Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Sá sem drap barnið er farinn úr landi
Málefnin.com > Skjalasafn > Ýmislegt - gamalt
Pages: 1, 2, 3, 4, 5
Spaði
Mikið getum við verið stolt af dómstólum okkar.

Gabbler
QUOTE (Spaði @ Feb 17 2008, 17:51) *
Mikið getum við verið stolt af dómstólum okkar.
Tja... hann er nú varla gufaður upp.

Annars fer svona þegar ekki er hægt að sanna sekt, eða áttu dómstólar að dæma hann í endalaust farbann?
callahan
Er hann ekki saklaus uns dómstólar hafa sannað sekt hans? Voru nægileg sönnunargögn til að halda honum í farbanni? Og ef hann skyldi svo reynast saklaus eða ekki tilefni til ákæru, hvað þá?

Og hefði manninum verið vært hér á landi á meðan? Lögreglan fór m.a.s fram á að honum yrði haldið í gæsluvarðhaldi á grundvelli öryggis mannsins þar sem hún taldi að það yrði hugsanlega ráðist á manninn eða m.ö.o. rasistafélagið í Reykjanesbæ stóð örugglega fyrir utan með brennandi kross í lökunum sínum tilbúnir með reipið.
Árvakur Lýðsson

Það er almennt alitið að rannsókn málsins hafi verið tómt klúður frá upphafi. Pólverjarnir hafi fengið tíma og næði til að samræma framburð sinn þannig að þetta er meira og minna dómsyfirvöldum að kenna hvernig komið er.
Fidel Castro.
Því miður hefur ekki ennþá tekist að sanna hver ber ábyrgð á þessu hörmulega slysi.

Hér er farið eftir lögum. Sama átti við þegar olíufurstarnir td. voru sýknaðir og aðilar í Baugsmálinu,
hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Réttlætið virðist ekki vera lögunum æðra.

Lögunum þarf að breyta ef að réttlæti götunnar sé tryggt.

Við verðum að vona að samskipti landa á milli eru þess eðlis, að ef þarf, að hægt sé að refsa sakamönnum
sem hafa yfirgefið þau lönd sem afbrot hafa verið framin í.

Það sem er athyglivert er hversu langan tíma tekur að fá DNA niðurstöður. Með að kynna sér á netinu,
þá eru stofnanir í BNA sem virðast getað skilað DNA niðurstöðum úr blóðsýnishorni, á einum degi.
Þá er um einfalda rannsókn að ræða. Þreföld til fimmföld rannsókn eru yfirleitt gerðar, og þá tekur það jafn marga
daga og fjöldi prófanana. Þetta er í tilfelli flýtirannsókna sem eitthvað meira er borgað fyrir.

Þessar stofnanir vinna jöfnum höndum fyrir yfirvöld í sakamálum sem og almenning td í faðernismálum.

Leon
Ef maðurinn á bílinn sem var ekið á barnið og bílnum ekki stolið, þá hlýtur hann annað hvort að hafa ekið sjálfur eða vita hverjum hann lánaði bílinn.
Victor Laszlo
Manndráp með afslætti?

Er ekki málið að krefjast framsals sýni rannsókn fram á slíkt, ellegar slíta stjórnmálasambandi við þetta land?
infelám
Með því að fara úr landi sýnist mér hann undirstrika að hann sé bullandi sekur.
Adidas
QUOTE (infelám @ Feb 17 2008, 18:21) *

algjörlega sammála þessu.

en væntanlega segja aðrir að hann sé að flýja rasisman sem er víst til í reykjanesbæ.

pólland framselur ekki þegna sína
skilst að það sé í lögum hjá þeim
callahan
QUOTE (infelám @ Feb 17 2008, 18:21) *
Með því að fara úr landi sýnist mér hann undirstrika að hann sé bullandi sekur.

Jamm, það gefur sterkar líkur en þess þarf ekki að vera ef við setjum okkur aðeins í spor hans. Hann er tekinn af lífi í fjölmiðlum með myndbirtingu t.d., hann hefur misst vinnuna út á þetta mál, heilt bæjarfélag sem hann býr í vill helst hengja hann í næsta ljósastaur og hann þarf að bíða í 4-6 vikur í þessu andrúmslofti haturs. Myndi maður sjálfur höndla þetta?

