Hef verið að spá í væntanlegt atvinnuleysi og hvað verður gert fyrir það fólk sem er atvinnulaust. Og langar að spyrja ykkur nokkurra spurninga.
1. Myndir þú nýta þér aðstöðu þar sem í boði væri að vinna í allskonar efnum eins og gleri, tré, málmi, leir og fleiru. Aðeins yrði um lámarkskostnað að ræða og aðallega efniskaup sem yrðu á góðu verði. Aðstaðan yrði vel búin tækjum og tólum.
2. Ef svarið er já, myndir þú þá vilja nýta kunnáttuna af einhverjum námskeiðunum sem þú hefur farið á. Hvaða námskeið væru það þá helst?
3. Myndir þú vilja komast á námskeið í einhverjum sérstökum vinnuaðferðum?
4. Hvaða tíma dagsins myndi henta þér best að koma miðað við að barnapössun væri á staðnum?
Ástæðan fyrir þessum spurningum er sú að í mörg ár hefur mig dreymt um að opna vinnuaðstöðu fyrir fólk sem hefur farið á hin og þessi verkleg námskeið en hefur svo enga aðstöðu til þess að vinna áfram að því sem lært var á námskeiðinu. Núna held ég að sá tími sé kominn til þess að reyna að framkvæma þetta, nema að þetta þarf að vera stærra í sniðum en ég hafði áður gert ráð fyrir.
Það versta sem atvinnulaust fólk gerir er að hafa ekkert fyrir stafni, þess vegna finnst mér það nauðsynlegt að hrinda þessu af stað, þó svo að dæmið yrði töluvert stærra en áður stóð til.
Það myndu vera leiðbeinendur á staðnum í öllum greinum en ekki beint kennsla en leiðbeiningar, nema á sérstökum námskeiðum.
Þessi aðstaða er í þróun og er ekki að opna alveg strax, en mig langar að vita hug ykkar sem eruð nú þegar orðin atvinnulaus eða sjáið fram á að þið verið atvinnulaus. Ég er næstum því alveg ákveðin í að opna þessa aðstöðu en ef áhugi atvinnulausra væri mikill þá þarf ég mun stærri aðstöðu en annars.
Þetta myndi flokkast sem sprotafyrirtæki en ekki gróðafyritæki.
Vona að þið takið vel í að svara þessu hérna eða með því að senda mér póst.
bjargvætturinn
Nov 18 2008, 13:42
Mér finnst þetta fín hugmynd, þó hún henti mér ekki. Ég bý svo vel að búa einn og hef þessvegna komið mér upp vinnuaðstöðu heima hjá mér.
Phoenix
Nov 18 2008, 18:44
Er sem betur fer eigin vinnuveitandi svo ég hef litlar áhyggjur en mikið lýst mér samt vel á þetta framtak.
skortur
Nov 18 2008, 22:38
Segi nú eins og bjargvætturinn.
Hef ágætis aðstöðu fyrir allskonar dútl í frístundum, sem í mínu tilfelli eru
að öllu jöfnu fleiri en eiginlegar launaðar vinnustundir. Er sem sagt hálfgerður
letingi sem skammtar sjálfum sér skít úr hnefa eftir þörfum.
Líst samt ljómandi vel á þessa hugmynd og gæti jafnvel hugsað mér að
sækja eitthvað námskeið,, ef einsemdin væri mann að drepa. Það er þó
mjög fátítt að svo sé.
Óradís
Nov 18 2008, 22:49
Er ekki hér líka verið að hugsa um það fólk sem er á krssgötum og þarf kannski á félagsskap að halda sem gæti orðið þeim að góðum notum. T.d. til að þróa eitthvað sem gæti orðið að alvöru fyrirtæki. Mér finnst þessi hugmynd algjörlega brilljant. Mér sýnist þetta sannarlega ekki bara vera eitthvað til að dunda sér við heldur gæti það orðið mörgum efling til stærri hluta í félagsskap við annað gott fólk.
Þarna gæti komið saman fólk með allskonar hæfileika og kunnáttu. Það gæti lagt saman og gert flotta hluti.
Þetta er nákvæmlega svona staður sem þarf til að búa til eitthvað sem skiptir máli. Bæði félagslega og peningalega. Gæti orðið uppspretta nýrra smáfyrirtækja.
Þetta er hörkuhugmynd hjá þér. Þarna væri´hægt að halda námskeið í aðskiljanlegustu hlutum, handverk af hinu og þessu tagi, tölvunámskeið, bókhaldsnámskeið, matreiðslunámskeið, bara hvað sem er. Í raun bara öllu sem fólk vill.
Þarna yrði þekkingar og þjálfunarmiðlun af því tagi sem þeir óska sem þangað koma.
Ég væri til í að vera með þér í þessu þó ég sé ekki atvinnulaus sem stendur sjálf.
Ég segi BRAVÓ fyrir hugmyndinni.
falcon1
Nov 18 2008, 22:55
Góð hugmynd!
drCronex
Nov 19 2008, 15:25
Er þetta svona listamannaaðstaða? Ef svo er, þá væri þetta bara fínt!
Hvort það leysi einhvern vanda? Það yrði tíminn bara að leiða í ljós. En gott að byrja á einhverju! Má vera aðég sé að flytja heim og þá vantar mig eitthvað að gera.
Vil alls ekki kalla þetta listamanna aðstöðu heldur aðstöðu fyrir handlagið fólk og fólk sem hefur farið á hin og þessi námskeið geti viðhaldið einhverri kunnáttunni.
Hins vegar reikna ég með því að ef af þessu verður muni ýmis listaverk verða til þarna. Búnar til gjafir og reynt að halda geðheilsunni í lagi, hafa eitthvað til að hlakka til að gera. Kynnast fólki, fá félagsskap og þess vegna bara horfa á aðra vinna og fá sér kaffibolla.
Reikna með að eini vandinn sem þetta myndi leysa sé að í stað þess að sitja heima í svartsýniskasti gæti fólk komið þarna og létt aðeins á sálartetrinu með skapandi vinnu og góðum félagsskap. Og kannske séð fram á að geta búið sér til smápening með því að selja það sem fólkið býr til.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please
click here.