callahan
24. February, 2008, 18:40
QUOTE (Gabbler @ Feb 22 2008, 14:25)

Mér finnst mjög áhugavert að fylgjast með því hvernig ákveðinn hópur hér uppnefnir alla þá sem ekki eru sammála þeim í innflytjendaumræðunni.
Finnst mönnum í góðu lagi að kalla alla þá sem eru á annari skoðun fyrir "þöggunarsinna"? Ég sé ekki betur en að hér sé ákveðin taktík í gangi, hér held ég að menn séu viljandi að reyna að eyðileggja þessa innflytjendaumræðu.
Hvað finnst ykkur?
Já.
Þetta orð er upphrópun sem er algjörlega merkingarlaus. Það sem gerir þetta merkingarlaust er að þeir sem nota þetta mest eru á móti því að aðrar skoðanir en sinna eigin, birtist í umræðunni. Aðrar skoðanir eru nefnilega ofbeldi í þeirra augum og má ekki líðast heldur skal vera sú ríkisskoðun að rödd eins, sérstaklega þess sem notar það mest, sé eina skoðunin sem má birtast.
Síðan lýsi ég vonbrigðum mínum þar að auki með ákveðinn hóp sem kvartar og kveinar yfir því að ekki sé málefnaleg umræða um þetta efni en lét svo ekki sjá sig þegar maður reyndi að stofna til slíks undir þeim skilyrðum að sleppa öllu skítkasti beggja og ræða þetta á grundvelli rólegs kaffispjalls. Ef menn vilja málefnalega umræðu þá verða þeir einnig að leggja eitthvað til og ræða útfærslur hugmynda eða vandkvæði slíkra hugmynda í stað þess að einblína á það að tala í frösum.
Ég held þó að í grunninn séum við flest sammála um marga hluti í þessum málum hvort sem við tilheyrum "þöggunarsinnum" eða "rasistum". Það sem þó hleypir illu blóði í mig m.a. er það þegar menn skella fram frösum um hvað hinir og þessir hópar séu vondir og stimpla alla múslima t.d. sem illmenni og hamast á frösum um illsku þessara hópa og allt í þeim fordómafulla dúr. Sama lið hefur svo engar lausnir á málunum nema að það eigi að traðka á fólki að því virðist með illu og skapa þannig frekari vandamál svo það geti haldið áfram í sigurvímu að segja:"We told you so!!!" og vill svo halda áfram að berja á öllum hópnum í stað þess að finna lausnir til að sigrast á glæpum/öfgatrú, með þeim afleiðingum að glæpamenn/öfgamenn njóta meira fylgis.
Og já, að lokum, þá hef ég ákveðið að orðið þöggunarsinni sé nokkurskonar heiðurstitill Málefnanna og ber það með stolti.
Kveðja,
callahan
Þöggunarsinni no. 2(Orville r no.1, "rasistarnir" hræðast hann svo hrikalega)