QUOTE (Hildigunnur @ Mar 2 2008, 11:10)

Ég má til með að vísa ykkur á þessar hugleiðingar Reynis Trauatasonar.
http://dv.is/leidarinn/lesa/5788Ég las einmitt þennan leiðara í DV.
Fannst Reynir mjög góður.
Ég er hjartanlega sammála honum þar sem hann segir að dómstólar séu á villigötum.
".............Í þeim skaðabótum liggur sá kjarni málsins að Bubbi, sem sjálfur er gerandi, fær jafnháar bætur og barnapía undir lögaldri sem lendir í höndum níðings. Enginn getur af sannfæringu haldið því fram að stúlka sem hefur sætt nauðgun muni glíma við sama sálarháska og Bubbi sem fórnarlamb sannleika í slúðurblaði. Enn hlálegra er að harmur sjónvarpsstjórans skuli vera hærra verðlagður en þjáning stúlku sem hefur verið nauðgað. Dómstólar eru á villigötum. "