QUOTE(dv.is 23.01.2008 12:45:00)
Varað við vodkatúrtöppum
Foreldrar í Grafarvogi hafa undanfarið verið varaðir við því að unglingar hafi tekið upp á því að bleyta túrtappa í vodka og brúka þá til þess að komast í vímu. Þær upplýsingar fengust hjá Landlæknisembættinu að slíkt gæti verið lífshættulegt heilsu unglinganna.
Verslunarfólk hefur orðið vart við að unglingspiltar séu farnir að kaupa grunsamlega mikið af túrtöppum.

Þess má geta, að í Hagkaup Kringlunni fyrr í dag rak ég augun í konu sem var að kaupa grunsamlega mikið af skóáburði. Hún keypti líka 24 rúllur af salernispappír, þó að matarinnkaup hennar bentu til þess að hún byggi ein. Ég tók niður númerið á bílnum hennar. Finnst ykkur að ég ætti að hringja inn nafnlausa ábendingu?