Ég tel þó sterkar líkur á sekt hans en það kemur ekki í ljós fyrr en eftir DNA-rannsóknina.
IceCat
QUOTE (callahan @ Feb 17 2008, 18:29) *

Ef ég væri hann, hvort sem ég væri sek eða ekki þá myndi ég forða mér um leið og ég gæti því ég væri mjög hrædd um öryggi mitt hér á landi.
Victor Laszlo
Ég ætla að skella mér út til Póllands, drepa einn fjögurra ára strák og hendast svo aftur heim með hreina samvisku af því að öryggi mitt skiptir mestu.

Ég skrifaði þessa setningu með aðeins einu 'ég'.

Djöfulsins bull!!!
Leon
QUOTE (callahan @ Feb 17 2008, 18:29) *
Jamm, það gefur sterkar líkur en þess þarf ekki að vera ef við setjum okkur aðeins í spor hans. Hann er tekinn af lífi í fjölmiðlum með myndbirtingu t.d., hann hefur misst vinnuna út á þetta mál, heilt bæjarfélag sem hann býr í vill helst hengja hann í næsta ljósastaur og hann þarf að bíða í 4-6 vikur í þessu andrúmslofti haturs. Myndi maður sjálfur höndla þetta?

Ég tel þó sterkar líkur á sekt hans en það kemur ekki í ljós fyrr en eftir DNA-rannsóknina.

Er ekki DNA rannsóknin bara að sanna að þetta hafi verið hans bíll? Ekki geta þeir sagt til um hver keyrði bílinn?
Victor Laszlo
Annað hvort er skíthællinn sekur eða saklaus. Sé hann sekur þorði hann ekki að taka út sína refsingu. Sé hann saklaus þorði hann ekki að sanna sakleysi sitt. Hitt verður ekki efast um, að maðurinn er hreinræktaður skíthæll.

Fokkins meðvirkni!!!

Fjögurra ára drengur er látinn!!!
callahan
QUOTE (Leon @ Feb 17 2008, 18:35) *
Er ekki DNA rannsóknin bara að sanna að þetta hafi verið hans bíll? Ekki geta þeir sagt til um hver keyrði bílinn?

Minnir að það hafi örugglega verið bara bíllinn. Spurning þó hvort það hafi fundist eitthvað inn í bílnum til skoðunar, hver veit?
Gabbler
QUOTE (Victor Laszlo @ Feb 17 2008, 19:36) *
Annað hvort er skíthællinn sekur eða saklaus. Sé hann sekur þorði hann ekki að taka út sína refsingu. Sé hann saklaus þorði hann ekki að sanna sakleysi sitt. Hitt verður ekki efast um, að maðurinn er hreinræktaður skíthæll.

Fokkins meðvirkni!!!

Fjögurra ára drengur er látinn!!!
Róaðu þig nú aðeins niður, það eru lög og reglur í landinu sem við verðum að fara eftir.

Ef það er hefnd sem þú ert að leita að þá mæli ég með því að þú gangir í ÍFÍ eða hvað þau nú heita þessi samtök.
Victor Laszlo
QUOTE (Gabbler @ Feb 17 2008, 18:42) *
Róaðu þig nú aðeins niður, það eru lög og reglur í landinu sem við verðum að fara eftir.

Ef það er hefnd sem þú ert að leita að þá mæli ég með því að þú gangir í ÍFÍ eða hvað þau nú heita þessi samtök.

Ég róa mig ekki rassgat niður þegar meðvirkni með glæpamönnum er um að ræða.

Og ekki dirfast að minnast á mig og þetta hvíta rusl í sömu setningu.

Eintómur strámaður hjá þér. Þú ættir að vita sitt hvað um þá.
Gabbler
QUOTE (Victor Laszlo @ Feb 17 2008, 19:45) *
Ég róa mig ekki rassgat niður þegar meðvirkni með glæpamönnum er um að ræða.

Og ekki dirfast að minnast á mig og þetta hvíta rusl í sömu setningu.

Eintómur strámaður hjá þér. Þú ættir að vita sitt hvað um þá.
Meðvirkni með glæpamönnum??? Hvað andskotans bull er þetta maður?

