Help - Search - Members - Calendar
Full Version: Loose Change: Final Cut
Málefnin.com > Málefnaflokkar > Ýmislegt > Umræður um 9/11
Brodd-Helgi
video.google.com Loose Change: Final Cut
2 hr 9 min 12 sec - Nov 11, 2007
Brodd-Helgi
Ókey. Ég veit ekki alveg af hvaða orsökum, en greinilega er myndin ekki til staðar á google eins og er. Hvort að aðstandendur myndarinnar vilji ekki að hún fari strax í almennt ókeypis áhorf veit ég ekki. Best að sjá aðeins til hvað skeður.

En ég horfði á myndina í gær. Fyrri mynd frá sömu aðilum er auðvitað ein þekktasta og útbreyddasta mynd sem gerð hefur verið um 9/11 og þess vegna bíða margir eftirvæntingafullir eftir þessari.

Það eru dáldið önnur tök notuð í þessari mynd en fyrri. Í stuttu máli etv meira dregið fram óhagganlegar staðreyndir en minna um spekúleringar. Einnig fjöldi viðtala við fólk sem upplifði atburðinn.

Einnig má etv. segja að höfðað sé til fólks sem lítið hefur kynnt sér 9/11 og veit ekki að það stendur ekki steinn yfir steini í opinbera ævintýrinu. Þe. tilgangurin að vekja fólk upp sem hefur sofið. Þeir sem hafa kynnt sér málið af einhverju ráði, kemur líklega fátt á óvart þarna efnislega.

Myndin er mjög vel gerð og uppbyggð að flestu leiti og nær að halda fullri athygli áhorfenda meira og minna út þessa 2 tíma. það er mikilvægt.

En til að koma með einhverjar aðfinnslur, þá að mínu áliti, hallast hún stundum full mikið að LIHOP. Einnig finnst mér Pentagon hlutinn ekki nógu vel útfærður en að vísu er það sök eins manns sem hefur verið ruglandi í strákunum í þá átt að betra sé að samþykkja flugvélarhluta ævintýrsins...af því bara ! Það voru mistök hjá þeim að gera þennan einstakling að ráðgjafa sínum í Pentagonmálinu. Þeir leysa það þannig að þeir fara 50/50... segja að fólk skiptist í tvo hluta í afstöðu sinni.
skortur
Auðvitað veit maður að ævintýrið er uppspuni frá
rótum, en samt sem áður verður fróðlegt að sjá myndina,
þegar þess verður kostur
JFK var geimvera
http://stage6.divx.com/user/foff/video/184...911---Final-Cut

Her er hun. Betri en 2nd edition. Serstaklega merkileg tengsl ISI i Pakistan vid 911

ps. myndin byrjar eftir 2 min
Brodd-Helgi
QUOTE(skortur @ Nov 13 2007, 20:18) [snapback]1216241[/snapback]
Auðvitað veit maður að ævintýrið er uppspuni frá
rótum, en samt sem áður verður fróðlegt að sjá myndina,
þegar þess verður kostur

Já. Maður verður að hafa í huga að myndin er ætluð þeim sem ekkert/lítið hafa kynnt sér 9/11.


QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 14 2007, 2:55) [snapback]1216421[/snapback]
http://stage6.divx.com/user/foff/video/184...911---Final-Cut

Her er hun. Betri en 2nd edition. Serstaklega merkileg tengsl ISI i Pakistan vid 911

ps. myndin byrjar eftir 2 min

Ok. Þarna er hún (allavega í bili)

ISI tengslunum eru gerð góð skil þarna. Mikilvægt.

Einnig er ég ánægður með hvernig war geimin 9/11 eru tekin fyrir.
Gabbler
Virðist vera sama sorpið og hinar tvær.

I would be the first to admit that our film definitely contained errors, it still does contain some dubious claims, and it does come to some conclusions that are not 100% backed up by the facts.
Dylan Avery um Loose Change 2nd edition.
Brodd-Helgi
Eins og með war geimin... hverjar eru líkurnar að sama dag og massífar heræfingar fara fram, og nb. sem allavega sð sumu leiti innihalda "terrorista árás" og ma. innifela að flugvélar klessi á bygginar, að nákvæmlega sama dag... þá skeður nánast það sama og "æfingarnar" ganga út á ?? HALLÓ !! VAKNA þarna úti !!!

