Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Hvað er hægt að gera við öskuna?
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Tölvur, tækni og vísindi
Óradís
Nytjahyggjan er að ná á mér heljartökum og mér datt í hug hvort þið efna og verkfræðingar gætuð ekki dottið niður á að finna not fyrir alla þessa ösku. Er ekki hægt að nota þetta í steypuefni af einhverju tagi, fúguefni, myndgerð eða bara eitthvað annað sniðugt? Hvað segið þið ágætu uppfinningamenn?
Bronstein
selja hana á ebay
Óradís
QUOTE(Bronstein @ 25. April, 2010, 18:35) *
selja hana á ebay

smile.gif Kannski er hægt að gera það líka en ég var nú bara að spá í hvort það væri ekki hægt að nota hana í einhverjum praktískum tilgangi?
falcon1
Þetta er víst ágætis áburður í hóflegu magni - eða svo skilst manni. smile.gif
Herkúles
hvernig er efnasamsetningin, er það komið fram?
Vinni
Minnir að ég hafi lesið einhversstaðar að þessi aska sé ekki góður áburður. Efast um að hún -sem efniviður- bæti nokkru við ágæta flóru gjósku sem finna má í rúmkílómetra vís víða á landinu.

ebay er sennilega málið, og endilega flytja hana út með flugi.
Jazz
QUOTE(Vinni @ 25. April, 2010, 20:47) *
Minnir að ég hafi lesið einhversstaðar að þessi aska sé ekki góður áburður. Efast um að hún -sem efniviður- bæti nokkru við ágæta flóru gjósku sem finna má í rúmkílómetra vís víða á landinu.

ebay er sennilega málið, og endilega flytja hana út með flugi.

Nú vantar Einar Ben.
Hann hefði ekki verið lengi að selja öskuna eins og fossinn forðum.
En er ekki tilvalið að gefa föllnum útrásarvíkingum hana hana og sjá hvort þeir nái ekki að búa til seðla úr henni.
bjargvætturinn
QUOTE(Óradís @ 25. April, 2010, 18:28) *
Nytjahyggjan er að ná á mér heljartökum og mér datt í hug hvort þið efna og verkfræðingar gætuð ekki dottið niður á að finna not fyrir alla þessa ösku. Er ekki hægt að nota þetta í steypuefni af einhverju tagi, fúguefni, myndgerð eða bara eitthvað annað sniðugt? Hvað segið þið ágætu uppfinningamenn?

Móberg er eftir því sem ég best veit þjöppuð gosaska. Má ekki þjappa þessu í gangstéttarhellur og hleðslugrjót?
tdi
Bara gera ekki neitt. Móberg er eins og flest annað íslenskt grjót (móberg er varla grjót) alltof mjúkur steinn til að byggja úr. Grófa askan frá Fimmvörðuhálsi er afturámóti mjög flott í glærum skálum og glösum undir kerti. Næstum alveg svört og auðvita með sögu.
Tembe
QUOTE(Bronstein @ 25. April, 2010, 18:35) *
selja hana á ebay

Eina vitið.
Heimurinn er bara alltof lítill markaður fyrir þetta magn sem er til staðar.
Já og magnið svo mikið að þetta er verðlaust.
Þetta er of fín aska til að nota sem byggingarefni auk þess sem það getur verið erfitt.
Ef askan er mjög vatnsdræg þá er erfitt að steypa úr henni með sementi.
Best er að jarða hana og hví ekki að bjóða umhverfissinnum að kaupa kistu til að jarða og annast.
wink.gif
Timoshenko
Það væri kannski hægt að blanda þetta við einher olíu eða vatnsefni og nota þetta sem slípimassa.

Hugsanlega fyrir bíla, en kannski líka í tannkrem. Er ekki flúorið þarna nú þegar wink.gif
Toffi
Er vikur ekki gosefni? Notað t.d. í léttsteipu. Það er rétt að skoða þetta m.t.t. byggingageirans í það minnsta.

