Ja hver tók þá ákvörðun og svo fer það mikið eftir hver var tilgangurinn, það er kjarni málsins fyrr er akki hægt að svara þessum spurningum þínum.
Butcer
18. February, 2008, 15:42
QUOTE (Reilly @ Feb 18 2008, 16:26)
Var endurbirting múhameðsmyndanna rétt ákvörðun?
Já , og það er ekki vandamál fréttablaða að múslimar haga sér eins og villidýr heldur er eitthvað að islömsku samfélagum yfir höfuð. Þetta mál mun sýna enn og aftur að fjölmenning er gjörsamlega ónýtt stefna.
Þessi stefna sem callahan og orville boða mun vera valdur ww3 ef hún verður ekki stoppuð.
Octane
18. February, 2008, 15:57
Rétt ákvörðun, mjög fyrirsjáanleg viðbrögð múslíma.
í þjóðfélagi eins og DK er birt mynd með fréttum og það á ekki að láta neina araba segja dönskum fréttamönnum hvað má birta og hvað ekki.
Þá eru þeir nú farnir að stjórna ansi miklu.
Fowl
18. February, 2008, 19:15
Tilgangurinn með upphaflegri birtingu skopmyndanna var að móðga og niðurlægja múslima, enda er Jyllandsposten öfgafullur hægri snepill sem árum saman hefur hamast gegn innflytjendum. Birtinguna verður að skoða í því samhengi.
Seinni birting myndanna var sennilega af einhverju leyti ætlað að styðja við málfrelsið, og sem mótmæli við meintu samsæri gegn einum teiknaranna, en afleiðingarnar voru algerlega fyrirsjáanlegar og verða því að skrifast á ábyrgð þeirra sem endurbirtu myndirnar.
Gabbler
18. February, 2008, 19:19
Nei, Já og Nei.
Skil ekki þörfina hjá sumum að birta myndir með þeim eina tilgangi að móðga eða hella olíu á ófriðarbál.
Járnkarlinn
18. February, 2008, 19:20
QUOTE (Fowl @ Feb 18 2008, 19:15)
Tilgangurinn með upphaflegri birtingu skopmyndanna var að móðga og niðurlægja múslima, enda er Jyllandsposten öfgafullur hægri snepill sem árum saman hefur hamast gegn innflytjendum. Birtinguna verður að skoða í því samhengi.
Seinni birting myndanna var sennilega af einhverju leyti ætlað að styðja við málfrelsið, og sem mótmæli við meintu samsæri gegn einum teiknaranna, en afleiðingarnar voru algerlega fyrirsjáanlegar og verða því að skrifast á ábyrgð þeirra sem endurbirtu myndirnar.
Auðvitað dregur þú kolvitlausa ályktun af þessu, enda ertu öfgafullur vinstri gepill. Tilgangur svoleiðis manna er auðvitað að skemma undirstöður lýðræðis, enda borin von að ykkar sjónarmið verði ofaná í lýðræðisþjóðfélagi. Því er hvert tækifæri notað til að styðja við ofbeldisöfl.
Fowl
18. February, 2008, 19:26
QUOTE (Járnkarlinn @ Feb 18 2008, 19:20)
Auðvitað dregur þú kolvitlausa ályktun af þessu, enda ertu öfgafullur vinstri gepill. Tilgangur svoleiðis manna er auðvitað að skemma undirstöður lýðræðis, enda borin von að ykkar sjónarmið verði ofaná í lýðræðisþjóðfélagi. Því er hvert tækifæri notað til að styðja við ofbeldisöfl.
Hvað er það nákvæmlega í mínum skrifum sem þú ert ósáttur við?
Jyllands Posten ER öfga hægri blað. Það studdi fasista og nasista á sínum tíma, birti t.d. lofrullu í leiðara um Mussolini.
Jyllands Posten HEFUR hamast gegn innflytjendum árum saman og var blaðið tekið sérstaklega fyrir í skýrslu Evrópusamtaka gegn rasisma vegna þessa.
Hvernig væri að þú ræddir málefnin, í stað þess að vera með rökvillur og árásir á mig sem einstakling?
Járnkarlinn
18. February, 2008, 19:30
QUOTE (Fowl @ Feb 18 2008, 19:26)
Hvað er það nákvæmlega í mínum skrifum sem þú ert ósáttur við?
Jyllands Posten ER öfga hægri blað. Það studdi fasista og nasista á sínum tíma, birti t.d. lofrullu í leiðara um Mussolini.
Jyllands Posten HEFUR hamast gegn innflytjendum árum saman og var blaðið tekið sérstaklega fyrir í skýrslu Evrópusamtaka gegn rasisma vegna þessa.
Hvernig væri að þú ræddir málefnin, í stað þess að vera með rökvillur og árásir á mig sem einstakling?
Nú, ég er að máta mig í "rökræðunum" ykkar vinstrimanna. Mér finnst það ganga ágætlega. Innihaldið í þeirri taktík er öllum kunnugt, en það er að vera nógu andskoti ómerkilegur í málflutningi og að vera alltaf með slagorð eins og fasistar og nasistar.
Sem minnir mig á að Morgunblaðið var svolítið hallt undir nasismann á sínum tíma, eða fyrir u.þ.b. 70 árum. Það þýðir væntanlega að það sé fasískur snepill í dag, er það ekki?
Reilly
18. February, 2008, 19:36
Það er athyglisvert að enginn telur afleiðingarnar ófyrirsjáanlegar.
Nú langar mig að velta upp strategískri spurningu:
Það er ekki annað að sjá en að stríð geisi í danmörku vegna þessa. Múslimar fara um brennandi. Hvernig á að svara þessu? Með fleiri myndbirtingum? Það virðist enginn vilji vera til að láta hart mæta hörðu eða að mæta ofbeldi með ofbeldi. Danskur almenningur situr hjá meðan skólarnir þeirra eru brenndir.
Hvað er svarið? Fleiri myndbirtingar?
Gabbler
18. February, 2008, 19:38
QUOTE (Reilly @ Feb 18 2008, 20:36)

Hvernig getur það verið svarið að hella meiri olíu á eldinn, auðvitað þarf að stoppa þessa vitleysu friðsamlega.