En talandi um inside job... þá var ég að horfa á þessa mynd í gær video.google.com/videoplay?docid=7003925131815306453&hl=en Hún fjallar um 7/7 og ég hef voða lítið kynnt mér hann.... en ég verð að segja að það sem kemur fram í myndinni er svo sannarlega food for thought.
Brodd-Helgi
Nú, í mjög stuttu máli er vitað að geimin fólu eftirfarandi í sér (eitt geimið að vísu áætlað 12):

QUOTE

Multiple War Games Were Being Conducted on 9/11/01

Several different war game exercises were in play on the day of the attack. The limited public information on these exercises shows that they simulated the following events:

Hijackings
Attacks on buildings using aircraft as missiles
Attacks using toxic or infectious substances

Operation Northern Vigilance
Conducted from September 9-11, this exercise redeployed jets that normally patrolled the northeast sector to northern Canada and Alaska. It echoed a Russian exercise scheduled from September 10-14 in which long-range bombers were dispatched to their northern territory.

The Vigilant Warrior and Vigilant Guardian Training Exercises
These were apparently a pair of war games (attacker versus defender) which involved live-fly simulations of hijackings. Both this pair of exercises and Northern Vigilance probably involved the use of "injects" into screens to simulate aircraft. These games apparently resembled the actual attack sufficiently to confuse military officers, as suggested by the following transcript.

FAA Boston Center contacts NEADS, saying, "We need someone to scramble some F-16s or something up there, help us out."

“Is this real world or an exercise?” asked the military liaison officer?

"No, this is not an exercise," responded the FAA official. "Not a test." 2

The only known source for the exercise named Vigilant Warrior is Richard Clarke's book, Against All Enemies. It is possible that the exercise referred to by Clarke was actually Amalgam Warrior, a NORAD field training exercise involving life-fly air interception, held twice yearly, in the spring on the East Coast and the fall on the East Coast.

The Global Guardian Exercise
On the morning of the attack, a large-scale military training exercise called Global Guardian was "in full swing." Global Guardian is an annual exercise involving Stratcom (the US Strategic Command), the US Space Command, and NORAD.

There is evidence that the date of the 2001 Global Guardian exercise was changed to correspond with the the terrorist attack. NBC News military analyst William Arkin, in his book Code Names, gives the date of the exercise as October 22-31, 2001. Also, a military newspaper, the Space Observer, reported in an article dated 3/23/01 that the exercise was scheduled for October of that year.

Stratcon directed the exercise, which included all the US strategic forces, from Offutt Air Force Base.

The National Reconnaissance Office Plane Crash Drill
The National Reconnaissance Office (NRO) "provides our nation its eyes and ears in space." It operates a system of reconnaissance satellites to provide real-time monitoring of objects in the skies. On 9/11/01 the NRO headquarters in Chantilly, VA, were evacuated as part of a "plane into building" drill. The scenario involved a small corporate jet crashing into one of the campus' four towers.

The Timely Alert II Terrorism Drill
On the morning of the attack, personnel at the Fort Monmouth Army base in New Jersey were preparing to hold a drill, for the days of September 11 and 12, to test preparedness to respond to a chemical attack. The exercise was to involve law enforcement and emergency responders including the New Jersey State Police and Fort Monmouth Fire Department.
Just before the exercise was to commence, reports of the attack in New York City surfaced and "real world events overtook the exercise," in the words of Army spokesman Timothy L. Rider.


FEMA training manual cover
The Tripod II Biowarfare Exercise
FEMA had deployed to New York City on September 10 to set up a command post at Pier 29, supposedly in preparation for a biowarfare exercise scheduled for September 12.

Hverjar eru líkurnar að ævingaratburðirnir hafi orðið raunverulegir akkúrat þennan dag ? Engar auðvitað.

