Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Stíflan brostin?
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Pages: 1, 2, 3, 4
Fidel Castro.
Núna ættu ýmsir að fara að svitna. Þetta er örugglega bara byrjunin.

__________________________________________

Árvakur/ÞÖK

Innlent | mbl.is | 26.2.2008 | 13:21

Dæmdur til greiðslu miskabóta fyrir ummæli á bloggi

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til greiðslu miskabóta að upphæð 300.000 krónur
fyrir ummæli sem hann viðhafði á bloggi sínu. Einnig var honum gert að útmá ummælin af vefsvæðinu
og birta þar forsendur og dómsorð dómsins. Þetta mun vera fyrsti dómur af þessu tagi um bloggskrif.

Þá voru ummælin dæmd dauð og ómerk og ákærða gert að greiða stefnandanum hálfa milljón króna í málskostnað.

Stefnandi greindi frá því að þrátt fyrir ítrekuð tilmæli bæði af sinni hálfu og stjórnenda bloggsvæðisins blog.is
hafi stefndi ekki fjarlægt ummælin sem málið var höfðað út af. Því hafi ekki verið annar kostur en fara í mál.

Í niðurstöðu dómsins segir að óumdeilt sé að stefndi væri „höfundur þeirra skrifa þar sem umdeild ummæli birtust
og ber hann ábyrgð á þeim.“ Ummælin um stefnandi væru ærumeiðandi, óviðurkvæmileg og tilhæfulaus
og til þess fallin að sverta ímynd hans.

Teljast þau varða við 235. gr. laga nr. 19/1940.

Tildrög málsins voru þau, að í aðdraganda þingkosninganna á fyrri hluta síðasta árs skrifaði Gaukur Úlfarsson
á bloggi sínu ummæli um Ómar R. Valdimarsson.

Sagði Gaukur m.a. að Ómar væri „Aðal Rasisti Bloggheima.“ Einnig sagði hann: „Nú hef ég fundið einn til,
svæsnari en hinir lagðis saman, talsmann Impreglio (sic) á Íslandi,“ og: „Ég mæli því með því að þið ágæta fólk
látið í ykkur heyra á kerfinu hans svo að útlendinga hatur hans standi þar ekki óhaggað.“
Voru þessi ummæli dæmd dauð og ómerk.

Einnig sagði: „Sem betur fer skapaði ég mér vinnu þar sem ég þarf ekki að svara fyrir alþjóðlegt glæpagengi í fjölmiðlum.“
Dómurinn féllst ekki á kröfu um ómerkingu þessara ummæla.

Dómurinn féllst jafnframt á kröfu Ómars um að Gaukur skuli birta dómsniðurstöðuna á blogginu sínu, og byggir sú niðurstaða
á ákvæði laga frá 1956 um prentrétt. Ákvæðið taki til birtingar efnis í blöðum eða tímaritum en ekki til efnis er birt sé á vefsíðum.

„Ekki er til að dreifa lagaákvæðum um slík tilvik. Telja verður að efnislega sé um sambærileg tilvik að ræða enda staðreynd
að mörg dagblöð eru gefin út á vefmiðlum,“ segir í dómnum.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.

Bosshogg
Nú er bannað að kalla fólk rasista?
Slæmt fyrir ykkur, þar hvarf 85% af málflutningnum.

Annars gæti ég mín nú alltaf á því sem ég segi um fólk í raunheimum, nema þá um alþingismenn og sambærilegt.
Gabbler
Já þar voruð þið nú heppnir maður!!!

Þá verður maður bara að kalla ykkur útlendingahatara í 85% af málflutningnum.
Pro.Farnsworth
Ég er að lesa yfir dóminn og hann er mjög undarlegur.
Bosshogg
QUOTE (Gabbler @ Feb 26 2008, 15:36) *
Já þar voruð þið nú heppnir maður!!!

Þá verður maður bara að kalla ykkur útlendingahatara í 85% af málflutningnum.

Ég hef nú aldrei sagt að ég vilji hefta flæði útlendinga á Íslandi, hef bara verið að setja út á að menn blandi rasisma í það og cíti EES samninginn, þar sem hann einmitt heftar flæði annara en hvítra kristna.

Svo hef ég svo sem sett út á stefnu svía þar sem innflytjendur fá enga vinnu vegna fordóma en eru samt sóttir í hjörðum um allan heim. Einnig hef ég sagt að múhammeðsteikningarnar beri að birta, ég sé það ekki tengjast pólverjum og litháum sem koma til Íslands til að vinna.