Fowl
18. February, 2008, 19:38
QUOTE (Járnkarlinn @ Feb 18 2008, 19:30)
Sem minnir mig á að Morgunblaðið var svolítið hallt undir nasismann á sínum tíma, eða fyrir u.þ.b. 70 árum. Það þýðir væntanlega að það sé fasískur snepill í dag, er það ekki?
Mogginn er náttúrulega hægra blað og það leynist engum.
Hins vegar hefur Mogginn ekki birt ítrekað hatursgreinar eða neikvæðar fréttir af innflytjendum, öfugt við Jyllandsposten.
Mogginn hefur tekið þá stefnu að birta ekki þjóðerni brotamanna nema það komi fréttinni við, en Jyllandsposten var hins vegar ávítað fyrir það einmitt að birta alltaf þjóðerni útlendinga sem voru grunaðir um brot, þó að það hefði ekkert með brotið að gera.
Þannig að þarna er ólíku saman að jafna.
Butcer
18. February, 2008, 19:40
QUOTE (Reilly @ Feb 18 2008, 19:36)
Það er athyglisvert að enginn telur afleiðingarnar ófyrirsjáanlegar.
Nú langar mig að velta upp strategískri spurningu:
Það er ekki annað að sjá en að stríð geisi í danmörku vegna þessa. Múslimar fara um brennandi. Hvernig á að svara þessu? Með fleiri myndbirtingum? Það virðist enginn vilji vera til að láta hart mæta hörðu eða að mæta ofbeldi með ofbeldi. Danskur almenningur situr hjá meðan skólarnir þeirra eru brenndir.
Hvað er svarið? Fleiri myndbirtingar?
Með því að fleygja múslimum sem brenna hluti í fangelsi og prenta fleiri myndir ef þeir vlja? Ég mundi mæta hörðu með hörðu vopunuðum lögreglumþjónum eða hermönnum sem mættu nota banvænt vald ef þeir þyrftu.
Járnkarlinn
18. February, 2008, 19:42
QUOTE (Fowl @ Feb 18 2008, 19:38)
Mogginn er náttúrulega hægra blað og það leynist engum.
Hins vegar hefur Mogginn ekki birt ítrekað hatursgreinar eða neikvæðar fréttir af innflytjendum, öfugt við Jyllandsposten.
Mogginn hefur tekið þá stefnu að birta ekki þjóðerni brotamanna nema það komi fréttinni við, en Jyllandsposten var hins vegar ávítað fyrir það einmitt að birta alltaf þjóðerni útlendinga sem voru grunaðir um brot, þó að það hefði ekkert með brotið að gera.
Þannig að þarna er ólíku saman að jafna.
Hvað eru neikvæðir fréttir af innflytjendum? Er það t.d. neikvætt þegar greint er frá því að innflytjendur skipuleggi morð? Er það neikvætt þegar innflytjendur brenna bíla?
Ertu ekki múslimsk undirlægja ef þú tekur undir hatursáróður múslima? Ertu þá bara ekki jafn ómerkilegur pappír og Jyllandsposten?
Eða setur þú mörkin við ómerkilegt fólk og blöð, að þau séu ekki sammála þínum skoðunum?
Gabbler
18. February, 2008, 19:45
QUOTE (Butcer @ Feb 18 2008, 20:40)
Með því að fleygja múslimum sem brenna hluti í fangelsi og prenta fleiri myndir ef þeir vlja? Ég mundi mæta hörðu með hörðu vopunuðum lögreglumþjónum eða hermönnum sem mættu nota banvænt vald ef þeir þyrftu.
Nei-Engan veginn rétt ákvörðun að auka enn við spennu og ólæti. Fjölmiðlamenn bera ábyrgð einnig og það er ekki hægt að fela sig á bak við og þar með misnota hugtök eins og málfrelsi. Það er eingöngu afskræming á því og hljómar eins og afsakanir paparazzi-blaða.
Já-Menn vissu nákvæmlega hvað myndi gerast miðað við reynslu og vildu vísvítandi setja meiri olíu á eldinn.
Nei-Þetta verður ekki til góðs því þetta eykur enn meir á spennu milli Vesturlanda og múslimalanda á alþjóðavísu, þetta eykur enn á spennu, tortryggni og átök milli innflytjenda og innfæddra í Danmörku, þetta spilar upp í hendurnar á öfgaöflum báðum megin og svo að lokum þá má benda á eignaskemmdir og ofbeldi mun vera til stórskaða fyrir samfélagið.
Ef menn eru svo virkilega blindir að halda að þetta sé rétta aðferðin til að gera múslima afhuga öfgamönnum með því að móðga þá sem hófsamari eru einnig og skapa jarðveg fyrir öfgamennina til að ná sér í stuðning, þá þurfa þeir á veruleikatékki að halda. Þú hrækir ekki framan í mann og ætlast svo til að hann hjálpi þér við að fjarlægja ofbeldisfullan nágranna.
Butcer
18. February, 2008, 19:50
QUOTE (callahan @ Feb 18 2008, 20:49)
Svör mín voru:

Skiptir engu máli hvort þetta væri "rétt" því tjáningarfrelsi skiptiri meira máli,meira mál en líf þess vegna.
Gabbler
18. February, 2008, 19:51
QUOTE (callahan @ Feb 18 2008, 20:49)
Ef menn eru svo virkilega blindir að halda að þetta sé rétta aðferðin til að gera múslima afhuga öfgamönnum með því að móðga þá sem hófsamari eru einnig og skapa jarðveg fyrir öfgamennina til að ná sér í stuðning, þá þurfa þeir á veruleikatékki að halda. Þú hrækir ekki framan í mann og ætlast svo til að hann hjálpi þér við að fjarlægja ofbeldisfullan nágranna.
Það er engu líkara en að menn vilji fleiri öfgamúslima svo hægt sé að benda á öfgamúslimana og krefjast þess að allir múslimar verði reknir úr landi.
Reilly
18. February, 2008, 19:52
QUOTE (Butcer @ Feb 18 2008, 19:40)
Ég mundi mæta hörðu með hörðu vopunuðum lögreglumþjónum eða hermönnum sem mættu nota banvænt vald ef þeir þyrftu.
Telurðu að danskir stjórnmálamenn hafi næg bein í nefinu til slíks?
Butcer
18. February, 2008, 19:53
QUOTE (Reilly @ Feb 18 2008, 20:52)
Telurðu að danskir stjórnmálamenn hafi næg bein í nefinu til slíks?