Einnig eitt merkilegt, að svo virðist sem reglur hafi verið settar stuttu áður um að yfirsjórn slíkra æfinga væri í höndum Dick Chenney sem jafnframt öðlaðist með því yfirstjórn NORAD.
JFK var geimvera
QUOTE(Gabbler @ Nov 14 2007, 13:41) [snapback]1216503[/snapback]
Virðist vera sama sorpið og hinar tvær.

I would be the first to admit that our film definitely contained errors, it still does contain some dubious claims, and it does come to some conclusions that are not 100% backed up by the facts.
Dylan Avery um Loose Change 2nd edition.

Þú virðist ekki skilja tilganginn með þessari mynd. Dylan er að fara fram á nýja rannsókn eins og kemur fram í byrjun og enda myndarinnar og veltir fyrir sér ýmsum atriðum í opinberu kenningunni sem virðist ekki vera heil brú í. Það er ekki sanngjarnt að gera þær kröfur til Dylans að hann rekji bara atburðarásina nákvæmlega eins og hún var. Hann er aðeins að benda á það sem stenst ekki og krefjast nýrrar rannsóknar. Ert þú á móti nýrri rannsókn Gabbler?
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 14 2007, 19:57) [snapback]1216598[/snapback]
Þú virðist ekki skilja tilganginn með þessari mynd.
Tilgangur myndarinnar er auðskiljanlegur, þetta snýst um peninga... ekkert annað.

QUOTE
Ert þú á móti nýrri rannsókn Gabbler?
Nei, ég er ekki á móti nýrri rannsókn. Ég hef sagt það mjög oft að það þarf að rannsaka þessi mál enn betur en þegar hefur verið gert. Þessi aðferð sem samsærissmiðirnir sem standa að Loose Change nota er einungis til að minnka enn líkurnar á því að þetta verði nokkurntíman rannsakað.

Það tekur örfáar mínútur á google, ásamt smá skynsemi, til að finna út að stærsti hlutinn af þessu sem þeir eru að segja í myndinni er tómt kjaftæði, og þegar þeir bera fram svona kjaftæði í fólk þá einfaldlega afskrifar fólk kenningarnar eins og þær leggja sig.

Lygarnar, og samsærið, varðandi Írakstríðið og hörmungarnar sem komu í kjölfarið drukkna einfaldlega í kjaftæðis samsæriskenningum sem ekki nokkur maður trúir. Og það sem verra er, það er engin leið að trúa öllum kenningunum því þær eru flestar í mótsögn við hvor aðra.

Segðu mér JFK, ef það væri gerð ný rannsókn nákvæmlega eins og samsærissmiðirnir vilja og niðurstaða rannsóknarinnar væri sú að byggingarnar voru EKKI sprengdar niður og það hafi í raun og veru verið flugvél sem flaug á Pentagon og að flug 93 hafi í raun og veru bara hrapað eins og sagan segir, værir þú þá tilbúinn til að afskrifa þessar kenningar?

99% af þessu samsærisliði liti á þannig rannsókn með þessari niðurstöðu sem sönnun á því að samsærið væri enn stærra en áður var talið. Með öðrum orðum, það er ekki til það sönnunargagn sem fær þessa menn til að skipta um skoðun.

Á meðan mannkynið hlær að samsærissmiðunum þá komast stjórnvöld í USA upp með að hafa logið upp á okkur stríð, ásamt því (kannski, hef ekki séð fullnægjandi sönnun fyrir því) að hafa litið undan þegar hryðjuverkin 9/11 voru framkvæmd... en að þeir hafi sprengt niður WTC og Pentagon, nei...
JFK var geimvera
Veit nú ekki alveg hverig ég á að svara þér. Þvílíkir eru útúrsnúningarnir. Þú segist ekki einu sinni hafa fullnægjandi sannanir fyrir því að þeir hafi vitað af þessu fyrirfram. Ráðlegg þér að sjá "press for truth" sem er um einmitt það en ekki minnst á að sprengjur hafi verið í turnunum sem þú ert svo ofurviðkvæmur fyrir.