Ef lögreglunni tekst ekki að sanna að maðurinn er sekur þá er hann saklaus, þannig er það bara. Þetta er hornsteinninn í okkar réttarkerfi. Hvað er það eiginlega sem þú vilt að dómstólar geri?

Nei ég er nú ekki sammála þér í því að þetta sé strámaður, ég var einungis að skjóta á þessi læti í þér því mér finnst eins og þú sért að leita að hefnd frekar en réttlæti.
Victor Laszlo
QUOTE (Gabbler @ Feb 17 2008, 18:49) *
Meðvirkni með glæpamönnum??? Hvað andskotans bull er þetta maður?

Ef lögreglunni tekst ekki að sanna að maðurinn er sekur þá er hann saklaus, þannig er það bara. Þetta er hornsteinninn í okkar réttarkerfi. Hvað er það eiginlega sem þú vilt að dómstólar geri?

Nei ég er nú ekki sammála þér í því að þetta sé strámaður, ég var einungis að skjóta á þessi læti í þér því mér finnst eins og þú sért að leita að hefnd frekar en réttlæti.

Þungamiðja málsins er strokin úr landi. Auðvitað er skíthællinn glæpamaður, annað hvort fyrir að hindra framgang réttvísinnar, eða fyrir að drepa fjögurra ára gamlan dreng.

Hlífðu mér svo við ályktunargetu þinni.
Gabbler
Hvernig er með framsalssamninga á milli Póllands og Íslands, verða þeir ekki að senda hann hingað ef hann verður dæmdur sekur fyrir manndráp?

QUOTE (Victor Laszlo @ Feb 17 2008, 19:51) *
Þungamiðja málsins er strokin úr landi. Auðvitað er skíthællinn glæpamaður, annað hvort fyrir að hindra framgang réttvísinnar, eða fyrir að drepa fjögurra ára gamlan dreng.

Hlífðu mér svo við ályktunargetu þinni.
Ég skal hlífa þér við ályktunargetu minni, ég á auðvitað ekki séns í ályktunarsnilling eins og þig.
Járnkarlinn
QUOTE (Gabbler @ Feb 17 2008, 18:55) *
Hvernig er með framsalssamninga á milli Póllands og Íslands, verða þeir ekki að senda hann hingað ef hann verður dæmdur sekur fyrir manndráp?

Nei, framsalið snýr eingöngu að því að Pólverjar skuldbinda sig til að framselja íslenskan ríkisborgara til Íslands ef þess er krafist, og visa versa.
Pólverjar framselja ekki sína ríkisborgara.

Af þessum sökum var afnám farbannsins ákvörðun um að viðkomandi myndi ekki þurfa að sæta refsingu á Íslandi, ef hann væri sekur.
Gabbler
QUOTE (Járnkarlinn @ Feb 17 2008, 19:59) *
Nei, framsalið snýr eingöngu að því að Pólverjar skuldbinda sig til að framselja íslenskan ríkisborgara til Íslands ef þess er krafist, og visa versa.
Pólverjar framselja ekki sína ríkisborgara.

Af þessum sökum var afnám farbannsins ákvörðun um að viðkomandi myndi ekki þurfa að sæta refsingu á Íslandi, ef hann væri sekur.
Ok.

Miðað við þetta þá finnst mér mjög undarlegt að þetta mál hafi ekki verið keyrt í gegn með miklum látum. Ætli hann hefði ekki fengið 3-6 mánaða fangelsi ef hann hefði verið fundinn sekur. Ég veit ekki hvernig hann hugsar, en ef ég væri hann þá tæki ég út mína refsingu fyrir þennan glæp.

Þetta er virkilega sorglegt mál.
infelám
Ég man eftir tveimur svona málum í Danmörku fyrir stuttu síðan, að
keyrt var á vegfarendur sem létust og stungið af frá vettvangi.
En skömmu síðar yfirbugaði samviskan þessa aðila og þeir
gáfu sig fram.
Mér er spurn, hverskonar lið er þetta sem getur lifað með
svona?
rimryts
Alltaf kemur útlendingadekrið betur og betur í ljós.

