Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Fína og góða og fallega fólkið fer í mál
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Herkúles
Björgólfur eins og aðrir bankamenn taka landsmenn í rassgatið árin löng
með sínum okurvöxtum, á sama tíma stunda þeir góðgerðamálin og fegurðarsamkeppnir á hverjum degi,
halda úti ímyndarfræðingum sem innprenta landsmönnum allt um þeirra fegurð, góðmennsku og velvilja biggrin.gif


_______________________________________________________________
Innlent | 04.03.2008 06:36:00
"Skrípaleikur" í héraðsdómi

Björgólfur Guðmundsson
Mynd: DVMeiðyrðamál Landsbankans og Björgólfs Guðmundssonar gegn Kristjáni S. Sigurðssyni var tekið fyrir í héraðsdómi í gær. Stefnendur krefjast þess að ummæli Kristjáns í Morgunblaðinu 29. október í fyrra verði dæmd dauð og ómerk. Sjálfur fór Kristján fram á það í gær að allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur væru dæmdir vanhæfir í málinu.

"Þetta er skrípaleikur," sagði Kristján við blaðamann DV á staðnum.

Meira um málið í DV í dag.

Gerast áskrifandi að DV?
Vanity
Hver voru ummæli Kristjáns í Morgunblaðinu 29. október í firra?
Hawk12
QUOTE (Vanity @ Mar 7 2008, 14:37) *
Hver voru ummæli Kristjáns í Morgunblaðinu 29. október í firra?



....ef ég man þetta rétt þá sagði hann eitthvað á þá leið að Björgólfur hefði ekkert vit á fótbolta.
Alibaba
QUOTE
....ef ég man þetta rétt þá sagði hann eitthvað á þá leið að Björgólfur hefði ekkert vit á fótbolta.

Guð minn góður, maðurinn getur allt eins flutt úr landi strax. Hann er í verri aðstöðu en Zimbabwebúi sem teiknað hefur Hitlersskegg á opinbera Mugabemynd.
fleebah
Hvernig er það, er þörf á að tala niður til fólks ef það á pening? Merkilegur titill á þessum þræði dry.gif
Reilly
Er fína og góða og fallega fólkið ekki líka fólk?
fleebah
QUOTE (Reilly @ Mar 11 2008, 17:00) *
Er fína og góða og fallega fólkið ekki líka fólk?

Jú, vissulega, en hvað áttu við með þessu? Af einhverjum ástæðum finn ég fyrir kaldhæðni í rödd þinni. wink.gif

Mér finnst þessi þráður bera þess merki að gera lítið úr Björgúlfi, sjálfum Greifanum af Monte Cristo Íslands. Hann á jú pening en hann er miklu, miklu meir en það. Hann er maðurinn sem fór í sjálfgerða útlegð eftir niðurlægjandi meðferð Kolkrabbans og auðmýkingu, kom heim aftur og snýtti sér á Kolkrabbanum.

Er þá þráðarhöfundur maður til þess að tala niður til Björgúlfs eins og hann gerir? Telur hann sig betri?

Ef Björgúlfur á sökótt við téðann Kristján þá má hann stefna honum eins og honum sýnist, mín vegna

Hefur einhver tekið eftir því að hefndin var hans, á skrýmslinu sem Herkúles eflaust hefur illan bifur á? Hefur fólk tekið eftir því að kennitala Eimskips er núna 6602881049 og því með '88 sem stofnunardag? Eimskip var s.s. formlega lagt niður sem félag í smástund einhvern tíma í fyrndinni, sem er ekki svo langt síðan. Björgúlfur og sonur að segja "fuck you" við sína illgjörðamenn í Kolkrabbanum.

Annars ef Herkúles er svona illa við bankamenn þarf hann bara að ganga í sparisjóðina eða lífeyrissjóðina eða Íbúðalánasjóð... ah shit, ekkert betra þar. Kannski er okursamsærið stærra en bankarnir. Heyri ég "Seðlabankinn"? Heyri ég verðtryggingu? Heyri ég "smæð markaðar"? Heyri ég gegndarlausa eftirspurn eftir lánsfé, sem kostar sitt eins og hver önnur vara?
Reilly
QUOTE (fleebah @ Mar 11 2008, 17:34) *
Jú, vissulega, en hvað áttu við með þessu? Af einhverjum ástæðum finn ég fyrir kaldhæðni í rödd þinni. wink.gif


Jújú, ég var einmitt að taka undir með þér.

Það er lenska að tala um ríkt fólk á þann veg að það njóti að einhverju leyti minni mannréttinda og borgararéttinda en aðrir og verðskuldi verri meðferð af hendi samborgara og/eða ríksivalds en gengur og gerist, af einhverjum ótilgreindum ástæðum. Þessa viðhorfs varð m.a. vart í umræðum um baugsmálið á sínum tíma.

Það er reyndar til orð yfir þetta:

"Öfund"
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.