Hef í raun dregist inn í þessa umræðu í gegn um múhammeðsteikningarnar og svarað fávitaskap varðandi það. En ég er í raun miklu opnari en þau sem cíta EES samninginn því ég vill ekki gera upp á milli þjóða eins og þau.
Gabbler
QUOTE (Bosshogg @ Feb 26 2008, 16:49) *

Jejeje, við köllum ykkur rasista allan daginn út og inn í 85% tilfella.

Nú verðum við víst að hætta því, ferlega fúlt.
Fidel Castro.
QUOTE (Gabbler @ Feb 26 2008, 15:53) *

Munurinn gæti einfaldlega verið sá, að þeir eru e.t.v. rasistar?

Bosshogg
QUOTE (Gabbler @ Feb 26 2008, 15:53) *
Jejeje, við köllum ykkur rasista allan daginn út og inn í 85% tilfella.

Nú verðum við víst að hætta því, ferlega fúlt.

Já, aumingja þið.
Gabbler
QUOTE (Bosshogg @ Feb 26 2008, 16:58) *
Já, aumingja þið.
Ekki vorkenna okkur, vorkenndu vesalingnum sem fór í mál og vann það.
Pro.Farnsworth
Hérna er þessi dómur, fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa hann.
feu
Ef þetta er niðurstaðan fyrir að kalla menn rasista, hvað fá menn þá þegar þeir kalla blásaklausa menn, nauðgara og morðingja?
toto
Ég bíð spenntur eftir niðurstöðu í "Lúkasarmálinu"
Laplace

300.000 + 500.000 = 800.000 sem maðurinn þarf að greiða fyrir bloggfærsluna.

Hvað þurfa þeir sem berja fólk í spað í miðbænum um helgar aftur að borga mikið?

kv Laplace
falcon1
QUOTE (Laplace @ Feb 26 2008, 18:02) *

Nákvæmlega! Eitthvað að skaðabótaskyni dómara í þessu landi!

Maðurinn hlýtur að áfrýja þessum dómi, sérstaklega í ljósi þess að þetta er fyrsta mál sinnar tegundar, að ég held.
callahan

Soldið meira heldur en að misþyrma útlendingi fyrir hörundslit hans. Þá þarftu bara að borga ca. 140 þúsund í bætur til hans og ekki einu sinni skilorðsbundið fangelsi.

Já, það er gott að vera hvítur Íslendingur og geta skemmt sér í sínum heimabæ að arískum innræktunarhætti.
france
QUOTE (falcon1 @ Feb 26 2008, 18:28) *
Nákvæmlega! Eitthvað að skaðabótaskyni dómara í þessu landi!

Maðurinn hlýtur að áfrýja þessum dómi, sérstaklega í ljósi þess að þetta er fyrsta mál sinnar tegundar, að ég held.

Hvað ef eitt nikk kallar annað nikk - rasista -morðingja - tík eða þaðan af verra? rolleyes.gif hummmm...
ABG79
þetta er stórfurðulegt allt saman,

ætti ég þá kannski núna að hvetja föður minn til þess að kæra nick hér sem kallar sig Orville fyrir að kalla hann skítseyði og rasista?

fyrst þetta er hægt...hvers vegna ekki, ég bara spyr...
france
QUOTE (ABG79 @ Feb 26 2008, 18:43) *

Enn og aftur - "hvað ef ..." þetta er snilld!
france
Enginn bloggari að segja sýna skoðun? Þetta er ekkert smá mál!
ABG79
QUOTE (france @ Feb 26 2008, 18:47) *
Enn og aftur - "hvað ef ..." þetta er snilld!

Hvað ef?
france
QUOTE (ABG79 @ Feb 26 2008, 19:24) *
Hvað ef?

Hvað ef eitt nikk kallar annað nikk - rasista -morðingja - tík eða þaðan af verra? hummmm...

callahan
QUOTE (france @ Feb 26 2008, 19:30) *
Hvað ef eitt nikk kallar annað nikk - rasista -morðingja - tík eða þaðan af verra? hummmm...

Hvað ef það er satt?
france
QUOTE (callahan @ Feb 26 2008, 19:31) *
Hvað ef það er satt?

Segðu!

QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 26 2008, 15:29) *
Núna ættu ýmsir að fara að svitna. Þetta er örugglega bara byrjunin.