Pia og flokkurinn hennar mudnu eflaust gera það já og þess vegna væri best ef sá flokkur mundi ná yfir 50% fylgi, því miður er of mikið af gungum í ríkistjórnum Evrópu.
uffi
18. February, 2008, 20:23
Ég bý hér í DK og í hverfinu sem ég bý eru margir múslimar og á laugadags nótt þurti ég að hendast út og færa bílin min vegna þessa að hann var upp við rusla gám sem var í björtu báli Í götuni min voru sex eldar á laugardags nótt plús að flestir glugganir á þvottahúsinu voru brotnir En það voru eingin mótmæli Bara enhverir sem hlupu á milli með kvekjar Ég held að það hafi ekkert með múhamed að gera Ef þetta eru þeir sem ég held eru þetta strákar sem eru fúlir út í löggun vegna þess að þeir meiga ekki stela vespum í friði og verða að hafa púströr á vepunm En ég gæti haft vitlaust fyrir mér
En til að laga múslima vanda er að hætta að borga fólkinu fyrir að vera heima og senda það út að vinna það er vinna fyrir alla hér sem vilja vinna og vantar fólk þar sem ég vinn kemur rúta með þjóðverja á hverjum deig Svo er atvinuleisi meðal þeira sem eru ekki með evróskan bakgrun 30%
Hildigunnur
18. February, 2008, 21:12
Það er alltaf heimskulegt að egna til ófriðar. Mig grunar að tilgangurinn hafi einmitt verið sá að sverta múslima og auka við óvild og erfiðleika, hvað sem það kostaði. Þetta eru ekki aðferðir sem eru vænlegar til að búa saman í sátt og samlyndi enda virðast þessir danir ekki hafa minnsta áhuga á því. Þeir vilja endilega egna til ófriðar
Mín svör eru þess vegna NEI, - Já og Nei
toto
4. March, 2008, 10:33
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 18 2008, 22:12)
Það er alltaf heimskulegt að egna til ófriðar. Mig grunar að tilgangurinn hafi einmitt verið sá að sverta múslima og auka við óvild og erfiðleika, hvað sem það kostaði. Þetta eru ekki aðferðir sem eru vænlegar til að búa saman í sátt og samlyndi enda virðast þessir danir ekki hafa minnsta áhuga á því. Þeir vilja endilega egna til ófriðar
Tilgangurinn var að sýna að við létum ekki stjórnast af hræðslu við ofbeldishótanir sem voru þegar komnar fram.
Því eins og Rushdie sagði „Tilgangurinn með hryðjuverkum er að skapa ótta og þegar fólk sýnir að a' hafi látið hræða sig þá hafa hryðjuverkamennirnir náð markmiði sínu.
angellove
4. March, 2008, 10:54
þetta augljóst mannréttindabrot sem danir hafa gert!! Ríki þau sem aðilar eru að samningi þessum, sem telja að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna sé reistur á meginreglum um meðfædda göfgi og jafnrétti allra manna og að öll aðildarríki hafi skuldbundið sig, í samvinnu við samtökin, til þess að grípa til sameiginlegra og sérstakra aðgerða til þess að ná því markmiði Sameinuðu þjóðanna að stuðla að og efla almenna virðingu fyrir og varðveislu mannréttinda og grundvallarfrelsis allra manna, án greinarmunar vegna kynþáttar, kyns, tungu eða trúarbragða, sem telja að mannréttindayfirlýsingin lýsi yfir því að allir menn séu fæddir frjálsir og með jafna göfgi og réttindi og að allir eigi rétt á þeim réttindum og frelsi sem talin eru þar, án nokkurs greinarmunar, sérstaklega vegna kynþáttar, litarháttar eða þjóðernisuppruna, sem telja að allir menn séu jafnir fyrir lögunum og eigi rétt á sömu lagavernd gegn öllu misrétti og allri hvatningu til misréttis,
toto
4. March, 2008, 12:33
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 11:54)

Og hvað af þessu hafa Danir brotið ?
Danir móðguðu "Múhameð" ekki múslima. Það var svo ákvörðun Múslima að taka til sín móðgunina.
angellove
4. March, 2008, 13:16
QUOTE (toto @ Mar 4 2008, 12:33)
Og hvað af þessu hafa Danir brotið ?
Danir móðguðu "Múhameð" ekki múslima. Það var svo ákvörðun Múslima að taka til sín móðgunina.
Danir móðguðu auðvitað Múslima þeir voru að gera lítið úr þeirra trú!! það segir sig auðvitað sjálft að danir eru að stofna til leiðinda með þessu!
það ætti að vera augljóst hvað af þessu danir eru að brjóta!
toto
4. March, 2008, 13:26
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 14:16)
Danir móðguðu auðvitað Múslima þeir voru að gera lítið úr þeirra trú!! það segir sig auðvitað sjálft að danir eru að stofna til leiðinda með þessu!
Ef ég segi , "Guð er hommi".. Þá er það þín ákvörðun ef þér finnst þú móðguð. Mín orð beinast að Guð en ekki þeim sem trúa á hann.
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 14:16)
það ætti að vera augljóst hvað af þessu danir eru að brjóta!
Nei það er það ekki og ég hef engann annan séð halda þessu fram.
angellove
4. March, 2008, 13:27
Hérna getið þið séð hluta af Alþjóða sáttmálunum.
