Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Ja hérna, svo þvagleggurinn var þá nauðsynlegur
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Hawk12
"Vísir, 26. feb. 2008 13:51

Þvagleggskonan María Bergsdóttir missti prófið.

Dómur í svokölluðu Þvagleggsmáli féll í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. María Bergsdóttir sem ákærð var fyrir ölvun við akstur var svipt ökuleyfi í eitt ár en auk þess fékk hún 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Málið sem um ræðir átti sér stað í mars á síðasta ári, þegar tekið var þvagsýni úr Maríu með þvaglegg á lögreglustöðinni á Selfossi, eftir að hún hafði ekið út af rétt við Þingborg. Nota þurfti valdbeitingu við sýnatökuna, sem hjúkrunarfræðingur og læknir önnuðust og reyndist umtalsvert magn af alkóhóli í blóði konunnar.

Einn af ákæruliðunum snéri að meintum hótunum Maríu í garð lögreglumanna. Hótaði hún meðal annars tveimur lögreglumönnum lífláti á lögreglustöðinni. Hún neitaði því fyrir dómi en sagðist að öðru leyti ekki muna eftir atvikinu.

Dómari komst hinsvegar að því að með hótununum hefði konan brotið gegn valdsstjórninni og var hún því sakfelld fyrir þá háttsemi.

María þarf einnig að greiða allan sakarkostnað, rúmar 350.000 krónur"

jonr
Nei.
Bosshogg
Þurfum við ekki full cavity search á þig hawk12 svona til öryggis?
Locke
QUOTE (Hawk12 @ Feb 27 2008, 15:21) *
[b]"Vísir, 26. feb. 2008 13:51

Þvagleggskonan María Bergsdóttir missti prófið.

Málið sem um ræðir átti sér stað í mars á síðasta ári, þegar tekið var þvagsýni úr Maríu með þvaglegg á lögreglustöðinni á Selfossi, eftir að hún hafði ekið út af rétt við Þingborg. Nota þurfti valdbeitingu við sýnatökuna, sem hjúkrunarfræðingur og læknir önnuðust og reyndist umtalsvert magn af alkóhóli í blóði konunnar.

Hver munurinn á þessu og pyntingum?
toto
Þessi dómur segir ekkert annað en að konan er ekki að komast upp með dónaskapinn og lætin sem hún viðhafði og að þvaginu úr henni var ekki aflað með ólögmætum hætti.
Pending
QUOTE (toto @ Feb 27 2008, 18:00) *
Þessi dómur segir ekkert annað en að konan er ekki að komast upp með dónaskapinn og lætin sem hún viðhafði og að þvaginu úr henni var ekki aflað með ólögmætum hætti.

Amen
Laplace
Þvaglegg í alla, konur og kalla. Mæli með að þetta verði gert að handahófi í kringlunni t.d. Þótt þú lýtir út fyrir að vera saklaus er þarf það ekki að vera.

rolleyes.gif

kv Laplace
Sepecat
Ég hef enga sammúð með þessari konu. Það er margt fólk sem spilar sig sem fórnarlömb og sakleysinga gagnvart fjölmiðlum til að vinna almenning á sitt band og reyna að baka lögreglu vandræði með þess háttar leik. Verst hve margir kokgleypa svona leikarskap.
Bosshogg
QUOTE (Sepecat @ Feb 27 2008, 18:40) *
Ég hef enga sammúð með þessari konu. Það er margt fólk sem spilar sig sem fórnarlömb og sakleysinga gagnvart fjölmiðlum til að vinna almenning á sitt band og reyna að baka lögreglu vandræði með þess háttar leik. Verst hve margir kokgleypa svona leikarskap.

Heldurðu að andstaðan við þennan viðbjóð sé engöngu vegna samúðar með einum einstaklingi?
Hvað með lög og reglu? Má lögreglan kafa upp í rassgatið á þeim sem hún vill ef líklegt sé að það leiði til sakfellingar?
human
QUOTE (Bosshogg @ Feb 27 2008, 18:43) *

Tek undir þetta.

Hawk12
QUOTE (jonr @ Feb 27 2008, 16:20) *
Nei.

Hvern fjandann meinarðu með þessu neii?
toto
QUOTE (Bosshogg @ Feb 27 2008, 19:43) *
Heldurðu að andstaðan við þennan viðbjóð sé engöngu vegna samúðar með einum einstaklingi?
Hvað með lög og reglu? Má lögreglan kafa upp í rassgatið á þeim sem hún vill ef líklegt sé að það leiði til sakfellingar?

Ef þú ert þegar búinn aö brjóta lög og reglur þá er eðlilegt að lögreglan hafi meira svigrúm til að rannsaka afbrot þitt, en ef hana bara "grunar" eitthvað.

Í þessu tiltekna tilfelli var ekki um neitt "handahófs úrtak" að ræða þar sem bara einhver kona var gripin á gangi niður Laugarvegin, hún var búin að brjóta af sér (sem hún var síðan dæmd fyrir) og henni var boðið að láta þvagsýni af hendi sjálfviljug, nokkuð sem hún kaus að gera ekki.

Hversu langt á að ganga í að vorkenna fólki sem er varla hægt að kalla neitt annað en aumingja ?
Hawk12
QUOTE (Locke @ Feb 27 2008, 17:12) *
Hver munurinn á þessu og pyntingum?

Hvern fjandann ertu að tala um pyntingar og svo hótaði kvensan að drepa lögreglumennina, pyntingar ja hérna, hefðu þeir togað neglurnar af henni væri hægt að tala um pyntingar, en þarna var um læknisaðgerð að ræða, mikið djöfull getið þið verið vitlausir.
Sepecat
QUOTE (Bosshogg @ Feb 27 2008, 18:43) *
Heldurðu að andstaðan við þennan viðbjóð sé engöngu vegna samúðar með einum einstaklingi?
Hvað með lög og reglu? Má lögreglan kafa upp í rassgatið á þeim sem hún vill ef líklegt sé að það leiði til sakfellingar?

Gengur það upp að fíkniefnasali segi við lögregluna "bíðið, þið megið koma inn þegar að ég segi til" á meðan hann eyðir öllum sönnunargögnum?
Þessi kona var staðin að alvarlegu lögbroti og reyndi allt sem að hún gat til að sjá svo um að ekki væri hægt að sanna neit á sig.
Ég get undir engum kringumstæðum litið á það með jákvæðum augum að lögbrjótar geti hagað sér eins og þeim sýnist á kostnað lög og reglu í þessu landi og geti síðan vælt í fjölmiðlum til að vinna sér inn samúð fyrir sinn vafasama málstað.
Hawk12
QUOTE (toto @ Feb 27 2008, 18:00) *
Þessi dómur segir ekkert annað en að konan er ekki að komast upp með dónaskapinn og lætin sem hún viðhafði og að þvaginu úr henni var ekki aflað með ólögmætum hætti.

Já lögreglan má gera leit í skítagörninni á grunuðum smyglurum, og það staðfest með dómi.
toto
QUOTE (Hawk12 @ Feb 27 2008, 21:31) *
Já lögreglan má gera leit í skítagörninni á grunuðum smyglurum, og það staðfest með dómi.

"Ég fann stöffið. 'excramentum',, og hélstu að þú kæmist upp með þetta .. ó ´neeeeiiiiiiiiiii"
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.