Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Pólverjar
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
infelám
Ég verð að segja, því oftar sem að pólverjar verða á vegi mínu hrífst ég
meira og meira af þeim. Fyrir mitt leiti eru þeir mun meiri heimsborgarar
en íslendingar og þeir hafa komið vel undan vetri eftir 50 ára kúgun komma-
nismans, betur en íslendigar sem skriðu úr torfkofunum fyrir um 100 árum.
Sveitaeðlið og smáborgarinn alltaf en til staðar.

Það er áberandi hvað er mikill uppgangur í Póllandi og að fólk er farið að hafa
peninga á milli handana oftar en ekki eru það nýjir bílar á pólskum númerum
sem keyra hér um götur danmerkur.

Þeir leggja leið sína hingað þrátt fyrir að Danmörk sé eitt dýrasta land Evrópu,
sem þíðir að þeir hafi eitthvað í buddunni.

Það er líka áberandi hvað pólverja klæða sig vel og virðast fylgjast með tískunni.

Og svo í lokin, þá er frábært að heimsækja Pólland, virkileg gestrisið og gott
fólk í alla staði. Mæli með ferðum til Póllands.
drCronex
Gaman að lesa þetta. Aðal umræðan sem ég hef heyrt frá Póllandi sl. ár eru einhverjar stólpípuferðir. En auðvitað á það sér sínar skýringar.
Hrafnkell Daníels
QUOTE (infelám @ Mar 1 2008, 20:48) *
Ég verð að segja, því oftar sem að pólverjar verða á vegi mínu hrífst ég
meira og meira af þeim. Fyrir mitt leiti eru þeir mun meiri heimsborgarar
en íslendingar og þeir hafa komið vel undan vetri eftir 50 ára kúgun komma-
nismans, betur en íslendigar sem skriðu úr torfkofunum fyrir um 100 árum.
Sveitaeðlið og smáborgarinn alltaf en til staðar.

Það er áberandi hvað er mikill uppgangur í Póllandi og að fólk er farið að hafa
peninga á milli handana oftar en ekki eru það nýjir bílar á pólskum númerum
sem keyra hér um götur danmerkur.

Þeir leggja leið sína hingað þrátt fyrir að Danmörk sé eitt dýrasta land Evrópu,
sem þíðir að þeir hafi eitthvað í buddunni.

Það er líka áberandi hvað pólverja klæða sig vel og virðast fylgjast með tískunni.

Og svo í lokin, þá er frábært að heimsækja Pólland, virkileg gestrisið og gott
fólk í alla staði. Mæli með ferðum til Póllands.

Tek 100% undir þetta með þér.
infelám
QUOTE (Hrafnkell Daníels @ Mar 1 2008, 20:23) *
Tek 100% undir þetta með þér.

Ég er þess vegna ekki að skilja hvað íslendingar eru að setja sig á háan hest gagnvart
pólverjum sem hafa áhuga á að koma til Íslands og vinna. Eins og ég segi, mér finnst
aðdáunarvert að einhver skuli hafa áhuga á að fara þangað.
Heliospan
Þetta var nú alveg ágætt hjá þér infelám.
Ég hef kynnst ágætum pólverja og hann kom vel fram í allla staði og virtist hafa mikið upp á að bjóða.
Hann dásamaði velsældina á Íslandi en ég reyndi að koma honum í skilning um að þetta væri blekking að hluta til.

Það eru eðlileg viðbrögð hinsvegar að íslendingar séu á varðbegi gagnvart innflytjendum eins og pólverjum vegna fjöld þeirra, slíkt viðbrögð eru hluti af okkar eðli held ég.

En ég held að það sé í raun ekki svo mikið að varast. Fjöldi útlendinga getur aldrei orðið meiri en samfélagið getur boðið upp á. Við þurfum greinilega á innflytjendum að halda.
Pro.Farnsworth
Pólverjar eru fólk eins og íslendingar. Enginn munur þar á.
Vanity
Eins og maðurinn sagði þá ættum við að heita Pólland því við lifum á norður pólnum.
Ofsi
Ég held að það sé ekki hægt að vera sammála neinu sem Infelám segir. T,d fyrir það fyrsta vorum við mun lengur í torfkofunum. Og stór hluti okkar enn með torf milli eyrnanna :-).
Ég held að Pólverjar séu almennt masokistar eða stór klikkuð þjóð, fyrst þeir velja bananalýðveldið okkar fram yfir allt annað.

Reilly
Pólskar pylsur eru góðar.

Pólskir hómófóbar eru bæði margir og leiðinlegir.

Hvorugt er dæmi um heimsborgarahátt.
Gorgon
QUOTE (Reilly @ Mar 2 2008, 16:28) *
Pólskar pylsur eru góðar.

Pólskir hómófóbar eru bæði margir og leiðinlegir.

Hvorugt er dæmi um heimsborgarahátt.


En hvað með Prince Polo?
Reilly
QUOTE (Gorgon @ Mar 2 2008, 18:42) *
En hvað með Prince Polo?


Snilld!
cesil
Pólverjar eru góðir heim að sækja, gott og glaðvært fólk.
Click to view attachment
Hér er aðaltorgið í Kraká.
Click to view attachment

Flottar byggngar eins og sjá má.
Click to view attachment

Aðal kirkjan á torginu. Hana reistu tveir bræður, man ekki alveg söguna núna, en annar varð afbrýðisamur og drap hinn. Í stærri turninum stóð varðmaður í stríði, hann var skotinn í miðju lagi. Á klukkutíma fresti er lagið spilað, og deyr út á þeirri stundu sem hann var skotinn.
Click to view attachment
Bjórinn er góður, og þetta var svona uppáhalds kráin hjá okkur meðan við dvöldum í Kraká.
Click to view attachment
Það mikið um svona kjallara í Kraká, og reyndar í austur Evrópu, þetta voru örugglega svona öryggiskjallarar í stríðinu. En það er skemmtilegt að snæða á svona veitingastöðum, hráir en flottir.
Click to view attachment
Í Kraká eru saltnámurnar frægu, og þær eru undir vernd UNESCO. Það er mjög gaman að fara og skoða þær. Það eru ég man ekki hvað margar hæðir, og listaverk allstaðar. Frábært alveg.
Click to view attachment
Hér má sjá eitt slíkt, þau eru öll búin til úr salti.
Click to view attachment
Einn af verkalýðsforingjum þeirra. Þessi er líka búinn til úr salti.
Click to view attachment
Líf og fjör og skemmtileg menning er í miðborginni.
Click to view attachment
Flottir þessir hljómlistarmenn.
Click to view attachment
Carpatafjöllinn hér voru ólympíuleikarnir haldnir við erum komin til Zakopane.
Click to view attachment
Þau eru katólsk og hugsa vel um þá framliðnu.
Click to view attachment
Og konurnar fara í sínu fegursta pússi í kirkju.
Það verður enginn svikin af að heimsækja Pólland.


Hér er tæknin eitthvað að stríða mér, og ég fæ ekki kost á edit, verð að laga þetta seinna. Veit ekki alveg hvað er í gangi.
infelám
Skemmtilegar myndir cesil.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.