Concrete
About 1,800 years ago the Romans made a cement composed of two parts by volume volcanic ash and one part slaked lime. Seaworks constructed with this pozzolanic cement are in use today. The Roman or pozzolanic cement is extremely slow-setting if made with slaked lime. To avoid this objectionable feature modern pozzolanic cements are made with Portland cement. Cements of this type are of special interest because they resist disintegration by sea water and in some cases minimize the reaction of some types of siliceous aggregates with the alkalies present in Portland cement. Volcanic ash, in addition to its natural cementing properties, serves the purpose of a fine aggregate that fills the voids between the fine sand aggregate and the cement. In concrete made with volcanic ash as much as 50 percent of the cement may be replaced by the ash, although a smaller proportion commonly is used.

According to Barr (1949, p. 752) the principal use of volcanic ash (pumicite) is for concrete aggregate and its use as an admixture in cement for concrete is attaining increasing importance. In 1945 nearly equal amounts of volcanic ash and pumice were produced for use in abrasives and in concrete. In 1947, 4.5 times as much of these same materials was used in concrete as was employed for abrasive purposes.
Spitfire
QUOTE(bjargvætturinn @ 25. April, 2010, 22:20) *
Móberg er eftir því sem ég best veit þjöppuð gosaska. Má ekki þjappa þessu í gangstéttarhellur og hleðslugrjót?

Í minni sveit í den var töluvert um móberg. Móberg þetta var það mjúkt að það var hálfpartinn hægt að stinga í gegnum það með skóflu og moka. Ekki gott til hellugerðar semsagt.
ammagamlaha

Mér dettur í hug að hægt væri að nota hana í einhvers konar einangrun.

bjargvætturinn
QUOTE(Toffi @ 26. April, 2010, 11:46) *
Er vikur ekki gosefni? Notað t.d. í léttsteipu. Það er rétt að skoða þetta m.t.t. byggingageirans í það minnsta.

Concrete
About 1,800 years ago the Romans made a cement composed of two parts by volume volcanic ash and one part slaked lime. Seaworks constructed with this pozzolanic cement are in use today. The Roman or pozzolanic cement is extremely slow-setting if made with slaked lime. To avoid this objectionable feature modern pozzolanic cements are made with Portland cement. Cements of this type are of special interest because they resist disintegration by sea water and in some cases minimize the reaction of some types of siliceous aggregates with the alkalies present in Portland cement. Volcanic ash, in addition to its natural cementing properties, serves the purpose of a fine aggregate that fills the voids between the fine sand aggregate and the cement. In concrete made with volcanic ash as much as 50 percent of the cement may be replaced by the ash, although a smaller proportion commonly is used.

According to Barr (1949, p. 752) the principal use of volcanic ash (pumicite) is for concrete aggregate and its use as an admixture in cement for concrete is attaining increasing importance. In 1945 nearly equal amounts of volcanic ash and pumice were produced for use in abrasives and in concrete. In 1947, 4.5 times as much of these same materials was used in concrete as was employed for abrasive purposes.

Það er semsagt hægt að búa til Rómverskt sement sem skv tilvitnuninni er farið að nota aftur.
Óradís
Ég man að í bernsku notaði maður móbergsmola til að móta og grafa í áletranir og myndir. Móberg er mjúkt og frábært til þess að móta úr því en svo datt mér til hugar hvort þetta gæti ekki verið einhverskonar bætiefni í "eitthvað" annað. Það hafa komið fram hugmyndir hér einsog slípilefni. Af hverju ekki að búa til eitthvað sniðugt úr þessu ef það er hægt

bjargvætturinn
QUOTE(Óradís @ 27. April, 2010, 19:20) *

Líklega eru bestu notin að blanda öskunni í steinsteypu.
Isafold
Hvað með að láta myndhöggvara, myndlistamenn hafa öskuna til afnota, þeir gætu örugglega komið henni saman í flott listaverk sem við getum gortað okkur af að sé búið til úr lífrænu efni, og haft til sýnis fyrir útlendinga smile.gif
drCronex
QUOTE(Óradís @ 25. April, 2010, 18:28) *
Nytjahyggjan er að ná á mér heljartökum og mér datt í hug hvort þið efna og verkfræðingar gætuð ekki dottið niður á að finna not fyrir alla þessa ösku. Er ekki hægt að nota þetta í steypuefni af einhverju tagi, fúguefni, myndgerð eða bara eitthvað annað sniðugt? Hvað segið þið ágætu uppfinningamenn?

