Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Tillitsemi sem gagnast ekki neinum
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Pro.Farnsworth
Svona kjánaskapur mun ekki gagnast neinum og alls ekki hinum vestrænu þjóðfélögum sem taka þátt í þessari vitleysu.

QUOTE
Sótt að gríslingum í barnasögum

Hollenski stórbankinn Fortis hefur ákveðið að hætta að gefa börnum sparigrísi af tillitssemi við múslíma sem segja það særa trúartilfinningu þeirra. Þá hefur auglýsingaherferð bankans með sparigrís bankans í aðalhlutverki verið stöðvuð í Belgíu. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Svín eru álitin óhrein í íslam og munu margir viðskiptavinir bankans hafa kvartað undan sparigrísnum Knorbert, sem hefur verið sparibaukur bankans í sjö ár. Talsmaður bankans segir þó ekki rétt að bankinn hafi látið undan þrýstingi múslíma heldur hafi Knorbert einfaldlega runnið sitt skeið. þá standist hann ekki þær kröfur sem gerðar séu til lukkudýra og vörumerkja í fjölmenningarsamfélagi nútímans.

Til stendur að hanna nýtt lukkudýr fyrir bankann en þangað til munu barnungir viðskiptavinir hans fá barnaalfræðiorðabók að gjöf.

Í Bretlandi hafa bankarnir Halifax og NatWest þegar hætt að gefa börnum sparigrísi. Þar hefur leikskólabörnum einnig verið bannað að segja börnum söguna af úlfinum og grísunum þremur og hefur þeim þess í stað verið uppálagt að að segja sömu sögu með kettlingum í aðalhlutverki.

Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna.

mbl.is
Hildigunnur
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 27 2008, 9:24) *
Svona kjánaskapur mun ekki gagnast neinum og alls ekki hinum vestrænu þjóðfélögum sem taka þátt í þessari vitleysu.

Er þetta ekki bara markaðsmál.
Markhópurinn "múslimar" munu kjósa annan banka en þann sem er með sparibauka sem þeim finnast ljótir. Bankinn er þess vegna að finna eitthvað sem höfðar til þessa markhóps.
Ég skal segja þér að Króni og Króna höfðuðu rækilega til minna barna forðum og það réði því í hvaða banka þau lögðu sína aura.
Pro.Farnsworth
Vandamálið er að þetta endar ekkert bara við bankann. Núna er farið að breyta sögum til þess að móðga ekki múslíma. Þetta er komið út fyrir alla skynsemi.
Hildigunnur
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 27 2008, 9:40) *
Vandamálið er að þetta endar ekkert bara við bankann. Núna er farið að breyta sögum til þess að móðga ekki múslíma. Þetta er komið út fyrir alla skynsemi.

Hefur þér dottið í hug að hér sé verið að skreita söguna dulítið svo hún þjóni betur tilgangi sínum sem er........................ Gettu smile.gif
Geita_Pétur
Mikið rosalega getur fólk verið heimskt!!!!

Það eru einmitt svona gjörningar sem auka á andúð og hatur gagnvart innflytjendum.

Það að einhverjir innflytjendur skuli fara fram á svona á ekki að lýðast, að einhverjir láti svona eftir þeim á heldur ekki að lýðast, og að einhverjum skuli detta þetta í hug af eigin frumkvæði er með öllu óskiljanlegt.

QUOTE (Hildigunnur @ Feb 27 2008, 9:41) *
Hefur þér dottið í hug að hér sé verið að skreita söguna dulítið svo hún þjóni betur tilgangi sínum sem er........................ Gettu smile.gif

Og er þú með heimildir fyrir því að þessi frétt sé röng eða ýkt?

Þær hafa verið Þó nokkrar fréttirnar sambærilegar þessari undanfarið... eru þær allar skreyttar og stílfærðar?
Hildigunnur
QUOTE (Geita_Pétur @ Feb 27 2008, 9:47) *
Og er þú með heimildir fyrir því að þessi frétt sé röng eða ýkt?

Þær hafa verið Þó nokkrar fréttirnar sambærilegar þessari undanfarið... eru þær allar skreyttar og stílfærðar?

Engar heimildir hef ég en ég þekki tilveruna nokk og ég veit að niðurlag fréttarinnar
"Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna."
er aldeilis tilvalið til að vekja athygli, umræðu og selja blað. Eða hefur þú heimildir um fundargerðir bæjarráðsins í Dudley ?????
Fowl
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 27 2008, 9:40) *
Vandamálið er að þetta endar ekkert bara við bankann.

Bankinn er einkafyrirtæki og hagar sínum málum eins og honum hentar best, til þess að ná til sem flestra kúnna.