Ps. ég segist alls ekki vera viss um að turnarnir hafi verið sprengdir en það bendir margt til þess og nauðsynlegt er að rannsaka það. Þessi svokallaða "rannsókn" 911 commission var ekki rannsókn fyrir fimmaur. Hún hefði átt að fá 100 sinnum meiri fjárveitingu og í byrjun var henni stjórnað af Henry Kissinger og einhverjum öðrum fasista úr the council on foreign relations. Ef þú ert sáttur við þessa "rannsókn" ertu ófær um gagnrýna og sjálfstæða hugsun.
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 14 2007, 22:46) [snapback]1216642[/snapback]
Ráðlegg þér að sjá "press for truth" sem er um einmitt það en ekki minnst á að sprengjur hafi verið í turnunum sem þú ert svo ofurviðkvæmur fyrir.
Hvort er verið að ræða Loose Change eða Press for Truth á þessum þráð?

QUOTE
Ef þú ert sáttur við þessa "rannsókn" ertu ófær um gagnrýna og sjálfstæða hugsun.
Ert þú ekki almennilega læs?

Sástu ekki að ég er fylgjandi því að þessi mál verði rannsökuð aftur? Reyndu að halda strámönnum og útúrsnúningum í lágmarki takk.
JFK var geimvera
Rosalega er leiðinlegt að ræða við þig. Þú talaðir um að þeir sem gleyptu ekki við opinberu kenningunni yrðu aldrei sáttir með nýja rannsókn ef hún kæmist að þeirri niðurstöðu að ekkert væri athugavert við 911. Látum nú reyna á það. Óþarfi að gefa sér þð fyrirfram. Þér finnst kenningar Dylans villa um fyrir fólki og hindra það að sannleikurinn komi í ljós. Þar er ég ekki sammála þér því ég held þetta fái marga til að hugsa.

Eitt sem pirrar mig oft í þínum málflutningi er að þú berð of mikið traust til bandarískra sjórnvalda. Þú verður að hafa söguna til hliðsjónar því Þetta lið í Washington kann að ljúga. Ég tek því sem gefnu að stjórnvöld séu að ljúga þegar nöfn eru þurrkuð út úr skýrslum af engri ástæðu, neita að sýna gögn eins og videoupptökur og menn neita staðreyndum eins og í sambandi við millifærslur og heimsóknir yfirmann ISI til Washington sem kom fram í Press for truth. Þú gerir það hinns vegar ekki Gabbler, og vilt eitthvað meira sem ég skil ekki. Fyrirgefðu að skuli hafa minnst á press for truth. Gerist ekki aftur.
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 14 2007, 23:23) [snapback]1216676[/snapback]
Rosalega er leiðinlegt að ræða við þig.
Já ég get vel ímyndað mér að það sé leiðinlegt.

QUOTE
Þú talaðir um að þeir sem gleyptu ekki við opinberu kenningunni yrðu aldrei sáttir með nýja rannsókn ef hún kæmist að þeirri niðurstöðu að ekkert væri athugavert við 911. Látum nú reyna á það.
Sammála, látum reyna á það.

Það var fáránlega lágri upphæð eytt í rannsóknir á þessu máli. Ég vil sérstaklega að það sé eytt miklum tíma í að rannsaka nákvæmlega hvernig byggingarnar hrundu, og ástæðan er sú að það tengist mínu fagi beint. Svo ætti að skoða vel aðdraganda 9/11 og svo ætti að sjálfsögðu að rannsaka vel hvernig hægt var að ljúga uppá okkur tvö stríð uppúr þessum atburðum. Við íslendingar ættum sérstaklega að láta skoða þátt Davíðs og Halldórs í þeim atburðum. Ég sé jafnvel fyrir mér að íslendingar verði látnir borga stríðsskaðabætur til Íraks, eftir að stríðið er algjörlega tapað. En það er önnur saga.

