Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Pólverjaafsláttur?
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Ýmislegt
Herkúles
Nú hafa Pólverjar bæst í hóp Íslandsvina, buðu lán í dag líkt og Færeyingar fyrir skömmu.
Lengi lifi Póland biggrin.gif
Óradís
QUOTE (Herkúles @ Nov 7 2008, 19:17) *
Nú hafa Pólverjar bæst í hóp Íslandsvina, buðu lán í dag líkt og Færeyingar fyrir skömmu.
Lengi lifi Póland biggrin.gif


Merkilegt eiginlega, ekki síst í ljósi þess hve við höfum sparkað harkalega í þá pólverja sem hafa komið hingað til að vinna fyrir okkur þau störf sem við vildum ekki sjálf.
Hawk12
QUOTE (Herkúles @ Nov 7 2008, 19:17) *
Nú hafa Pólverjar bæst í hóp Íslandsvina, buðu lán í dag líkt og Færeyingar fyrir skömmu.
Lengi lifi Póland biggrin.gif



Hvað er þetta ekki lán, á viðskiptalegum grundvelli. Eða ertu að segja að við íslendingar séum að þiggja ölmusu.
Hvað er að fólki eiginlega.
Brecht
QUOTE (Hawk12 @ Nov 7 2008, 20:46) *
Hvað er þetta ekki lán, á viðskiptalegum grundvelli. Eða ertu að segja að við íslendingar séum að þiggja ölmusu.
Hvað er að fólki eiginlega.


Þeir eru bara að hjálpa sjálfum sér. Hvernig eiga Pólverjar hér að koma launum sínum og sparnaði út úr þessu guðsvolaða landi ef enginn er gjaldeyririnn?
Toffi
QUOTE (Óradís @ Nov 7 2008, 20:34) *
Merkilegt eiginlega, ekki síst í ljósi þess hve við höfum sparkað harkalega í þá pólverja sem hafa komið hingað til að vinna fyrir okkur þau störf sem við vildum ekki sjálf.

Ertu að lýsa eigin gjörðum eða... Ég hef unnið með nokkrum þrælduglegum Pólverjum, Rússum og Tælendingum. Sá ekki nokkurn mann sparka í þá, né hallmæla. Nema þá helst Tælendingunum fyrir að vera ekki með líkamsburði víkinga.
Afturbatinn
Þeir senda okkur skrilljón slotsky, og pólsky
skiptir í banka og farast heim, gott, ekki já.
human
QUOTE (Herkúles @ Nov 7 2008, 19:17) *
Nú hafa Pólverjar bæst í hóp Íslandsvina, buðu lán í dag líkt og Færeyingar fyrir skömmu.
Lengi lifi Póland biggrin.gif

Ég er þakklát öllum sem vilja aðstoða okkur án einhverra skilyrða sem negla okkur ofan í kistu.
Lengi lifi Pólland. smile.gif

QUOTE (Toffi @ Nov 7 2008, 23:50) *
Ertu að lýsa eigin gjörðum eða... Ég hef unnið með nokkrum þrælduglegum Pólverjum, Rússum og Tælendingum. Sá ekki nokkurn mann sparka í þá, né hallmæla. Nema þá helst Tælendingunum fyrir að vera ekki með líkamsburði víkinga.

Toffi, ég held að allir sem eitthvað hafa lesið sem Óradís vinkona mín lætur frá sér viti að þetta er ekki lýsing á hennar gjörðum. Hún væri líklega fyrsta manneskja til þess að reyna að hindra slíkt.

Ég tek undir það hjá þér að upp til hópa eru þetta harðduglegir einstaklingar. Ég bý í stóru fjölbýlishúsi þar sem þó nokkuð margar fjölskyldur frá Póllandi búa.
Hér hafa verið góð samskipti á milli manna og með eindæmum yndislegt fólk.
Ég man ekki á hvaða þræði einhver var að tala um eilífar lögregluheimsóknir og slíkt til "þessa" fólks. Reynslan hér er að í þau örfáu skipti sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af íbúum stressed.gif ... þá hefur það verið af Íslendingum.
Hawk12
Hér í mínum stiga gangi búa tvær pólskar fjölskyldur og ekki hef ég orðið var við annað en að allir tali vel um þetta fólk.

QUOTE (Brecht @ Nov 7 2008, 22:16) *
Þeir eru bara að hjálpa sjálfum sér. Hvernig eiga Pólverjar hér að koma launum sínum og sparnaði út úr þessu guðsvolaða landi ef enginn er gjaldeyririnn?



Æ greiið mitt þér er vorkunn ætli þú vitir muninn á láni og ölmusu.
Brecht
QUOTE (Hawk12 @ Nov 8 2008, 0:20) *
Hér í mínum stiga gangi búa tvær pólskar fjölskyldur og ekki hef ég orðið var við annað en að allir tali vel um þetta fólk.




Æ greiið mitt þér er vorkunn ætli þú vitir muninn á láni og ölmusu.


Þú meinar að "greyinn" hafi hvort eð er ekki þénað neitt að ráði.

Beint á móti mér búa pólverjar, bestu nágrannar. Er það kannski svona syndaaflausn.
Þetta lán Pólverjana er að upphæð eins ölmusa miðað við það sem við þurfum til að standa straum af skuldum okkar. Svíður það?
Vont fyrir sjálfsstæðisfólk, sjálfstætt fólk getur tekið því eins og hverju öðru hundsbiti.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2009 Invision Power Services, Inc.