falcon1
21. February, 2008, 11:09
QUOTE (Hawk12 @ Feb 21 2008, 0:11)

Hvað er RAW snið?
Þegar þú tekur mynd í RAW sniði að þá geturðu breytt henni á allavega án þess að snerta upprunalegu RAW skránna. Það sem gerist er að þegar þú breytir einhverju að þá fær RAW skráin viðhengi (í raun textaskrá) sem segir RAW convertinum hvernig á að birta skrána.
Á móti, þegar þú tekur mynd í JPEG að þá þarftu að afrita orginalinn þannig að þú getir breytt myndinni án þess að snerta upprunalegu myndina, þetta þýðir að myndin tekur nú tvöfalt pláss (2 eintök) á disknum.
Viðhengda skráin við RAW myndina er yfirleitt aðeins nokkur kb, og sparar þar með pláss á harða disknum auk þess að upprunalega myndin er alltaf örugg og nægir að eyða þessari viðhengdu skrá til þess að afmá allar breytingar á upprunalegu myndinni.
btw. ég versla allt mitt ljósmyndadót á www.adorama.com - þeir hafa ekki klikkað hingað til.