__________________________________________

Árvakur/ÞÖK

Innlent | mbl.is | 26.2.2008 | 13:21

Dæmdur til greiðslu miskabóta fyrir ummæli á bloggi

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til greiðslu miskabóta að upphæð 300.000 krónur
fyrir ummæli sem hann viðhafði á bloggi sínu. Einnig var honum gert að útmá ummælin af vefsvæðinu
og birta þar forsendur og dómsorð dómsins. Þetta mun vera fyrsti dómur af þessu tagi um bloggskrif.

Þá voru ummælin dæmd dauð og ómerk og ákærða gert að greiða stefnandanum hálfa milljón króna í málskostnað.

Stefnandi greindi frá því að þrátt fyrir ítrekuð tilmæli bæði af sinni hálfu og stjórnenda bloggsvæðisins blog.is
hafi stefndi ekki fjarlægt ummælin sem málið var höfðað út af. Því hafi ekki verið annar kostur en fara í mál.

Í niðurstöðu dómsins segir að óumdeilt sé að stefndi væri „höfundur þeirra skrifa þar sem umdeild ummæli birtust
og ber hann ábyrgð á þeim.“ Ummælin um stefnandi væru ærumeiðandi, óviðurkvæmileg og tilhæfulaus
og til þess fallin að sverta ímynd hans.

Teljast þau varða við 235. gr. laga nr. 19/1940.

Tildrög málsins voru þau, að í aðdraganda þingkosninganna á fyrri hluta síðasta árs skrifaði Gaukur Úlfarsson
á bloggi sínu ummæli um Ómar R. Valdimarsson.

Sagði Gaukur m.a. að Ómar væri „Aðal Rasisti Bloggheima.“ Einnig sagði hann: „Nú hef ég fundið einn til,
svæsnari en hinir lagðis saman, talsmann Impreglio (sic) á Íslandi,“ og: „Ég mæli því með því að þið ágæta fólk
látið í ykkur heyra á kerfinu hans svo að útlendinga hatur hans standi þar ekki óhaggað.“
Voru þessi ummæli dæmd dauð og ómerk.

Einnig sagði: „Sem betur fer skapaði ég mér vinnu þar sem ég þarf ekki að svara fyrir alþjóðlegt glæpagengi í fjölmiðlum.“
Dómurinn féllst ekki á kröfu um ómerkingu þessara ummæla.

Dómurinn féllst jafnframt á kröfu Ómars um að Gaukur skuli birta dómsniðurstöðuna á blogginu sínu, og byggir sú niðurstaða
á ákvæði laga frá 1956 um prentrétt. Ákvæðið taki til birtingar efnis í blöðum eða tímaritum en ekki til efnis er birt sé á vefsíðum.

„Ekki er til að dreifa lagaákvæðum um slík tilvik. Telja verður að efnislega sé um sambærileg tilvik að ræða enda staðreynd
að mörg dagblöð eru gefin út á vefmiðlum,“ segir í dómnum.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.

:-)
Hiddaj
QUOTE (ABG79 @ Feb 26 2008, 18:43) *
þetta er stórfurðulegt allt saman,

ætti ég þá kannski núna að hvetja föður minn til þess að kæra nick hér sem kallar sig Orville fyrir að kalla hann skítseyði og rasista?

fyrst þetta er hægt...hvers vegna ekki, ég bara spyr...

Ef það gengur ættu Davíð, Björn Bjarna og Ingibjörg Sólrún örugglega inni fullt af skaðabótum frá málverjum. Nokkrar heimsreisur líklega.
Minna
Fagna þessum dómi.

Lenti í því fyrir ekki mörgum árum að bornar voru á mig allskonar undarlegar sakir á netinu. Reyndar var það bara ég sem var nafngreind, þær sem hæst höfðu voru "nikk" á ótilgreindum spjallvef.

Veit reyndar hvað sum nikkin heita í raunveruleikanum í dag.....

Reyndi að kæra þetta sem ærumeiðingar en viðbrögðin hjá lögregu voru að það væri útilokað.... Vissulega var um ærumeiðingar að ræða en þær voru netrænar og nafnlausar.

Vona að næsta skref verði dómur á nafnleysingja sem ráðast á nafngreinda einstaklinga með ærumeiðingar í skjóli nafnleysisins....
callahan
QUOTE (Hiddaj @ Feb 26 2008, 19:51) *
Ef það gengur ættu Davíð, Björn Bjarna og Ingibjörg Sólrún örugglega inni fullt af skaðabótum frá málverjum. Nokkrar heimsreisur líklega.