QUOTE
Þér finnst kenningar Dylans villa um fyrir fólki og hindra það að sannleikurinn komi í ljós. Þar er ég ekki sammála þér því ég held þetta fái marga til að hugsa.
Ef það er einhver sannleikur í þessum þremur sannleiksmyndum (sannleikurinn er uppfærður reglulega), þá drukknar hann algjörlega í kjaftæðinu. Þeir félagar vita alveg hvað þeir eru að gera, þeir eru í þessu til að ná sér í pening og þeir vita að myndin selst ekki nema hún sé nógu krassandi. Á sama tíma eyðileggja þeir fyrir okkur hinum sem viljum að sannleikurinn um þessi mál komi í ljós, þeir smyrja svo miklu bulli utaná alvöru samsærið, að ekki nokkur maður getur tekið þessu alvarlega.

QUOTE
Eitt sem pirrar mig oft í þínum málflutningi er að þú berð of mikið traust til bandarískra sjórnvalda.
LOL.gif

Ertu að gera grín að mér?
JFK var geimvera
QUOTE(Gabbler @ Nov 14 2007, 22:39) [snapback]1216698[/snapback]
Ef það er einhver sannleikur í þessum þremur sannleiksmyndum (sannleikurinn er uppfærður reglulega), þá drukknar hann algjörlega í kjaftæðinu.

Hvað meinaru með að sannleikurinn sé uppfærður reglulega? Ertu að meina að enginn megi hafa neitt við opinberu kenninguna að athuga nema hann komi með allan sannleikan í öllum smáatriðum eins og hann leggur sig? Þú talar alltaf eins og ef maður viti ekki nákvæmlega hvað sé á bakvið allt eigi maður bara að þegja. Þá sé maður samsæriskenningasmiður í engum tengslum við raunveruleikann. Skil þetta ekki.
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 15 2007, 0:11) [snapback]1216737[/snapback]
Hvað meinaru með að sannleikurinn sé uppfærður reglulega? Ertu að meina að enginn megi hafa neitt við opinberu kenninguna að athuga nema hann komi með allan sannleikan í öllum smáatriðum eins og hann leggur sig?
Fyrst kom mynd númer 1, hún innihélt sannleikann. Svo var sannleikurinn uppfærður í mynd 2, og svo aftur í mynd 3.

Það er bara fyndið hvernig sannleikurinn breytist með tímanum. Ég var kallaður öllum illum nöfnum fyrir nokkrum misserum fyrir að benda á villur í Loose Change eitt, tveir hörðustu samsærissmiðirnir hættu einfaldlega að ræða málin við mig því ég var svo ósvífinn að benda á villur í þessum myndum (svona er nú sannleiksástin hjá samsærissmiðum).

QUOTE
Þú talar alltaf eins og ef maður viti ekki nákvæmlega hvað sé á bakvið allt eigi maður bara að þegja. Þá sé maður samsæriskenningasmiður í engum tengslum við raunveruleikann. Skil þetta ekki.
Neinei það er ekki það sem ég vil, auðvitað eiga menn að spekúlera að spjalla um málin. Hvernig ættum við annars að finna út hvað raunvörulega gerðist þennan dag?

Það sem ég er algjörlega á móti er þegar menn, eins og Loose Change strákarnir, klippa til viðtöl og segja bara hálfa söguna til að styðja sínar eigin fyrirfram ákveðnu niðurstöður. Það er óheiðarlegt, og svo lepja menn eins og Brodd Helgi þetta upp og halda að þarna sé Sannleikurinn™ (V 3.0) kominn.

[spoiler]ps, vittu til... eftir örfáar mínútur kemur Brodd Helgi með innlegg þar sem hann tekur undir allt sem þú segir og ignorar það sem ég hef sagt.[/spoiler]
Brodd-Helgi
JFK, málið er að til er fólk sem trúir ÖLLU sem US maskínan matreiðir ofaní þá. Og ef einhver kokgleypir ekki delluna frá a-ö... nú, þá eru menn snöggir að rísa uppá afturfæturna... eins og menn geta séð ef þeir fletta 9/11 þráðunum.

En þetta er svo sem alþekkt.

