Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Orðanotkun og málskilningur
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Hildigunnur
T.d. þetta og hér er átt við samstarf hóps:

"Við gætum þess að vinstri höndin viti alltaf hvað sú hægri er að gera"

Mig langar að vita hvort það er ljóst í ykkar huga við hvað er átt með fullyrðingunni smile.gif

Gorgon
Hmm ...

Er hér ekki verið að tala um skilvirkt upplýsingaflæði; að öllum sé kunnugt um hvað sé að gerast, hvað eigi að gera, og svo framvegis?
Ofsi
Að allir séu með á nótunum, Þ.a.s til þess að forðast misskilnings, þannig myndi ég túlka þetta. kv Ofsi
Hildigunnur
QUOTE (Gorgon @ Mar 3 2008, 22:09) *
Hmm ...

Er hér ekki verið að tala um skilvirkt upplýsingaflæði; að öllum sé kunnugt um hvað sé að gerast, hvað eigi að gera, og svo framvegis?

Jú Það var það sem ég var að meina þegar ég skrifaði þetta og meiningin var að viðhafa svona frekar skemmtilegt orðalag en það var gerð "vísindaleg" athugasemd við orðanotkunina. Sumir segjast ekki skilja um hvað ég er að tala. unsure.gif

Ég var svo hissa en ég get svosem alveg breytt þessu orðalagi dry.gif

QUOTE (Ofsi @ Mar 3 2008, 22:13) *
Að allir séu með á nótunum, Þ.a.s til þess að forðast misskilnings, þannig myndi ég túlka þetta. kv Ofsi

Aha smile.gif

Það eru eflaust ýmsar svona setningar sem orka tvímælis þó manni finnist þær hafa augljósa merkingu.

Munið þið eftir að hafa veri misskilin svona hrapallega ?
Ofsi
Hildigunnur mér finnst þetta nú flott orðað hjá þér og hef stundum notað þetta sjálfur, og þá hefur meiningin verið á sömu nótun og hjá ykkur.
Hildigunnur
QUOTE (Ofsi @ Mar 3 2008, 22:16) *
Hildigunnur mér finnst þetta nú flott orðað hjá þér og hef stundum notað þetta sjálfur, og þá hefur meiningin verið á sömu nótun og hjá ykkur.

Takk fyrir það. Ég er þá ekki ein um að sjá fyrir mér yfirfærða merkingu orða og hugmynda.
Að sjálfsögðu "vita" hendur ekki beinlínis neitt en ég hélt þetta væri orðalag sem allir skildu.
toto
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 3 2008, 23:07) *
T.d. þetta og hér er átt við samstarf hóps:

"Við gætum þess að vinstri höndin viti alltaf hvað sú hægri er að gera"

Mig langar að vita hvort það er ljóst í ykkar huga við hvað er átt með fullyrðingunni smile.gif

Það að þetta skiljist er eitt, svona setningar geta svo fengið aðra merkingu, eftir því í við hvaða aðstæður þær eru notaðar.

T.d. að "stjórnin" ætli að fylgjast vel og vandlega með öllum félagmönnum, og helst eigi enginn að reka við án þess að ráðfæra sig fyrst við stjórnarmeðlim.
Hildigunnur
QUOTE (toto @ Mar 3 2008, 22:21) *
Það að þetta skiljist er eitt, svona setningar geta svo fengið aðra merkingu, eftir því í við hvaða aðstæður þær eru notaðar.

T.d. að "stjórnin" ætli að fylgjast vel og vandlega með öllum félagmönnum, og helst eigi enginn að reka við án þess að ráðfæra sig fyrst við stjórnarmeðlim.

Með góðum eða slæmum vilja má snúa út úr hverju sem er og gera það að samsæriskenningu.
Hawk12
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 3 2008, 22:07) *
T.d. þetta og hér er átt við samstarf hóps:

"Við gætum þess að vinstri höndin viti alltaf hvað sú hægri er að gera"

Mig langar að vita hvort það er ljóst í ykkar huga við hvað er átt með fullyrðingunni smile.gif

...je ekki skilja
toto
QUOTE (Hawk12 @ Mar 4 2008, 0:38) *
...je ekki skilja

T.d. þegar vinstri höndin heldur á myndablaði þá viti hún að hægri höndin er að hrista hausinn.
rella
ég skil þetta svoleiðis að það sé ekki endilega samhæfing á milli hægri og vinstri handar (fólks í hópnum) en upplýsingar um hvað hin hendin sé að gera berist á milli, amk aðra leiðina cool.gif
garrinn
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 3 2008, 22:07) *
T.d. þetta og hér er átt við samstarf hóps:

"Við gætum þess að vinstri höndin viti alltaf hvað sú hægri er að gera"

Mig langar að vita hvort það er ljóst í ykkar huga við hvað er átt með fullyrðingunni smile.gif

Hér er verið að vísa til þeirrar bókar sem fæstir hafa lesið en flestir hafa skoðun á.

