Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Þraut: hvernig komast yfir á, úlfur lamb og smali
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
toto
Líklega kunn margir gömlu "úlfur lamb og smali" þrautina, þar sem allir þurftu að komast yfir á.

Í þessari þraut þurfa Mamman, pabbinn, tveir synir, tveir dætur, lögga og þjófur að komast yfir á.

Reglurnar eru:

1) Allir þurfa að komast yfir á hinn bakkann og vera þar öll í einu.
2) Aðeins 2 persónur komast í flekann í einu
3) Faðirin má ekki vera með dóttur án þess að móðirin sé þar líka.
4) Móðirin má ekki vera með syni án þess að faðirinn sé þar líka.
5) Þjófurinn má ekki vera með neinum fjöldkyldumeðlim án þess að löggan sé þar líka
6) Aðeins móðirin faðirinn og löggan kunna að stjórna flekanum.

Þetta tók mig smá tíma, en þetta er vel hægt.

Klikkið á þennan link og síðan á hringinn hægra megin.
ABG79
þá það er spurning.

þetta er djöfull flókið.

er ekki hægt að kæra föðurinn eða móðurinn fyrir að berja barnið sitt hahaha
feu
Leysti þetta á rúmum 10 mínútum.

Gorgon
Ekki svo gríðarlega flókið, rökfræðilega séð.
human
QUOTE (feu @ Feb 27 2008, 21:04) *
Leysti þetta á rúmum 10 mínútum.

Byrjunin..

Löggan + fangi, Löggan til baka ein, sækir stúlku, fer með fangan til baka, Kona + stúlka, Kona til baka,


Gerði þetta eins, bara maður + drengur... kom báðum strákunum yfir.
Þegar ég fór að ferja stelpurnar sat allt fast. Ætla að reyna þetta aftur á eftir.
Gleymdi að segja að þá var ég búin að flytja manninn yfir með konunni til strákanna.
feu
Löggan yfir með fangann. Löggan til baka og tekur stelpu (eða dreng) með sér til baka. Löggan til baka með fangann. Kona yfir með stelpu, kemur til baka og sækir karlinn. Hann til baka. Löggan og fanginn yfir, konan til baka. Tekur karlinn með sér til baka, hann fer yfir og sækir annan drenginn. Löggan og fanginn aftur yfir, löggan fer með drenginn sem er eftir síðan til baka og sækir fangann.. finító!
Spaði
Vísugátan var nú svona:

Hvernig komast yfir á
úlfur lamb og heypokinn?
Ekkert granda öðru má,
eitt og mann tók báturinn.

Fyrst fór bóndi með lambið yfir og skyldi úlf og heypoka eftir. Úlfar éta ekki hey.
Þá fór hann næst með heypokann en tók lambið til baka.
Í þriðju ferð fór hann með Hr. Úlf og skildi lambið eftir.
Loks fór hann og sótti lambið.
toto
QUOTE (Spaði @ Feb 28 2008, 23:28) *
Vísugátan var nú svona:

Hvernig komast yfir á
úlfur lamb og heypokinn?
Ekkert granda öðru má,
eitt og mann tók báturinn.

Fyrst fór bóndi með lambið yfir og skyldi úlf og heypa eftir. Úlfar éta ekki hey.
Þá fór hann næst með heypokann en tók lambið til baka.
Í þriðju ferð fór hann með heypokann og skildi lambið eftir.
Loks fór hann og sótti lambið.


Síðan fór hann heim og borðaði lambið.
Threshy
QUOTE (Spaði @ Feb 28 2008, 22:28) *
Vísugátan var nú svona:

Hvernig komast yfir á
úlfur lamb og heypokinn?
Ekkert granda öðru má,
eitt og mann tók báturinn.

Fyrst fór bóndi með lambið yfir og skyldi úlf og heypa eftir. Úlfar éta ekki hey.
Þá fór hann næst með heypokann en tók lambið til baka.
Í þriðju ferð fór hann með heypokann og skildi lambið eftir.
Loks fór hann og sótti lambið.


Þú gerir frekar lítið út úlfinum með því að kalla hann heypoka rolleyes.gif
Spaði
QUOTE (Threshy @ Feb 28 2008, 22:37) *
Þú gerir frekar lítið út úlfinum með því að kalla hann heypoka rolleyes.gif

tongue.gif

Rétt. Nú fer úlfurinn í meiðyrðamál!
Hildigunnur
QUOTE (feu @ Feb 28 2008, 18:34) *
Löggan yfir með fangann. Löggan til baka og tekur stelpu (eða dreng) með sér til baka. Löggan til baka með fangann. Kona yfir með stelpu, kemur til baka og sækir karlinn. Hann til baka. Löggan og fanginn yfir, konan til baka. Tekur karlinn með sér til baka, hann fer yfir og sækir annan drenginn. Löggan og fanginn aftur yfir, löggan fer með drenginn sem er eftir síðan til baka og sækir fangann.. finító!



Virkar ekki svona hjá mér. Ég byrjaði á að koma fanganum yfir með löggunni en það dugar ekkert til að koma hinum yfir. Fólkið kílir hvert annað kalt á leiðinni alveg sama hvaða samsetningu ég nota mad.gif
Ég kem þessu bara fólki ekki yfir ána og þar er um að kenna ofbeldidhneið þess. smileydisgust.gif
Helvísis vandamál að þarna virðist feminisminn ekki hafa náð uppúr kjallaranum mad.gif
Threshy
QUOTE (Hildigunnur @ Mar 1 2008, 13:28) *
Virkar ekki svona hjá mér. Ég byrjaði á að koma fanganum yfir með löggunni en það dugar ekkert til að koma hinum yfir. Fólkið kílir hvert annað kalt á leiðinni alveg sama hvaða samsetningu ég nota mad.gif
Ég kem þessu bara fólki ekki yfir ána og þar er um að kenna ofbeldidhneið þess. smileydisgust.gif
Helvísis vandamál að þarna virðist feminisminn ekki hafa náð uppúr kjallaranum mad.gif


Þetta eru 17 ferðir yfir ána í allt.

1. Lögga og fangi yfir
2. Lögga yfir
3. Lögga og strákur yfir
4. Lögga og fangi yfir
5. Maður og strákur yfir
6. Maður yfir
7. Maður og Kona yfir
8. Kona yfir (Nú er maður og báðir strákarnir hinum megin við bakkann)
9. Lögga og fangi yfir
10. Maður yfir
11. Maður og Kona yfir
12. Kona yfir
13. Kona og stelpa yfir
14. Lögga og fangi yfir
15. Lögga og stelpa yfir
16. Lögga yfir
17. Lögga og fangi yfir

This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.