En með Press for Truth, þá minnir LC.FC að sumu leiti á hana, allaveganna er hún undir sterkum áhrifum frá henni.

Td. er ég ánægður með að þeir eyddu svo miklum tíma í ISI tengslin í nýju myndinni. þau eru þess eðlis að afar erfitt er að ignora þau í pólitísku ljósi 9/11. Samt sem áður hafa etv ekki svo margir heyrt á þau minnst.

Það er svo merkilegt við 9/11 að hvert atriðið af öðru hefur litið ljós sem að öllu jöfnu ætti að kveikja viðvörunarljós hjá 97% fólks... en samt er eins og 40-50 % sé bara alveg sama um þó opinbera saga US haldi engu vatni uppúr, niðrúr eða útá hlið.

Gabbler
tongue.gif
JFK var geimvera
Það eina sem tekist hefur að gagnrýna í 2nd edition er einhver ruglingur með vélina sem átti að hafa lent í Cleveland. Sá þetta í mynd frá BBC sem ég man ekki alveg hvað heitir en það er hægt að finna hana á alluc.org. Það er eina skiptið sem ég hef séð góða gagnrýni á staðreyndir í myndunum. Reyndar var öll önnur gagnrýni í myndinni prump en endirinn á henni er ágætur. Það virðist semsagt vera mjög erfitt að rengja loose change fyrst BBC gat aðeins bent á eitt atriði (sem þó er ekki sönnun). Þetta tiltekna atriði er ekki í final cut.
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 15 2007, 0:56) [snapback]1216768[/snapback]
Það eina sem tekist hefur að gagnrýna í 2nd edition er einhver ruglingur með vélina sem átti að hafa lent í Cleveland.
Æ veistu það er svo mikið af kjaftæði í þessari mynd að ég bara veit ekki hvar ég á að byrja.

Það getur vel verið að ég taki þessa mynd lið fyrir lið einhverntíman, en það verður ekki í nótt. Skoða þetta betur um helgina ef ég hef tíma... á víst að vera að fjölga mér um helgina, óvíst að ég finni smugu hehe.
JFK var geimvera
Endilega skjóttu hana niður ef þú getur og hefur tíma... og til hamingju með fjölgunina.
Brodd-Helgi
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 14 2007, 23:56) [snapback]1216768[/snapback]
Það eina sem tekist hefur að gagnrýna í 2nd edition er einhver ruglingur með vélina sem átti að hafa lent í Cleveland. Sá þetta í mynd frá BBC sem ég man ekki alveg hvað heitir en það er hægt að finna hana á alluc.org. Það er eina skiptið sem ég hef séð góða gagnrýni á staðreyndir í myndunum. Reyndar var öll önnur gagnrýni í myndinni prump en endirinn á henni er ágætur. Það virðist semsagt vera mjög erfitt að rengja loose change fyrst BBC gat aðeins bent á eitt atriði (sem þó er ekki sönnun). Þetta tiltekna atriði er ekki í final cut.

Já, það er nefnilega alveg rétt. Það er ekkert svo margt í 2.edition sem er hægt að gagnrýna.

Það sem mér fannst vel gert í 2nd var, hve þeir náðu vel að fanga "the big picture" Það er ekkert auðvelt í flóknu máli eins og 9/11.

En LC FC er bara með dáldið önnur markmið í huga en fyrri myndir (að mínu áliti)

Annars er ég persónulega miklu meiri maður "orðsins" en "myndarinnar" Td. eru sumir sem virðast trúa því í fullri alvöru, að þeir sem stóðu að LC hafi fundið upp að 9/11 var inside job. Auðvitað fjarri sanni. Það var nefnilega ótrúlega snemma sem búið var að sjá í gegnum aðalatriðin í US sögunni um 9/11 og birta á prenti. Þeir byggðu meir og minna á annara verkum, en tókst samt að setja saman á eftirtektarverðan hátt í eina mynd (og fyrir það eiga þeir auðvitað hrós skilið)

En td. segi ég fyrir mig persónulega, að mér finnst nýja myndin kannski ekki ganga nógu langt í að benda á lygina (þó eins og ég hef sagt, hafi alveg skilning á því, þar sem markmiðið er að vekja fólk... þá er kannski ekki gott að gera það of harkalega o.s.frv... menn geta farið í baklás ef menn vakna upp með andfælum.)

