Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Endurnýjun mannkyns
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Siggi Sóló
Er einhver hér sem veit hve ört mannkynið endurnýjast?
Reilly
Miði er möguleiki. Mundu að endurnýja.
drCronex
Þð skeður á u.þ.b. einni kynslóð. Sú eldri verður úreld og ný tekur við. Það er sennilega ekki vitlaust að segja að hringrásin sé komplett á 30 árum eða svo. Til að endurnýjast þurfa menn og konur að "vera saman" og ekki í neinum fötum og hossa svoldið. Ef hossið tekst vel, þá kemur undir barn, þ.e. endurnýjunin. Svo þegar barnið stækkar, þá kemst það sjálft á aldur fullorðins til að hossast og þá kemur enn eitt barn undir. Ekki ósvipað kanínunum, þó þær séu sannarlega miklu sætari en mannskepnan. Allavega vona ég að þetta hjálpi til að skilja endurnýjunina.
jóhann jóhannsson
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 24 2008, 0:24) *
Er einhver hér sem veit hve ört mannkynið endurnýjast?

Er nema von að einhver sem kallar sig ,,Sóló" spyrji hvernig börn verða til LOL.gif
Siggi Sóló
QUOTE (drCronex @ Feb 24 2008, 3:15) *
Þð skeður á u.þ.b. einni kynslóð. Sú eldri verður úreld og ný tekur við. Það er sennilega ekki vitlaust að segja að hringrásin sé komplett á 30 árum eða svo. Til að endurnýjast þurfa menn og konur að "vera saman" og ekki í neinum fötum og hossa svoldið. Ef hossið tekst vel, þá kemur undir barn, þ.e. endurnýjunin. Svo þegar barnið stækkar, þá kemst það sjálft á aldur fullorðins til að hossast og þá kemur enn eitt barn undir. Ekki ósvipað kanínunum, þó þær séu sannarlega miklu sætari en mannskepnan. Allavega vona ég að þetta hjálpi til að skilja endurnýjunina.

Er að spá í veltuhraðann.
Hildigunnur
Þetta fer nú svolítið eftir því við hvað er átt. Einstaklingarnir eru jú alltaf að endurnyja sig em þetta með mannkynið sem heild og hvort það eru til einhver mörk endurnýjunar hjá því er stór spurning.

Ég hef ekki hugmynd um þetta í því samhengi en mín gen hafa þó farið áfram í þrjá einstaklinga og verkefnið spannaði 38 ár. Þ.e. endurnýjun mín smile.gif
Endurnýjun minni er hugsanlega ekki að fullu lokið, þó ég muni sjálf lítið koma við sögu í framtíðinni. Þar munu hin endurnýjuðu ég eflaust endurnýja sig líka og sagan svo endurtaka sig forever and ever.

Annars er þetta hugtak mjög umdeilanlegt. "Að endurnýjast".
Maður verður aldrei neitt nýr á ný................Púfffff.
Til allrar hamingu verðum við ekkert til í annað sinn, bara þetta eina smile.gif.
Búkolla
Mikill hraði á þessu en þó spáð minni hraða en spár gera ráð fyrir.
jenar
Það er erfitt að skilja spurninguna svona konkret. Ég skildi hana þannig að spurt væri hvað tæki langan tíma, frá einu augnabliki til annars, að endurnýja alla jarðarbúa. Þ.e. að allir lifandi jarðarbúar á tímapunkti A séu dánir og nýir komnir í staðinn. Síðasta svoleiðis dagsetning var 19. apríl 1893. Enginn sem gekk um á jörðinni þann dag, er nú á lífi...
Siggi Sóló
QUOTE (jenar @ Feb 25 2008, 0:11) *

Eða bara hvað fæðast margir á degi hverjum og hvað deyja margir á sama tíma.
jenar
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 25 2008, 0:13) *
Eða bara hvað fæðast margir á degi hverjum og hvað deyja margir á sama tíma.

Þá ertu að tala um fjölgun, frekar en endurnýjun, er það ekki?
Aroz
QUOTE (jenar @ Feb 25 2008, 0:11) *
Það er erfitt að skilja spurninguna svona konkret. Ég skildi hana þannig að spurt væri hvað tæki langan tíma, frá einu augnabliki til annars, að endurnýja alla jarðarbúa. Þ.e. að allir lifandi jarðarbúar á tímapunkti A séu dánir og nýir komnir í staðinn. Síðasta svoleiðis dagsetning var 19. apríl 1893. Enginn sem gekk um á jörðinni þann dag, er nú á lífi...

jafnvel 1888 rolleyes.gif
http://en.wikipedia.org/wiki/Mariam_Amash
Siggi Sóló
QUOTE (jenar @ Feb 25 2008, 0:20) *
Þá ertu að tala um fjölgun, frekar en endurnýjun, er það ekki?