Sé ekki að það sé eitthvað til að æsa sig yfir. dry.gif

Það að einhver bæjarráðsmaður einhvers staðar hafi flutt asnalega tillögu er allt annað mál og engar líkur á því að slíkt verði samþykkt!

Hér er verið að slá saman tveimur fréttum til að skapa einhvern tilbúinn hasar.
callahan
QUOTE (Fowl @ Feb 27 2008, 9:54) *

Tók enginn eftir orðinu Jyllands-Posten í þessari frétt?

Annars er þetta einkafyrirtæki og getur því hagað sínum markaðsmálum eins og það vill ef það telur þetta til hagsbóta. Ef kristnir hætta svo að versla við bankann vegna svínslyesi well, þá er það mál bankans
Hrafnkell Daníels
Óttinn við múslima er kominn út í öfgar.
Geti þessir anskotans frekjuhundar ekki aðlagast í þeim löndum sem þeir flytja til á einu ári á hiklaust að senda þá til baka til síns heimalands.
Það á ekki leyfa þeim að komast upp með að ná stjórn á okkar gildum og troða sínum upp á okkur í okkar löndum, nóg er að þurfa að fara að þeirra kröfum í þeirra heimalöndum.
rimryts
Þetta verða að lokum hrein múslimaríki með þessu áframhaldi.
Geita_Pétur
QUOTE (rimryts @ Feb 27 2008, 10:01) *
Þetta verða að lokum hrein múslimaríki með þessi áframhaldi.

Enda eru margir á því að það rætist víða áður en öldin er úti.
rimryts
Fjölmenningarsamfélaginu hefur verið hampað sem einhverju jákvæðu sem innflytjendur hafa fram að færa.

En því miður er alltaf að koma betur og betur í ljós að innflytjendur ryðja í burtu ýmsu úr okkar menningu og við látum þá komast upp með það til að halda friðinn.

þetta skapar eðlilega útlendingahatur og þarf enga fordóma til.
Hildigunnur
Skiljið þið ekki að þetta er markaðsmál einhvers banka sem er að reyna að ná til fleiri viðskiptavina.
Fowl
QUOTE (callahan @ Feb 27 2008, 9:58) *
Tók enginn eftir orðinu Jyllands-Posten í þessari frétt?

Annars er þetta einkafyrirtæki og getur því hagað sínum markaðsmálum eins og það vill ef það telur þetta til hagsbóta. Ef kristnir hætta svo að versla við bankann vegna svínslyesi well, þá er það mál bankans

Jú, ég tók einmitt eftir því.

Jyllands-Posten er öfgahægri blað sem hefur árum saman verið með hatramman áróður gegn innflytjendum og fólki af öðrum uppruna en dönskum. Því er ekki hægt að taka fréttum þaðan eins og einhverjum sannleika.

Við getum líka safnað saman asnalegum fréttum af kristnum, t.d. söfnuðinum í Kansas sem mótmælir við jarðarfarir homma, en hver væri tilgangurinn annar en að reyna að sverta stóran hóp af fólki?
rimryts
QUOTE (rimryts @ Feb 27 2008, 10:08) *
Fjölmenningarsamfélaginu hefur verið hampað sem einhverju jákvæðu sem innflytjendur hafa fram að færa.

En því miður er alltaf að koma betur og betur í ljós að innflytjendur ryðja í burtu ýmsu úr okkar menningu og við látum þá komast upp með það til að halda friðinn.

þetta skapar eðlilega útlendingahatur og þarf enga fordóma til.

Svo að það er í lagi að þínu mati að ryðja burtu þáttum úr okkar mennigu til að aðlagast Islam ef það er markaðsmál?
Brodd-Helgi
Þetta er alveg fáránleg frétt. Tilgangur hennar nr. 1 er að láta muslima líta illa út.

Þessi banki hefur haft þennan grís í 7 ár og nú er lagerinn búinn og ákveðið var að skipta um. Ekki alltaf hægt að hafa það sama. Enda eins og talsmaðurinn segir einhversstaðar þá breytist tískan fljótt. Grísinn er ekkert eins mikið inn og hann var.

Ég er ekki að sjá að þetta hafi nokkuð með muslima að gera.

Laplace
QUOTE (rimryts @ Feb 27 2008, 10:24) *
Svo að það er í lagi að þínu mati að ryðja burtu þáttum úr okkar mennigu til að aðlagast Islam ef það er markaðsmál?

Hvað villtu gera? Banna einkafyrirtækjum að hætta að nota grísi í sínum lógóum t.d.?

kv Laplace
jóhann jóhannsson
QUOTE (Hrafnkell Daníels @ Feb 27 2008, 9:58) *
Óttinn við múslima er kominn út í öfgar.
Geti þessir anskotans frekjuhundar ekki aðlagast í þeim löndum sem þeir flytja til á einu ári á hiklaust að senda þá til baka til síns heimalands.
Það á ekki leyfa þeim að komast upp með að ná stjórn á okkar gildum og troða sínum upp á okkur í okkar löndum, nóg er að þurfa að fara að þeirra kröfum í þeirra heimalöndum.

