samtök. Hvernig virkar þetta t.d. með unicef?
Sólveig
Unisef styrkir allmennt bör á stríðshrjáðum svæðum. Þú kemst ekki í samband við neitt eitt barn en styrkir uppbyggigu SÞ
KolKa
Það er rétt að það eru tveir til fjórir aðilar að styrkja hvert barn í gegn um SOS, ég er mjög sátt við þetta fyrirkomulag en hún er enn svo voðalega ung! Stelpurnar mínar fengu að velja aldur og kyn en ég valdi landið.... wink.gif
Hef trú á að svona auki skilning barnanna á aðstæðum annarsstaðar en hér þar sem við fáum stutta sögu og reglulegar fréttir!
Wonder
Er einhver hér sem styrkir barn í gegnum hjálparstarfið sem Njörður P. Njarðvík er í forsvari fyrir? Það væri gaman að vita hvernig það gangi.
Hnakkus
Ég er á framfæri lítilla barna í þriðja heims landi. Rek þar teppaverksmiðju þar sem þessi litlu grey þræla allann daginn við að gera mig ríkan fyrir aðeins 1990 kr á mánuði í laun. Það er ótrúlega fallegt hvað þau hafa gefið mér mikið þessar elskur. heart_001.gif
Harry
Harry getur vart annað en játað sig sekann......

Harry... á börn út um allan heim...
Charles Darwin
Herra og frú Darwin hafa átt yndislega kjördóttur í El Salvador, í gegnum SOS. Hún er núna að nálgast 16. árið og er búin að vera okkar í 13 stutt ár.
Sólveig
Auðvitað eigum við að beina athygli okkar að þeim sem eiga um sárt að binsa nálægt okkur en þar sem fólk er að svelta til bana, þar sem fólk er í svona skelfilegri neyð, foreldralaus börn á vergangi. Við megum ekki láta það einsog okkur komi það ekki við þó það sé fjarri okkar litlu einkaveröld
Krúttmoli
Já. Ég er heimsforeldri.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.