Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Bílbelta notkun.
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
human
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvers vegna fólk notar ekki bílbelti.

Hræðilegar afleiðingar slysa blasa við okkur allt of oft.
Allt of oft vegna þess að þau tæki sem við höfum okkur til varnar
eru ekki notuð.

Ég hef verið mjög hörð á því að bílbelti séu notuð þegar ég sest undir stýri.
Ég hef reynt að brýna fyrir mínum börnum og vinum þeirra nauðsyn þeirra.

Auðvitað er það þannig að ungu fólki finnst oft á tíðum svona "smámunasemi"
taut eða röfl í okkur eldra fólki.

Það þóttu hrikalegir öfgar í mér þegar ég keypti á sínum tíma sér belti
í bílinn hjá mér fyrir elstu dæturnar með púðunum þegar þær voru ungar.

En þegar ég horfi á ungt fólk sem mér þykir vænt um setjast upp í bíl,
jafnvel hefur fyrir því að teygja bílbelti yfir sig svo ekki sjáist að það sé ekki
í notkun, þá langar mig til þess að öskra.
Sérstaklega þegar ég hef staðið í rökræðum við foreldra þess um
notkun bílbelta.
Foreldra sem dettur ekki í hug að sýna börnum sínum þá virðingu að nota bílbeltin sjálf.
Foreldrar sem sinna því ekki að bílbeltin séu nothæf í aftursætum, þar sem yngra fólkið
er jú oftast.
Foreldrar sem jafnvel aka með ung börn laus í framsæti.

Flest munum við eftir því hvernig var að vera ungur.
Ekki ætla ég að dæma unga fólkið.
En ég dæmi okkur fullorðna fólkið þegar við reynum ekki einu sinni
að sýna gott fordæmi.

Hildigunnur
Ég man þegar beltin voru lögleidd. Þá þótti mér óþægilegt að nota belti enda hafði ég aldrei gert það áður. Ég er svo löghlyðin að ég gerði það nú samt og það sem er svo merkilegt er að mér bara líður einsog ég dingli laus í bílnum ef ég er ekki í belti. Börnin mín spenna beltin einsog sjálfkrafa þegar sest er upp í bílinn. Þetta verður að svona sjálfkrafa vana sem betur fer. Maður leiðir samt hugannn alltof sjaldan að því hvað það er í raun og veru mikilvægt að við gerum þetta. Skelfileg slys og maður getur ekki hugsað hugsunina til enda.
skortur
Beltin hafa forðað mér frá óþarfa hnjaski má segja,
því get eg ekki annað gert en mælt með þeim.
drCronex
Frá því beltin voru lögleidd hefur mér alltaf þótt þau óþægileg og þvingandi. En þau eru alltaf notuð.
Pending
Ef krakkar ætluðu á rúntinn með mér í gamla daga þá var þeim miskunnarlaust skipað í belti, annars gátu þau labbað, það var tuðað aaðeins yfir því fyrst en síðan komst þetta í vana

Bílbelti björguðu lífi mínu og félaga míns einu sinni, og ég bara skil ekki þessa þvermóðsku að nota ekki beltin, og ég segi eins og Hildigunnur að mér líður illa í bíl ef ég er ekki spenntur.
spekulasjon
Ég ek ekki af stað ef einhver er ekki í belti.
Þau hafa bjargað mér a.m.k. þrisvar sinnum (hvort sem ég hef ekið eða verið farþegi).
Í síðasta skipti björguðu þau án nokkurs vafa lífi mínu. Bíllinn fór í brotajárn eftir það tilvik en ég slapp með marblett eftir beltið og smá stífleika í skrokknum í nokkra daga. Beltislaus hefði ég endað urðaður eins og bíllinn, enginn vafi.

Að vera beltislaus í bíl á ferð er álíka viturlegt og að stunda skyndikynni oft í viku án þess að nota smokkinn. Það þarf ekki nema eitt skipti til að stórskaða þig eða jafnvel drepa.
Victor Laszlo
Ef bíll er á ferð, þá líður mér illa sé ég ekki í belti.
angellove
sammála ykkur smile.gif

ég lenti í bilslysi fyrir rúmlega ári síðan(laugardagskvöld) á kringlumýrabrautinni, Bílinn minn fékk vatn inn á vélina og það drapst á honum, ég var búin að standa fyrir framan vélina og reyna að nóta eitthvað sprey til að þurrka leiðslurnar í vélinni, ég er nú búin að setjast aftur inn í bílinn þegar að ég fæ þessa hræðilegu tilfinningu og kíkji í baksýnisspeigilinn, þá sé ég hvar sport bíll kemur á miklum hraða fyrir aftan mig og hann rétt svo svegir frá en því miður að þá náði bíllinn fyrir aftan hann ekki að gera það sama og fer beint aftan á mig. bíllinn sem fór á mig var á rúmlega 100. ég var ekki í bílbelti en sem betur fer að þá voru strákarnir í bílnum sem fór á mig í belti því báðir bílarnir voru ó-ökuhæfir.
Hildigunnur
QUOTE (angellove @ Mar 1 2008, 11:17) *

Úff.......Notum beltin alltaf og strax og við setjum inn í bílinn. Þetta er of mikill sjens
falcon1
Í gær var nú keyrt aftan á bíl sem ég var farþegi í. Bíllinn sem ég var í var stopp þegar annar bíll kom á fullri ferð klessti á okkur, bíllinn sem ég var í hentist svo á annann bíl fyrir framan. Sem betur fer voru allir í beltum!
Ég virðist hafa sloppið algjörlega við nokkur meiðsl, var reyndar í gær svona smá seyður í mjóbakinu en það er horfið í dag. smile.gif

En ég mæli algjörlega með beltunum, svo sakar ekki að vera í Mercedes Bens wink.gif

QUOTE (Hildigunnur @ Mar 1 2008, 11:25) *
Úff.......Notum beltin alltaf og strax og við setjum inn í bílinn. Þetta er of mikill sjens

Já segðu! Tekur ekki nema fáeinar sekúndur að spenna beltin á sig.
angellove
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 1 2008, 11:25) *
Úff.......Notum beltin alltaf og strax og við setjum inn í bílinn. Þetta er of mikill sjens

sammála alltaf að nóta belti en læknarnir sem tóku á móti okkur sögðu mér að kannski það hafa bjargað mér þarna að hafa ekki verið í belti því höggið var það mikið! en það sem bjargaði strákunum að það var beltið!! smile.gif
falcon1
Svo er eitt sem margir flaska á og það er að stilla höfuðpúðana í rétta hæð! Þeir eiga að vera stilltir þannig að hnakkinn leggist vel á þá en ekki þannig að hnakkinn fari yfir.
human
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 1 2008, 11:25) *
Úff.......Notum beltin alltaf og strax og við setjum inn í bílinn. Þetta er of mikill sjens

QUOTE (falcon1 @ Mar 1 2008, 11:29) *
En ég mæli algjörlega með beltunum, svo sakar ekki að vera í Mercedes Bens wink.gif

Já segðu! Tekur ekki nema fáeinar sekúndur að spenna beltin á sig.

QUOTE (falcon1 @ Mar 1 2008, 11:51) *
Svo er eitt sem margir flaska á og það er að stilla höfuðpúðana í rétta hæð! Þeir eiga að vera stilltir þannig að hnakkinn leggist vel á þá en ekki þannig að hnakkinn fari yfir.

Góðir punktar, það er rétt falcon1 þetta með höfðupúðana, ég hef ekki hugað nægjanlega að þeim.

This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.