Af hverju flúðir þú land ? Var kannski eitthvað athugavert við framkomuna hjá þér ,,gæskur"
Hrafnkell Daníels
QUOTE (jóhann jóhannsson @ Feb 27 2008, 13:26) *
Af hverju flúðir þú land ? Var kannski eitthvað athugavert við framkomuna hjá þér ,,gæskur"

Mín mál koma þér ekki við og eru ekki í umræðunni.....................GÆSKUR!
Brodd-Helgi
Sýnir líka hvernig fjölmiðill mogginn er, að hann skuli birta svona alveg gagnrýnislaust. (manni kemur ekkert á óvart með JP) Svo er þetta ekki einu sinni almennilega þýtt hjá þeim.

QUOTE
Þar hefur leikskólabörnum einnig verið bannað að segja börnum söguna af úlfinum og grísunum þremur og hefur þeim þess í stað verið uppálagt að að segja sömu sögu með kettlingum í aðalhlutverki.

jóhann jóhannsson
QUOTE (Hrafnkell Daníels @ Feb 27 2008, 11:27) *
Mín mál koma þér ekki við og eru ekki í umræðunni.....................GÆSKUR!

Nú.. Ertu ekki innflytjandi ( nýbúi) í framandi landi. Hlýtur að geta miðlað af reynslunni. Svo sem hvernig músalimirnir horfa á þig þegar þú ferð með sparigrísinn í bankann osvleiðs.
Aroz
QUOTE (Geita_Pétur @ Feb 27 2008, 9:47) *
Mikið rosalega getur fólk verið heimskt!!!!

Það eru einmitt svona gjörningar sem auka á andúð og hatur gagnvart innflytjendum.

Það að einhverjir innflytjendur skuli fara fram á svona á ekki að lýðast, að einhverjir láti svona eftir þeim á heldur ekki að lýðast, og að einhverjum skuli detta þetta í hug af eigin frumkvæði er með öllu óskiljanlegt.

Og er þú með heimildir fyrir því að þessi frétt sé röng eða ýkt?

Þær hafa verið Þó nokkrar fréttirnar sambærilegar þessari undanfarið... eru þær allar skreyttar og stílfærðar?

Já, verst er þegar svona sjálfskipaðir "verndarar" innflytjenda byrja að ímynda sér að þeir verði brjálaðir ef það er ekki látið eftir þeim með eitthvað, sem þó enginn þeirra hefur beðið um. Svona pre emptive appeasement rolleyes.gif Já og fordómar.
Hrafnkell Daníels
QUOTE (jóhann jóhannsson @ Feb 27 2008, 13:32) *
Nú.. Ertu ekki innflytjandi ( nýbúi) í framandi landi. Hlýtur að geta miðlað af reynslunni. Svo sem hvernig músalimirnir horfa á þig þegar þú ferð með sparigrísinn í bankann osvleiðs.

Enn hangir þú í sama sandkassanum.
Vertu þar en láttu mig í friði vesæla lítilmenni og reyndu að halda þig við umræðuna svona til tilbreytingar í stað þess að ráðast alltaf á viðmælendur þina.
jóhann jóhannsson
QUOTE (Hrafnkell Daníels @ Feb 27 2008, 11:36) *
Enn hangir þú í sama sandkassanum.
Vertu þar en láttu mig í friði vesæla lítilmenni og reyndu að halda þig við umræðuna svona til tilbreytingar í stað þess að ráðast alltaf á viðmælendur þina.

Fyrirgefðu ég vissi ekki að þetta væri svona viðkvæmt með ,,Sparigrísinn" En rosalega ertu hörundsár, skilur ekki grín og svo kemur nú úr hörðustu átt þessi lýsing þín vesæla lítilmenn Miðað við það sem maður hefur heyrt af viðskilnaði þínum hér heima.
Brodd-Helgi
QUOTE (Geita_Pétur @ Feb 27 2008, 9:47) *
Þær hafa verið Þó nokkrar fréttirnar sambærilegar þessari undanfarið... eru þær allar skreyttar og stílfærðar?

Það hefur verið gert mikið hó og hú úr nokkrum grísamálum, múslimar þetta múslimar hitt. En svo þegar komið hefur í ljós að það hafði ekkert með muslima að gera, þá þegja menn yfirleitt.