Féll reyndar ekki dómur þar sem kæru stjórnmálamanns var vísað frá, vegna þess að hann væri opinber persóna og þyrfti að þola harkalegri umfjöllun en aðrir vegna starfa sinna?
Hiddaj
QUOTE (callahan @ Feb 26 2008, 19:59) *
Féll reyndar ekki dómur þar sem kæru stjórnmálamanns var vísað frá, vegna þess að hann væri opinber persóna og þyrfti að þola harkalegri umfjöllun en aðrir vegna starfa sinna?

Það þykir mér ekki ólíklegt þó ég muni ekki eftir því. Ég tók nú bara þessi nöfn af handahófi, það hafa margir stjórnmálamenn fengið verri útreið hérna en Guðjón Arnar.
Orville
Mér finnst þetta skrítinn dómur satt að segja. Það má ekki kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir. Það má þá væntanlega ekki kalla fólk Framsóknarmenn samkvæmt þessu eða kommúnista. Hvað þá afturhaldskommatitti. Það er sem sagt orðið refstvert að kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir.

QUOTE (ABG79 @ Feb 26 2008, 18:43) *
þetta er stórfurðulegt allt saman,

ætti ég þá kannski núna að hvetja föður minn til þess að kæra nick hér sem kallar sig Orville fyrir að kalla hann skítseyði og rasista?

fyrst þetta er hægt...hvers vegna ekki, ég bara spyr...

Láttu mig vita hvernig fer.
france
QUOTE (Orville @ Feb 26 2008, 20:17) *
Mér finnst þetta skrítinn dómur satt að segja. Það má ekki kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir. Það má þá væntanlega ekki kalla fólk Framsóknarmenn samkvæmt þessu eða kommúnista. Hvað þá afturhaldskommatitti. Það er sem sagt orðið refstvert að kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir.

Góður - þetta er fávitadómur!
Fidel Castro.
QUOTE (Orville @ Feb 26 2008, 20:18) *
Mér finnst þetta skrítinn dómur satt að segja. Það má ekki kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir. Það má þá væntanlega ekki kalla fólk Framsóknarmenn samkvæmt þessu eða kommúnista. Hvað þá afturhaldskommatitti. Það er sem sagt orðið refstvert að kenna fólk við ákveðnar stjórnmálaskoðanir.

Á það ekki bara við þegar einhver er kallaður Framsóknarmaður að ósekju? blink.gif

Orville
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 26 2008, 20:27) *

Ég veit ekki hvað oft ég hef verið kallaður kommúnisti að óskekju. Kommúnistar hafa ekki bara gefið banka, eins og Framsóknarmenn, heldur myrt milljónir manna og kallað hörmungar yfir heilu þjóðirnar. Samt hef ég satt að segja aldrei kippt mér alvarlega upp við það að vera kallaður kommúnisti að ósekju. Því miður, því annars væri ég orðinn milljónamæringur samkvæmt þessum dómi.

En hvað ætli prísinn sé fyrir það að vera kallaður þöggunarsinni?
france
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 26 2008, 20:27) *
Á það ekki bara við þegar einhver er kallaður Framsóknarmaður að ósekju? blink.gif

Láttu ekki svona - mun betra að kjósa framsókn en sjalla! En aftur að þessu máli - skrítið hvað málverjum finnst þetta lítið mál.?
Hiddaj
QUOTE (france @ Feb 26 2008, 20:33) *
Láttu ekki svona - mun betra að kjósa framsókn en sjalla! En aftur að þessu máli - skrítið hvað málverjum finnst þetta lítið mál.?

Það hefur komið fram að málinu verður líklega áfrýjað. Þessi dómur er svo skrítinn að hæstiréttur hlýtur að snúa honum.
france
QUOTE (Hiddaj @ Feb 26 2008, 20:35) *
Það hefur komið fram að málinu verður líklega áfrýjað. Þessi dómur er svo skrítinn að hæstiréttur hlýtur að snúa honum.

Hvað finnst þér svona skrýtið?
Hiddaj
QUOTE (france @ Feb 26 2008, 20:42) *
Hvað finnst þér svona skrýtið?

