http://www.fasteignaskra.is/Fasteigna-og-b...at/Fasteignamat"Hvað er fasteignamat?
Fasteignamat er gangverð, umreiknað til staðgreiðslu, sem ætla má að eignin hefði haft í kaupum og sölum í febrúarmánuði, miðað við heimila og mögulega nýtingu fasteignarinnar á hverjum tíma. Nýtt febrúarverðlag er ákvarðað í maí mánuði ár hvert. Mat samkvæmt hinu nýja verðlagi tekur gildi í árslok. Fasteignamat eignar tekur bæði til húss og lóðar og er fasteignamati skipt í húsmat og lóðarmat. "
Sem sagt núverandi fasteignamat eru viðskipti frá því í febrúar 2009. Nýja fasteignamatið (viðskipti í febrúar 2010) tekur ekki gildi fyrr en í árslok. Það lækkar um 10% frá fyrra ári (skv. fréttatilkynningu frá FMR). Seðlabankinn spáir síðan að markaðsverð muni lækka um þriðjung frá deginum í dag. Þannig að ef þú ætlar að nota núverandi fasteignamat sem mælikvarða þá þarftu að taka 37% af því til þess að fá rétt fasteignamat. Núverandi fasteignamat er yfirleitt gefið upp í söluauglýsingum.Reiknað:
100-10% = 90%.
70% af 90% = 63%
---------------
Í dag eru eignir sem auglýstar eru til sölu með fermetraverð 235 þús að meðaltali miðað við
ásett verð á höfuðborgarsvæðinu.
Fermetraverð reiknað út frá
fasteignamati er hins vegar 210 þús.
90% af sömu tölum í réttri röð: 210 þús og 190 þús
63% af sömu tölum í réttri röð: 150 þús og 130 þús.