Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Safna fé til styrktar Færeyingum í nauð
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Fidel Castro.
Vísir, 25. feb. 2008 21:29

Safna fé til styrktar Færeyingum í nauð

Fimmtán bátar brotnuðu.

Opnaður hefur verið söfnunarreikningur í Glitni til stuðning frændum vorum Færeyingum vegna tjóns sem þeir urðu fyrir
þegar mikið óveður gekk yfir landið um síðustu mánaðarmót.

Í fréttatilkynningu sem aðstandendur söfnunarinnar hafa sent frá sér segir að í því mikla óveðri sem hafi gengið yfir Færeyjar
um mánaðarmótin janúar-febrúar hafi þorpið Skálavík á Sandey orðið fyrir gríðarlegum ágangi sjávar. Brim hafi gengið
langt upp á land og brotið niður mannvirki við höfnina, m.a. fiskverkunarhús. Nær allir útróðrarbátar í höfninni hafi sokkið
og þeir sem á landi hafi verið hafi brotnað í spón. Samtals hafi 15 af 16 bátum þorpsbúa sokkið og brotnað.
Brimvarnargarði hafi skolað að miklu leyti inn í höfnina þannig að hún hafi fyllst af grjóti og orðið ónothæf.
Þá hafi kirkjugarður þorpsins orðið fyrir miklum skemmdum.

„Þorpið Skálavík er um 250 manna samfélag sem algjörlega byggir afkomu sína á sjávarútvegi og sjósókn á minni bátum
er eina atvinna þorpsbúa. Óhætt er því að segja að allt atvinnulíf sé lamað eftir þetta gríðarlega áfall og þetta litla samfélag
þarf nauðsynlega aðstoð til að koma undir sig fótunum á ný. Er það von okkar að íslenska þjóðin sýni bræðraþjóð okkar
þann hlýhug að styrkja þá fjárhagslega í erfiðleikum þeirra. Minnumst rausnarlegrar framgöngu Færeyinga er náttúruöflin
léku íslensk byggðarlög hart og við þurftum á stuðningi þeirra að halda. Nú er komið að okkur að rétta frændum okkar
hjálparhönd," segir í tilkynningu.

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

Fidel Castro.
Það er aumt að sjá hversu áhugaleysi td. fjölmiðla sem yfirvalda er á afleiðingum óveðursins
sem geysaði í Færeyjum fyrir skömmu.

Við skulum ekki gleyma því, að það hafa verið Færeyingar sem hafa reynst okkur best,
þegar viðlíka hörmungar hafað geysað hér, td. með fjársöfnun til handa þeim byggðarlögum
sem fóru illa út úr snjóflóðum um árið.

Nú hlýtur að vera komið að okkur að sýna að vinskapurinn er gagnkvæmur.

Fidel Castro.
Það er leiðinlegt að sjá hversu lítill áhugi málverja er á að minna á peningasöfnun

til handa vinum okkar í Færeyjum, sem hafa alltaf sýnt okkur mikinn hlýhug þegar hér hafa verið erfiðir tímar

vegna náttúruhörmunga.

human
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 27 2008, 11:31) *
Það er leiðinlegt að sjá hversu lítill áhugi málverja er á að minna á peningasöfnun

til handa vinum okkar í Færeyjum, sem hafa alltaf sýnt okkur mikinn hlýhug þegar hér hafa verið erfiðir tímar

vegna náttúruhörmunga.

Það er alveg rétt hjá þér.
Vonandi að þó að ekki hafi verið mikið um athugasemdir hér þá hafi fólk veitt þessari söfnun athygli.
Fidel Castro.
QUOTE (human @ Feb 27 2008, 12:14) *
Það er alveg rétt hjá þér.
Vonandi að þó að ekki hafi verið mikið um athugasemdir hér þá hafi fólk veitt þessari söfnun athygli.

Tilgangurinn að leggja inn nýja pósta er ekki síst að toga þráðinn upp listann. Efstu þræðirnir og nýjustu innleggin

fá sennilega mesta athygli málverja á hverjum tími.

Er soldið að misnota mér kerfið. Vona að það fyrirgefist í þetta sinn.

Siggi Sóló
Vil líka minna á að Færeyingar sýndu okkur stuðning í verki í Þorskastríðunum þegar þeir neituðu að veit útlendum togurum af Íslandsmiðum þjónustu.

Hvet alla, sem meiga missa einhverjar krónur, til að sýna þessum frændum okkar stuðning þegar illa árar hjá þeim.
Fowl
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 26 2008, 10:52) *
Það er aumt að sjá hversu áhugaleysi td. fjölmiðla sem yfirvalda er á afleiðingum óveðursins
sem geysaði í Færeyjum fyrir skömmu.

Við skulum ekki gleyma því, að það hafa verið Færeyingar sem hafa reynst okkur best,
þegar viðlíka hörmungar hafað geysað hér, td. með fjársöfnun til handa þeim byggðarlögum
sem fóru illa út úr snjóflóðum um árið.