Talsmaður Impregilo kærir ummæli um að vera kallaður rasisti á moggablogginu? smile.gif Finnst þér það nógu alvarlegt til að hann eigi bótarétt? Ég er ansi hrædd um að ef þetta fer í gegn eigi margir eftir að kæra verri ummæli sem þeir hafa fengið á sig fyrir mun minni sakir.
Hawk12
....hræðist eigi.
callahan
QUOTE (Hiddaj @ Feb 26 2008, 20:57) *
Talsmaður Impregilo kærir ummæli um að vera kallaður rasisti á moggablogginu? smile.gif Finnst þér það nógu alvarlegt til að hann eigi bótarétt? Ég er ansi hrædd um að ef þetta fer í gegn eigi margir eftir að kæra verri ummæli sem þeir hafa fengið á sig fyrir mun minni sakir.

Jamm, og ástæðan fyrir því að Gaukur kallaði Ómar rasista, var að talsmaður Impreglio, hafði haft frekar níðrandi ummæli um pólska starfsmenn við Kárahnjúka.
Reilly
Það er ekki hægt að tala um eitthvað viðurnefni sem stjórnmálaskoðun ef það er ekki orð sem er self-applied....
france
QUOTE (Hiddaj @ Feb 26 2008, 20:57) *
Talsmaður Impregilo kærir ummæli um að vera kallaður rasisti á moggablogginu? smile.gif Finnst þér það nógu alvarlegt til að hann eigi bótarétt? Ég er ansi hrædd um að ef þetta fer í gegn eigi margir eftir að kæra verri ummæli sem þeir hafa fengið á sig fyrir mun minni sakir.

Mér finnst þetta óskapalega skrítinn dómur! dry.gif
Reilly
QUOTE (france @ Feb 26 2008, 21:25) *
Mér finnst þetta óskapalega skrítinn dómur! dry.gif

Finnst þér það ekki meiðyrði að vera kallaður rasisti, eða finnst þér höfundur geta fundið orðum sínum stað?
Brodd-Helgi
Ég held að þetta geti aldrei gengið upp. Ef þetta er orðinn svaka glæpur, hvað þá með 233. gr. a. almennra hegningalaga.

Það er einnig eftirtektarvert hvað gerir málið alvarlegra samkv dóminum. Að stefnandi er ekki flokkaður sem "opinber persóna" en samt ekki hver sem er.

QUOTE
Þá er fram komið að stefnandi er framkvæmdastjóri og eigandi Íslenskra almannatengsla ehf. sem sér um almannatengsl fyrir ýmis fjölþjóðleg fyrirtæki sem hafa numið land á Íslandi. Þá ber þess einnig að geta að stefnandi er ræðismaður El-Salvador á Íslandi. Í ljósi þessa verður að telja ummæli stefnda mjög meiðandi fyrir stefnanda. Þótt stefnandi hafi tekið þátt í stjórnmálaumræðu á vefsíðu sinni, og sinnt þeim störfum sem að framan er getið, verður ekki fallist á að stefnandi sé opinber persóna í þeim skilningi að hann verði að þola meiri og sterkari gagnrýni en gengur og gerist.
www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=E200703619&Domur=2&type=1&Serial=1&Words

Og það að greiða málskostnað 500 þ. + 300 þ. ... þetta bara gengur ekki upp. Hvar endar slíkt ? Með ósköpum.

Trúi ekki að Hæstiréttur muni staðfesta þetta og ef svo, þá bara Mannréttindadómstóllinn.
Reilly
QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 26 2008, 21:54) *
Ég held að þetta geti aldrei gengið upp. Ef þetta er orðinn svaka glæpur, hvað þá með 233. gr. a. almennra hegningalaga.

Það er einnig eftirtektarvert hvað gerir málið alvarlegra samkv dóminum. Að stefnandi er ekki flokkaður sem "opinber persóna" en samt ekki hver sem er.

Og það að greiða málskostnað 500 þ. + 300 þ. ... þetta bara gengur ekki upp. Hvar endar slíkt ? Með ósköpum.

Trúi ekki að Hæstiréttur muni staðfesta þetta og ef svo, þá bara Mannréttindadómstóllinn.

Finnst þér ekki meiðyrði að kalla fólk rasista?
Pro.Farnsworth
Dómurinn ber með sér að hvorki dómarinn né sækjandi átta sig á því hvernig internetið virkar.
Reilly
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 26 2008, 22:11) *

Virka meiðyrði eitthvað minna á netinu?
Pro.Farnsworth
QUOTE (Reilly @ Feb 26 2008, 22:13) *
Virka meiðyrði eitthvað minna á netinu?