Á þetta ekki heima á viðskiptaþræðinum?
bjargvætturinn
QUOTE(drCronex @ 28. April, 2010, 12:39) *
Á þetta ekki heima á viðskiptaþræðinum?

Ekki strax.
Allhvass
QUOTE(Óradís @ 27. April, 2010, 19:20) *
Ég man að í bernsku notaði maður móbergsmola til að móta og grafa í áletranir og myndir. Móberg er mjúkt og frábært til þess að móta úr því en svo datt mér til hugar hvort þetta gæti ekki verið einhverskonar bætiefni í "eitthvað" annað. Það hafa komið fram hugmyndir hér einsog slípilefni. Af hverju ekki að búa til eitthvað sniðugt úr þessu ef það er hægt

- Það mætti setja nokkur hundruð grömm í plastpoka, merkja "volcano ash", selja á 500 kall pokann...
Bronstein
QUOTE(Allhvass @ 2. May, 2010, 20:16) *
- Það mætti setja nokkur hundruð grömm í plastpoka, merkja "volcano ash", selja á 500 kall pokann...

landinn er auðvitað byrjaður að fatta bisnesinn í þessu...
Brynjólfur R.
QUOTE (Jazz @ 25. April, 2010, 23:06) *
Nú vantar Einar Ben.
Hann hefði ekki verið lengi að selja öskuna eins og fossinn forðum.
En er ekki tilvalið að gefa föllnum útrásarvíkingum hana hana og sjá hvort þeir nái ekki að búa til seðla úr henni.

Eru útrásavíkingabrandararnir ekki svolítið 2008.
bjargvætturinn
QUOTE(Brynjólfur R. @ 6. June, 2010, 21:23) *
Eru útrásavíkingabrandararnir ekki svolítið 2008.

Rómverskt sement er 2/3 gosaska og 1/3 kalk. Ekkert 2008 við það. Meira svona 200 fyrir Krist.
Óradís
QUOTE(bjargvætturinn @ 6. June, 2010, 23:15) *
Rómverskt sement er 2/3 gosaska og 1/3 kalk. Ekkert 2008 við það. Meira svona 200 fyrir Krist.

Ég segi það. Mér finnst alltaf slæmt að láta hlutina fara til spillis. Velti fyrir mér að fara með kerru þarna austur og sækja mér efni til að steypa stétt hérna við húsið mitt. það er örugglega hægt að gera eitthvað með þetta. Ég geri mér að sjálfsögðu grein fyrir að hagvöxturinn eykst lítið við að ég geri tilraunir með þetta sjálf í stað þess að kaupa hellur en það gæti sparað mér aur............uuuuuuuuueða ekki sparað mér aur en aukið mér ánægju. Voðalega eru margir hérna neikvæðir gagnvart þessu öllu annars. Ég hefði einmitt haldið að nægjusemi og úrræðagæði væru gildi sem við þurfum svo á að halda núna
skortur
Hugmyndir mínar verða ekki birtar að svo stöddu.
Umsókn um einkaleyfi verður sett í forgang.
bjargvætturinn
QUOTE(Óradís @ 6. June, 2010, 23:34) *
Ég segi það. Mér finnst alltaf slæmt að láta hlutina fara til spillis. Velti fyrir mér að fara með kerru þarna austur og sækja mér efni til að steypa stétt hérna við húsið mitt. það er örugglega hægt að gera eitthvað með þetta. Ég geri mér að sjálfsögðu grein fyrir að hagvöxturinn eykst lítið við að ég geri tilraunir með þetta sjálf í stað þess að kaupa hellur en það gæti sparað mér aur............uuuuuuuuueða ekki sparað mér aur en aukið mér ánægju. Voðalega eru margir hérna neikvæðir gagnvart þessu öllu annars. Ég hefði einmitt haldið að nægjusemi og úrræðagæði væru gildi sem við þurfum svo á að halda núna