Þar stendur í Matteusarguðspjalli 6:3

En þegar þú gefur ölmusu viti vinstri hönd þín ekki hvað sú hægri gerir...

Mér sýnist fæstir hér kannast við þennan texta - það er reyndar áhyggjuefni. Ekki vegna þess að biblían sé eitthvað merkileg að efni til - hins vegar er hún endalaus uppspretta bókmenntatexta, líkinga, orðtaka o.s.frv.
Flestir Íslendingar ættu að lesa valda texta úr þessari bók - einmitt til að þekkja málfarið og vísanir. Auk þess ættu allir að lesa Njálu - þá þarf eiginlega ekki að lesa fleiri bækur.
rimryts

Að þeir sem mynda hóp um ákveðin verkefni séu samstíga.

Að einstaklingur innan hópsins séu ekki að stefna í allt aðra átt en hópurinn að öðru leyti og vinna þannig gegn markmiðum hans.
hildur234
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 3 2008, 22:07) *
T.d. þetta og hér er átt við samstarf hóps:

"Við gætum þess að vinstri höndin viti alltaf hvað sú hægri er að gera"

Mig langar að vita hvort það er ljóst í ykkar huga við hvað er átt með fullyrðingunni smile.gif

Er hér ekki einfaldlega átt við að ef einhver segir eitthvað eða staðhæfir eitthvað,
að þá verði sá hinn sami að breyta skv. því.

T.d. ef ég segi að ég sé ekk rasisti, en segji svo að ég hati þá sem eru t.d. múslematrúar,
þá viti viti hægri höndin ekki það sem sú vinstri er að gera.

En ef að ég segi t.d. að ég sé ekki rasisti og er jákvæð gagnvart þeim sem eru
múselmatrúar, þá mætti kannski segja að vinstri höndin viti hvað sú hægri er að gera. ?
Hildigunnur
QUOTE (garrinn @ Mar 4 2008, 10:58) *
Hér er verið að vísa til þeirrar bókar sem fæstir hafa lesið en flestir hafa skoðun á.

Þar stendur í Matteusarguðspjalli 6:3

En þegar þú gefur ölmusu viti vinstri hönd þín ekki hvað sú hægri gerir...

Mér sýnist fæstir hér kannast við þennan texta - það er reyndar áhyggjuefni. Ekki vegna þess að biblían sé eitthvað merkileg að efni til - hins vegar er hún endalaus uppspretta bókmenntatexta, líkinga, orðtaka o.s.frv.
Flestir Íslendingar ættu að lesa valda texta úr þessari bók - einmitt til að þekkja málfarið og vísanir. Auk þess ættu allir að lesa Njálu - þá þarf eiginlega ekki að lesa fleiri bækur.

Júbb ég kannast við þennan texta og hvaðan þessi líking um meðvitund handanna er komin smile.gif
Það er svo vísunin í þetta orðalag sem getur verið margvísleg.
Í tilvikinu sem ég nefni, set ég fram fullyrðingu um að vinstri höndin viti hvað sú hægri gerir. Það sem ég átti við þegar ég notaði hana, (og athugasemd var gerð við að orðalagið skildist ekki öllum) var að í "skipulagsheildinni" (óþolandi orð) gerðu allir sér grein fyrir því hvað væri í gangi yfirleitt. Þetta innifelur í mínum huga, skilning allra á virkni samstarfsheildarinnar, að upplýsingastreymi sé skilvirkt og að brugðist sé við þörfum á hverjum stað.
Það má orða hluta hugsunarinnar þannig að "það sé ekki hver höndin uppi á móti annarri".

Ég sé að athugasemdin sem var gerð við orðalagið var góð. Nákvæmni er mikilvæg ef við viljum að allir skilji hvað maður er að meina. Þ.e. að vinstri höndin viti hvað sú hægri er að gera smile.gif
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.