Ríki þau sem aðilar eru að samningi þessum, sem telja að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna sé reistur á meginreglum um meðfædda göfgi og jafnrétti allra manna og að öll aðildarríki hafi skuldbundið sig, í samvinnu við samtökin, til þess að grípa til sameiginlegra og sérstakra aðgerða til þess að ná því markmiði Sameinuðu þjóðanna að stuðla að og efla almenna virðingu fyrir og varðveislu mannréttinda og grundvallarfrelsis allra manna, án greinarmunar vegna kynþáttar, kyns, tungu eða trúarbragða, sem telja að mannréttindayfirlýsingin lýsi yfir því að allir menn séu fæddir frjálsir og með jafna göfgi og réttindi og að allir eigi rétt á þeim réttindum og frelsi sem talin eru þar, án nokkurs greinarmunar, sérstaklega vegna kynþáttar, litarháttar eða þjóðernisuppruna, sem telja að allir menn séu jafnir fyrir lögunum og eigi rétt á sömu lagavernd gegn öllu misrétti og allri hvatningu til misréttis, sem telja að Sameinuðu þjóðirnar hafi fordæmt nýlendustefnu og öll afbrigði aðskilnaðar og misréttis tengd henni, hvernig og hvar sem þau birtast, og að yfirlýsing um veitingu sjálfstæðis til handa nýlendum og nýlenduþjóðum frá 14. desember 1960 (ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 1514 (XV)) hafi staðfest og af fullri alvöru lýst yfir nauðsyn þess að ráða með skjótum hætti og skilyrðislaust niðurlögum þeirra, sem telja að yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis frá 20. nóvember 1963 (ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 1904 (XVIII)) staðfesti af fullri alvöru nauðsyn þess að hraða afnámi kynþáttamisréttis í heiminum í hverri mynd sem það birtist og að tryggja skilning á og virðingu fyrir göfgi hvers manns, sem eru sannfærð um að allar kenningar um yfirburði á grundvelli kynþáttar séu vísindalega rangar, siðferðislega fordæmanlegar, félagslega óréttlátar og hættulegar og að kynþáttamisrétti sé aldrei og hvergi réttlætanlegt, hvorki fræðilega né í framkvæmd, sem ítreka að misrétti á milli manna vegna kynþáttar, litarháttar eða þjóðlegs uppruna hindrar vinsamleg og friðsamleg samskipti á milli þjóðríkja og getur raskað friði og öryggi milli þjóða og sátt á milli manna sem lifa í nábýli, jafnvel innan sama ríkis, sem eru sannfærð um að hindranir á grundvelli kynþáttar séu ósamrýmanlegar hverju mannlegu samfélagi, sem eru uggandi um að kynþáttamisrétti birtist enn í sumum heimshlutum og í stefnu ríkisstjórna sem byggja á kynþáttayfirburðum eða óvild, svo sem kynþáttaaðskilnaðarstefnu, aðskilnaði eða sundurgreiningu, sem eru staðráðin í að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að hraða afnámi kynþáttamisréttis í hverri mynd sem það birtist og hindra og berjast gegn kynþáttahatri í kenningum og framkvæmd til þess að efla skilning á milli kynþátta og byggja alþjóðlegt samfélag sem er laust við hvers konar kynþáttaaðskilnað og kynþáttamisrétti, sem hafa í huga samning um misrétti með tilliti til atvinnu og starfa samþykktan af Alþjóðavinnumálastofnuninni árið 1958 og samning um bann við misrétti í menntun samþykktan af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1960, sem hafa vilja til að koma í framkvæmd meginreglum sem birtast í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis og til að tryggja að sem fyrst verði gripið til raunhæfra aðgerða til að ná markmiði þeirra,
finnst ykkur Danska ríkistjórninn virða fólk sem er múslimatrúar?? mitt svar er nei! þeir réttlæta þetta allt útaf morðhótun með að gera lítið úr ÖLLUM sem eru múslimatrúar!! Þá er þetta auðvitað mannréttindabrot og brot á þessum samning.
toto
4. March, 2008, 16:08
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 14:27)
Hérna getið þið séð hluta af Alþjóða sáttmálunum.
...
finnst ykkur Danska ríkistjórninn virða fólk sem er múslimatrúar?? mitt svar er nei! þeir réttlæta þetta allt útaf morðhótun með að gera lítið úr ÖLLUM sem eru múslimatrúar!! Þá er þetta auðvitað mannréttindabrot og brot á þessum samning.
Og hvernig tengist þetta umræðuefninu ? "Danska ríkisstjórnin" ?? Hvað gerði hún eða ekki ?
Brodd-Helgi
4. March, 2008, 18:17
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 10:54)
þetta augljóst mannréttindabrot sem danir hafa gert!!
Jú, þetta er rétt hjá þér.
Hegðun dana undanfarið er alve sorgleg og í rauninni óskiljanleg.
Bosshogg
4. March, 2008, 18:25
QUOTE (Brodd-Helgi @ Mar 4 2008, 18:17)
Jú, þetta er rétt hjá þér.
Hegðun dana undanfarið er alve sorgleg og í rauninni óskiljanleg.
Góð spurning, ég skil ekki þessa undanlátssemi gagnvart múslimum og "skilninginn" á reiði þeirra..
Hver ætli viðbrögðin yrðu ef Hawk12 mætti með haglarann og sveðjuna heim til einhverra þeirra sem hafa móðgað hann hérna og bryti þar allt og bramlaði ? Ætli viðbrögðin yrðu þá ekki önnur en að viðkomandi bloggari hefði ekki átt að kalla Hawk12 það sem hann gerði ?
infelám
4. March, 2008, 18:35
QUOTE (angellove @ Mar 4 2008, 14:27)
Hérna getið þið séð hluta af Alþjóða sáttmálunum.
