Tveir sænskir lögreglumenn voru í dag dæmdir í þriggja mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á eldri manni á bensínstöð rétt fyrir utan Stokkhólm í fyrra.
Lögreglumennirnir töldu manninn vera undir áhrifum áfengis eða eiturlyfja og þótti þeim hann sýna ógnandi hegðun. Lögreglumennirnir stigu þá út úr bílnum og börðu manninn með kylfum sínum. Þeir héldu því fram fyrir dómi að um sjálfsvörn hefði verið að ræða.
Fjöldi vitna varð að atvikinu auk þess sem það náðist á myndband. Niðurstaða dómsins varð sú að lögreglumönnunum hafi ekki stafað ógn af manninum og því ekki verið heimilt að beita hann ofbeldi. Að auki voru þeir fundnir sekir um að gefa misvísandi skýrslu um málið. Auk fangelsisdómsins voru lögreglumennirnir dæmdir til að greiða manninum 17.100 sænskar krónur sem samsvarar um 150.000 íslenskum krónum.
MBL.
Þetta er með ólíkindum.Að berja saklaust gamalmenni og reyna svo að breiða yfir skömmina.