QUOTE (drCronex @ Feb 29 2008, 8:01)

Ég veit ekkert meir um það en þú. Það er allt til í dæminu. Við erum jú að ræða karaktera sem senda tugþúsundir heilaþveginna manna til annara landa til að drepa aðra og sífellt stærra hlutfall af þeim sem þeir drepa eru óbreyttir borgarar, slátrað í tugþúsundavís og lítið er gert úr því í áróðurspressunni, jafnvel talað um fórnarlömbin sem glæpamenn. Morðingjar eru með svona sækó mentalitet og þeir eru í efstu stöðum.
En það sem ég veit er að ég var 300m frá syðri turni þegar hann byrjaði að hrynja og það voru engar demo sprengjur sem heyrðust. En það heyrðist fullt af brothljóðum. Það sem meira er, er að ég var með einum of gott útsýni, allt of nálægt og horfði á allt draslið og þar til turninn fór af stað og hann hrundi bara. Ég horfði á svæðið á hliðinni þar sem hann gaf sig og það gaf sig vegna skemmda og elda. Hann gaf sig þar sem burðurinn var veikastur orðinn af flugvélaárekstrinum og eldurinn fékk að malla nægilega lengi. Fyrstu brothljóðin voru þegar gólf í eldhafinu hrundi og eldurinn varð tveggja hæða hár. Þá sagði ég við konuna mína "Oh shit, thats not good" því ég vissi að þetta væri slæmt fyrir burðinn í byggingunni. Þeir sem ekki horfðu beint inn á það svæðið hefðu kannski haldið að þeir heyrðu sprengingar, en það var bara gólf að hrynja. Augnablikum eftir að gólfhlutinn hrundi fór allt af stað. Ég heyrði og sá og þarf ekkert neina stjörnufræðinga sem sitja fyrir framan tölvuna og sjónvarpið í UTAH þann daginn að segja mér annað. Ætli það sé ekki þess vegna sem ég þráast við þetta, kann illa við dysinformation ef ég veit betur. Sprengjublaðrið gerir frekari rannsóknir á málinu ómögulegar og allar þessar myndir sem ég hef horft á um sprengjumálið eru feik.
Þá vaknar spurning spurninganna: Hver stendur á bak við þennan lygaáróður með þessar sprengjur? Og væri það í fyrsta skipti í sögunni sem logið er að nytsömum sakleysingjum til að dreifa umræðunni og gera hana tortryggilega?
Ég hef ákveðnar skoðanir um atburðina í London 07.07 og veit að það stendur ekki steinn yfir steini um hvernig atburðarásin átti að hafa sér stað, hver er þín skoðun á 07.07?
Rússneska leyniþjónustan stóð fyrir megninu af hryðjuverkunum í Rússlandi og kenndu svo Tétjenum um allt saman til að fá stuðning almennings og alþjóðasamfélagssins til þess að ráðast á þá, ég tel að 9/11 og 7/7 hafi verið gert á sama hátt til að réttlæta þær ólöglegu aðgerðir sem fylgdu í kjölfarið.
Hvort það hefur verið notað sprengiefni eða eitthvað annað 9/11, þá er ekki möguleiki að byggingarnar hafi hrunið bara vegna elda og er WTC 7 lýsandi dæmi um að svo sé ekki.
Hverja telur þú að hafi staðið á bak við 9/11 og 7/7 ?