Hér er um að ræða einstakling sem allt bendir til að sé sekur. Meðal annars fundust sams konar trefjar á bílnum hans og í fötum barnsins. Það eru aðeins örfáir mánuðir síðan atvikið átti sér stað og lögreglan hafði ekki lokið rannsókn málsins.

En útlendingadekrið er samt við sig og þöggunarsinnar fagna að sakborningurinn sé nú laus. Hagsmunir fórnarlambanna eru enn og aftur fyrir borð bornir af hálfu þöggunarsinna. Þegar Íslendingar hafa sloppið frá glæp, sem allt bendir til að þeir hafi framið, hefur allt annað hljóð komið úr strokknum.
Gabbler
QUOTE (rimryts @ Feb 17 2008, 20:23) *

Þú ert nú meiri andskotans skíthausinn.

Getur þú bent mér á einn mann sem fagnar því að þessi maður sé laus?

Andskoti eru þessar lygar þínar farnar að fara í taugarnar á mér.
Fidel Castro.
QUOTE (Victor Laszlo @ Feb 17 2008, 18:51) *
Þungamiðja málsins er strokin úr landi. Auðvitað er skíthællinn glæpamaður, annað hvort fyrir að hindra framgang réttvísinnar, eða fyrir að drepa fjögurra ára gamlan dreng.

Hlífðu mér svo við ályktunargetu þinni.

Hvort sem þú kallar það meðvirkni eða ekki, þá er hann ekki strokinn, heldur var honum frjálst að yfirgefa landið
ef honum sýndist svo.

Því er nú ver og miður.

Ég ítreka að mér þykir undarlegt hversu langan tíma það tekur að gera þessar DNA rannsóknir.
Í tilfellum sem þessum, verður að hraða allri vinnu við rannsókn málsins, hvað sem það kostar,
svo að staða sem þessi komi ekki upp.

Fowl
QUOTE (rimryts @ Feb 17 2008, 19:23) *
Alltaf kemur útlendingadekrið betur og betur í ljós.

Hér er um að ræða einstakling sem allt bendir til að sé sekur. Meðal annars fundust sams konar trefjar á bílnum hans og í fötum barnsins. Það eru aðeins örfáir mánuðir síðan atvikið átti sér stað og lögreglan hafði ekki lokið rannsókn málsins.

En útlendingadekrið er samt við sig og þöggunarsinnar fagna að sakborningurinn sé nú laus. Hagsmunir fórnarlambanna eru enn og aftur fyrir borð bornir af hálfu þöggunarsinna. Þegar Íslendingar hafa sloppið frá glæp, sem allt bendir til að þeir hafi framið, hefur allt annað hljóð komið úr strokknum.

Rimryts!

Hér á landi er enn farið eftir lögum og rétti, hvað sem þú og brúnstakkarnir vinir þínir viljið.

Sekt mannsins er ekki sönnuð. Hér eru menn ennþá saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð, líka útlendingar.

Greinilega var ekki nægilega mikið af sönnunargögnum til þess að dæma manninn eða halda honum. Því fór sem fór.

Þarna breytir nákvæmlega engu hvort að maðurinn var Íslendingur eða erlendur. Sekt hans var ekki sönnuð. Punktur.
golfari
Mig minnir að þetta sé fimmta tilfellið á stuttum tíma sem farbannið
hefur verið virt að vettugi. Greinilega eitthvað að, grútmáttlaust.
Fowl
QUOTE (golfari @ Feb 17 2008, 19:40) *
Mig minnir að þetta sé fimmta tilfellið á stuttum tíma sem farbannið
hefur verið virt að vettugi.
Greinilega eitthvað að, grútmáttlaust.

Ekki rétt.

Maðurinn var leystur úr farbanni í síðustu viku og það var ekki framlengt.

Honum var því frjálst að fara úr landi.
Hildigunnur
QUOTE (Fowl @ Feb 17 2008, 19:33) *
Rimryts!

Hér á landi er enn farið eftir lögum og rétti, hvað sem þú og brúnstakkarnir vinir þínir viljið.

Sekt mannsins er ekki sönnuð. Hér eru menn ennþá saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð, líka útlendingar.

Greinilega var ekki nægilega mikið af sönnunargögnum til þess að dæma manninn eða halda honum. Því fór sem fór.