Ríki þau sem aðilar eru að samningi þessum, sem telja að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna sé reistur á meginreglum um meðfædda göfgi og jafnrétti allra manna og að öll aðildarríki hafi skuldbundið sig, í samvinnu við samtökin, til þess að grípa til sameiginlegra og sérstakra aðgerða til þess að ná því markmiði Sameinuðu þjóðanna að stuðla að og efla almenna virðingu fyrir og varðveislu mannréttinda og grundvallarfrelsis allra manna, án greinarmunar vegna kynþáttar, kyns, tungu eða trúarbragða, sem telja að mannréttindayfirlýsingin lýsi yfir því að allir menn séu fæddir frjálsir og með jafna göfgi og réttindi og að allir eigi rétt á þeim réttindum og frelsi sem talin eru þar, án nokkurs greinarmunar, sérstaklega vegna kynþáttar, litarháttar eða þjóðernisuppruna, sem telja að allir menn séu jafnir fyrir lögunum og eigi rétt á sömu lagavernd gegn öllu misrétti og allri hvatningu til misréttis, sem telja að Sameinuðu þjóðirnar hafi fordæmt nýlendustefnu og öll afbrigði aðskilnaðar og misréttis tengd henni, hvernig og hvar sem þau birtast, og að yfirlýsing um veitingu sjálfstæðis til handa nýlendum og nýlenduþjóðum frá 14. desember 1960 (ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 1514 (XV)) hafi staðfest og af fullri alvöru lýst yfir nauðsyn þess að ráða með skjótum hætti og skilyrðislaust niðurlögum þeirra, sem telja að yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis frá 20. nóvember 1963 (ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. 1904 (XVIII)) staðfesti af fullri alvöru nauðsyn þess að hraða afnámi kynþáttamisréttis í heiminum í hverri mynd sem það birtist og að tryggja skilning á og virðingu fyrir göfgi hvers manns, sem eru sannfærð um að allar kenningar um yfirburði á grundvelli kynþáttar séu vísindalega rangar, siðferðislega fordæmanlegar, félagslega óréttlátar og hættulegar og að kynþáttamisrétti sé aldrei og hvergi réttlætanlegt, hvorki fræðilega né í framkvæmd, sem ítreka að misrétti á milli manna vegna kynþáttar, litarháttar eða þjóðlegs uppruna hindrar vinsamleg og friðsamleg samskipti á milli þjóðríkja og getur raskað friði og öryggi milli þjóða og sátt á milli manna sem lifa í nábýli, jafnvel innan sama ríkis, sem eru sannfærð um að hindranir á grundvelli kynþáttar séu ósamrýmanlegar hverju mannlegu samfélagi, sem eru uggandi um að kynþáttamisrétti birtist enn í sumum heimshlutum og í stefnu ríkisstjórna sem byggja á kynþáttayfirburðum eða óvild, svo sem kynþáttaaðskilnaðarstefnu, aðskilnaði eða sundurgreiningu, sem eru staðráðin í að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að hraða afnámi kynþáttamisréttis í hverri mynd sem það birtist og hindra og berjast gegn kynþáttahatri í kenningum og framkvæmd til þess að efla skilning á milli kynþátta og byggja alþjóðlegt samfélag sem er laust við hvers konar kynþáttaaðskilnað og kynþáttamisrétti, sem hafa í huga samning um misrétti með tilliti til atvinnu og starfa samþykktan af Alþjóðavinnumálastofnuninni árið 1958 og samning um bann við misrétti í menntun samþykktan af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1960, sem hafa vilja til að koma í framkvæmd meginreglum sem birtast í yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis og til að tryggja að sem fyrst verði gripið til raunhæfra aðgerða til að ná markmiði þeirra,
finnst ykkur Danska ríkistjórninn virða fólk sem er múslimatrúar?? mitt svar er nei! þeir réttlæta þetta allt útaf morðhótun með að gera lítið úr ÖLLUM sem eru múslimatrúar!! Þá er þetta auðvitað mannréttindabrot og brot á þessum samning.
Og fara múslímaríki eftir þessu? Þeir virða td ekki kvennréttindi og flokkast þau ekki undir almenn mannréttindi?
callahan
4. March, 2008, 18:44
QUOTE (infelám @ Mar 4 2008, 18:35)
Og fara múslímaríki eftir þessu? Þeir virða td ekki kvennréttindi og flokkast þau ekki undir almenn mannréttindi?
Á semsagt Danmörk ekki að fara eftir samningum eða lögum sem þeir undirgangast vegna þess að eitthvað ríki gerir það ekki?
Bosshogg
4. March, 2008, 18:56
QUOTE (callahan @ Mar 4 2008, 18:44)
Á semsagt Danmörk ekki að fara eftir samningum eða lögum sem þeir undirgangast vegna þess að eitthvað ríki gerir það ekki?
Þeir gera það, en múslimaríkin ekki.
QUOTE (toto @ Mar 4 2008, 18:34)
Góð spurning, ég skil ekki þessa undanlátssemi gagnvart múslimum og "skilninginn" á reiði þeirra..
Hver ætli viðbrögðin yrðu ef Hawk12 mætti með haglarann og sveðjuna heim til einhverra þeirra sem hafa móðgað hann hérna og bryti þar allt og bramlaði ? Ætli viðbrögðin yrðu þá ekki önnur en að viðkomandi bloggari hefði ekki átt að kalla Hawk12 það sem hann gerði ?
Þá yrðu viðbrögðin önnur, enda mikið af fólki sem hefur engin prinsip og enga sannfæringu, allt eftir vindum hverju sinni.
Eg dæmi ekki um hana. Þeirra var ákvörðunin. (annars finnst mér Sálmarnir einhver hin lélegast og vitlausasta bók sem ég hef litið í)
Í danska tilfellinu er veriðað tala um að fjölmiðlar leggja muslima í heild í einelti með endalausu bulli sínu ss. þessum tilgangslausu og barnalegu myndbirtingum og einfeldingslegum upphrópunum varðandi Islam og með því kynda undir fordóma og fáfræði eldi sem óskynsamt fólk fellur fyrir. Ekkert flóknara en það. Og reyndar er þetta ekki bundið við Danm. því þetta er vaxandi vandamál í Evrópu, td. Englandi. Áyrðarlaust bull fjölmiðla varðandi muslima og islam sem endar td í svona hegðun og eða þessari
En þegar menn hafa einu sinni fengið islamofóbíuflensuna þá er mjög erfitt að lækna hana og í raun er bara ein lækning sem virkar. Mikil og stöðug fræðsla. En sumir vilja ekki fræðast. Nenna þess ekki. Upphrópanir eru þægilegri.
toto
4. March, 2008, 20:04
QUOTE (Brodd-Helgi @ Mar 4 2008, 20:14)
Í danska tilfellinu er veriðað tala um að fjölmiðlar leggja muslima í heild í einelti með endalausu bulli sínu ss. þessum tilgangslausu og barnalegu myndbirtingum og einfeldingslegum upphrópunum varðandi Islam og með því kynda undir fordóma og fáfræði eldi sem óskynsamt fólk fellur fyrir. Ekkert flóknara en það. Og reyndar er þetta ekki bundið við Danm. því þetta er vaxandi vandamál í Evrópu, td. Englandi. Áyrðarlaust bull fjölmiðla varðandi muslima og islam sem endar td í svona hegðun og eða þessari
Málið er að þær eru allt annað en tilgangslausar og það er búið að útlista hver tilgangurinn er.
Ef þú tekur þá ákvörðun um að svara ekki einu sinni þeim fullyrðingum, sem er það sem málið snýst um af þeirra hálfu sem birtu myndirnar, þá ert þú einfaldlega búinn að "stimpla þig út", eins og Alex segir, úr viti borinni umræðu um málið.
