Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Valhöll máluð rauð
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Ýmislegt
Butcer
Ég verð að viðurkenna að þegar ég las þessa frétt þá hló ég(og nei ég gerði þetta ekki) , kannski eru Íslendingar loksins að sýna að þeir hafi einhver eistu biggrin.gif


Reilly
Þetta var gott högg og drengilegt.
Grettir Ásmundsson
Réttur litur, þetta er kommúnistaflokkur íslands.
Butcer
QUOTE (Grettir Ásmundsson @ Nov 13 2008, 18:17) *
Réttur litur, þetta er kommúnistaflokkur íslands.

Svo satt, d listinn ætti að sjá sómann sinn og gera fuglinn sinn rauðan
Grettir Ásmundsson
QUOTE ( @ Nov 13 2008, 19:30) *
Svo satt, d listinn ætti að sjá sómann sinn og gera fuglinn sinn rauðan


Það má lita fleiri hús rauð, góður tímapunktur er þegar mótmælt er á Laugardaginn.
Hús spillingarfólksins má mála rauð og ekki bara sjálfstæðismanna.
Óradís
dry.gif Mér var strítt í dag útaf þessu. Það var bilaður dagur einsog oft er og ég hafði engan tíma til að kíkja í tölvuna eða sjá tölvupóst, hvað þá líta í blöðin. Þannig er að í bílnummínum er skilti sem allir sjá sem framhjá honum ganga. Svona mótmælaskilti fyrir laugardagana. En í lok vinnudags kom til mín starfsmaður og sagði í viðurvist viðskiptavinar: "Heyrðu það var einhver sem kom með reikning fyrir tuttugu lítrum af rauðri Flugger málningu. Hvað á að fara að mála ? " Ég var algerlega fjarri því að fatta og ætlaði sannarlega ekki að samþykkja reikning fyrir einhverri málningu sem ég skildi ekkert í og svaraði því til að þetta væri einhver misskilningur: Hver var þetta og hvar er reikningurinn?
Nærstaddur viðskiptavinur fékk hláturskast og bjargaði mér. Sagðist skilja brandarann og útskýrði.

Fjárakornið cool.gif .........En það er gott að einhver hefur enn húmor laugh.gif
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2009 Invision Power Services, Inc.