Þarna breytir nákvæmlega engu hvort að maðurinn var Íslendingur eða erlendur. Sekt hans var ekki sönnuð. Punktur.

Rimryts vill líklega að við séum ekki að þagga niður.................að það eigi að gilda önnur lög fyrir útlendinga en íslendinga.

Ég er aðeins að benda á að þöggunarsinnar virðast mjög sáttir við að sakborningurinn sé sloppinn meðan aðrir eru það ekki.

Þetta skýtur skökku við því að yfirleitt er almenn óánægja þegar Íslendingur, sem yfirgnæfandi líkur eru á að sé sekur, sleppur.

Ég sé því ekki betur en að skýringin á þessu misræmi sé útlendingadekur.

QUOTE (Hildigunnur @ Feb 17 2008, 19:56) *
Rimryts vill líklega að við séum ekki að þagga niður.................að það eigi að gilda önnur lög fyrir útlendinga en íslendinga.

Óskaplegt rugl er þetta alltaf í þér menneskja. Er ekki heil hugsum í þínum kolli? Ég er að benda á misræmið á milli meðferðar þöggunarsinna á Íselndingum ig innflytjendum og þú talar um að ég segi að það eigi að gilda önnur lög um Íslendinga en innflytjendur. Hvert innleggið á fætur öðru frá þér eru hrein öfugmæli.

QUOTE (Gabbler @ Feb 17 2008, 19:26) *
Þú ert nú meiri andskotans skíthausinn.

Getur þú bent mér á einn mann sem fagnar því að þessi maður sé laus?

Andskoti eru þessar lygar þínar farnar að fara í taugarnar á mér.

Alltaf finnur maður vel af viðbrögðum Gabblers þegar maður hittir naglann á höfuðið .
Hildigunnur
QUOTE (rimryts @ Feb 17 2008, 20:02) *
Óskaplegt rugl er þetta alltaf í þér menneskja. Er ekki heil hugsum í þínum kolli? Ég er að benda á misræmið á milli meðferðar þöggunarsinna á Íselndingum ig innflytjendum og þú talar um að ég segi að það eigi að gilda önnur lög um Íslendinga en innflytjendur. Hvert innleggið á fætur öðru frá þér eru hrein öfugmæli.

Ég var nú einfaldlega að benda á að í mínum huga er það ekki útlendingadekur að dæma útlendinga á sömu forsendum og íslendinga.
Mér nefnilega sýndist þú tala um að það væri útlendingadekur að maðurinn væri ekki lengur í farbanni.
Hafi ég misskilið þig og ef ég er að mis-túlka þínar skoðanir þá biðst ég afsökunar.
Ég vil síst af öllu gera fólki upp skoðanir sem það hefur ekki. rolleyes.gif
rimryts
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 17 2008, 20:11) *
Ég var nú einfaldlega að benda á að í mínum huga er það ekki útlendingadekur að dæma útlendinga á sömu forsendum og íslendinga.
Mér nefnilega sýndist þú tala um að það væri útlendingadekur að maðurinn væri ekki lengur í farbanni.
Hafi ég misskilið þig og ef ég er að mis-túlka þínar skoðanir þá biðst ég afsökunar.
Ég vil síst af öllu gera fólki upp skoðanir sem það hefur ekki. rolleyes.gif

Ég var ekki að tala um dóminn heldur aðeins viðbrögð málverja og hvernig viðbrögð þöggunarsinna skera sig úr á þann hátt að þau benda til útlendingadekurs.
Tjalli
Hver væri staðan ef að þessi maður "HEFÐI" verið
Íslendingur ??? sæti hann ekki inni ennþá ??
Þetta hlýtur að spyrjast út, hversu auðvelt er fyrir
aðila að fremja glæpi hér á Íslandi, og komast upp með
það... hinn erlendi glæpalýður hlær dátt !!!!
Langaði samt að segja þessum aðilum sem synjuðu
framlengingu farbannsins yfir þessu pólska óféti:
FARIÐ TIL HELVÍTIS.
Leon
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 17 2008, 21:11) *
Ég var nú einfaldlega að benda á að í mínum huga er það ekki útlendingadekur að dæma útlendinga á sömu forsendum og íslendinga.
Mér nefnilega sýndist þú tala um að það væri útlendingadekur að maðurinn væri ekki lengur í farbanni.
Hafi ég misskilið þig og ef ég er að mis-túlka þínar skoðanir þá biðst ég afsökunar.
Ég vil síst af öllu gera fólki upp skoðanir sem það hefur ekki. rolleyes.gif

