QUOTE (Orville @ Mar 13 2008, 12:49)

En varðandi þessi tvö ólíku mál þá eiga þau það sameiginlegt að umræðan hefur oft einkennst að populisma eða lýðskrumi.
Já hérna, margur heldur mig sig.
Ef einhver hefur beitt lýðskrumi, popúlisma, hálfsannleik, afbökun, og sannleikssvigi, þá er það Málverjinn Orville.
Orville beitir aldrei rökum, svo ég hafi tekið eftir. Hann notar iðulega fullyrðingar, sleggjudóma og alhæfingar. Hann beitir Göbbelsaðferð endurtekningar, ekki síst er hann bendlar án grundvallar þá sem eru á öndverðum meiði við stjórnmálastefnur eftir hentugleika. Hann brigslar andmælendum um siðferðisbrest frekar en að ræða málefnin eins og þau koma fyrir.
Nokkur dæmi:
QUOTE
Í mínum huga er það skýrt að það á að banna vændi og þá ekki síst kaup á vændi. Í mínum huga og að ég held flestra annarra, þá er vændi siðferðislega rangt. Það á að endurspeglast í lögum.
...
Ég tel að lagasetning sem banna myndi kaup á vændi vera af þessu toga. Það væru réttlát lög og fengju þann kraft sem til þarf til að binda samvisku manna. Þess vegna er slík lagasetning grundvallar atriði þegar kemur að baráttu gegn mansali og gegn því að fólk sé bókstaflega selt svo hægt sé að misnota það.
Ef vændi verður bannað með þessum hætti þá getur það að sjáfsögðu þýtt meiri undirheimastarfsemi eins og í tengslum við aðra ólöglega starfsemi. Ekki ólíkt verslun með heróín sem er víðast hvar bannað. En það breytir því ekki að lagasetningin er nauðsynleg til að "binda samvisku manna frá eilífu lögunum, sem þau eru leidd af" svo vitnað sé í Tómas þennan. Lögin verða að vera réttlát hvað þetta varðar og siðferðilega glæpi verður að vera hægt að meðhöndla sem slíka.
Glæsilegt lýðskrum þarna: engin rök, bara svona á þetta að vera, af því (ótilgreint) siðferðið og réttlætið krefst þess. Þetta er raunverulega mjög gott framlag til sögu lýðskrumsins; án gríns, þá hefði Hitler og ýmsir af þerri ætt haft not fyrir svona orðalag.
QUOTE
[Klám] snýst reyndar ekki bara um að ríða einhverjum kalli. Þetta snýst um niðurlægingu og hreint og klárt þrælahald og ofbeldi. Að minnsta kosti oft á tíðum.
Þarf að hafa fleiri orð um þá sleggjudóma sem þarna koma fram?
QUOTE
En varðandi það sem þú kallar kynvillu þá er það kannski ekki svo galið dæmi. Í mörgum þjóðfélögum og á ýmsum tímum þá hefur það þótt siðferðilega rangt að laðast að sama kyni. Það hefur endurspeglast í lögum viðkomandi ríkja. Hér á landi hefur þetta verið að breytast hratt og nú er það talið betra siðferði að allir njóti sama réttar án tillits til kynhneigðar. Þetta hefur einnig komið fram í lagasetningu. Réttarstaða sú sem samkynhneigðir njóta nú og flestum finnst sjálfsögð, hefði þótt fráleit hér á landi fyrir um 20 árum eða svo. Þetta má svo yfirfæra á vændi. Kaup á vændi er augsljóslega siðferðislega rangt í því jafnréttis-, mannúðar-, og velferðaþjóðfélagi sem við viljum lifa í og byggja upp. Þess vegna á það að endurspeglast í lögum, líkt og Tómas af Aquino benti á fyrir um 800 árum síðan.
Nú er tekið upp á því að réttlæta gróf mannréttindabrot með siðferði. Annað blóm í hnappagat lýðskrumarans.
QUOTE
Það sem Alex er að benda á eru þau viðhorf sem oft á tíðum koma fram hjá kaupendum vændis. Væntanlega ekki alltaf en oft. Oft eru þessir karlmenn að kaupa það að fá að fara illa með og niðurlægja. Það hefur marg oft komið fram í skýrslum og rannsóknum tengdum vændi. Þess vegna er líka þessi danska kona frekar ótrúverðug og í raun bjánalegt að trúa henni þegar tímasetning viðtalsins er skoðað og hvernig það kemur beint ofan í umræðuna um að banna vændiskaup í Danmörku.
Heimild er ótrúverðug og bjánalegt að trúa henni vegna þess að það sem hún hefur fram að færa fellur ekki að viðtekinni stereótýpu lýðskrumarans.
QUOTE
Ég er fullkomlega ósammála. Mér finnst að það ætti að banna vændi og þá sérstaklega kaup á vændi. Í mínum huga er það ekkert annað en glæpur og á að meðhöndlast þannig.
Glæpur-banna! Glæpur-banna! Ekkert um það hvaða áhrif það hefur á vændi eða þá sem það stunda, jafnvel þótt innt sé eftir því. Glæpur-banna-lýðskrum.
QUOTE
Ég var að reyna að útskýra það í löngu innleggi hér að framan. Ég tel að réttlát lög geti haft góð áhrif inn í þjóðfélagið. Ekki endilega í gegnum refsiákvæði heldur þann siðferðilega boðskap sem getur falist í réttlátri lagasetningu. Vitnaði í gamlan dýrling og heimspeking máli mínu til stuðnings. Lög sem bönnuðu kaup á vændi væru þessháttar lög í mínum huga.
Hér fer lýðskrumarinn einna næst því að nota rök. "Réttlát lög geta haft góð áhrif inn í samfélagið og ég vitnaði í gamlan dýrling!"
Betur færi á því að Orville liti í eigin barm í framtíðinni áður en hann fer að saka aðra um lýðskrum.