23. April, 2006, 10:14
Post
#1
|
|
![]() Talblaðra ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 22546 Joined: 30. June 2003 From: Iceland Member No.: 21 |
Sælir Málverjar
Er búinn að sofa á þessu.. vaknaði með lausnina, við verðum ríkir! Undanfarið hafa nokkrir snillingar sagt mér frá því að ekkert mál sé að taka upp Evru einhliða. Við jú, þyrftum "kannski" að kaupa 14 miljarða í Evru-seðlum og mynt, en þar fyrir utan.. nanó! Ok.. þetta opnar möguleika. Við tökum upp Evru einhliða. Tökum 14 miljarða lán og kaupum Evrur. Næst, búum við til þenslu. Byrjum á því að setja verðmiða á alla vegi Íslands, fjöll, læki, sprænur, ár, jökla, fossa, hveri, náttúruperlur, jafnvel ýmsan afmarkaðan rétt, eins og örbygljutíðni, mengunarkvóta, rétt til ferðalaga osfv. osfv. osfv. af nógu er að taka. Næsta skref er að gefa völdum íslendingum þessar eignir, nú eða bara að búa til lottó og draga úr. Virði þessara eigna er að sjálfsögðu gríðarlegt, margfaldar þjóðartekjur okkar og bankarnir fengu að taka veð í þessum "nýju" eignum okkar. Næsta mál er margfalda þessa peninga, en þá er ekki verra að fá ungu nýútskrifuðu strákguttana sem halda að þeir viti allt og geti allt, til þess að selja og kaupa þessa hluti (verðið mundi margfaldast á milli daga, "Not a penny more or penny less") Því sem næst eru það bankarnir. En þeim yrði það strax ljóst, að eftir því sem þeir lánuðu meira út, því meir fengu þeir á innlánsreikninga sína og hærri vaxtatekjur, og þar sem þeir þurfa ekki erlendar lántökur lengur (við tókum nefnilega Evru upp einhliða) þá skiptir útgáfa lána út á hin nýju veð, ekki nokkru máli. Ok.. prentvélin komin í gang. Umhendis verða hinir heppnu lottóaðilar marg miljarðamæringar í Evrum, þeirra auður mun valda umhendis þenslu, þeir munu t.a.m. kaupa húseignir og fyrirtæki á margföldu því verði sem almenningur hefði getu á að kaupa og þess vegna verður eftirspurn eftir fyrirtækjum og góðu húsnæði gríðarleg og víxlhækkun á þessum eignum ætti sér stað. Víxlverkun sem í raun þarf hvergi að stoppa, enda sjá verðbréfaguttarnir um að við græðum, græðum og græðum bara meira. Peningar verða afstæðir og verðbólga skiptir okkur sko ekki nokkru máli, við tókum nefnilega Evru upp einhliða. Nú.. eftir nokkur ár, þá kostar venjulegt hús á Íslandi 40-50 miljónir Evra, fyrirtæki einhverja miljarða Evra osfv. osfv. Þá hefjum við útrás. Allt þetta fjall af Evrum þarf að finna sér annan farveg, enda ódýrasta hús á Íslandi 400 fm Villa í eigu ræstitæknis. Við byrjum á því að kaupa upp öll fyrirtæki í EMU löndunum, barnaleikur enda lægstu árslaun á Íslandi 10 miljónir Evra, verðbréfaguttarnir hafa 200 miljónir Evra osfv. Góðæri sem aldrei fyrr og þetta svínvirkar, eða er það ekki?! -------------------- Kveðja Feu
Funheitur að vanda og munið.. "brenndur málverji forðast Feu" |
|
|
|
feu Hið nýja hagkerfi 23. April, 2006, 10:14
Boglína Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá... 23. April, 2006, 15:01
feu Mér sýnist nú bara á öllu að eina tröllið sem vaði... 23. April, 2006, 15:46
Boglína QUOTE (feu @ Apr 23 2006, 10:14) Sælir Má... 23. April, 2006, 17:09
feu Er Haukur og Bogna Línan sami Málverjinn????
Hv... 23. April, 2006, 17:28
krókur Haukur hefði aldrei komið með svona samlíkingu. 23. April, 2006, 21:52
feu QUOTE (krókur @ Apr 23 2006, 21:52) Hauku... 24. April, 2006, 0:03
feu Kannski Málverjar skilji svona innlegg betur í dag... 28. July, 2008, 13:16
Hildibrandur Það er búið að gera þetta við fiskinn í sjónum, og... 28. July, 2008, 14:50
feu QUOTE (Hildibrandur @ Jul 28 2008, 14:50)... 28. July, 2008, 14:52![]() ![]() |
| Lo-Fi Version | Time is now: 30. July, 2010, 6:16 |