Farbann hlýtur að vera sett á ef viðkomandi er talinn líklegur til að reyna að flýja dóm. Nú er það þannig að Íslendingur með alla sína vini og fjölskyldu á Íslandi hlýtur að vera mun ólíklegri til að flýja dóm en útlendingur með alla sína vini og fjölskyldu erlendis. Eins væri Íslendingur sem hefur verið búsettur erlendis og á mest af sínum vinum og fjölskyldu erlendis líklegri til að flýja dóm en útlendingur sem hefði verið búsettur á Íslandi í einhvern tíma og ætti mikið af sínum vinum og fjölskyldu á Íslandi. Þetta hlýtur að vera skoðað í hverju tilfelli fyrir sig. Í heildina mætti segja að útlendingur væri í flestum tilfellum líklegri til að flýja en Íslendingur og ætti því frekar að setja hann í farbann. Eins mætti segja að það ætti að setja alla í farbann svona til öryggis á meðan verið er að rannsaka mál þeirra.

Nú var þessu farbanni aflétt og kom í ljós að það hefði verið full ástæða til að halda því vegna þess að maðurinn flúði land og verður líklega ekki sóttur til saka hér eftir sama hvað kemur út úr þessari rannsókn. Hefur þú eitthvað að segja um það?
Gabbler
QUOTE (rimryts @ Feb 17 2008, 21:02) *
Alltaf finnur maður vel af viðbrögðum Gabblers þegar maður hittir naglann á höfuðið .
Kemur það þér á óvart að þú skulir fá viðbrögð þegar þú stundar það að ljúga uppá fólk?

Hvar hafa menn verið að fagna því að þessi maður sé laus?
Siggi Sóló
QUOTE (Spaði @ Feb 17 2008, 16:51) *
Mikið getum við verið stolt af dómstólum okkar.

Þú ert væntanlega að tala um þann sem legið hefur undir grun um að hafa orðið barninu að bana?

Eða hefur þú einhverjar nákvæmari upplýsingar sem lögregla og dómstólar hafa ekki aðgang að?
Landinn
Það að maðurinn sé farinn er skandall fyrir dómskerfið okkar. Voru ekki nægar vísbendingar í þessu máli til að framlengja farbannið þar til að dómur væri uppkveðinn? Við erum ekki að tala um varðhald heldur bara farbann sem á að tryggja að menn komast ekki undan réttvísinni. Þó svo við búum í landi þar sem enginn valdamaður þarf að axla ábyrgð á neinu finnst mér að dómararnir sem komust að þessari niðurstöðu ættu núna að sjá sóma sinn í að segja af sér embætti.
Gabbler
QUOTE (Landinn @ Feb 17 2008, 22:15) *

Ég vil nú heldur kenna seinagang lögreglunnar í rannsókn málsins um hvernig fór.
Hildigunnur
QUOTE (Leon @ Feb 17 2008, 20:25) *
Farbann hlýtur að vera sett á ef viðkomandi er talinn líklegur til að reyna að flýja dóm. Nú er það þannig að Íslendingur með alla sína vini og fjölskyldu á Íslandi hlýtur að vera mun ólíklegri til að flýja dóm en útlendingur með alla sína vini og fjölskyldu erlendis. Eins væri Íslendingur sem hefur verið búsettur erlendis og á mest af sínum vinum og fjölskyldu erlendis líklegri til að flýja dóm en útlendingur sem hefði verið búsettur á Íslandi í einhvern tíma og ætti mikið af sínum vinum og fjölskyldu á Íslandi. Þetta hlýtur að vera skoðað í hverju tilfelli fyrir sig. Í heildina mætti segja að útlendingur væri í flestum tilfellum líklegri til að flýja en Íslendingur og ætti því frekar að setja hann í farbann. Eins mætti segja að það ætti að setja alla í farbann svona til öryggis á meðan verið er að rannsaka mál þeirra.