Td. með að þrír litlir grísir væru bannaðir einhversstaðar í skólum í bretlandi. Það var ekkert að kröfu muslima enda lesa þeir sögur af þem grísum eins og gerist og gengur. Þú getur rannsakað málið á eigin spýtur. Byrjar td á wiki "tree little pigs" og vinnur þig svo áfram.

In March 2007, the story was modified in some British schools to "three little puppies" to avoid offending Muslim families, a move described by Ibrahim Mogra from the Muslim Council of Britain as "bizarre".[1] However the name has changed back to the Three Little Pigs.

Geita_Pétur
QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 27 2008, 11:43) *

Vandamálið af stórum hluta er "navíistarnir" sem eru illa haldnir af óþörfu innflytjendadekri og eru endalaust að móðgast fyrir hönd annara.
"Navíistarnir" eru jafn mikið vandamál og "róttæku" múslimarnir enda sjá "navíistarnir" einhverja hluta vegna ekki slæmu afleiðingar öfgahyggju.

Ef þessi skóli (og fleiri) hafa breytt grísunum aftur í grísi er það auðvitað mjög jákvætt og mjög gott ef hvatinn fyrir þessum breytingum komi frá múslimum, það sýnir að einhver hluti þeirra vill aðlagast og það myndi hjálpa umræðunni mjög mikið ef meira heyrðist frá lýðræðis-þenkjandi múslimum.
Leon
Mér finnst það frekar spurning hvort múslimar séu að heimta það að grísunum 3 verði útrýmt eða sparigrísum sem og öðrum grísum eða hvort þetta er að undirlagi fjölmenningarsinna sem halda sig vera að gera eitthvað rosalegt góðverk.

Ég er frekar á þeirri skoðun að það eigi ekki að banna grísi en ef eitthvað fyrirtæki, t.d. banki ákveður að taka upp sparikálfa eða kettlinga frekar en grísi, þá er ekkert að því. Ég átti sjálfur Jóakim sparibauk einhvern tímann og múmínstrákinn og held ég kengúru. Átti held ég aldrei grís. Ég efast um að einhver þessara sparibauka sé ennþá framleiddur í dag þrátt fyrir áralanga þjónustu og ábyggilega voru þeir ekki niðurlagðir vegna þess að einhverjum fannst endur, múmínálfar eða kengúrur ógeðsleg dýr.
VSS
Jájá bönnum grísasparibauka og fyrst við erum að banna svín á annað borð þá skulum við banna svínakjötsát líka. En aumingja múslímarnir gætu keyrt framhjá svínabúi og móðgast svo auðvitað bönnum við svínabú við leysum þetta auðvitað bara á einn hátt við útrýmum svínum. Þetta er viðbjóðsleg móðgun við Allah meira að segja hugsa um svín og nota orðið svín útrýmum því úr málinu.
Og á meðan við erum að þjónkast honum Allah þá verður auðvitað að muna eftir því að múslímargreyin gætu móðgast við að sjá konurnar okkar ganga í stuttum pilsum svo við bönnum það auðvitað. Ekki má gleyma andlitunum það er líka rosaleg móðgun við múslímana að þurfa að horfa á andlitin á konunum okkar úti á götunum okkar í landinu okkar. Við verðum auðvitað að hylja þau.
Svo verðum við að passa okkur á því hvað við segjum og hvernig við segjum það því við meigum ekki móðga múslímagreyin. Setjum því lög um hvað má segja og hvað ekki opinberlega. Til að vera alveg örugg um að móðga ekki múslíma er best að við séum ekkert á faraldsfæti út fyrir heimili okkar að óþörfu við gætum klætt okkur vitlaust sagt eitthvað vitlaust og ekki viljum við móðga aumingja gamla góða Allah. Þessvegna er best að sett séu lög um það að við séum ekkert að spóka okkur á almannafæri á götunum okkar í landinu okkar nema í fylgd múslíma.
Það er auðvitað rakin dónaskapur að fara fram á að múslímar aðlagi sig okkar siðum í okkar landi við erum ílla upplýstir vondir vondir rasistar að fara fram á það.
Sepecat
Ég heyrði góða samlíkingu á sambandi múslima og vesturlandsbúa. Þetta er eins og ofbeldissamband karls og konu. Konan er orðin skíthrædd við að gera eitthvað sem er manni hennar ekki þóknanlegt og hljóta barsmíðar fyrir. Svo í þokkabót er hún orðin meðvirk og er farin að afsaka gerðir mannsins með því að þetta sé allt sér að kenna.
Bosshogg
QUOTE (Sepecat @ Feb 27 2008, 19:07) *
Ég heyrði góða samlíkingu á sambandi múslima og vesturlandsbúa. Þetta er eins og ofbeldissamband karls og konu. Konan er orðin skíthrædd við að gera eitthvað sem er manni hennar ekki þóknanlegt og hljóta barsmíðar fyrir. Svo í þokkabót er hún orðin meðvirk og er farin að afsaka gerðir mannsins með því að þetta sé allt sér að kenna.

