QUOTE (Sepecat @ Feb 28 2008, 14:16)

Jújú allt saman rétt fyrir utan að kalla okkur bjána, en pointið er að hér er fyrirtæki að blekkja fólk. Afhverju heldur þú að það séu íslenskar flugfreyjur um borð. Heldur þú að Íslendingar væru eins fúsir að ferðast með erlendu flugfélagi. IE gerir allt til þess að halda þeirri ímynd að almenningi hér að þeir séu íslendskt flugfélag á ferðinni þegar að það er það ekki. IE er ferðaskrifstofa sem selur farmiða með erlendu flugfélagi. Það er pointið. Það er bara pirrandi þegar að verið er að blekkja fólk.
Hvaða smáborgarháttur er þetta, "Heldur þú að Íslendingar væru eins fúsir að ferðast með erlendu flugfélagi." því ekki spyr ég, hver ætti að vera ástæðan að íslendingar vildu ekki fljúga með erlendu flugfélgi, er nema von að Kelso haldi að hann sé að hafa samskifti við bjána.
Hvað þetta með íslenskar flugfreyjur, skil ekki hvað þú ert að fara.
Auðvitað er aðalmálið að þú þarft að komast frá einum stað á annan og sú er eina ástæðan að þú notar flugvél.
QUOTE (Sepecat @ Feb 28 2008, 23:05)

Það var líka einu sinni bent á að ef menn lentu í vandræðum þá þyrftu þeir að tala við flugfélagið Hello í Sviss til að fá leiðréttingu sinna mála. Hvernig vandamál það eru veit ég ekki en man eftir að hafa heyrt um þetta.
Þetta er bara bull og varla svaravert, þar sem ég geri ráð fyrir að flestir viti betur, en sá sem selur þér farið er sá sem ber ábyrgðina og til hans snýrð þú þér hafi eitthvað farið úrskeiðis.