Hagvöxturin gæti aukist ef þessar tilraunir leiða eitthvað af sér.
Óradís
QUOTE(bjargvætturinn @ 7. June, 2010, 0:29) *
Hagvöxturin gæti aukist ef þessar tilraunir leiða eitthvað af sér.

Já auðvitað en ég get svosem ekkert garanterað það. Mér finnst bara dapurlegt að enginn sem þekkingu hefur skuli reyna að grípa tækifærið og nýta öskuna.
Vinni
Á sólríkum degi má finna fyrirtaks sandblásturssand á veginum undir Eyjafjöllum. Bara mæta með kerru og skóflu og moka honum upp. Beittur, fínn og þurr.
Tembe
Við eigum að varðveita öskuna eins og náttúran kom henni fyrir.
Gæta þess að gróður nái ekki að kaffæra hana og spilla auðlindinni.
Hún á að fá að fjúka eins og almættinu þóknast þó það sé einhverjum til ama.
Ösku ætti að flytja á öll tjaldstæði og hafa nóg af henni þar sem ferðamenn koma.
Við brennur ætti að hafa öskuhauga þannig að fólk geti labbað úr öskunni í eldinn.
Aska er allra meina bót.

Búum til smyrsl úr henni. Þau munu þrælvirka ef fólk trúir á þau.
drCronex
QUOTE(Tembe @ 7. June, 2010, 12:52) *

rolleyes.gif

Læknar psoriasis líka.
Óradís
QUOTE(drCronex @ 7. June, 2010, 19:19) *
rolleyes.gif

Læknar psoriasis líka.

Eyjafjallaskrúbbkrem. það væri ferlega klókt. smile.gif
drCronex
og hvað í ósköpunum eigum við svo að gera við Skjaldbreið?

Er ekki hægt að mylja hann niður í útflutning?
Óradís
QUOTE(drCronex @ 16. June, 2010, 0:44) *
og hvað í ósköpunum eigum við svo að gera við Skjaldbreið?

Er ekki hægt að mylja hann niður í útflutning?

Mér finnst það nú heldur langt gengið hjá þér. Finnst viturlegra að nýta það sem til fellur af gosösku sem er öllum til óþurftar og skaða meðan hún liggur á jörðinni og verður einsog steypa eða fýkur um allt engum til gagns.

Hagsýna húsmóðirinn Óradís rolleyes.gif
drCronex
Veit ekki Óradís að undir hörðu drulluklessunni Skjaldbreið leynast svör við ýmsum leyndarmálum lífsins.
Óradís
QUOTE(drCronex @ 16. June, 2010, 1:22) *
Veit ekki Óradís að undir hörðu drulluklessunni Skjaldbreið leynast svör við ýmsum leyndarmálum lífsins.

Eflaust en það eru enn leyndarmál og mér finnst gaman að lofa sumum leyndarmálum að bíða síns tíma til að upplýsast smile.gif
drCronex
Nei.

QUOTE(Óradís @ 16. June, 2010, 1:24) *
Eflaust en það eru enn leyndarmál og mér finnst gaman að lofa sumum leyndarmálum að bíða síns tíma til að upplýsast smile.gif
Óradís
QUOTE(drCronex @ 16. June, 2010, 1:27) *
Nei.

Nei hvað nöldurseggur?
drCronex
Er ekki hægt að BARA setja öskuna í eldinn?
Óradís
QUOTE(drCronex @ 16. June, 2010, 1:47) *
Er ekki hægt að BARA setja öskuna í eldinn?

Held þú sért í "fúll á móti" skapinu í kvöld. Á morgun skín ný sól kæri vinur.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.