Já, Stockholm syndrome, þetta er reyndar náttúrulegur sjálfsbjargar eiginleiki.

toto
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 27 2008, 10:54) *
Engar heimildir hef ég en ég þekki tilveruna nokk og ég veit að niðurlag fréttarinnar
"Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna."
er aldeilis tilvalið til að vekja athygli, umræðu og selja blað. Eða hefur þú heimildir um fundargerðir bæjarráðsins í Dudley ?????

Bíddu, ert þú að draga fréttir í efna, eingöngu út frá tilfinningu sem þú hefur til málsins ?

Þetta heitir "tilfinningarök".
Geita_Pétur
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 27 2008, 9:54) *
Engar heimildir hef ég en ég þekki tilveruna nokk og ég veit að niðurlag fréttarinnar
"Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna."
er aldeilis tilvalið til að vekja athygli, umræðu og selja blað. Eða hefur þú heimildir um fundargerðir bæjarráðsins í Dudley ?????

Ég hef engar heimildir um fundagerð bæjarstjórnar í Dudley nema þessa frétt, en það er þó meira en þú hefur til að bakka þínar "tilfinningar" upp
Albert Kesselring
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 27 2008, 9:54) *
Engar heimildir hef ég en ég þekki tilveruna nokk og ég veit að niðurlag fréttarinnar
"Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna."
er aldeilis tilvalið til að vekja athygli, umræðu og selja blað. Eða hefur þú heimildir um fundargerðir bæjarráðsins í Dudley ?????

Merkilegt þegar að "múslimasleikjur" skrifa hér þá er það með þessum hætti. Það virðist ekki vera hægt að verja þá öðruvísi enda skyljanlegt þar sem það er ekki hægt með neinni skynsemi.
Reilly
Einkafyrirtæki verða að haga sér eftir því sem markaðurinn dikterar, það er ekkert að því. Þetta sýnir hins vegar að múslimar kunna ekki að meta svín, þótt reynt hafi verið að halda öðru fram hér.
skeggi
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 27 2008, 9:24) *
Svona kjánaskapur mun ekki gagnast neinum og alls ekki hinum vestrænu þjóðfélögum sem taka þátt í þessari vitleysu.

Við verðum að neita að taka þátt í þessari vitleysu. Bönnum bankanum að hætta með sparigrísina.

QUOTE (rimryts @ Feb 27 2008, 10:08) *
Fjölmenningarsamfélaginu hefur verið hampað sem einhverju jákvæðu sem innflytjendur hafa fram að færa.

En því miður er alltaf að koma betur og betur í ljós að innflytjendur ryðja í burtu ýmsu úr okkar menningu og við látum þá komast upp með það til að halda friðinn.

þetta skapar eðlilega útlendingahatur og þarf enga fordóma til.

Þetta hefur nú ekki gerst neinu sinni á Íslandi er það, nema í "Stóra skinkumálinu" í Austurbæjarskóla, sem var svo bara sápukúla?
Fowl
QUOTE (skeggi @ Feb 27 2008, 23:48) *
Við verðum að neita að taka þátt í þessari vitleysu. Bönnum bankanum að hætta með sparigrísina.

Ef einkafyrirtæki vill breyta markaðssetningu sinni til þess að ná til fleiri kúnna, þá er það því einfaldlega frjálst.

Punktur.
callahan
Nú verð ég að segja að Morgunblaðið greinilega þýðir bara en skoðar ekki heimildir né fact tékkar. Á bloggi sem ég sá, þá var einmitt bent á það að þessi frétt um bankann NatWest væri kolröng en hún birtist fyrst árið 2005. Þar var einnig linkað í og bent á skýrslu frá borgarstjórn Lúndúna þar sem verið var að tala um fréttaflutning m.a. gagnvart múslimum og ámælisverðan fréttaflutning sem ætlað er að skapa fordóma. Þetta er kafli 3 og á bls. 33-37 er talað um NatWest-sparigrísamálið þar sem m.a. kemur fram að NatWest og Halifax tóku einfaldlega niður September-auglýsingar sínar með sparigrísum og settu upp Október-auglýsingar um lánsfé, aljgör ekkifrétt semsagt í DV eða Mogga-stíl. Þetta grípa svo múslimahatarnir í einfeldni sinni og velta áfram lyginni.

Hérna er skýrslan öll:

http://www.london.gov.uk/mayor/equalities/...ound_report.pdf

Geita_Pétur
QUOTE (callahan @ Feb 28 2008, 20:15) *

Auðvitað eru til dæmi þar sem gengið er of langt í fréttaflutningi af þessu tagi rétt ein sog að oft er líka satt og mikið til í sem sagt er.

