Friðrik Þór skrifar.
29.2.2008 | 12:38
Málsókn gegn nafnlausum huldumönnum?
Væntanlega er holskefla lögsókna gegn bloggummælum tilgangslaus nema Hæstiréttur staðfesti Gauks-dóminn. En ég tel hins vegar ekki mest um vert að úrslit komi fram í máli nafngreinds einstaklings gegn nafngreindum einstaklingi. Ég vil sjá úrslit lögsóknar þar sem nafngreindur þolandi stefnir ónafngreindum geranda.
Það er nóg af nafnflausum einstaklingum í bloggheimum sem í skjóli nafnleyndar vega að æru fólks daglega. Þetta fólk hélt sér að mestu við málnefnin.com og alvaran.com hér í den og enginn tók á þeim mark, en með skjóli á Moggablogginu og víðar hafa orð þessara nafnleysingja fengið viðurkenningastimpil. Ég reyndi einu sinni dulnefni og veit að það tók enginn mark á mér og hætti auðvitað fljótlega þeirri vitleysu, en veit að ég leyfði mér óvandaðri munnsöfnuð í þessu þægilega skjóli. Stríddi mörgum og meiddi áreiðanlega suma. Ég hef síðan vitkast og skammast mín ekki fyrir orð mín undir nafni -passa betur orðalagið, sem er hið besta mál.
Ég ætla að leita vel og vandlega að einhverjum óviðurkvæmilegum ærumeiðingum nafnfleysingja og stuðla að lögsókn. Veit ekki einu sinni hvort ég nenni að bíða eftir Hæstarétti í Gauksmálinu. Úrslit þess máls hangir vafalaust á því hvaða dómarar veljast í málið.