Nú var þessu farbanni aflétt og kom í ljós að það hefði verið full ástæða til að halda því vegna þess að maðurinn flúði land og verður líklega ekki sóttur til saka hér eftir sama hvað kemur út úr þessari rannsókn. Hefur þú eitthvað að segja um það?

Hvaða merkingu leggur þú í hugtakið "að flýja" ?
Maðurinn er ekki lengur í farbanni og er þar með frjáls ferða sinna. Hann má því fara hvert sem hann vill og engin ástæða til að leggja sérstaka merkingu í það hvort hann fer norður aða suður eða bara niður.
Samkvæmt okkar lögum var greinilega ekki hægt að setja hann í lengra farbann.

Og í almáttugs bænum ekki leggja þá merkinu í orð mín að ég sé þess fullviss að maðurinn sé saklaus. Hann er samkvæmt því sem ég hef lesið og heyrt líklega sekur um að hafa orðið barninu að bana en það er bara ekki nóg að MÉR FINNIST ÞAÐ.
Við búum í réttarríki for crying out loud og það er grundvallaratriði að menn eru saklausir þangað til það sannast að þeir séu sekir. Alveg sama þó ég hafi einhverja tilfinningu fyrir málinu eða ekki.
Fidel Castro.
Auðvitað er gremja fólks skiljanleg. En afstaða mannsins er að sama skapi skiljanleg, miðað við ástand
mála hérlendis þessa stundina. Hvort sem hann er sekur eða saklaus, yrði honum væntalega ekki vært hér,
þar til málið verður dómtekið.

Gremjuna væri betra að taka út á stjórnvöldum með að þau geri eitthvað í að breyta lögunum,
og ekki síður lögregluyfirvöldum vegna seinagangs á rannsókn málsins, þ.a.s. ef hægt hefði verið
að hraða rannsókninni?

krókur annar
Mér skilst að Pólland og Ísland séu í einhversskonar samvinnu með þetta og ef Pólverjinn fái dóm hér á Íslandi þá skuldbindi Pólska stjórnin sig til að framfylgja dómnum í Póllandi. Og að þetta verki líka á hinn veginn.
Þannig að hann er ekkert sloppinn þó að hann hafi farið úr landi.
Gabbler
QUOTE (krókur annar @ Feb 17 2008, 22:20) *
Mér skilst að Pólland og Ísland séu í einhversskonar samvinnu með þetta og ef Pólverjinn fái dóm hér á Íslandi þá skuldbindi Pólska stjórnin sig til að framfylgja dómnum í Póllandi. Og að þetta verki líka á hinn veginn.
Þannig að hann er ekkert sloppinn þó að hann hafi farið úr landi.
Það er flott að heyra.

En hvar heyrðir þú þetta?
Siggi Sóló
QUOTE (krókur annar @ Feb 17 2008, 21:20) *
Mér skilst að Pólland og Ísland séu í einhversskonar samvinnu með þetta og ef Pólverjinn fái dóm hér á Íslandi þá skuldbindi Pólska stjórnin sig til að framfylgja dómnum í Póllandi. Og að þetta verki líka á hinn veginn.
Þannig að hann er ekkert sloppinn þó að hann hafi farið úr landi.

Þykir mjög líklegt að maðurinn muni mæta sínum örlögum ef hann verður fundinn sekur. Hins vegar skil ég ekki hvernig mikill fjöldi málverja getur verið viass um að maðurinn sé sekur. Ef það lægi klárt fyrir væri líklegast búið að dæma hann.
Hildigunnur
QUOTE (Siggi Sóló @ Feb 17 2008, 21:23) *
Þykir mjög líklegt að maðurinn muni mæta sínum örlögum ef hann verður fundinn sekur. Hins vegar skil ég ekki hvernig mikill fjöldi málverja getur verið viass um að maðurinn sé sekur. Ef það lægi klárt fyrir væri líklegast búið að dæma hann.

Málverjar eru svo ofurklárir kæri vinur. Við gætum bara lagt allt þetta kerfi niður og set það í hendur málverja ph34r.gif

Mann-vesalingurinn mun annars mæta örlögum sínum, hver sem þau eru. Ég vona að þau verði góð hjá honum einsog okkur öllum.