En þar sem eftirlátssemi er stundum gagnvart múslimum er það rétt og gangnast hún ekki neinum.

Til eru mörg dæmi þar sem hófsamir lýðræðislega sinnaðir múslimar mótmæla svona kjánaskap vegna þess að þegar öfga lýðurinn veður uppi fá þeir ekki frið.
Ég tók dæmi í einhverjum múslimaþráðunum þar sem einhverjir framhaldsskólar í svíþjóð hafi leyft múslimum að stunda föstudagsbænir í skólunum og það kemur sér einstaklega illa fyrir hófsama múslima.
Þeir eru teknir fyrir af hinum róttæku og krafnir skýringa á því hversvegna þeir mæta ekki til bæna.
Sharialöginn sem margir múslimar vilja innleiða ganga ekki bara út á það að yfirvöld og trúarleiðtoga fylgjist með lýðnum heldur líka það að lýðurinn fylgjist hver með öðrum.
Fleiri dæmi úr múslimahverfum eru þau að róttækir eru með þrýsting á hófsama sem krefjast þess að konur þeirra og dætur sem ganga slæðulausar beri slæðu og oft þorir fólk ekki öðru en að láta á eftir þeim.

Eftirlástssemi er því gagnvart múslimum vinnur gegn aðlögun þar sem múslimum sem vilja aðlagast eru jafnvel ekki gert það kleift af róttækum trúbræðrum sínum.
toto
Er ekki málið að Múslimar sem vilja ekki búa vil trúarofstækið heima hjá sér flytja, í góðri trú, til vesturlanda þar sem vesturlanda búar, allir af vilja gerðir, þvinga trúarofstækið "af tillitssemi" yfir þá á nýjan leik.

Hverjum er greiði gerður ?
Brodd-Helgi
QUOTE (callahan @ Feb 28 2008, 20:15) *

Þetta er mjög athyglisverð lesning varðandi NatWest málið og reyndar hin fjölmiðlamálin líka og skýrslan í heild.

"In a statement for this report, the NatWest Bank explained: ‘This started
with a local paper in the North. They rang us and we gave them a verbal
statement which it appears they completely misinterpreted. From there it
ended up in the Star and the Express, neither of which checked it with us.
The story was nonsense."

Ef maður fylgist eitthvað með umræðu um islam og muslima, þá er voða mikð um td. á netinu um svína sögur, banna sparigrísi, sögur af svínum (og náttúrulega bann við að neita svínakjöts.) Allt vaðandi af slíkum sögum.

Þessvegna ef maður ætlar að malda eitthvað í móinn og segir eitthvað í þá átt, að manni finnist nú ótrúlegt að múslímum almennt sé mikið í nöp við sparigrísi og þrjá litla grísi... þá er bara ekki svo gott við það að eiga. Sumir segja: Sjáðu þessa frétt og þessa og þessa o.s.frv.

Ég td er ekki alveg að kaupa það, að þó muslimar snæði ekki svín, að þeim sé almennt voðalega illa við myndir af svínum og þau séu nefnd á nafn. Og allra síst að þeir vilji endilega að allir aðrir (td kristnir) séu á sömu skoðun. Er ekki alveg að kaupa það. Þó ég útiloki ekki á þessu stigi athuganna minna að til sé í dæminu að slíkt geti þekkst meðal afmarkaðra hópa. Það er svo sem margt til í kýrhausnum eins og menn vita.

Svo má ekki gleyma því að sumir kristnir hópar leyfa ekki svínaát, skilst manni.

En hvað sem öðru líður finnst mér ótækt að Mogginn og aðrir fjölmiðlar séu að kynda undir fordóma með þessum hætti.

Hér er td. svaka könnun á viðhorfum múslima, trú, róttækni ofl. Margt athyglisvert. (Hefur ekki birst í mogganum ennþá allavega)

Major survey challenges Western perceptions of Islam
Reilly
QUOTE (toto @ Feb 28 2008, 22:35) *
Er ekki málið að Múslimar sem vilja ekki búa vil trúarofstækið heima hjá sér flytja, í góðri trú, til vesturlanda þar sem vesturlanda búar, allir af vilja gerðir, þvinga trúarofstækið "af tillitssemi" yfir þá á nýjan leik.

Hverjum er greiði gerður ?

Já, það er búið til umhverfi þar sem þetta fólk verður fórnarlömb hinna trúarnöttuðustu úr sínum hópi á nýjan leik. Það er fjölmenningin - hún er geðveikisgildra.
Toffi
QUOTE
About 93 percent of the world's 1.3 billion Muslims are moderates and only seven percent are politically radical, according to the poll, based on more than 50,000 interviews.
But only seven percent of the billion Muslims surveyed -- the radicals -- condoned the attacks on the United States in 2001, the poll showed.