Járnkarlinn
4. March, 2008, 22:41
QUOTE (toto @ Mar 4 2008, 18:34)
Góð spurning, ég skil ekki þessa undanlátssemi gagnvart múslimum og "skilninginn" á reiði þeirra..
Hver ætli viðbrögðin yrðu ef Hawk12 mætti með haglarann og sveðjuna heim til einhverra þeirra sem hafa móðgað hann hérna og bryti þar allt og bramlaði ? Ætli viðbrögðin yrðu þá ekki önnur en að viðkomandi bloggari hefði ekki átt að kalla Hawk12 það sem hann gerði ?
Ef hann bölvaði Bandaríkjamönnum nægilega mikið yrði hann heiðursfélagi í Þöggunarklúbbnum tm Sama hvað hann hefði gert
angellove
5. March, 2008, 1:01
QUOTE (infelám @ Mar 4 2008, 18:35)
Og fara múslímaríki eftir þessu? Þeir virða td ekki kvennréttindi og flokkast þau ekki undir almenn mannréttindi?
Hversu oft þarf að segja ykkur sem haldið því fram að allir múslimar virða ekki konur að það er ekki rétt!!
það er svo búið að stimpla það inn hjá fólki að múslimar eru teroristar, umskera konur, berja,drepa og ég veit ekki hvað og hvað það er ekki sagt að Múslimar gera!!
það er svona sem fordómar verða til þegar að það er búið að dæma alla sem eru múslimatrúar slæma! og það einmitt sem danir eru að sækjast eftir svona viðbrögðum!
Fjalldrapi
5. March, 2008, 1:13
Það er ein ástæða til að kaupa DV einu sinni í viku (oftast þriðjudögum). Þá skrifar Guðbergur Bergsson pistil. Málfrelsi og mannvirðing Hvenær er málfrelsi við hæfi ? Danir hafa ekki spurt þeirrar spurningar þegar þeir vörðu það að birta í óljósum tilgangi teikningar af Múhameð, myndir sem afbökuðu spámanninn. Frelsið leyfir slíkt en ofnotkun fylgir sú hætta að menn líti á það sem einn skrípaleik í viðbót í vestrænu lýðræði. Reyndar var ekki um málfrelsi að ræða heldur rétt til að teikna lélegar myndir en verjendurnir litu ekki á muninn. Við skulum líka láta það liggja milli hluta en spyrja: Er við hæfi frá sjónarhóli siðsemi og ábyrgðar að nota frelsið geti það gert meira ógang en gagn og skaðað þann sem á í vök að verjast ? Teiknararnir hafa ekki leitt hugann að þessu og ekki heldur hinir sem birtu. Myndirnar voru öðru fremur tákn um danskan bjánaskap og misheppnaða fyndni, en þegar þær voru birtar á ný lýsti það lúalegri dirfsku undir yfirskini frelsisins sem særir trúarbrögð, önnur en danska ríkistrú. Í kristni eða hinni gyðinglegu trú ríkja önnur lögmál en hjá íslam. Í Gamla testamentinu er algengt að guði sé formælt en það er aldrei gert í hinu nýja sem stendur þannig nær trúarbók íslams. Að formæla guði og Múhameð, spámanni hans, þekkist ekki í Kóraninum. Sá er siður kristinna manna að fara í kringum trúarbók sína þegar það hentar og nota reglur Gamla testamentisins, einkum ef þeir beita refsingum en þykjast fylgja friðarboðskap Krists. Trúmenn íslams eru aftur á móti samkvæmari sjálfum sér og trúnni sem getur stundum litið út sem grimmd. Samkvæmnin stendur einnig þjóðum íslams dálítið fyrir þrifum; hún veldur stöðnun. Í ósamræmi kristninnar eða öllu heldur í samverkun samræmis og ósamræmis felst aftur á móti sköpunarkraftur. Kristnar þjóðir nota því ímyndaraflið meira en íslamskar, ef frá er talið þegar íslam var í mestum blóma eftir innrás Mára á Spán árið 711. Þá rann þar andi ýmissa trúarbragða saman og Arabar og Gyðingar auðguðu vísindi, læknislist, heimspeki og andlegt líf í Evrópu uns kristnir heittrúarmenn gerðu báða ættstofnana landræka og eyddu rangtrúuðum og ranglátum með ofsóknum hvar sem til þeirra náðist. Það að hafa þörf fyrir að hæða Múhameð á lélegu myndmáli þegar Arabar eiga í vök að verjast og krisnar þjóðir ráðast, líka Danir, með vopnavaldi inn í Írak eftir að hafa reynt að útrýma íslam á Balkanskaga, er siðlaust og skortur á mannvirðingu hvað sem hugmyndum um tjáningarfrelsi líður. Frelsið er samræming í að verja varnarlausa.
infelám
5. March, 2008, 2:50
QUOTE (angellove @ Mar 5 2008, 2:01)
Hversu oft þarf að segja ykkur sem haldið því fram að allir múslimar virða ekki konur að það er ekki rétt!!
það er svo búið að stimpla það inn hjá fólki að múslimar eru teroristar, umskera konur, berja,drepa og ég veit ekki hvað og hvað það er ekki sagt að Múslimar gera!!
það er svona sem fordómar verða til þegar að það er búið að dæma alla sem eru múslimatrúar slæma! og það einmitt sem danir eru að sækjast eftir svona viðbrögðum!
Það er kannski ekki hægt að dæma alla hjörðina.
En eitt nærtægt dæmi er góð vinkona mín sem hefur verið að data múslíma sem er læknir á sjúkrahúsi hér. En eftir stutt húllumhæ fer þessi maður að vera mikið dómerandi og leggja henni lífsreglurnnar, hún á að gera svona og vera svona. En eins og þú kannski þekkir, þá eru vestrænar konur mjög sjálfstæðar og kyngja ekki svona fornaldar hugsunarhætti. Hún geftst upp og hættir með honum. Þá er það bara hann sem bregst allur illa við og hótar henni lífláti og lætur það fylgja að hún verði hvergi óhullt þar sem að trúbræður hans myndu vinna verkið fyrir hann, hvar sem til hennar næðist..