Andskotans hroki þetta er annars í fólki alltaf.
Mætti halda að þetta væri allt í þörf fyrir að fara í meðferð dry.gif
krókur annar
Ég viðurkenni það að ég veit ekki hvort Pólland sé í Interpool, alþjóðlegu lögreglusamtökunum, en Ísland er það.
Samkvæmt reglum Interpool skuldbinda þau lönd, sem eru innan Interpool, sig til annaðhvort að framselja dæmda menn eða láta þá taka dóm út í heimalandi sínu.

Ég er ekki með neinn link á þetta eða heimildir, þetta er gömul frétt.
Leon
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 17 2008, 22:19) *
Hvaða merkingu leggur þú í hugtakið "að flýja" ?
Maðurinn er ekki lengur í farbanni og er þar með frjáls ferða sinna. Hann má því fara hvert sem hann vill og engin ástæða til að leggja sérstaka merkingu í það hvort hann fer norður aða suður eða bara niður.
Samkvæmt okkar lögum var greinilega ekki hægt að setja hann í lengra farbann.

Það er rétt hjá þér að það er ekki hægt að segja á þessum tímapunkti að hann hafi flúið land. Líklega skrapp hann bara heim í frí og kemur til baka strax ef yfirvöld telja hann sekan og vilja rétta yfir honum. Eða hvað heldur þú?

Járnkarlinn
QUOTE (krókur annar @ Feb 17 2008, 21:30) *
Ég viðurkenni það að ég veit ekki hvort Pólland sé í Interpool, alþjóðlegu lögreglusamtökunum, en Ísland er það.
Samkvæmt reglum Interpool skuldbinda þau lönd, sem eru innan Interpool, sig til annaðhvort að framselja dæmda menn eða láta þá taka dóm út í heimalandi sínu.

Ég er ekki með neinn link á þetta eða heimildir, þetta er gömul frétt.

Lög um samvinnu lögregluembætta í Interpol eða Europol koma reglum um framsal eða afplánun ekkert við. Það eru mörg lönd í Interpol sem við höfum samvinnu við, en ekki með framsalssaminga. Fyrir utan þá staðreynd að þessi Pólverji hefur ekki verið dæmdur og verður það líklega ekki.
Fidel Castro.
QUOTE (Hildigunnur @ Feb 17 2008, 21:29) *
Málverjar eru svo ofurklárir kæri vinur. Við gætum bara lagt allt þetta kerfi niður og set það í hendur málverja ph34r.gif

Mann-vesalingurinn mun annars mæta örlögum sínum, hver sem þau eru. Ég vona að þau verði góð hjá honum einsog okkur öllum.

Andskotans hroki þetta er annars í fólki alltaf.
Mætti halda að þetta væri allt í þörf fyrir að fara í meðferð dry.gif

Jamm... nóg af beturvitum.

Held að Krókurinn hafi rétt fyrir sér með samninginn, og einhversstaðar var haft eftir Pólverjum hér
að ef hann er sekur, og dæmt yrði í Póllandi, þá yrði refsing töluvert harðari þar og að auki eru fangelsin mun
"óvistlegri" en gerist hérlendis.

Fowl
QUOTE (Tjalli @ Feb 17 2008, 20:24) *
Hver væri staðan ef að þessi maður "HEFÐI" verið
Íslendingur ??? sæti hann ekki inni ennþá ??

Þetta hlýtur að spyrjast út, hversu auðvelt er fyrir
aðila að fremja glæpi hér á Íslandi, og komast upp með
það... hinn erlendi glæpalýður hlær dátt !!!!

Nei, hann sæti alls ekkert inni ennþá ef hann væri Íslendingur.

Hérlendis hafa ekki tíðkast svo langir gæsluvarðhaldsdómar. Á meðan ákæruvaldið teldi ekki nægilegar sannanir til ákæru, eins og var í þessu máli, myndi Íslendingurinn ganga laus, rétt eins og Pólverjinn gekk laus í þessu máli.

Þannig að allir eru jafnir fyrir lögunum og ekkert nema rugl að segja að það sé eitthvað auðveldara fyrir útlendinga en Íslendinga að brjóta af sér hér.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2010 Invision Power Services, Inc.