7% af 1,3 milljörðum. Sem sagt 91milljón manna sem styðja hryðjuverk!
Brodd-Helgi
QUOTE (Toffi @ Feb 29 2008, 12:39) *
7% af 1,3 milljörðum. Sem sagt 91milljón manna sem styðja hryðjuverk!

Það er verið að tala um 9/11.

"Moderate Muslims interviewed for the poll condemned the 9/11 attacks on New York and Washington because innocent lives were lost and civilians killed.

"Some actually cited religious justifications for why they were against 9/11, going as far as to quote from the Koran -- for example, the verse that says taking one innocent life is like killing all humanity," she said."

Þetta er alveg ótrúlega lítill hluti. 7% sem fordæmir ekki. Það er örugglega bara svipað og td. mætti finna í Evrópu. Það er ótrúlega algengt að sjá kristna menn segja að US hafi átt þetta skilið o.s.frv.

Það sem er etv. eftirtektarverðast er, að hinir "róttæku" eru það EKKI út af trú, heldur pólitískt mótíveraðir... nákvæmlega eins og allir aðrir "róttæklingar" í gegnum söguna. Nákvæmlega eins.

Meanwhile, radical Muslims gave political, not religious, reasons for condoning the attacks, the poll showed.

Nú, hver er megin niðurstaðan ? Jú, nefnilega sú að Islam, trúin islam, er EKKI driving force of radicalism !!

Þar af leiðir, að það sem islamofóbar hafa verið að rugla ma hér af litlu viti og engri þekkingu er allt rangt. Allt. Eðlilega, enda þegar vitleysa og þekkingarleysi leggja saman í púkk... þá er ekki von á góðu !!

Þessir múslimar hitt og islam þetta, OMG "umræða" sem hefur tröllriðið vestrinu á undanförnum árum, er án efa einhver hin hálfvitalegasta í gjörvallri mannkynsögunni.
VSS
QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 29 2008, 13:26) *
Þessir múslimar hitt og islam þetta, OMG "umræða" sem hefur tröllriðið vestrinu á undanförnum árum, er án efa einhver hin hálfvitalegasta í gjörvallri mannkynsögunni.

Svona jafn hálfvitalegt eins og þeir sem túlka þessa könnun og segja að múslímar sitji í austrinu og dáist að lýðræðinu okkar á Vesturlöndum. Ætli þessir múslímar séu í svona öfundarkasti þegar þeir eru að grýta konurnar sínar eða að höggva hendur af smáþjófum? Og hverju nákvæmlega dást þeir að við lýðræðið okkar? Skilningur þeirra á hugtakinu lofar ekki góðu þegar sendiráðstarfsmenn úr sendiráðum múslíma í Danmörku fara á fund forsætisráðherrans og heimta að hann stoppi myndbirtingar í blöðum.
Albert Kesselring
QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 29 2008, 13:26) *
Þar af leiðir, að það sem islamofóbar hafa verið að rugla ma hér af litlu viti og engri þekkingu er allt rangt. Allt. Eðlilega, enda þegar vitleysa og þekkingarleysi leggja saman í púkk... þá er ekki von á góðu !!

Þessir múslimar hitt og islam þetta, OMG "umræða" sem hefur tröllriðið vestrinu á undanförnum árum, er án efa einhver hin hálfvitalegasta í gjörvallri mannkynsögunni.

Nei nú fórstu alveg með þetta. LOL.gif
Þú ert nú meira fíflið. Fljótur að grípa eitthvað plagg og fara alhæfa útfrá því og sveifla sleggjunni. Þetta hefði nú verið rifið í tætlur fljótt af þöggunrasinnum.
Fidel Castro.
Kemur nokkurntíman fram hversu stórt hlutfall múslima í vestrænum löndum aðhyllast þessar öfgastefnur

bókstafstrúarfólks sem alltaf er að koma sér á framfæri í fjölmiðlum með sínar þröngsýnu skoðanir?

Mig grunar að hlutfall þeirra er eitthvað svipað og öfgafullra kynþáttahatara td. hér á vefnum,

sem örugglega tala ekki fyrir munn allra málverja, þegar þeir tjá sig um þau mál hérna.

Pro.Farnsworth
Hérna er dæmi um óþarfa tillitsemi. Lögreglan á auðvitað að taka hart á þeim sem hóta ofbeldi eins og þarna var gert. En engu að síður þá hefðu þessir menn átt að hafa opið, ekki að gefa eftir hótunum ofbeldismanna.

