Af skutull.is:
Skarphéðinn Ólafsson skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar er nú veikindaleyfi og má gera ráð fyrir að veikindi hans vari í nokkrar vikur. Jóna Benediktsdóttir, fyrrum aðstoðarskólastjóri við Grunnskólann á Ísafirði, mun leysa Skarphéðinn af meðan hann er að ná heilsu á ný.
Eins og kunnugt er var starf Jónu sem aðstoðarskólastjóri við Grunnskólann á Ísafirði lagt niður og hætti hún því störfum hjá Ísafjarðarbæ í kjölfarið. Nú hefur Jóna snúið aftur til starfa hjá Ísafjarðarbæ, sem skólastjóri á Flateyri. En aðeins til bráðabirgða.
