Hvað er í gangi, er ekki kominn tími til að einhver sé látinn fara hjá Þjóðskránni einhver er að níðast á réttindum Guðmundar Bjarnasonar. Ég hreinlega skil þetta ekki. Og meðan ég man, eru fjölmiðlar ekki að bregðast, eiga þeir ekki að fylgja þessu eftir og láta þá sem bera ábirgð á þeim sem eru að níðast á Guðmundir svara.
Ég á ekki orð. Aumingja maðurinn er búinn að vera ekki til í marga mánuði. Maður sem er fæddur og uppalinn á Íslandi, kominn á fullorðins ár og svo bara þurrkaður út vegna þess að hann lagðist í ferðalög á efri árum. Þetta er að verða efni í flotta bíómynd. Ég ætla að fá að leika embættismanninn, velja fólk til að níðast á og einelta, svara ekki bréfum og hunsa allar stjórnsýslureglur og komast upp með það, verða einskonar einvaldur á minni litlu skrifstofu. Tími til kominn að reka einhvern eða þá bara keyra beint á hæli eða eitthvað.
Fréttablaðið í dag:
félagsmál Guðmundur Bjarnason hefur ekki enn fengið svar frá Þjóðskrá vegna endurskoðunar á þeirri ákvörðun að færa lögheimili hans til Kína.
Fréttablaðið sagði frá því í síðustu viku að Guðmundur fær ekki greiddar bætur og er ekki sjúkratryggður hér á landi. Hann hefur því verið tekjulaus frá því í febrúar, en fjórir mánuðir eru frá því Þjóðskrá var upphaflega beðin um að endurskoða ákvörðun sína.
Í samtali við vísi.is í síðustu viku sagði Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri Þjóðskrár, að Guðmundi yrði svarað fyrir 16. nóvember. Það svar hefur enn ekki borist. - þeb