Trúabrögð eiga ekki að vera til á 21 öldinni. Trúarbrögð hafa allt of oft verið notuð til að réttlæta hroðaverk í gegnum tíðina. Trúabrögð eru hækja...
Legbiter
5. March, 2008, 3:44
Já.
angellove
5. March, 2008, 8:16
QUOTE (infelám @ Mar 5 2008, 2:50)
Það er kannski ekki hægt að dæma alla hjörðina.
En eitt nærtægt dæmi er góð vinkona mín sem hefur verið að data múslíma sem er læknir á sjúkrahúsi hér. En eftir stutt húllumhæ fer þessi maður að vera mikið dómerandi og leggja henni lífsreglurnnar, hún á að gera svona og vera svona. En eins og þú kannski þekkir, þá eru vestrænar konur mjög sjálfstæðar og kyngja ekki svona fornaldar hugsunarhætti. Hún geftst upp og hættir með honum. Þá er það bara hann sem bregst allur illa við og hótar henni lífláti og lætur það fylgja að hún verði hvergi óhullt þar sem að trúbræður hans myndu vinna verkið fyrir hann, hvar sem til hennar næðist..
Trúabrögð eiga ekki að vera til á 21 öldinni. Trúarbrögð hafa allt of oft verið notuð til að réttlæta hroðaverk í gegnum tíðina. Trúabrögð eru hækja...
Ég hef lika heyrt dæmi um það að þetta sé lika að ske í okkar þjóðfélagi af íslenskum "kristnum" karlmönnum þanig að þetta er allt persónubundið en ekki endilega eftir trú!.
angellove
5. March, 2008, 8:41
QUOTE (Fjalldrapi @ Mar 5 2008, 1:13)
Það er ein ástæða til að kaupa DV einu sinni í viku (oftast þriðjudögum). Þá skrifar Guðbergur Bergsson pistil. Málfrelsi og mannvirðing Hvenær er málfrelsi við hæfi ? Danir hafa ekki spurt þeirrar spurningar þegar þeir vörðu það að birta í óljósum tilgangi teikningar af Múhameð, myndir sem afbökuðu spámanninn. Frelsið leyfir slíkt en ofnotkun fylgir sú hætta að menn líti á það sem einn skrípaleik í viðbót í vestrænu lýðræði. Reyndar var ekki um málfrelsi að ræða heldur rétt til að teikna lélegar myndir en verjendurnir litu ekki á muninn. Við skulum líka láta það liggja milli hluta en spyrja: Er við hæfi frá sjónarhóli siðsemi og ábyrgðar að nota frelsið geti það gert meira ógang en gagn og skaðað þann sem á í vök að verjast ? Teiknararnir hafa ekki leitt hugann að þessu og ekki heldur hinir sem birtu. Myndirnar voru öðru fremur tákn um danskan bjánaskap og misheppnaða fyndni, en þegar þær voru birtar á ný lýsti það lúalegri dirfsku undir yfirskini frelsisins sem særir trúarbrögð, önnur en danska ríkistrú. Í kristni eða hinni gyðinglegu trú ríkja önnur lögmál en hjá íslam. Í Gamla testamentinu er algengt að guði sé formælt en það er aldrei gert í hinu nýja sem stendur þannig nær trúarbók íslams. Að formæla guði og Múhameð, spámanni hans, þekkist ekki í Kóraninum. Sá er siður kristinna manna að fara í kringum trúarbók sína þegar það hentar og nota reglur Gamla testamentisins, einkum ef þeir beita refsingum en þykjast fylgja friðarboðskap Krists. Trúmenn íslams eru aftur á móti samkvæmari sjálfum sér og trúnni sem getur stundum litið út sem grimmd. Samkvæmnin stendur einnig þjóðum íslams dálítið fyrir þrifum; hún veldur stöðnun. Í ósamræmi kristninnar eða öllu heldur í samverkun samræmis og ósamræmis felst aftur á móti sköpunarkraftur. Kristnar þjóðir nota því ímyndaraflið meira en íslamskar, ef frá er talið þegar íslam var í mestum blóma eftir innrás Mára á Spán árið 711. Þá rann þar andi ýmissa trúarbragða saman og Arabar og Gyðingar auðguðu vísindi, læknislist, heimspeki og andlegt líf í Evrópu uns kristnir heittrúarmenn gerðu báða ættstofnana landræka og eyddu rangtrúuðum og ranglátum með ofsóknum hvar sem til þeirra náðist. Það að hafa þörf fyrir að hæða Múhameð á lélegu myndmáli þegar Arabar eiga í vök að verjast og krisnar þjóðir ráðast, líka Danir, með vopnavaldi inn í Írak eftir að hafa reynt að útrýma íslam á Balkanskaga, er siðlaust og skortur á mannvirðingu hvað sem hugmyndum um tjáningarfrelsi líður. Frelsið er samræming í að verja varnarlausa. þetta er góður pistill!
angellove
5. March, 2008, 9:19
Það er einmitt svona færslur sem eru óskiljanlegar með öll!! ég tók þessa færslu hjá konu sem er í Frjálslyndaflokknum..
2.3.2008 | 22:05
Íslam / Ísland / Nei takk. En og aftur tryllist lýðurinn útaf bröndurum. Danir hafa gefið múslimum út um allan heim tækifæri til að fordæma sig þótt mörgum finnist grínmyndir harla fátæk ástæða. Þessi viðbrögð manna og þjóða sem hallast að Íslam segja okkur svo mikið meira en sést með berum augum. Ef við rýnum í málið þá sjáum við að í raun þá þarf nánast ekkert til að koma af stað ofbeldi og fyrirlitningu þeirra gegn okkur hinum. Þetta skulum við hafa í huga og varast. Ef þetta eitt þarf til að þeir telji heila þjóð réttdræpa þá erum við öll í sannarlegri hættu.
Ég hef séð ansi mörg fréttaskot þar sem verið er að brenna fána og fordæma þessar teiknimyndir og erum við þá ævinlega kölluð "villitrúarmenn". Það er nokkuð merkilegt að þessum mönnum sem finnast Danir hafa vanvirt sína trú skuli á móti vanvirða trú flestra sem lifa á okkar slóðum. Því þeim finnst sá er trúir á Jesú Krist; trúleysingi eða með villitrú, og þar af leiðandi réttdræpur. Er þá ekki tími fyrir kristna menn að hlaupa út á götu og brenna fána þeirra landa sem eru þeim ekki samstíga í trúmálum, fyrst þeir hafa móðgað alla kristna menn svona djarflega og það opinberlega? Nei, það er ekki gert því líf okkar og stjórnarfar, hér í hinum vestræna heimi er byggt á skynsemi og umburðarlyndi en ekki ofsaríki og samþykktri geðveiki.
