Ég er að fara með fjöskyldunni til Búdapest í þarnæstu viku. Ég er með tvö ung börn ásamt konunni minni og tengdarmóður. Veit eihver um gott hótel eða gistiheimili á hóflegu verði í miðborg Búdapest, sem hentað gæti hjónum með tvö ung börn með sér?
Ég var reyndar búin að fá upplýsingar um hótel en konan setur það fyrir sig að það sé í 15 mínútna göngufæri frá miðbænum og ber ungum börnum okkar fyrir sig. Göngutúrinn yrði því væntanlega talsvert meiri en 15 mínútur og í sumum tilfellum gætum við þurft að bera börnin stóran hluta af leiðinni og það jafnvel til viðbótar við poka með einhverju, sem við værum búin að versla. Ég held að það sé því rétt hjá konunni að betra væri að við reyndum að vera nær eða jafnvel í miðbænum.