Nú hlýtur að vera komið að okkur að sýna að vinskapurinn er gagnkvæmur.

Teki undir þetta og verð að viðurkenna að ég vissi ekkert af þessari söfnun.

Kærar þakkir fyrir að vekja athygli á henni, félagi Castro.

Ég þekki hins vegar vel höfðingsskap Færeyinga við vestfirskar byggðir þegar snjóflóðin urðu.

Nú hlýtur að vera komið að okkur að sýna stuðning á móti!
Siggi Sóló
Vér Vestfirðingar munum leggja okkar að mörkum.
human
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 27 2008, 23:54) *

Engin spurning, hvort sem er smátt eða stórt... þá telur hver króna.
Fidel Castro.
Minn er búinn að gefa. Einhver annar? rolleyes.gif

______________________________

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

Hawk12
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 27 2008, 23:54) *
Vér Vestfirðingar munum leggja okkar að mörkum.

....ertu Vestfirðingur, já svo sannarlega tími til kominn að þið farið að skila einhverju tilbaka, t.d. af kvótasölunni, hvernig væri að þið skiluðu svona broti af þeim aur, þar sem þið hafið selt hann allan frá ykkur.
Fenguð úthlutað milljörðum af eign okkar, en selduð allt frá ykkur, hvar er sá peningur, Siggi Sóló vestfirðingur hvar eru þeir milljarðar?
Siggi Sóló
QUOTE (Hawk12 @ Feb 28 2008, 13:55) *
....ertu Vestfirðingur, já svo sannarlega tími til kominn að þið farið að skila einhverju tilbaka, t.d. af kvótasölunni, hvernig væri að þið skiluðu svona broti af þeim aur, þar sem þið hafið selt hann allan frá ykkur.
Fenguð úthlutað milljörðum af eign okkar, en selduð allt frá ykkur, hvar er sá peningur, Siggi Sóló vestfirðingur hvar eru þeir milljarðar?

Hef ákveðið að stja greindarmörk við það sem ég svara.
Þið sem eruð neðan þeirra marka verðið að njóta lífsins án mín.
Tala nú ekki um fólk sem er langt neðan allra vitsmunamarka.
Fidel Castro.

Allir blankir? unsure.gif

Fidel Castro.
Ósköp er nú einmannalegt hérna á þræðinum.

Allir svona blankir? Hmmm.....rolleyes.gif

__________________________________

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

Siggi Sóló
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 29 2008, 22:54) *

Aulinn ég, prentaði út bankaupplýsingarnar en gleymdi svo bankanum.
Það er víst ekki á allt kosið, verð að muna þetta eftir helgina.
human
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 29 2008, 22:54) *
Ósköp er nú einmannalegt hérna á þræðinum.

Allir svona blankir? Hmmm.....rolleyes.gif

__________________________________

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

Nei, nei, alls ekki. Bara allt saman bundið í alls konar bréfum. rolleyes.gif

Án gríns, þá var ég að bíða mánaðarmóta. Það getur staðið misvel á.
Engin spurning að vera með.
Ég vildi óska að sem flestir sæju sér fært að hjálpa til.

Sendi þér kvittun í pósti eftir helgina.
Hvort var póstnúmerið 104 eða 105. .....?
Fidel Castro.
QUOTE (human @ Mar 1 2008, 0:31) *
Nei, nei, alls ekki. Bara allt saman bundið í alls konar bréfum. rolleyes.gif

Án gríns, þá var ég að bíða mánaðarmóta. Það getur staðið misvel á.
Engin spurning að vera með.
Ég vildi óska að sem flestir sæju sér fært að hjálpa til.

Sendi þér kvittun í pósti eftir helgina.
Hvort var póstnúmerið 104 eða 105. .....?

rolleyes.gif

france
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 26 2008, 10:52) *
Það er aumt að sjá hversu áhugaleysi td. fjölmiðla sem yfirvalda er á afleiðingum óveðursins
sem geysaði í Færeyjum fyrir skömmu.

Við skulum ekki gleyma því, að það hafa verið Færeyingar sem hafa reynst okkur best,
þegar viðlíka hörmungar hafað geysað hér, td. með fjársöfnun til handa þeim byggðarlögum
sem fóru illa út úr snjóflóðum um árið.

Nú hlýtur að vera komið að okkur að sýna að vinskapurinn er gagnkvæmur.

'

Ekki heyrt af þessu fyrr en nú - vinn þó á einum stærsta fjölmiðli landsins stressed.gif svo sannarlega mun ég gefa í þetta á morgun.
human
QUOTE (Fidel Castro. @ Feb 29 2008, 22:54) *
Ósköp er nú einmannalegt hérna á þræðinum.

Allir svona blankir? Hmmm.....rolleyes.gif

__________________________________

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

Búin. smile.gif

Kvittunin á leiðinni. wink.gif
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.