Ég td. tel að opinbera sagan sé meira og minna lygi frá a-ö. Ég efast um að það hafi verið nokkrir raunverulegir flugræningjar, og jafnvel efast ég um að risa farþegaþotur hafi flogið inní turnana. Ég efast stórlega um það. (svona er ég nú langt leiddur smile.gif )
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 15 2007, 1:14) [snapback]1216775[/snapback]
Endilega skjóttu hana niður ef þú getur og hefur tíma... og til hamingju með fjölgunina.
Takk fyrir.

Mér sýnist bara þessi mynd ætla að verða eitthvað flopp, allavega virðast margir samsærissmiðir vera óhressir með hana. Ef hún fær enga athygli þá nenni ég ekki að taka hana fyrir, en ef þetta verður einhver "biblía" samsærissinna, þá geri ég það (stefnir ekki í það).

Það væri hinsvegar gaman að taka fyrir nokkur stærstu atriðin í myndinni, sérstaklega þar sem þeir klippa til texta og viðtöl til að sanna mál sitt.

kv
JFK var geimvera
Það verður gaman að sjá hvort þú getir fundið dæmi um útúrsnúninga og misnotkun á viðtölum í myndinni. Hef ekki séð dæmi um það í hinum myndunum og mér finnst þetta skot út í loftið hjá þér.
Brodd-Helgi
Það er nú samt umhugsunarvert hve margir af þeim sem ævintýravitleysan frá US rann hvað auðveldast ofaní, þjást jafnframt illilega af islamophobiu.
JFK var geimvera
QUOTE(Brodd-Helgi @ Nov 15 2007, 20:44) [snapback]1216942[/snapback]
Það er nú samt umhugsunarvert hve margir af þeim sem ævintýravitleysan frá US rann hvað auðveldast ofaní, þjást jafnframt illilega af islamophobiu.

hehe já samanber www.hrydjuverk.blog.is hvernig er hægt að vera svona mikill kálhaus. Ég var eitthvað að reyna að koma vitinu fyrir hann en það er vonlaust. Hann hefur meira að segja eytt flestum aths mínum. Þetta viðhorf fer vaxandi á Íslandi sem ég botna ekkert í.
Gabbler
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 15 2007, 22:14) [snapback]1216958[/snapback]
hehe já samanber www.hrydjuverk.blog.is hvernig er hægt að vera svona mikill kálhaus. Ég var eitthvað að reyna að koma vitinu fyrir hann en það er vonlaust. Hann hefur meira að segja eytt flestum aths mínum. Þetta viðhorf fer vaxandi á Íslandi sem ég botna ekkert í.
Þessi Skúli er spes, hef einnig reynt að ræða við hann en það gengur illa.
Brodd-Helgi
QUOTE(JFK var geimvera @ Nov 15 2007, 21:14) [snapback]1216958[/snapback]
hehe já samanber www.hrydjuverk.blog.is hvernig er hægt að vera svona mikill kálhaus. Ég var eitthvað að reyna að koma vitinu fyrir hann en það er vonlaust. Hann hefur meira að segja eytt flestum aths mínum. Þetta viðhorf fer vaxandi á Íslandi sem ég botna ekkert í.

Já, það er skuggalegt. En málið er að sumt fólk er alveg æst í að trúa opinbera ævintýrinu því það passar við rasisma þeirra. Þessvegna er opinbera kenningin með sterku trúarlegu ívafi, td. að "ofstrúarmúslímar" geti á einhvern yfirnáttúrulegan hátt magnað upp eiginleika elds, þannig að hann brenni miklu heitar en almennt þekkist ! Og einnig, að ef "ofsatrúarmúslími" ætli að fremja sjálfsmorð, þá ölist hann yfirnáttúrulega flugmannshæfileika !! Þessu trúa sumir.