Er ekki endurnýjun ef einn deyr og annar fæðist?

feu
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 25 2008, 0:32) *
Er ekki endurnýjun ef einn deyr og annar fæðist?

LOL!!!

Þá er best að drífa í að endurnýja sig.

Fær mar að velja hvar maður endurnýjast?
jenar
QUOTE (Aroz @ Feb 25 2008, 0:25) *

Kannski...

Annars héldu Rómverjar svona hátíð. Man ekki hvað þeir kölluðu hana, en hún gekk út á þetta - að halda uppá endurnýjun mannkyns. Þeir héldu hana á 60-80 ára fresti að mig minnir. Að vísu var það líka stundum spurning um pólitíska þörf keisaranna að slá upp einni svona þriggja daga veislu til að hressa uppá vinsældirnar, en það mátti auðvitað ekki nota þetta of oft...
Toffi
Það getur kannski einhver fundið meðaltal endurnýjunar þ.e. Hvað lengi lifir jarðarbúinn að meðaltali og hvað fjölgar eða fækar jarðarbúum á þeim tíma.
dr. Müller
Talandi um mannfjöldaþróun, þá er ekki víst að stígandinn í henni endist svo mikið þegar líða tekur á öldina og verður jafnvel búin að taka stefnunina í hina áttina áður en henni líkur. Rakst á eftirfarandi grein sem snertir þetta málefnin:

For a couple centuries human population growth has followed global energy output, which has come primarily from fossil fuels. It is a serious conjecture that population will decline dramatically as oil and natural gas peak. Though the poor were not able to use their share of abundant, cheap energy while it was available, they will surely be the first to die from the lack of it.

Sjá nánar: Peak Oil, Population and Poverty

Þannig að ef meðalaldur mannkyns tekur að lækka vegna fyrirsjáanlegrar hækkunar á framfærslukostnaði þegar líða tekur á öldina, þá mætti strangt til tekið túlka það á þann veg að endurnýjunhraði mannkyns eigi þá eftir að aukast, þar sem meðaljóninn þarf þá að puða meira til að hafa í sig og á. Og kynslóðaskipti fara að verða þá örari. En kannski á þetta frekar bara við hinn vestræna heim þar sem velmegunin er mest og meðalaldur hár.

drCronex
Siggi Sóló hefur bryddað upp á afbragðs spurningu. Af því hún kallar á fullt af öðrum spurningum. Hvað er endurnýjun mannkyns. Er endurnýjun þegar barn fæðist? Er endurnýjun þegar barnið hefur tekið við? Þegar eldri einstaklingur deyr? Hefur endurnýjunin átt sér stað löngu áður en eldri kynslóðin er dauð?
Er með endurnýjun átt við hvaða þjóðir taka við af öðrum í forystuhlutverkum, t.d. eins og þegar Kanar tóku við af Bretum, og á hvaða sviðum eru menn að heimfæra þessa endurnýjun? Hversu marga dalla þeir eiga, eða hvort þeirra leiðarvísir sé "merkilegri" en hinna sem ýtt var til hliðar, sbr. Ísrael? Er endurnýjun mannkyns í skvettum, eins og þegar Ísland byggðist, þá varð endurnýjun hluta mannkynsins, með nýjum ættbálki, nýrri sjálfsmynd. Er það þegar indíánar voru drepnir í milljónavís og aðrir tóku við að búa til kvikmyndir þar sem grenjað var á gresjunni?
Endurnýjun? Ef þú endurnýjar bíl, þá er klárt mál við hvað er verið að eiga. En endurnýjun mannkyns... öllu flóknara mál.

Feu spyr hvar hægt sé að endurnýjast, allavega ekki í kirkjunni eða á hommabar. Já eða hvað?
jenar
QUOTE (drCronex @ Feb 25 2008, 1:32) *

You would be amazed if you saw church-behavior on a typical sunday... wink.gif
infelám
Ég er að lifa mínu 11. jarðneska lífi, það má vera að það sé endurnýjun.
drCronex
QUOTE (infelám @ Feb 25 2008, 8:42) *
Ég er að lifa mínu 11. jarðneska lífi, það má vera að það sé endurnýjun.

Vá, ellefu nikk? rolleyes.gif
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.