Ég var enn og aftur að lesa hneykslun Hiddaj á einhverri grein eftir Jón Magnússons í Frjálslynda flokknum. Nú man ég ekkert eftir greininni, en Hiddaj virðist hneykslast mest á setningunni Ísland fyrir Íslendinga. Ég verð að viðurkenna að fyrir sjálfstæða Íslendinga þá ætti að vera eðlilegt að tala um Ísland fyrir Íslendinga. Sem þýðir náttúrulega að á Íslandi eiga Íslendingar að ráða ferðinni.
Hvers vegna ættu Danir, Pólverjar eða Saudi-Arabar að ráða ferðinni á Íslandi? Þeir eiga sín lönd og geta ráðið ferðinni þar. Mér finnst það eðlilegasti hlutur í heimi.
Ísland hlýtur að vera fyrir Íslendinga, ef svo væri ekki, þá væri Ísland ekki fyrir Íslendinga.
Án þess að lesa greinina hans Jóns, þá myndi ég skjóta á að hann hafi talað fyrir takmörkun á innflutningi útlendinga til Íslands. Það er sennilega það sem Hiddaj er að heykslast á (legg áherslu á að ég er með getgátur).
En hvað er svo slæmt við að Jón hafi þessa skoðun? Af hverju má hann ekki tala gegn því sem Frjálslyndir kalla óheftan innflutning útlendinga?
Má hann ekki tala gegn innflutningnum vegna þess að við erum í EES og samningum um frjálsa för vinnandi fólks á milli landa?
Má hann ekki vera á móti innflutningi fólks án þess að vera kallaður rasisti?
Hver er hin raunverulega ástæða fyrir því að maðurinn má ekki tala um sínar skoðanir?
Ef ég lýsti því yfir að mér væri illa við að dóttir mín kæmi heim með svartan mann, þá væri ég klárlega rasisti. Ekki spurning. En ef ég lýsti því yfir að ég væri á móti því að hún kæmi heim með vinstrimann? Hvað væri ég þá?
Í rauninni verð ég að segja að mér væri verr við að hún kæmi heim með vinstrimann en góðhjartaðan svartan mann.
Mér væri hinsvegar skelfilega illa við ef hún kæmi heim með múslima sem lifir eftir kennisetningunum. Það væri sennilega það hroðalegasta sem hún gæti gert sjálfri sér í mannvali. Er ég rasisti þess vegna?
Ég vil ekki sjá fundamental múslima á Íslandi. En ég verð sennilega ekki rasisti fyrr en ég fer að gera greinarmun á hvort músliminn sé innfæddur Breti eða borinn og barnfæddur pakistanskur Pastúni.
