QUOTE (toto @ Mar 8 2008, 14:08)

Þessir vinir þínir hafa semsagt komið með hatrið með sér þegar þeir fluttu eða hvað ?
Hvað meinaru með þessu? Serbar leyfðu Albönum alveg að vera í kosovo. Það voru síðan kosovo albanir sem hófu að færa sig upp á skaftið og hófu að gera tilkall til svæðisins. td Í ww2 tóku Albanir ásamt króötum þátt í ofsóknum gegn Serbum og albanir ráku 80-100 þús. serba í burtu, drápu amk 10 þús. og fluttu síðan bara inn jafnmarga Albani í staðinn. Ef serbar hefðu viljað, að þá hefðu þeir líka sennilega komist upp með að hreinsa héraðið í Bosníustríðinu. Mistök hjá þeim..
QUOTE (Reilly @ Mar 8 2008, 15:25)

Það er fáránlegt að verðlauna þjóðernishreinsanir með þessum hætti sem verið er að gera. NATO og SÞ tókust á hendur ákveðnar skuldbindingar þegar þau tóku héraðið yfir, sum sé að vernda íbúa þess fyrir ofsóknum. Þessar skyldur hafa verið vanræktar með vítaverðum hætti. Þjóðernishreinsanir hafa átt sér stað í Kosovo undanfarin 9 ár af hálfu Albana gagnvart öllum öðrum þjóðarbrotum. NATO hefur sett kíkinn fyrir blinda augað gagnvart þessu og jafnvel lokað að sér meðan þorp og kirkjur eru brennd í næsta nágrenni.
Núverandi valdhafar Kosovo hafa staðið fyrir þessum þjóðernishreinsunum og gera enn. Sem krýning á þessum glæpum er viðurkenning á sjálfstæði Kosovo, án nokkurra trygginga af neinu tagi fyrir öryggi íbúa héraðsins, gjörsamlega út í hött og raunverulega glæpsamleg vanræksla þar sem hún býður þjóðarmorði heim.
Og þáttur NATO í þessu ævintýri sýnir hræsni þeirra. Á sama tíma hefur NATO-ríkið Tyrkland fengið drepa kúrda í tugþúsundatali óáreittir, sem þó ættu miklu meiri rétt á sjálfstæði. Auk þess eiga kosovo-Albanir sér heimaland, sem nefnist Albanía.
Annars er áhugavert að sjá hversu margir hafa stutt kosovo og árás NATO í Serbíu á sama tíma og allir urðu vitlausir yfir Írak, þótt í bæði skiptin hafi verið jafnaugljóst kjaftæði verið notað sem rök ásamt því að vera ólöglegt. Það er greinilega ekki sama hvort Bush eða séra Clinton stundar “nation building”.
En einn fárra “vinstri manna” sem sá í gegnum þetta stríðsævintýri Clintons er Noam Chomsky og er hér viðtal við hann um þetta mál:
http://www.youtube.com/watch?v=EEhgwdJldeU