Það er til fyrirbæri sem kallast Streisand effect og virkar á netinu þegar það á að fara banna eða ritskoða eitthvað.
Toffi
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 26 2008, 22:17) *

Eitt er víst að gott er að menn geti sótt slík mál fyrir dómstólum, en fébætur eiga ekki að þekkjast í slíkum málum og þá aðallega til þess að draga úr fjölda óþarfa mála. Málskostnaður eru nægur baggi þó að févítum sé ekki beitt. Sérstaklega ef um venjulegan launamann er að ræða. Upphæðir í þessum málum eru líka fáránlegar 2.000.000 eins og beðið var um í þessu dæmi mad.gif
Brodd-Helgi
QUOTE (Reilly @ Feb 26 2008, 22:08) *
Finnst þér ekki meiðyrði að kalla fólk rasista?

Það bara fer svo mikið eftir samhengi málsins. Eins og í þessu tilfelli finnst mér þetta ekkert voðalegt. Það hefði þurft smá lagfæringar og örlítið loðnari útfærslu á umræddum texta stefnda, til þess að ómögulegt hefði verið að grípa fiskinn.

Annars bjóst eg nú við að hérna, hann "Freedom of Speech" mundi geysast fram á völlinn við þennan dóm og höggva hægri vinstri... en nei. Þá sést hann nú ekki.

Málið er, að ef þetta stendur, er verið að þrengja að blogginu. Það verður ekki eins frjálst. Allavega ekki í sumum tilfellum.

QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 26 2008, 22:11) *
Dómurinn ber með sér að hvorki dómarinn né sækjandi átta sig á því hvernig internetið virkar.

Ef að þessi dómur stendur, þá á allt eftir að fyllast af kærum held eg.
Reilly
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 26 2008, 22:17) *
Það er til fyrirbæri sem kallast Streisand effect og virkar á netinu þegar það á að fara banna eða ritskoða eitthvað.

Það varðar dómarann ekki um. Það er kærandi sem þarf að vera meðvitaður um svona hluti. Þú ert raunverulega að segja að dómari eigi að úrskurða gegn málsaðila honum sjálfum til verndar! Það er nýtt konsept í lögfræði.

QUOTE (Brodd-Helgi @ Feb 26 2008, 22:28) *
Það bara fer svo mikið eftir samhengi málsins. Eins og í þessu tilfelli finnst mér þetta ekkert voðalegt. Það hefði þurft smá lagfæringar og örlítið loðnari útfærslu á umræddum texta stefnda, til þess að ómögulegt hefði verið að grípa fiskinn.

Hvað áttu við?
drCronex
QUOTE (ABG79 @ Feb 26 2008, 18:43) *
þetta er stórfurðulegt allt saman,

ætti ég þá kannski núna að hvetja föður minn til þess að kæra nick hér sem kallar sig Orville fyrir að kalla hann skítseyði og rasista?

fyrst þetta er hægt...hvers vegna ekki, ég bara spyr...

Það er bæði hægt að græða pening á því og að fá mikla athygli! tvær flugur í einu höggi, enda mikið af bloggurum miklir narsissistar.
bjargvætturinn
QUOTE (Pro.Farnsworth @ Feb 26 2008, 22:11) *
Dómurinn ber með sér að hvorki dómarinn né sækjandi átta sig á því hvernig internetið virkar.

Þetta snýst nú að mínum dómi um að hreinsa til í okkar bakgarði án tillits til hvernig aðrir garðar líta út. Þó aðrir geti dreift sama óhróðri eftir að upphafsmaðurinn hefur verið dæmdur, til dæmis erlendis, hlýtur fólk að hugsa sig um tvisvar, þegar 800 þúsund krónna verðmiði hefur verið settur á meiðyrði á netinu á Íslandi. Þó þessi dómur þýði sennilega að meiðyrðaglaðir Íslendingar verði að vista sinn óhroða erlendis, tel ég það framför. Mörgum þótti það afturför þegar Málefnin fluttust heim, af því að þeir töldu það rýra möguleika sína á að skíta út mann og annan í skjóli nafnleysis. Ég tel róg og illmælgi ekki til mannkosta, né til hagsbóta málefnalegri umræðu, hvorki á netinu né neinstaðar annarsstaðar. Ég fagna þessum dómi og bíð spenntur eftir niðurstöðu Hæstaréttar.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.