QUOTE
Berlin gallery in Islam art row

A Berlin art gallery has temporarily closed an exhibition where one of the posters made fun of Islam's holiest shrine, the Kaaba in Mecca.

The decision came after threats believed to be from Muslims.
The exhibition was organised by the Danish group Surrend, which said it wanted to oppose religious extremism.
A poster on display showed the Kaaba - the black granite cube-shaped building in Mecca. The words "stupid stone" in German were superimposed on it.
It is toward the Kaaba that Muslims must pray.

Confronting ideology

The poster - among 22 on display - also showed the faithful walking around it with speech bubbles saying "Zionist occupied government", which referred to the title of the exhibition.
The Danish artists said they wanted to satirise the conspiracy theory that Jews are behind everything - a view they say is prevalent among neo-Nazis and in parts of the Arab world.
The director of the art gallery in Berlin said there had been threats of violence if the poster was not removed, so they had decided to shut for a while.
But he has also expressed concern about groups of individuals censoring art.
The art group Surrend says its mission is to make fun of the world's powerful men and crazy ideological conflicts, using stickers, posters and advertisements.
In 2006 Surrend took out an advertisement in an Iranian daily with a picture of President Mahmoud Ahmadinejad expressing support for his fight against US President George Bush.
It looked harmless, but the text was carefully arranged so that the letters at the start of every line spelled out the word "swine" when read vertically.

BBC News
Reilly
QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 29 2008, 0:11) *
Þetta er mjög athyglisverð lesning varðandi NatWest málið og reyndar hin fjölmiðlamálin líka og skýrslan í heild.

"In a statement for this report, the NatWest Bank explained: ‘This started
with a local paper in the North. They rang us and we gave them a verbal
statement which it appears they completely misinterpreted. From there it
ended up in the Star and the Express, neither of which checked it with us.
The story was nonsense."

Ef maður fylgist eitthvað með umræðu um islam og muslima, þá er voða mikð um td. á netinu um svína sögur, banna sparigrísi, sögur af svínum (og náttúrulega bann við að neita svínakjöts.) Allt vaðandi af slíkum sögum.

Þessvegna ef maður ætlar að malda eitthvað í móinn og segir eitthvað í þá átt, að manni finnist nú ótrúlegt að múslímum almennt sé mikið í nöp við sparigrísi og þrjá litla grísi... þá er bara ekki svo gott við það að eiga. Sumir segja: Sjáðu þessa frétt og þessa og þessa o.s.frv.

Ég td er ekki alveg að kaupa það, að þó muslimar snæði ekki svín, að þeim sé almennt voðalega illa við myndir af svínum og þau séu nefnd á nafn. Og allra síst að þeir vilji endilega að allir aðrir (td kristnir) séu á sömu skoðun. Er ekki alveg að kaupa það. Þó ég útiloki ekki á þessu stigi athuganna minna að til sé í dæminu að slíkt geti þekkst meðal afmarkaðra hópa. Það er svo sem margt til í kýrhausnum eins og menn vita.

Svo má ekki gleyma því að sumir kristnir hópar leyfa ekki svínaát, skilst manni.

En hvað sem öðru líður finnst mér ótækt að Mogginn og aðrir fjölmiðlar séu að kynda undir fordóma með þessum hætti.

Hér er td. svaka könnun á viðhorfum múslima, trú, róttækni ofl. Margt athyglisvert. (Hefur ekki birst í mogganum ennþá allavega)

Major survey challenges Western perceptions of Islam

Er það nú orðið skilin á milli öfga og hófsemi að styðja 9/11? LOL.gif

QUOTE (Pro.Farnsworth @ Mar 1 2008, 1:29) *
The exhibition was organised by the Danish group Surrend, which said it wanted to oppose religious extremism.
A poster on display showed the Kaaba - the black granite cube-shaped building in Mecca. The words "stupid stone" in German were superimposed on it.
It is toward the Kaaba that Muslims must pray.

Hversu heimskt getur fólk orðið? Það þykist vera að berjast gegn öfgum, en ræðst svo á það sem er hinum hófsama meirihluta í Íslam heilagast.

Fávitar - sem hafa afganginn af ævinni í felum til að íhuga gjörðir sínar.
Pro.Farnsworth
QUOTE (Reilly @ Mar 1 2008, 1:55) *
Hversu heimskt getur fólk orðið? Það þykist vera að berjast gegn öfgum, en ræðst svo á það sem er hinum hófsama meirihluta í Íslam heilagast.

Fávitar - sem hafa afganginn af ævinni í felum til að íhuga gjörðir sínar.

Í evrópu þá þykir það ekki mikið mál þó svo að kirkjan sé móðguð. Múslímar verða bara að taka þeirri menningu. Vandamálið er bara að þeir gera það einmitt ekki og því er staðan sem hún er í dag.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.