Ég hef fengið mig fullsadda af þessari geðveiki og vill gera allt til að við Íslendingar eigum aldrei eftir að búa við slíkt ástand sem nær allar nágrannaþjóðir okkar þurfa að búa við.
Brodd-Helgi
5. March, 2008, 12:00
QUOTE (angellove @ Mar 5 2008, 9:19)
ég tók þessa færslu hjá konu sem er í Frjálslyndaflokknum..
Já já. Þetta er alveg kostulegt.
En pældu þá í því, að í Danmörku er einn flokkur sem gerir bara útá þetta. Það er ótrúlegt hvað Fólka flokkurinn er að segja og í kosningum undanfarið heur anti-islam verið í algjörum forgrunni hjá þeim til að fá atkvæði.
Þetta var td. haft eftir Piu á alþjóðavettvangi: ""The most important thing for the Danish People's Party is to maintain the Danish identity," Kjaersgaard, 60, told The Associated Press in an interview. "I am convinced that the Islamists want to sneak Sharia (Islamic law) through the back door, that they want to combat Western society and they want Islam to become the main religion," she said."
Td. hefur verið undanfarið alveg þvílíka ruglið útaf Asmaa Abdol-Hamid sem er varaþingmaður fyrir Rauð-Græna bandalagið.
Vegna hvers ? Jú, hún ætlaði að vera í hijab á þinginu. Það var nú allur glæpurinn.
Hún fann einmitt upp frasann: "Freedom of expression is Danish, stupidity is not"
Nú, það var ekkert öðruvísi að Pia og Fólka flokkurinn (og fleiri reyndar) var alveg að missa sig yfir þessu voðalega dæmi.
Hún sagði ma. að hún myndi henda Asmaa út ef hún segði eitt trúartengt orð á þingi "Så smider vi hende ud. Det gør vi altså" politiken.dk/politik/article433120.ece
En það nýjasta í dæminu er að unga stúlkan hefur dregið sig útúr pólitík í eitt ár að minsta kosti efir allt ruglið undanfarið í Danmörku og er hún einnig óánægð með þögn floks síns yfir vaxandi hatursáróðri gegn múslimum.
Asmaa Abdol-Hamid says she is taking a one-year break from her party duties - primarily due to the headscarf dispute
'I have to admit that my disappointment in the left wing hasn't waned,' she said. 'And while there's all this hubbub out there over Muslims, with one over-the-top suggestion after the other, the Red-Green Alliance has been disturbingly silent.'
Nú, meiga þingmenn ekki mótmæla? Hvar er tjáningafrelsið í því?
Brodd-Helgi
5. March, 2008, 13:44
QUOTE (toto @ Mar 4 2008, 20:04)
...sem málið snýst um af þeirra hálfu sem birtu myndirnar...
Það gæti reyndar alveg verið eitthvað á bak við upphaflegu birtingarnar sem ekki er gott að koma auga á við fyrstu sýn. Gæti alveg verið. Ekki hægt að útiloka það á þessum tímapunkti. (en eg fer ekkert útí það hér, alltof flókið mál)
Það er álitið alvarlegur glæpur í Afgan að móðga Spámanninn og vanhelga Kóranin.
En samt sko, þá segir nú í upprunalegu ap fréttinni að um 300 hafi mótmælt (ekki 5000) í mótmælum sem stúdentar boðuðu til. En hitt er miklu athyglisverðara, að mínu áliti, þetta með þingmennina, en upprunalega ap fréttin segir 200 þingmenn (ekki 300) hafi mótmælt harðlega í gær fyrir utan þinghúsið, hrópað slagorð og alles.
(þó hefði eg viljað sjá nánari greiningu og umfjöllun um þingmannafréttin, neita því ekki)
Bosshogg
5. March, 2008, 14:00
QUOTE (Brodd-Helgi @ Mar 4 2008, 19:14)
Eg dæmi ekki um hana. Þeirra var ákvörðunin. (annars finnst mér Sálmarnir einhver hin lélegast og vitlausasta bók sem ég hef litið í)
Í danska tilfellinu er veriðað tala um að fjölmiðlar leggja muslima í heild í einelti með endalausu bulli sínu ss. þessum tilgangslausu og barnalegu myndbirtingum og einfeldingslegum upphrópunum varðandi Islam og með því kynda undir fordóma og fáfræði eldi sem óskynsamt fólk fellur fyrir. Ekkert flóknara en það. Og reyndar er þetta ekki bundið við Danm. því þetta er vaxandi vandamál í Evrópu, td. Englandi. Áyrðarlaust bull fjölmiðla varðandi muslima og islam sem endar td í svona hegðun og eða þessari
En þegar menn hafa einu sinni fengið islamofóbíuflensuna þá er mjög erfitt að lækna hana og í raun er bara ein lækning sem virkar. Mikil og stöðug fræðsla. En sumir vilja ekki fræðast. Nenna þess ekki. Upphrópanir eru þægilegri.
Þér finnst Sálmar satans meira að segja gróf!
Þér má alveg finnast það og þér má alveg finnast teikningarnar af múhammeð ljótar, en þú berð enga virðingu fyrir málfrelsi. Það er augljóst.
Það þykir mér einkennilegt þar sem þú talar mikið um 9\11, ef heilinn á mér væri eins innréttaður og heilinn á þér þá gæti ég sagt að þú værir engöngu að þeim umræðum til að særa fjölskyldur þeirra sem létust í 9\11 svo ætti að líta á allt sem þú segðir út frá þeirri ályktun, og ef ég væri eins og Orville, biðja stjórnendur um að fjarlægja þessar árásir á fjölskyldur þeirra sem létust í turnunum og banna þér að tala um þær.
En nei, þér finnst málfrelsi fínt á meðan það er þitt umræðuefni, en sálmar satans og múhammeðsteikningarnar, þær eru nú svo ljótar og vitlausar að málfrelsi gildir ekki yfir þær.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.