Td. er bara stigsmunur en ekki eðlis á hryðjuverk. blogginu og sumum sem í fleiri fleiri ár hafa verið að baxa við að verja botnlausa ævintýradellu.

En mér finnst að rasismi gagnvart múslimum (og reyndar útlendingum almennt) fari vaxandi. Nú er td. að koma út bók á íslandi...sumir halda varla vatni af spenningi
Brodd-Helgi
LC Uk Press Conference

Speakers were: Emily Buchanan, World Affairs correspondent for the BBC, and is the presenter of Head to Head, BBC News 24’s debate programme; Gordon Ross, the mechanical engineer featured in LCFC; Tim Sparke, our international representation
Brodd-Helgi
Já, nú virðist hún haldast á google video.google.com/videoplay?docid=-2035108967536002048&q=loose+change+final+cut

Ég var að horfa á hana aftur og í heildina er hún mjög góð. Sínir á óyggjandi hátt að opinbera sagan stenst ekki og svör hafa ekki fengist við grundvallaratriðum, td kemur vel fram hverskonar djók 9/11 nefndin var.

Myndin gengur ekki langt í að benda á lygina en samt sem áður etv alveg nógu langt. Kannski má segja að hún sé hugsuð sem 1. stigið inní ævintýraheim opinberu goðsagnarinnar.

Að vísu, eins og ég hef sagt áður, er ég ekki sáttur við hvernig haldið er á Pentagondæminu.
drCronex
QUOTE(Gabbler @ Nov 15 2007, 0:06) [snapback]1216772[/snapback]
Æ veistu það er svo mikið af kjaftæði í þessari mynd að ég bara veit ekki hvar ég á að byrja.

Það getur vel verið að ég taki þessa mynd lið fyrir lið einhverntíman, en það verður ekki í nótt. Skoða þetta betur um helgina ef ég hef tíma... á víst að vera að fjölga mér um helgina, óvíst að ég finni smugu hehe.

Þetta er svona setning sem er lýsandi fyrir 99,9% af þessum "sönnunargögnum" sem bombistarnir eru að skrapa. Ég nenni ekki orðið að skoða mikið af þessu, alltaf undrunarsvipur á andliti manns: "Að fólk skuli trúa þessu!"

Eitt skal ég þó segja að það er gaman að þessu bulli. Ég hef þekkt fólk sem trúir staðfast á fljúgandi furðuhluti pg fór reglulega til Florida til að skoða "sightings" held það hafi verið nálægt flugvellinum í Miami. Þetta fólk átti bókaHILLU fulla af bókum um UFO´s, Roswell ofl. Ég las það allt án þess að trúa einasta orði. Alltaf einstaklega gaman af þegar fólk er með trúna festa á hlutum eins og að það megi ekki kveikja á ljósaperum á Laugardögum eða ekki fljúga á 17. degi mánaðar. Sumt af þessu fólki losar ljósaperuna í ísskápnum á föstudagsmorgnum. Og að fólk er að halda fram sprengjum í WTC. Alveg stórmerkilegt verð ég að segja. Mannskepnan er stórfurðuleg. Segi ég og horfi í spegil. Kannski þarf ég að raka mig?
rolleyes.gif
Brodd-Helgi
QUOTE(drCronex @ Dec 11 2007, 5:11) [snapback]1228031[/snapback]
Þetta er svona setning sem er lýsandi fyrir 99,9% af þessum "sönnunargögnum" sem bombistarnir eru að skrapa. Ég nenni ekki orðið að skoða mikið af þessu, alltaf undrunarsvipur á andliti manns: "Að fólk skuli trúa þessu!"
...

Sprengjurnar í wtc er bara einn hlutinn í Final Cut. Aðrir hlutar fjalla um ISI tengslin, Able Danger, War geimin 9/11, viðbrögð hersins, ruglið með 9/11 nefndina etc etc.
This is a "lo-fi" version of our main content. To view the full version with more information, formatting and images, please click here.
Invision Power Board © 2001-2009 Invision Power Services, Inc.