Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Litháar á leið til Litháen í til að afplána.
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
toto
Héðan:

QUOTE
Litháar afpláni í Litháen
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra lagði það til við Petras Baguska, dómsmálaráðherra Litháens á fundi þeirra í sendiráði Íslands í Brussel í morgun að Litháar, sem íslenskir dómstólar hafa dæmt til fangavistar, yrðu fluttir til afplánunar í ættlandi sínu.

Baguska samþykkti að þessi tilhögun yrði höfð vegna þeirra fanga sem falla undir ákvæði samnings Evrópuráðsins, um flutning dæmdra manna frá 1983 og viðauka við hann frá 1997, enda yrði farið að ákvæðum hans.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur nú þegar hafið undirbúning flutnings tveggja Litháa sem eru í afplánun á Litla-Hrauni.
Kelso
Finnst að þú ættir að umorða spurninguna þína...í t.d.:

"Eiga útlendingar að þurfa að afplána fangavistir heima hjá sér?"
"Ættu útlendingar að mega afplána fangavistir hér á landi?"

Eins og hefur komið fram í fréttum, þá er aðbúnaður í fangelsum hérna sennilega betri en hjá mörgum fjölskyldum í heimalandi þeirra. Mér finnst að það eigi að taka menn og senda þá heim sem snarast. Reyndar finnst mér að það eigi að líta á brotin sem þeir fremja. Fíknefnamisferli, ofbeldi, nauðgandir, skipulagðir þjófnaðir ... í beinustu leið upp í flugvél með þá...
Leon
Mér finnst bara ágætt að senda þá heim, alla vega ef það er tryggt að þeim verði ekki bara sleppt strax. Eru ekki Íslendingar einmitt að leggja sig fram um það almennt að ná heim íslenskum föngum sem sitja af sér dóma erlendis vegna þess að fangelsin eru verri en þeir eru vanir? Bara gott mál að við höfum okkar og þeir hafi sína.
Fidel Castro.
Hið besta mál, ef það er tryggt að þeir fái ekki neinn afslátt á refsitímanum vegna þess.

Fangelsin eru örugglega ekki eins vistleg og hér.

Leon
QUOTE (Kelso @ Feb 28 2008, 18:28) *
Finnst að þú ættir að umorða spurninguna þína...í t.d.:

"Eiga útlendingar að þurfa að afplána fangavistir heima hjá sér?"
"Ættu útlendingar að mega afplána fangavistir hér á landi?"

Eins og hefur komið fram í fréttum, þá er aðbúnaður í fangelsum hérna sennilega betri en hjá mörgum fjölskyldum í heimalandi þeirra. Mér finnst að það eigi að taka menn og senda þá heim sem snarast. Reyndar finnst mér að það eigi að líta á brotin sem þeir fremja. Fíknefnamisferli, ofbeldi, nauðgandir, skipulagðir þjófnaðir ... í beinustu leið upp í flugvél með þá...


Já, ef þeir "fá" að afplána heima, þá hljómar það eins og fangelsin í heimalandi þeirra séu eitthvað betri en okkar. Ef fangi kemur frá landi þar sem fangelsin eru mun betri en á Íslandi, þá ætti það að vera nóg fyrir hann að sitja í vondu íslensku fangelsi í smá tíma á meðan verið er að græja það að flytja hann og hann telur sig heppinn að fá að fara heim. Ef fangelsin í heimalandi hans eru verri, þá græðir hann ekkert á því að fara til Íslands til að brjóta af sér vegna þess að fangelsin séu svo góð vegna þess að hann er sendur heim.
bjargvætturinn
QUOTE (toto @ Feb 28 2008, 16:38) *


Gætu þeir ekki vistað hjá sér þessa íslensku fanga líka fyrir mun minni pening en kostar að vista þá hér? Einhverstaðar útí skógi? Það kostar núna 300 þús. að vista einn mann í mánuð. Það myndi kosta mun minna í Litháen.
Reilly
Þetta er hið besta mál og raunar bráðnauðsynlegt ef fangelsisdómur yfir vissum þjóðernum á að hafa eitthvert vægi.

Prik í kladdann fyrir Bíbí.
Fidel Castro.
QUOTE (bjargvætturinn @ Feb 28 2008, 18:01) *
Gætu þeir ekki vistað hjá sér þessa íslensku fanga líka fyrir mun minni pening en kostar að vista þá hér? Einhverstaðar útí skógi? Það kostar núna 300 þús. að vista einn mann í mánuð. Það myndi kosta mun minna í Litháen.


Frábær hugmynd. Setja þá í útboð.



This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.